The first 200 lines.
Í hverfinu mínu eru staðir sem menn skeyta ekki um.
Maður sér þá daglega en gleymir þeim jafnóðum.
Á þessum stöðum gerist það sem fólki er ekki leyft að sjá.
Í Brooklyn er verslað alla liðlanga nóttina.
En peningana er ekki hægt að geyma í banka.
Allir þessir peningar hafna einhvers staðar.
Bar Marv frænda
Það kallast skilabar.
Stjórarnir velja þá af handahófi á hverju kvöldi
og nota sem peningaskáp fyrir alla borgina.
Maður veit aldrei hvenær barinn manns verður skilabar.
Ólöglegustu peningar borgarinnar fara þar um
og alls staðar að úr bænum koma menn og fara
en enginn sér peningana koma. Enginn sér þá fara.
Þeir geta sagt manni að vera skilabar næstu vikuna.
Eða jafnvel næsta árið.
Það er aldrei að vita.
Þangað til...
afgreiði ég á barnum.
Og bíð.
Bobby, viltu úða innvöllinn hér með viskíi?
Þetta er æðislegt. Við eyðum 80 milljónum dala
í að draga gamlingja frá Jersey yfir ána til að drulla í bleiuna sína.
Gamla liðið.
Þeir eru ekki svo gamlir.
Sérðu Stackhouse hindra LeBron með göngugrindinni sinni?
Þetta er í boði hússins, herrar mínir.
Þegar hann talar er það fallegt.
Rardy, viltu þrífa þetta?
Skálum fyrir Richie.
Ertu í nýjum buxum, Sully?
Já, ég set þær í hreinsun.
Við þökkum þér ekki, Rardy. -Farðu í rassgat.
Hann er svo fjandi dulur.
Takk fyrir drykkinn, Marv frændi. -Takk, Marv.
Vill nokkur segja eitthvað fyrir strákinn?
Sully, gerðu það. -Já, þú gerir það, Sully.
Richie Whelan „Dýrðardagar“. Útskriftin '92, fyndinn gaur.
Hvíli hann í friði.
Dýrðardagar.
Það er rétt.
Má ég giska?
Þú bauðst þeim drykk.
Já. Þeir eru bara...
Þeir eru að fagna afmæli mjög náins vinar, Marv.
Það eru hvað... 10 ár síðan strákurinn dó?
Menn ættu að gleyma. Hætta að drekka frítt út á lík.
Vel á minnst, hún má ekki sitja allt kvöldið án þess að borga drykkina.
Hver, Millie? -Já, Millie.
Hún drekkur ekki mikið.
Hvenær rukkaðirðu hana síðast?
Þetta er nú Millie.
Þú leyfir henni að reykja hér eftir miðnætti þótt það sé bannað.
Hélstu að ég vissi það ekki?
Hún kemur ekki aftur fyrr en hún borgar reikninginn sinn.
Hún skuldar um 120 dali.
Það eru 140 dalir.
Hún hefur ekki efni á því.
Ég er að fara að gráta.
Og taktu niður jólaskrautið.
Það er 27. desember.
Herrar mínir.
Farið í rassgat.
...helgist þitt nafn.
Til komi þitt ríki, verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni.
Gef oss Í dag vort daglegt brauð.
Fyrirgef oss vorar skuldir svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.
Leið oss eigi í freistni heldur frelsa oss frá illu.
Friður sé með þér.
Friður sé með þér.
Líkami Krists.
Líkami Krists.
Líkami Krists.
Þetta er ekki gott.
Hvað ertu að gera þarna?
Allt í lagi þá.
Hvað ertu að róta í öskutunnunni minni?
Það er hundur í henni.
Þetta er boxer-hundur.
Jesús minn.
Það er hundur í öskutunnunni.
Honum blæðir.
Hvað heitirðu? -Bob Saginowski.
Sýndu mér ökuskírteinið.
Ökuskírteinið? Veskið er í vasanum. Taktu það.
Ég sendi fjórum manneskjum þessa mynd. Er það skilið?
Hann er ískaldur. -Já, honum er kalt.
Förum inn með hann.
Ég heiti Nadia.
Er það slæmt?
Það er ekki mjög djúpt.
Hann hefur verið lúbarinn. Sérðu þessa hnúta?
Þetta er ekki bein, þetta er mar.
Ertu dýralæknir?
Nei, ég er þerna á Ashmont grillinu.
En ég vann eitt sumar á dýraathvarfi.
Varlega.
Það er svo erfitt að finna heimili fyrir þessa tegund.
Boxer-hunda?
Þetta er ekki boxer. Þetta er bolahundur.
Þeir eru hættulegir.
Hundurinn á ekki sök á að eigandinn sé bjáni.
Þetta grey...
Sjáðu hann.
Hann er svo blíður.
Þú þarft búr svo hann sé öruggur. Ég get lánað þér það.
Þú þarft fóður og nagdót.
Ég gekk bara fram hjá öskutunnu. Ég get ekki...
Ég skila honum bara. -Hverjum? Þeim sem barði hann?
Ég fer með hann til yfirvalda.
Þá fer hann á dýraathvarfið. -Já.
Eigandinn fær viku til að sækja hann. Geri hann það ekki
verður hundurinn settur í fóstur.
Og hver veit hvers konar fólk tekur hann?
Ég veit ekki.
Þú getur tekið hann. Taktu hann.
Ég vinn næturvinnu. Ég vinn mikið.
Við verðum að setja hann á dýraathvarf.
Heyrðu, geturðu ekki...
gefið mér nokkra daga til að hugsa málið?
Ég verð að hugsa mig um. Þetta er mikil ábyrgð.
Ég veit ekkert um...
Bara nokkra daga. Ég kem aftur.
Gerðu það. Hafðu hann fram að helgi.
Bara fram að helgi. Gerðu það.
Laugardagsmorgunn.
Takk.
Þakka þér fyrir.
Á laugardaginn.
Bob?
Hundurinn þarf nafn. -Já.
Drottinn minn.
Það verður allt í lagi.
Þekkirðu Nadiu Dunn?
Er það ekki?
Þekkirðu hana ekki? -Nei.
Það er stelpan sem passar hundinn.
Hundurinn aftur.
Ég var að hugsa um að hundauppeldi,
að venja hann og það allt...
það er rosalega mikil ábyrgð.
Þetta er hundur.
Ekki löngu horfinn þroskaheftur ættingi sem birtist í hjólastól
með hægðapoka festan við rassinn
og segir að þú verðir að sjá um sig.
Það er ekki svoleiðis.
Þetta er hundur.
Já.
Hvað?
Hvað?
Nei.
Þetta er ömurleg hugmynd.
Við ættum að taka allt þarna eða ekkert.
Heyrðu, litli bróðir. Minn maður segir að við verðum
að sýna að við ráðum við þetta.
Við eigum að fara rólega, sjá viðbrögð eigendanna.
Þeir gætu brugðist illa við, bjáninn þinn.
Þá sjáum við það.
Þinn andskotans maður talar svo mikið.
Þetta er skilabar.
En ekki í kvöld.
Allt í lagi?
Jæja þá.
Ekki hugsa, fylltu hann bara.
Við völdum engum vandræðum.
Þú ert til vandræða!
Veistu hvað þú ert að gera? -Marv.
Veistu hver á þessa peninga?
Fylltu andskotans pokann!
Þá það.
Vertu bara rólegur.
Þar hefurðu það.
Taktu hann.
Þú talar of mikið.
Hvar er Rardy?
Rardy? -Hver andskotinn?
Ertu ómeiddur? -Mér er óglatt.
Þetta er ekkert. -Sjáðu höfuðið á honum.
Við verðum að fá sjúkrabíl.
Þetta er ljótt. Vertu kyrr þarna, Rardy.
Hversu slæmt er það? -Kyrr. Það er ekki gott.
Ég set þetta á höfuðið á þér.
Haltu þessu.
Þetta er fyrir andlitið.
Morgunmessan í St. Doms.
Við sjáumst á hverjum morgni en höfum aldrei kynnst.
Evandro Torres hjá lögreglunni. -Sæll. Bob Saginowski.
Leitt með St. Doms. -Hvað áttu við?
Kirkjan á að sameinast St. Marys. Trúirðu þessu?
Ég vissi það ekki.
Ertu barþjónninn? -Já.
Þessir vopnuðu náungar... Förum fram.
Heyrðist þér þeir hafa komið hingað áður?
Nei. Ég sá að úrið hafði stoppað hjá gaurnum næst mér.
Þú sagðir að þeir hefðu hulið sig alla. Hettur, grímur?
Já, en ég úlnliðinn á honum.
Úrið var fyrir framan mig, svona.
Og hafði það stoppað? -Já, klukkan 6.15.
Hvað tóku þeir mikið?
Allt sem var í kassanum.
No comments yet. Be the first to leave one.