Better Call Saul

Better Call Saul

Icelandic സബ്ടൈറ്റിൽ ഡൗൺലോഡ് ചെയ്യുക

സീസൺ 6

റിലീസ് വിവരങ്ങൾ

Better Call Saul S06E01 720p AMZN WEBRip x264-GalaxyTV
കമന്ററി എഴുതിയത് chargephoton88

ടാഗുകൾ

webdl
പ്രസിദ്ധീകരിച്ചത്: 2026-08-21
ഡൗൺലോഡുകൾ: 0
ശ്രവണ വൈകല്യമുള്ളവർക്ക്: No
FPS: 23.976

Icelandic സബ്ടൈറ്റിൽ പ്രിവ്യൂ

ആദ്യത്തെ 200 വരികൾ.

Inni. Inni í eldhúsi.

Já.

Hvar ertu?

Veit það ekki.

Ég hef bara farið...

farið í norðurátt í um tvo tíma.

Fór yfir á fyrir um klukkutíma.

Sá einhver þig?

Nei.

Haltu því þannig.

Þú ert á svæði Salamanca.

Allir munu leita þín.

Og ég meina allir.

Einnig Federales.

Er það búið?

Já. Hann er dauður.

Það var eitthvað...

venjulegt fólk...

í húsinu, gamalt fólk.

Hvað um það?

Ég veit ekkert um það.

Taktu batteríið úr símanum eftir samtalið.

Farðu í norðurátt, láttu ekki sjá þig.

Ég finn þér dvalarstað.

Eftir klukkutíma seturðu batteríið í og ég hringi og segi hvert þú átt að fara.

Don Eduardo!

Er allt í lagi?

Slys. Leitt að trufla þig.

Má ég koma inn? - Auðvitað!

Sykur, mjólk?

Óþarft. Takk.

Ljúffengt!

Hvað er að?

Don Eduardo er hér!

Don Eduardo.

Svo gott að sjá þig!

Ég myndi heilsa þér en... - Sjá þig! Fjallamaður!

Þú lítur út eins og ZZ Top!

ZZ...

Þrífðu þig fyrir Don Eduardo! Þvoðu þér!

Auðvitað!

Fyrirgefðu, Don Eduardo!

Farðu!

Heyrðu, Mateo.

Haltu yfirvaraskegginu og hökutoppnum.

Já, Don Eduardo.

Viltu ekki morgunmat?

Eggin eru frá því í morgun.

Hvernig eru tennur Mateo? Betri?

Já! Tannlæknirinn þinn vann svo vel!

Matti vakti allar nætur vegna sársauka.

Nú sefur hann eins og barn. Þökk sé þér, Don Eduardo.

Það er gott, Sylvia.

Og geiturnar?

Frá heimabæ þínum? Sakna þær ekki fjallanna?

Þær eru fínar. Við eigum von á tveimur í viðbót í næsta mánuði.

Baðstu um fleiri?

Nei.

Cabritos. Kiðlingar.

Þú ert næstum búinn. Ég laga meira. Ertu viss um morgunmatinn?

Bara kaffi er fínt.

Er það í lagi?

Mjög myndarlegur.

Hæ. - Hæ.

Hvað er á dagskránni?

Ég fékk 20 nýja skjólstæðinga frá Grant svo...

Tuttugu? - Já.

Á fundi með fjórum þeirra í dag

og áheyrn með Flaherty þegar opnar.

Unglinga.

En þú?

Það sama.

Risa dagur.

Já, móðir þín og amma.

Ef þær gætu fengið frí í vinnunni í dag.

Áttu einhverja frændur eða...?

Já. Það væri frábært.

Áttu einhver fín föt?

Eins og jakka, eða...

skyrtu? - Heyrðu.

Veistu hvað? Ég kem með eitthvað. Þetta er of fínt.

Nei, ekkert mál.

Ratarðu þangað?

Tijeras og Fimmta. Einmitt. Já.

Jæja. Ég hitti þig kl. 9.30.

Það gengur vel, Ronnie.

Segðu þeim að það gangi vel.

Því það gerir það.

Ókei.

Takk.

Ég skila þeim hreinum.

Árans. Áttu reiðufé fyrir leigubílinn?

Fjandinn, ég á bara fimm dali.

Skiptir leigubíllinn hundrað?

HEIMSINS NÆSTBESTI LÖGMAÐUR AFTUR

Góðan daginn, Don Juan.

Lalo Salamanca er dáinn. Byssumenn brutust inn á býlið hans í gær.

Leigumorðingjar að því er virðist.

Það var ljótt.

Afar ljótt.

Hvað varðar Salamanca-fólkið... - Sangre por sangre.

Já. Það er leið Salamanca.

Við erum á brún ringulreiðu.

En hver gerði það?

Eina stundina heyri ég Kólumbíumenn, hina svikarar.

Svikarar að heiman.

Við vitum þetta: Ignacio Varga er uppljóstrari.

Don Eladio hefur sett fé honum til höfuðs. Allir menn okkar leita hans.

Þegar Varga finnst, vitum við fyrir hvern hann vinnur.

Don Hector veit þetta víst.

Ég hringdi sjálfur.

Hvort hann hafi skilið mig, quién sabe.

Hlustaðu á mig.

Farðu varlega, Gustavo. Þetta eru hættulegir tímar.

Enginn er yfir grun hafinn.

Ég skil.

Gott.

Segðu mér aftur af sicario sem gerði loka skýrsluna.

Hann var særður þegar hann ræddi við okkar mann. Federales fann hann látinn.

En þeir náðu Salamanca.

Málaliðarnir eru dauðir.

Allir þeirra.

En samt tókst verkefni þeirra.

Það hefur gerst.

Ég get farið og sótt Varga, komið honum öruggum heim.

Það er hægt að gera það hljóðlega.

Nema þú vinnir þegar að einhverju.

Segðu þína skoðun.

Tryggð á við báða aðila.

Varga gerði allt sem þú baðst hann.

Hann átti ekkert val.

Kannski ekki, en hann lék erfiðan leik.

Og lék hann snilldarlega.

Og?

Þegar til alls er litið

á strákurinn virðingu þína skilið.

Hann hefur hana.

Viltu segja meira?

Vonandi færir þetta þínum manni meiri heppni en mér.

Ertu góður?

Frábær.

Fulltrúi. Fröken Khalil.

Góðan daginn. -Ég hef hringt í þig í tvo daga.

Stelpan mín er veik.

Hvernig get ég aðstoðað? -Á morgun kl. 10.

Dögurður? Bara við tvö, ekki satt?

Líður þeim stóra ekki eins og varadekki?

Við hittum Parson á skrifstofunni.

Ég bið um neyðaráheyrn til að breyta skilyrðum þess að De Guzman verði sleppt.

Hljómar vel.

Því miður er ég bókaður. -Ég skoðaði heimili skjólstæðings þíns.

Heimilisfangið? Það er ísbúð í Alta Monte.

Fjölskyldan sem kom á tryggingaáheyrnina finnst ekki.

Engin ökuskírteini, skattagögn, skólagögn. Ekkert.

Það er ekki ein Elizabeth McKinnon

undir 73 ára aldri sem býr í Nýju Mexíkó.

Jæja, þetta...

Þetta kemur á óvart.

Hann er horfinn. Ég bíð ekki í sex vikur eftir að leita hans.

Minn maður greiddi sjö milljónir í tryggingu.

Heldurðu að hann yfirgefi þær?

Hver borgar sjö milljónir í reiðufé?

Veistu hvað ég held?

Þetta var plat fjölskylda

og ég held þú hafir vitað það.

Bíddu, tölum nú saman í alvöru.

Áheyrnin gekk þér ekki í hag, nú viltu annan séns.

Segirðu hann hafa flúið? Hann hefur 7 milljón ástæður til að mæta

þegar hann þarf þess lagalega.

Svo nei, ég læt ekki þvinga mig í samræður

á skyndifundi með Parson.

Og reynirðu þetta rugl við dómarann án mín,

er ásökun fyrir þig: misferli saksóknara.

Ferilendandi misferli saksóknara.

Það breytir ekki því að hann var ekki sá sem hann sagði.

Nei, bíddu. Þið náðust með buxurnar niðrum ykkur

og kennið mér um?

Það held ég ekki. Þið hafið tvær tylftir lögmanna.

Þið hafið rannsóknarfólk og lögguna,

og það er mín sök að þið fylgist ekki með Lalo?

Lalo?

Hver er Lalo?

Hvað? Hvað sagði ég?

De Guzman, meinti ég. Ég hef fleiri skjólstæðinga.

Ég sé þig í frumflutningi málsins eftir sex vikur

eins og skipulagt var.

Þar til þurfa skjólstæðingar mínir mig.

VEITINGASTAÐUR

Flott föt.

Takk.

Hæ. - Hæ.

Hvernig gekk?

Jakkafötin hjálpuðu.

Krakkinn er á lokaári í gagnfræðaskóla,

góðar einkunnir, hefur tvö störf,

á svokallaðan... vin,

einhver snobbhani sem ekur splunkunýjum Mustang blæjubíl.

Eitt laugardagskvöld segir Richie Rich: „Viltu keyra?“

Hann stóðst ekki mátið.

Vinurinn biður hann að stoppa við vínbúðina.

More Icelandic subtitles for Better Call Saul

അഭിപ്രായങ്ങൾ

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left