The first 200 lines.
ÞÁTTARÖÐ ÚR SMIÐJU NETFLIX
Við erum loksins á leið á Góða staðinn.
Það er "ég" staðanna.
Ég komst inn. Ég get aftur tekið þannig til orða.
Ertu viss um að við séum á réttri leið, Janet?
Ég hef aldrei komið á Góða staðinn áður.
En já, ég er viss.
Hvernig?
Af því að...
tilfinningin er eins og ég sé á heimleið.
Fljúgandi hvolpur!
Þið eruð næstum komin. Bara aðeins lengra.
Fljúgandi hvolpar?
Jahérna, Michael.
Af hverju datt þér það ekki í hug fyrir hverfið þitt?
Þau eru góð hérna.
VELKOMIN! HÉRNA ER
51. KAFLI
Mér líður eins og Dorothy þegar hún lendir í Oz,
spennt, vantrúuð,
mun hávaxnari en öll í kringum mig.
Hvað viljum við öll gera fyrst?
Go-kart bílakappakstur með öpum.
Ekkert mál.
Mig hefur alltaf dreymt um það.
Apar eru bestu mótherjarnir í go-kart.
Nógu sniðugir til að sýna fingurinn, en ekki nógu gáfaðir til að vinna.
INNSKRÁNING HÉR!
- Á þetta við mig? - Þú ert góð Janet.
Við erum á Góða staðnum. Ég veit ekki hver önnur það gæti verið.
Gott og vel. Engin pressa.
Ég fæddist til að gera þetta. Ekki fædd.
Gott og vel.
Ég veit allt um Góða staðinn.
Í hnotskurn, meiriháttar.
Segi ykkur fyrst,
fólk fær ekki að sjá allan Góða staðinn í einu, annars ruglast heili þess.
Svalt. Kannski fæ ég loksins einhverjar ójöfnur á heilann.
Læknar sögðu að heilinn í mér væri sléttur sem egg.
Þið þurfið öll að bíða hér til að aðlagast.
Þegar þið eruð tilbúin verðið þið boðin velkomin með glæsiveislu,
töfrum prýddri af Góða staðnum, byggt á persónuleikum ykkar.
Eins og markauglýsing Instagram fyrir partí.
Ég keypti flott sólgleraugu eftir þannig auglýsingu.
Sjáið.
Það er eins og ég sé inni í Netinu.
Allt í lagi.
Gætum við haldið áfram?
Þú virðist dálítið fölur.
Veiktist þú í loftbelgnum?
Ef þú ælir koma örugglega bara fiðrildi eða eitthvað.
Allt í lagi með mig.
Ég bara...
Ég á ekki heima hérna.
Ómögulegt að vita hvað kemur fyrir djöful sem stígur inn á þennan stað.
Lofið mér, að ef ég gufa upp haldið þið áfram að hafa gaman.
Drottinn minn, þessi hljómur er svo sefandi.
Eins og verið sé að nudda heilann í mér...
- ...af dádýrskálfi. - Maður minn.
Hvað ef þetta er eins konar djöflaviðvörun til að láta löggurnar vita af mér?
- Viltu að ég passi grasið þitt? - Ég er ekki með gras.
Bíðið aðeins.
Jú, gott og vel, ég er með það.
Taktu þetta.
Þau eru tilbúin að fá ykkur inn fyrir.
Góða staðs nefndin bíður eftir okkur.
ORKAN SEM ÞÚ HAFÐIR ÞEGAR ÞÚ VARST TÓLF ÁRA
FULLUR SKILNINGUR Á TWIN PEAKS
Maður minn, sjáið þennan stað.
ÞAÐ GÓÐA SEM SAGT HEFUR VERIÐ UM ÞIG ÁN VITNESKJU ÞINNAR
Karlie Kloss líkaði við mig.
Ég vissi það.
- Jæja, varðandi veisluna... - Já.
Er öllum á Góða staðnum boðið?
Verður Aristóteles þarna?
Því miður, Chidi, Aristóteles er á Slæma staðnum. Hann varði þrælahald.
- Sókrates? - Nei.
Of pirrandi. Tuggði mjög hátt.
- Platón? - Aftur þrælahald.
Veistu hver er hérna?
Hýpatía af Alexandríu. Þekkirðu hana?
Hýpatíu?
- Af Alexandríu? - Rétt.
Já, ég þekki hana.
Hýpatía. Ég ætla að spyrja hana svo margra spurninga
sem varða grundvallarhugmyndir um alheiminn.
Bara... "Af hverju?"
Og líka... "Hvernig?"
Velkomin á Góða staðinn, öll.
Michael, svo gott að þú náðir því.
Þú geislar.
Þú hefur róandi en samt yfirvaldslegt yfirbragð sprengjuleitarhunds.
Mig langar bara til að
þakka ykkur kærlega fyrir að leyfa mér að vera hér með vinum.
Ég veit að það er óvenjulegt að einhver eins og ég
heimsæki Góða staðinn, en þetta er bara svo dásamlegt.
Og ég er ekki með gras á mér svo það er engin þörf fyrir löggurnar.
Michael, þú og vinir þínir eruð hetjur
og þið eruð meira en velkomin hér.
Við erum reyndar með mjög spennandi fréttir.
Á meðan þið hin komið ykkur fyrir
viljum við halda inntökublót fyrir Michael
svo hann verði opinber arkítekt á Góða staðnum.
Drottinn minn.
Michael, komdu með okkur.
Heilagur frændi, þetta er sefandi hljómur.
Þetta er einn ótrúlegasti hljómur sem ég hef heyrt.
Og það frá manneskju sem á sér guðföður
sem er frægasta klukka í heimi.
Er Big Ben einhvern veginn guðfaðir þinn?
Þetta hljóð merkir...
að partíið er að hefjast.
Þegar þið gangið í gegn mun rýmið breytast
í partí sem er fullkomlega sniðin að eðli ykkar.
Krækjum saman handleggjum og forum saman í gegn.
Furðulegt.
Danssalurinn í SuperSuites-hótelinu í Jacksonville þar sem lokaballið var
og líka umferðardómstóllinn.
En þetta hlýtur að vera mitt partí
því þetta er koppurinn sem ískaldi Steve Austin
notaði til að lemja Vince McMahon 1998.
Það var söguleg stund. Ekki dæma mig.
Mér þykir þetta leitt, krakkar.
Góði staðurinn notar upplifanir ykkar í lífinu til að útbúa fullkomið partí,
en það er bara hannað fyrir eina manneskju í einu.
Þegar þið komið inn sem hópur varð það...
Samsull af okkur öllum fjórum.
BOÐSGESTIR EINGÖNGU
RÆKJUR!
Þetta er fullkomið.
Nei, það er það ekki, Eleanor,
því það er engin go-kart braut og engir apar.
Ekki illa meint, en þið eruð í ruglinu.
Sjáið þið þessar grænu dyr?
Þið getið farið í heimsókn á hvaða stað eða tíma sem er, alvöru eða ímyndaðan.
Hugsið bara hvert ykkur langar
og hvað ykkur langar að gera og gangið í gegn.
Þannig að maður gæti gengið meðal risaeðla
eða orðið vitni að fyrstu uppsetningu á Hamlet í Globe-leikhúsinu.
Ég fer í Tókýó-skriðkeppni með öpum. Sjáumst eftir þúsund ár.
Er þér sama þótt ég fari að hitta Hýpatíu?
Ég lofa að það verður eingöngu platónskt.
Tæknilega séð nýplatónskt.
Gleymdu þessum brandara og komdu með. Ég er svo óstyrkur að hitta hana.
Mig vantar einhverja til að skipta um umræðuefni ef ég tala heimskulega.
Ekkert mál. Augnablik.
Hei, Tahani, þessi salur er fullur
af áhugaverðasta fólki sem hefur lifað.
Spjallaðu við það, lærðu um líf þess,
hittumst svo hérna svo við getum grínast í því.
Eleanor Shellstrop, ég hef verið í þjálfun fyrir þennan dag allt mitt líf.
Þetta er mikill heiður fyrir mig.
Tilfinningin er að þetta sé rétt. Þetta verður nýr tilgangur minn.
Allt er að smella saman.
Frábært. Drífum í þessu. Klæddu þig í þessa viðhafnarskikkju.
Maður minn, flottar axlir fyrir skikkju.
Undirritaðu þetta skjal.
Ég hef aldrei skrifað nafn mitt áður.
Hvaða rithönd ætti ég að velja?
"Doktor Bóla." Eða, nei...
"Íþróttamaður sem er sama um krakkann."
Bíðið, nei...
"Miðskólastelpa sem er skotin í Zac Efron."
Þá get ég sett lítið hjarta ofan við "I".
Fullkomið. Og hér er opinber medalía handa þér.
Nú veit ég hvernig Mary Lou Retton líður.
Og frábært.
Nú hefur þú opinberlega umsjón með Góða staðnum.
- Fyrirgefðu, "umsjón með"? - Já. Þú ert yfirmaðurinn.
Þetta var allt lagalega bindandi og við hættum öll nú þegar.
Þetta er óafturkræft svo nú er þetta þitt vandamál.
Ekki reyna að finna okkur. Ekki hægt að hætta við, bless.
Fljót, af stað! Áfram!
Halló? Félagar á Góða staðnum?
Eru einhver hér inni?
"Hugmyndir að endurbótum á Góða staðnum."
"Tónlist sem maður getur borðað.
Æi.
Risastórir smákleinuhringir, ekki bara venjulegir kleinuhringir.
Dave útskýrir."
Dave? Getur þú útskýrt?
Hæ, ert þú... ert þú Hýpatía af Alexandríu?
Já. Hvað segist?
Það segist mjög vel.
Ég bjóst við að þú værir enn forngrísk.
Nei, við fylgjum eiginlega tímanum á þessum stað.
Hvað er vinsælast á jörðinni upp á síðkastið?
Iðnbyltingin, Manhattan-kjarnorkuáætlunin, "Gangnam Style..."
Mér finnst ég skilja þetta.
- Þetta er í alvöru hún! - Já.
Ég bara veit það. Þetta er Hýpatía af Alexandríu.
Ég veit, elskan. Já, þetta er hún.
Hæ, fyrirgefðu, ég heiti Eleanor. Þessi yfirdrifni furðufugl heitir Chidi.
Við erum ný í bænum.
Fyrsta spurning, hvernig færðu "af" í nafnið þitt?
Hékkstu lengst þar?
Er ég Eleanor af Cheesecake Factory-barnum?
Einnig, er það "Hý-pa-sía" eða "Hý-pat-ía"?
Eða í forn-grísku, "Hæ-pattía"? Skemmtilegar deilur um þetta.
Veistu hvað? Kallaðu mig bara Patty.
No comments yet. Be the first to leave one.