The first 200 lines.
-Állir á markaðnum fylgjast með. -Við erum með forstjóra Dynacorps.
Þú hlýtur að vera mjög ánægður með fréttirnar...
Þessi ótrúlega velgengni nýskráningar Dynacorps...
Sjáið matið, ég efast stórlega...
Frábær dagur fyrir Dynacorps og bankamenn hjá Gemini sjóðnum...
Þú skilur...
...stígur hratt í dag.
...er verulega hærri núna...
...þar sem hlutir í veitum og tæknifyrirtækjum hækka mest.
En það er eiginlega aðeins ein frétt þarna úti...
...sem allir á markaðnum fylgjast með...
...og það eru ný hlutabréf í Dynacorps.
Þetta er sannarlega sögulegur dagur.
Við vissum frá fundaferðinni...
...að eftirspurn eftir hlutunum yrði mikil.
Við áttum von á sprengingu við opnun.
En enginn átti von á að Dynacorps hækkaði svo mikið...
...alla leið í 47, og virðist enn vera að hækka...
...núna, þannig að þetta er mun betri byrjun...
...en fjárfestar gátu vænst. Auðvitað, með slíkum aðgerðum...
...spyr maður sig hvort hlutirnir hafi verið rangt verðmetnir...
...hvort dálítið fé hafi verið skilið eftir á borðinu.
Við vitum að þeir skiptu um ábyrgðaraðila...
...þegar þeir fóru í útboðið, svo það voru nokkrar áhyggjur...
...af hvernig til tækist, en hlutabréf Dynacorps eru greinilega...
...að verða meðal þeirra sem best hefur vegnað...
...í almennum útboðum á árinu.
Hvað gerðist hjá Dynacorps?
Neel, ég hef sett níu fyrirtæki í Kísildal á markað á síðustu fimm árum...
...og þú vilt ræða um það eina sem ég fór ekki með í mark?
Ég vinn hjá stærsta fjarfestingabanka í heimi.
Við vitum bæði að ég fann fyrir ykkur fjármagn...
...þegar þið voruð bara tveir strákar með fartölvu og draum.
Við getum því rætt um Dynacorps...
...eða við getum rætt um ykkur...
...og hvernig ég ætla að stækka fyrirtæki ykkar...
...svo þið getið smíðað tækni sem byltir lífi fólks.
-Reyndu sjóurriðann frá Tasmaníu. -Já, kannski ég ætti að gera það.
-Állt í lagi. -Állt í lagi.
-Sæl. -Sæl. Ég sá tölvupóstinn frá Neel.
Hann lætur ganga á eftir sér.
Allir vilja halda að fyrirtæki þeirra sé einhyrningur.
-Lastu þér til um hin fyrirtækin? -Já, og var að horfa á...
Cachet? Ég hef á tilfinningunni að þeir vilji stækka.
Ertu með tölurnar hjá þeim?
Ég kem strax með þær.
Fínt.
Já?
Allir segja að það verði einhverjar tilfærslur hérna.
Ég velti fyrir mér hvort þetta sé rétti tíminn...
-...til að tala um stöðuhækkunina? -Nei.
Nú er ekki rétti tíminn.
Mannauðsdeildin er þarna úti að ná í BlackBerry.
Ég skil það, en ég hef fengið minna en mér bar tvö ár Í röð...
Erin, ég sagðist ýta á eftir þessu fyrir þig og ég geri það. En þetta er slakt ár.
Ég þarf að fá þessar tölur strax.
Naomi?
Afsakaðu.
Sam, sæl.
Ég... Ég ætlaði að styðja þig þegar ég heyrði að þú værir að þessu, en ég...
Ég hélt þú þyldir ekki háskólaviðburði.
Ja...
-Mér finnst þetta mikilvægt. -Já.
Mér finnst þessar stelpur horfa á mig eins og víti til varnaðar.
Hvernig eigi að fara í laganám og verða samt blönk.
Ég er viss um að hér leynist ein ung hugsjónakona.
Ég vona það.
Hvernig hefurðu það? Hvernig gengur?
Ertu enn á skrifstofu ríkissaksóknara að setja fíkniefnasala bakvið lás og slá?
Já. Ég er reyndar á þínu sviði núna.
Hvílflibbaglæpir, verðbréf.
Það er nokkur breyting.
Og þú ert enn hjá Remson?
Lífstíðardómur.
Gyllt handjárn.
Já.
Ertu með skrá um okkur?
Ég hugsa að við séum með skrá um alla.
Ég var að hugsa um daginn...
...um kvöldið með Hökutoppsmanninum.
-Nei, nei. -Jú, jú.
Það var hryllilegt.
-Svakaleg skammarganga. -Það var æðislegt.
Nei, alls ekki æðislegt. Það var ekkert æðislegt við það.
Veistu? Við ættum að hittast. Það er svo langt síðan.
Það líst mér vel á.
-Mér líka. -Ég skal...
-Ég sé þig á pallborðinu. -Já. Sjáumst þar uppi.
Ég velti fyrir mér, fyrir ykkur allar, hvað er það sem virkilega fær ykkur...
...til að vilja vakna á morgnana?
Fyrir mig, býst ég við, er einfaldasta svarið að...
...ég er hrifin af peningum.
Í alvöru. Ég hrífst af tölum.
Mér finnst gaman að semja.
Ég hef gaman af áskorunum.
Að breyta nei í já.
En ég er hrifnust af peningum.
Mér finnst gott að vita að ég eigi þá.
Ég ólst upp á heimili þar sem aldrei var nóg.
Ég var alin upp af einstæðri móður með fjögur börn.
Ég fékk fyrsta starfið á Wall Street...
...til að koma yngri bræðrum mínum gegnum háskóla.
En ég ætla ekki að sitja hér og segja ykkur að ég geri þetta bara...
...til að hugsa um aðra, því það er Í lagi að gera það fyrir sjálfa sig.
Vegna þess hvernig okkur líður við það.
Örugg? Já.
Valdamikil? Ekki spurning.
Ég er svo fegin að það er loks ásættanlegt...
...að konur tali opinskátt um metnaðargirni.
En látið peninga ekki vera sóðaorð.
Okkur getur líkað það líka.
Sá ég þig í kjól í gærkvöldi?
Þegiðu.
Fórstu á þetta þarna? Talaðir þú við hana?
-Vinkonu þína? -Ég gerði það.
Og? Sagði hún þér eitthvað um manninn í vogunarsjóðnum?
Ég hef ekki séð konuna í átta ár.
Hvað nákvæmlega heldur þú að hún segi mér...
...þegar við hittumst á fundi fyrir gamla nemendur?
Það var þín hugmynd að negla Benji gegnum vin þinn í bankanum, ekki mín.
Ég sagðist ná sambandi.
og?
Ég náði sambandi.
MICHAEL CONNOR REMSON 20t ÁR
STANFORD BÁÐIR VERSLA MEÐ TÆKNI - VINIR
Naomi, þakka þér fyrir að koma.
Þekkirðu Leslie í mannauðsdeild?
Hana vantar tvö nöfn í viðbót úr þinni deild.
Teddy Sidel og Arthur Abbott.
Þú veist hver frændi Teddys er?
Þú baðst mig að benda á veikustu starfsmennina.
Hvað þú gerir við upplýsingarnar er þitt mál.
Gott og vel.
Þú hefur líklega heyrt umtalið.
Ég er að hætta. Setjast í helgan stein.
Til hamingju, Randall.
Maður vill aldrei vera of lengi í veislunni.
Það er komið að þér.
Einbeitt.
Það verður þá tilnefndur nýr...
...heimsforstjóri.
Sko, Naomi, ég skal vera hreinskilinn við þig.
Þetta virðist ekki vera þitt ár.
Vegna Dynacorps?
Ég spurðist fyrir um hvað gerðist þar.
Og tilfinningin er...
...að þú hafir nuddað einhverjum á rangan hátt.
Þeir leita eftir regndansara.
Þú hikar. Sæktu fram.
Áfram. Áfram!
Áfram! Áfram!
Komdu að minnsta kosti með einhverjar staðreyndir.
Notaðu tölurnar mínar gegn mér.
En tilfinningu? Hvern andskotann geri ég með hana?
Þú hefur ekki sagt mér smáatriði samningsins.
Rædduð þið það ekki á stjórnarfundinum?
Ég var víst í ljótum kjól.
Karlar gera þetta ekki, er það?
Þið... Þið missið líklega ekki svefn yfir svona löguðu.
Ó, jú, það gerum við.
Við bara... Við snúumst bara ekki gegn okkur.
Nei, það er miklu meira gaman...
...að verða reglulega reiður út í einhvern annan.
Já.
Hvað er stærsti samningurinn sem þú gætir náð núna?
Cachet var að bæta við 12. stjórnarmanninum.
Einmitt.
Þannig að þeir eru að fara á markað?
Ég fann fjárfesta fyrir strákinn þegar hann var með fimm starfsmenn.
Hvenær kemur bíllinn þinn?
Hálf fimm.
Ó, Jesús, elskan.
Þú þarft að sofa.
Segðu mér ekki hvað ég þarf.
Allt í lagi. Ég skil.
Þú þarft að vinna kökusöluna.
Kökukeppnina.
Færðu mér súkkulaðiköku.
Ég er að koma heim með allt helvítis bakaríið.
-Jál -Já.
Það er rétt. Hvert ertu að fara?
Ég er að fara í rúmið.
Ég vona að ég þurfi aldrei að berjast við þig um neitt.
Því þú tapaðir.
Hér er kaffið ykkar.
-Þakka þér kærlega fyrir. -Þakka þér.
-Heyrðu, var þetta Channing Trust? -Já, gaur.
Frændi minn sagði að Remson héldi að sá með gleraugun yrði nýi forstjórinn.
Þegar ég var barn, og maður vildi næði...
...ef maður ætlaði að senda leynileg skilaboð...
...bjó maður til ósýnilegt blek úr ediki.
Þegar maður var reiðubúinn að gera það opinbert...
...gerði maður leynilegu skilaboðin sýnileg með vínberjasafa.
En það er ekkert leynilegt...
...við það sem dregur okkur öll saman í dag.
Mig langar að kynna fyrir ykkur varaforstjóra minn Erin Manning.
Hún fer gegnum nokkur helstu atriði tillögu ykkar.
Cachet hefur sannarlega fært einkamál upp á næsta plan...
...og við erum mjög ánægð að hafa haft tækifæri til...
...að hlúa að vexti þess.
No comments yet. Be the first to leave one.