The Whistleblower

The Whistleblower

Download Icelandic Subtitle

Release info

The Whistleblower (2010) 720p BrRip x264 YIFY íslenska
A Commentary by keejee

Tags

brrip
x264
720p
720
Published on: 2018-04-28
Downloads: 32
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Kyiv, Úkranía árið 1999

Ég þarf að komast heim, mamma kálar mér.

Nei. Þú verður hjá mér í nótt.

Roman bað okkur að mæta klukkan níu í fyrramálið.

Raya, við höfum rætt þetta.

- Þetta er nokkra mánaða vinna á hóteli. - Já, en..

Viltu vera í skítavinnu eins og hún mamma þín?

Hann bað um okkur báðar.

Nei.

Fjandinn hirði mömmu þína!

- Fyrirgefðu.. - Klukkan er orðin hálftvö.

Þú skilur þetta ekki, Luba vildi að ég..

Búðu hjá henni, mamma hennar gefur henni lausan tauminn.

Þú ert útskrifuð, fullorðin manneskja.

Gerðu það sem þér sýnist.

Brostu.

Hvað ætlarðu svo að segja við landamærin?

- Ég..heiti Natalya.. - Natalya Verbova.

Og er að kaupa teppi til endursölu í Búdapest.

- Raya. - Hæ.

Ég er að vinna hérna.

Út með þig.

Þú ert aldeilis á hraðferð. Kviknaði í?

Afsakaðu.

Hæ, Mare.

- Flutningurinn kominn í gegn? - Nei.

- Þú finnur eitthvað. - Já.

Hæ, strákar.

Farið nú inn að hjálpa mömmu ykkar.

Marie bað mig að koma með þetta. Er Erin hérna?

- Gaman að sjá þig sömuleiðis. - Einmitt.

Þú getur ekki kennt mér um þetta, ég varaði þig við.

Það er ekki mín sök að þú sért gift starfinu.

Varaðir mig við? Þetta var mjög óvænt!

Við ræðum þetta ekki svo Erin heyri. Hvar er hún? Erin?

Og ég er ekki gift starfinu, mér þykir vænt um mitt starf.

Það þýðir þó ekki að ég sé slæm móðir.

Dómarinn leit öðruvísi á málið.

Takk fyrir að minna mig á það, Kyle.

Ég bauð þér að koma með til Dalton.

Já, það er mér svo auðvelt. Ég þarf bara að greiða upp lánið

og fá mig flutta til. Ekkert mál.

Hæ, elskan. Hvað segirðu þá? Komdu hingað.

- Þetta er brothætt! - Hvernig átti ég að vita það?

Hvernig gengur, Marie? Ég kom með útilegudótið.

- Þakka þér fyrir. - Merktu bara kassana.

- Ég er hrædd við Marie. - Ég skal segja þér leyndarmál.

Ég er líka hrædd við hana. Ekki segja neinum.

- Er allt í lagi? - Já.

Segðu mér sannleikann.

Hvenær kemurðu?

Ég á í erfiðleikum með að fá mig tilflutta.

Það gæti tekið tíma, en það tekst að lokum.

En það hlýtur að vera eitthvað laust.

Ég hef reynslu, tók auka námskeið í vettvangsrannsóknum.

Það er ekki málið, Kathy. Þetta er bara staðan í dag.

Já, saga lífs míns.

Ég frétti þó af einu starfi

sem mér fannst ekki henta þér því þú vilt vera nærri krökkunum

en launin eru ótrúleg. $100.000 skattfrjálst fyrir 6 mánaða vinnu.

Ha? Er hún lögleg? Hvers konar vinnu?

Samningsaðili ríkisins ræður fólk til friðargæslustarfa í Bosníu.

Í Bosníu..

Sarajevo, Bosnía- Herzegovina

Byssukúlurnar eru í augnhæð.

Þið eruð hingað komin sem leiðarljós,

fulltrúar okkar æðstu vona. Democra hefur ráðið ykkur

sem fulltrúar öryggismála fyrir hönd Bandaríkjanna

og munuð þið fylgjast með og vakta svæðið fyrir Sameinuðu þjóðirnar.

Á næstu mánuðum munuð þið halda uppi lögum og reglum

á þeim stöðum þar sem lögin eru virt að vettugi.

Dayton friðarsamningurinn frá árinu1 995 batt enda á stríðið

og fyrirskipaði að alþjóðleg varðsveit, sem eruð þið,

skal sjá til þess að friður komist á.

Á meðan þjálfun ykkar stendur yfir

munuð þið átta ykkur á því að friður er erfiðari viðureignar en stríð.

Að vonir að morgni séu ásótt af martröðum gærdagsins.

Sem fulltrúar Sameinuðu þjóðana

leggjum við allt undir, jafnvel lífið,

í þeirri trú að hægt sé að endurreisa.

Við verðum að endurnýja

og verða vitni að endurfæðingu þessarar þjóðar.

Þetta á eftir að róast niður.

- Hefurðu verið hér áður? - Þetta er annað skiptið mitt.

- Komstu beint úr lögregluskóla? - Nei, ég er ekki lögga.

Ég starfa hjá hinu opinbera.

Maður þarf bara miðskólamenntun og vera 21 s til að komast inn.

- En af hverju ert þú komin? - Ég frétti að maturinn væri góður.

- Ég hélt að stríðinu væri lokið. - Þeir eru að óvirkja jarðsprengjur.

- Er allt í lagi? - Já.

Ég hef það fínt.

Mér er alvara. Hann gat ekki fært fótinn af sprengjunni í 8 sólarhringa.

Vildi fá borgað aukatíma fyrir næturnar. Það besta er

að farið verður í mál. Hvernig líst þér á það?

Ertu enn að hitta.. Litla manninn?

Kathy, þetta eru Fred og Murray.

Leikur í gangi, strákar. Mikilvæg keppni,

Bandaríkin gegn Hollandi. Drífum okkur.

- Já! - Áfram!

Þú ert jafn lélegur í kúluspili og í fótbolta.

- Hver hefur fundið upp kúluspilið? - Kanntu að spila?

Kann ég að spila? Haltu á þessu.

- Hún fær síðasta skotið. - Síðasta.

- Þú þarft að toga í pinnann. - Hún veit það.

- Skjóttu nú. - Sjáið þetta.

Fjandinn!

Þá fer hún af stað!

Fjárinn! Fyrirgefið þetta, ég skil ekki hvað fór úrskeiðis.

Og hver ætlar ekki að borga drykkina?

- Ég veit ekki hvað gerðist. - Ég þigg viský og..

Ekki nota.. Ekki báða hreifana í einu.

- Hreifana? - Já, þeir kallast hreifar.

Mér var kennt þetta svona.

- Með mann á bakvið þig? - Stelpur.

Svona. Búmm búmm. Kúlan verður að kastast af.

- Og þú færð drátt út á þetta? - Alla vega í Hollandi.

Ég er komin úr æfingu.

Herrar mínir.

Hvar eigum við að skrifa undir til að staðfesta mætingu?

Þú skrifar undir..

Ég held að undirskriftin sé í lok verkefnisins.

Hérna stendur að skylt sé að undirrita í lok..

Þessi samningur er ógildur. Nýi samningurinn.. Láttu hana vera.

Þeir reyna þetta við alla.

Þú innritar þá og þeir stinga af.

Ég heiti McVeigh. Ert þú Kathy? Já.

Velkomin í paradís. Komdu með mér.

Herrar mínir..

Ef þið hafið ekkert betra að gera í dag

þá skuluð þið hefja rannsókn á tveimur hnífstungumálum,

fjórum skotbardögum og litlum manni sem er lærbrotinn

og man varla hvað hann heitir.

Fyrsta málið er hérna. Komið nær.

Kathy? Vilt þú líta á hana?

Illa farin í andliti vegna síendurtekinna barsmíða.

Skurður við augað eftir straujárn.

Stungin í vinstri handlegg með eldhúshnífi.

Svona, ég ætla bara að lyfta grisjunni..

Þetta er allt í lagi.

- Hver á sökina á þessu? - Eiginmaðurinn líklega.

Hver tekur að sér málið og hvert er fyrsta skrefið?

- Ég skal gera það. - Fínt.

Heyrðu, verið rólegir. Hvað sagði hann?

Að konan sé múslimi og átti þetta skilið.

- Þetta er nóg. - Burt með hendurnar.

Þá höldum við áfram að næsta máli.

Allir út.

- Þú líka, Kathy. - Fyrirgefðu. Höldum áfram?"

Hver ætlar að rannsaka málið og hneppa þrjótinn í varðhald?

- Þetta er alvarlegur glæpur. - Leyfðu mér að spyrja þig að einu.

Þekkirðu muninn á Serba, Króata eða Bósníumanni?

Það geri ég. Kynþáttahatur kom stríði af stað í landinu

og þótt ég vildi glaður mega rannsaka þessi mál

þá erum við hér til að halda friðinn. Annað ekki.

Stundum er hluti starfsins að stíga skref afturábak.

Zlata hefur legið á spítala 8 sinnum vegna eiginmanns síns.

Hún er send heim í hvert skipti sem hún leggur fram kvörtun.

Yfirmennmínir hlægja að henni. Hlægja að öllum konum í Bosníu.

Þeir hlógu jafnvel að móður minni.

Og þeir sækja ekki heimilis- ofbeldi til saka.

Þú vildir hjálpa í gær. Sýndu mér hvað á að gera.

Þetta er þá skýrslan frá sjúkrahúsinu.

Þú færð engar lögregluskýrslur.

Þú þarft að rannsaka málið eins og um líkamsárás sé að ræða.

Ef þú ferð á sjúkrahúsið og færð alla þá lækna sem hafa annast hana

til að bera vitni þá áttu kannski möguleika. En þú verður að..

Bera alla áverka saman við önnur mál

þar sem dómstóll hefur dæmt í líkamsárásum.

Ef dómstólar okkar dæma mann sekan vegna hnífstungu á bar

þá ætti sami dómur að gilda um árás á konu á heimili sínu.

Ég hef skoðað málsatvik

og dæmi Alata Sehil í vil.

Sameinuðu þjóðirnar

Skrifstofur mannréttindamála Bosníu og Herzegovina

- Sæl. - Sæl.

Fástu ekki um hann, hann er algjör auli.

Fr. Rees, ef ég hef farið yfir mörkin vegna máls Zlata Sehick..

Kallaðu mig Madeleine.

Þér hefur tekist á tveimur mánuðum

það sem okkur hefur aldrei tekist á fjórum árum. Sestu.

- Má bjóða þér te? - Já, takk.

Viko Mezovic stóð sig frábærlega

en þér tókst að fá dóm vegna heimilisofbeldis, þolanda í vil

í fyrsta sinn síðan stríðinu lauk í Bosníu.

Þetta eru bara hefðbundin, takk, hefðbundin lögreglustörf.

- Mitt starf. - Þú getur ekki ímyndað þér

hvaða áhrif þú hefur haft hérna.

Samstökin eru með fulltrúa á sínum snærum sem sinna kynþáttamálum.

Fulltrúinn er farinn og mér finnst þú vera rétta manneskjan í starfið.

Treystirðu þér í starfið?

Hæ, elskan. Fekkstu pakkann frá mér?

- Sagði pabbi að þú kæmir ekki til baka? - Nei, ástin mín.

Auðvitað kem ég til baka. Ertu alveg viss?

- Já. - Fyrir verkalýðsdaginn?

Vinir mínir ætla að taka bát á leigu og..

Ég verð lengur því ég var beðin að vera deildarstjóri.

En veistu hvað? Ég þéna mjög vel

og get því flutt nær pabba þínum og hitt ykkur hvenær sem er.

Frábært. Bíddu aðeins.

Fyrirgefðu, ég verð að hætta núna, ég er að fara á leik.

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left