The first 200 lines.
Ronson er særður.
Hann þarf sjúkraflutning.
Erhún þarna?
Harða drifið er horfið.
Ertu viss?
Það er horfið. Gefðu mér andartak.
Þeirhljóta að hafa listann. Eltu þá.
Ég hlúi að Ronson.
Við höfum ekki tíma.
Ég verð að stöðva blæðinguna!
Skildu hann eftir!
Sérðu hann?
Hann er á þessum svarta Audi.
Hvað um Ronson?
Hann er særður.
Við sendum brottflutningshóp.
Þeir verða of seinir!
Hann sá okkur.
Sjúkraflutningur fyrir Ronson kemur eftir 5 mínútur.
Þetta er í lagi. Þú varst ekki að nota hann.
Ég var ekki heldur að nota þennan.
Beygðu þig.
Víkið úr vegi!
Tanner, í hvaða átt?
Haltu áfram. Ég leiðbeini þér héðan.
Þið vitið bæði hvað er í húfi. Við megum ekki glata listanum.
Já, fröken.
Hvar eru þeirnúna?
Þeir virðast vera á þökunum á Stóra markaðinum.
Farðu til vinstri. Það er brú. Farðu fyrir hann.
Hvað gerðist? - Þeir eru á lestinni.
Hvað áttu við?
Þeir eru ofan á lest.
Eltu þá!
Og ekki týna þeim.
Hún fer úr færi.
Þau eru horfin.
Hvað er að gerast? - Ég elti þá enn.
Útvegið mér öryggismyndavélar, gervihnött eða eitthvað!
Hvað varþetta?
Volkswagen bjöllur. Held ég.
Bond! Hann er að losa vagninn.
007, ertu ómeiddur?
Bara að skipta um vagna.
Hvað er að gerast? Greindu frá!
Það er frekar erfitt að útskýra það.
007 eltir.
Vegurinn endar hér.
Ég held að ég komist ekki lengra.
Ég gæti náð skoti.
Það er ekki hreint.
Endurtek, ég næ ekki hreinu skoti.
Það eru göng fram undan. Ég missi af þeim.
Kemstu í betri stöðu?
Nei. Enginn tími.
Skjóttu.
Ég sagði þér að skjóta.
Ekki hægt! Ég gæti hæft Bond!
Skjóttu, fjandinn hafi það!
Njósnari fallinn.
JAMES BOND SJÓLIĐSFORINGI MINNINGARGREIN
Fulltrúi varnarmálaráðuneytisins, Bond sjóliðsforingi,
hvarf við skyldustörf í Tyrklandi og er talinn af.
Bond sjóliðsforingi
Þetta er eins og að vera kölluð fyrir skólameistara.
Þetta er nýr formaður. Viðtekin venja.
Fjandans tímasóun myndi ég kalla það.
Mér þykir fyrir því að ræða svona viðkvæmt mál á fyrsta fundi okkar.
En...
ég verð að vera hreinskilinn.
Það er góð hugmynd.
Forsætisráðherra er áhyggjufullur.
Segðu honum að fulltrúar mínir kanni alla möguleika.
Hefurðu íhugað að kalla útsendarana heim? - Ég hef íhugað alla kosti.
Afsakaðu, en þetta hljómar eins og undanbrögð.
Afsakaðu, en hvers vegna er ég hér?
Fyrir þremur mánuðum glataðirðu tölvudrifi með nöfnum...
næstum allra útsendara NATO sem hafa
laumað sér inn í hryðjuverkasamtök í heiminum.
Listi sem bandamenn okkar vissu ekki að væri til.
Svo ef þú afsakar þá held ég að þú vitir af hverju þú ert hér.
Köllum við þetta "borgaralegt eftirlit"?
Nei, við köllum þetta undirbúning starfsloka.
Þjóðin bera mikla virðingu fyrir þér og þjónustu þinni til margra ára.
Þegar núverandi starfi þínu Iýkur verður þú sæmd Stórkrossinum.
Til hamingju.
Þú ert að reka mig.
Nei, ég hef umsjón með millibilstímabilinu fram að afsögn þinni eftir tvo mánuði.
Eftirmaður þinn hefur ekki verið skipaður svo...
Ég er enginn bjáni, Mallory.
Ég veit að ég get ekki gegnt starfinu endalaust...
en ég skil ekki við stofnunina í verra ásigkomulagi en þegar ég tók við henni.
M, þú hefur átt gott skeið. Þú ættir að fara með reisn.
Til fjandans með reisn. Ég fer þegar verkinu er lokið.
Já?
Núna?
Viðvörun frá Q-deild. Einhver reynir að ráða dulmálið á stolna harða drifinu.
Við rekjum ráðningarmerkið.
Staðsetjum það núna.
Það er í Bretlandi.
London.
Komdu okkur til höfuðstöðvanna með hraði.
Það berst frá MI6.
Gagnapakkinn tengist netinu okkar.
Leiðrétting, hann er fyrir innan eldvegginn okkar.
Við ættum að slökkva á öllu. - Nei, rektu þetta.
Við verðum að vita hvaðan þetta berst.
Fjarlægið hausana. Rekið upptökin.
Hvernig komust þeir inn í kerfið okkar?
Niðurstaðan berst núna.
Þetta virðist...
Þetta virðist vera tölvan þín.
Slökktu á henni.
Hvað er þetta?
HUGLEIDDU SYNDIR ÞÍNAR
Í hamingjunnar bænum!
Farið bara frá!
Þekkið þið ekki bílinn?
Þetta er fréttavakt CNN.
Viðbragðshópar eru að reyna að meta...
tjónið á meðan rannsakendur leita vísbendinga...
íþví sem virðist vera stór hryðjuverkaárás í hjarta London.
Enginn hefur enn Iýst yfir ábyrgð á því sem heimildarmenn kalla...
"tölvuspellvirkjaárás" á bresku leyniþjónustuna.
Fyrstu fregnarbenda til þess að sex hafi Iátist og margir aðrirsærst...
en fórnarlömb voru flutt á sjúkrahús örfáum mínútum eftir sprenginguna.
Það er mál að fara, fröken.
Ég ætla að finna þann sem gerði þetta.
Hvar í fjandanum hefurðu verið?
Að njóta dauðans.
007 mættur til skyldustarfa.
Hví hringdirðu ekki?
Fékkstu ekki póstkortið?
Þú ættir að prófa þetta. Fara burt frá öllu saman. Það gefur manni nýja innsýn.
Kláruðust drykkjarföngin þar sem þú varst?
Hvað sagðirðu aftur?
"Skjóttu, fjandinn hafi það."
Ég mat aðstæður þannig.
Þú áttir að treysta mér til að Ijúka verkinu.
Það var möguleikinn á að missa þig eða vissan um að missa alla hina útsendarana.
Ég tók einu rökréttu ákvörðunina og þú veist það.
Ég held þú hafir misst kjarkinn.
Við hverju býstu, afsökunarbeiðni?
Þú kannt reglur leiksins, þú hefur spilað hann nógu lengi. Við bæði.
Kannski of lengi.
Talaðu fyrir sjálfan þig.
Ronson hafði það ekki af, var það?
Nei.
Svo þannig er þá staðan.
Við erum bæði útbrunnin.
Ef þú trúir því hví komstu þá aftur?
Góð spurning.
Því það er sótt að okkur.
Og þú veist að við þörfnumst þín.
Nú, ég er hér.
Þú þarft að fara í skýrslutöku og vera úrskurðaður hæfur til starfa.
Þú snýrð aðeins til starfa eftir að hafa staðist prófin svo taktu þau alvarlega.
Og sturta væri við hæfi.
Ég fer heim og skipti um föt.
Við seldum íbúðina þína.
Settum eigur þínar í geymslu.
Viðtekin venja við dauða ókvænts starfsmanns með enga nána ættingja.
Þú hefðir átt að hringja.
Ég finn mér hótel.
Þú sefur, fjandakornið, ekki hér.
Árásarmaðurinn hakkaði sig inn í umhverfisstýringuna, slökkti á vörnunum...
og skrúfaði frá gasinu, sem hefði átt að vera ómögulegt.
Að auki hökkuðu þeir sig inn í skrárnar hennar.
Þeir vissu um fundi hennar og að hún væri ekki í byggingunni.
Hún var ekki skotmarkið.
Þeir vildu að hún sæi þetta.
Hvar erum við, Tanner?
Nýju húsakynnin.
Gamla byggingin var Iýst "hernaðarlega berskjölduð".
Það er vægt til orða tekið.
Honum tókst að rjúfa öruggasta tölvukerfi í Bretlandi. Nú gildir stríðsviðbúnaður.
Þetta var hluti af neðanjarðarbyrgi Churchills.
Við erum að finna göng frá 18. öld.
Mjög heillandi ef ekki væri fyrir rotturnar.
Hvenær hitti ég M?
Á morgun hittirðu M og Mallory Iíka, ef þú ert heppinn.
Hver er Mallory?
Nýr formaður Njósna- og öryggisráðsins.
Hrífandi maður. Ég held að ykkur muni koma vel saman.
Velkominn í nýju höfuðstöðvar MI6.
Við reyndum að rekja tölvuboðin en þau voru send með...
ósamhverfu öryggisalgrími sem sendi það um allan hnöttinn
í gegnum þúsundir netþjóna.
Nú þegar þeir hafa fengið aðgang að kóðum M
er aðeins tímaspursmál hvenær þeir ráða listann.
Q-deild er að greina myndina en er engu nær.
Þetta er hugsanlega einhver úr fortíð hennar.
Kannski síðan hún stjórnaði í Hong Kong.
Hún veit ekki hvað þetta þýðir.
Trúirðu því?
Satt að segja höfum við ekki hugmynd um hverjir tóku listann...
eða hvað þeir ætlast fyrir með hann.
Við getum gert þetta síðar.
Veistu hvað?
Gerum það.
No comments yet. Be the first to leave one.