The first 200 lines.
Í sjöunda himni ég sit
Er sáttur í dag
Já, sáttur í dag
Í raunum og rugli er ekkert vit
Ég raula mitt lag
Já, raula mitt lag
Halelúja! Ég sagði við prestinn,
"Séra, taktu mig í sátt"
Eins og hjá Humpty Dumpty
Verður fallið hátt
Og í sjöunda himni ég sit
Er sáttur í dag
Sáttur í dag
Ég fjármuni forðast
Fæ það sem mér ber
Ég á bara ein fot, aðeins ein
Áfram með ykkur.
Utan á mér
Peningaþráin
Grípur mig ei
Heldur að ég fái
Huggulega mey
Og í sjöunda, sjöunda himni, himni ég sit
Er sáttur í dag
Sáttur í dag
Í raunum, raunum og rugli er ekkert vit
Ég raula mitt lag
Já, raula mitt lag
Halelúja! Ég sagði við prestinn,
"Séra, taktu mig í sátt"
Eins og hjá Humpty Dumpty
Verður fallið hátt
Já, í sjöunda himni, himni ég sit
Er sáttur í dag
Sáttur í dag
Þessi er góður. Er þessi ekki fyndnari?
Svo fyndinn
að við hlæjum nóg til að gleyma tapi kvöldsins.
Þetta er niðurdrepandi.
20 fjöðrum prýddar sýningarstúlkur
eru niðurdrepandi.
Ég dýrka góðan fjöldadans.
EINANGRUN eftir JACK DRISCOLL
- Hvað er þetta? - Leikrit.
Hver skrifaði það, Annie?
Einhver gaur. Driscoll.
Driscoll.
Frá þjóðleikhúsinu?
Ekki gagnrýna það. Þar eru þó áhorfendur.
Aðsóknin eykst. Ekki satt, Manny?
Hún gerir það alltaf.
Sjáumst á morgun.
Maður byrjar á hnerranum aftast í hálsinum.
Nefið virkar líka vel.
Hefurðu borðað eitthvað í dag?
Ég er ekki svangur. Hafðu engar áhyggjur af mér.
Heyrðu.
Þú ert sá eini sem ég á að.
Komdu með mér í mat.
Allt í lagi.
Ætli við fáum mataraðstoð við Þriðja stræti?
Súpur og kex. Fullkomið.
LEIKHÚSIÐ ER LOKAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA
SÝNINGUM AFLÝST
Hvað er á seyði, Harry?
- Opnið, við vinnum hérna. - Ekki lengur.
Við eigum inni tveggja vikna laun.
Hvað eigum við að borða?
-Þeir geta þetta ekki! -Þeir gerðu það.
Ann, þetta þýðir ekkert.
Sýningunni er lokið. Þetta er búið.
Ég gefst upp.
Nú fer ég, Annie.
Ég ætla að fara aftur til Chicago.
Mér þykir það leitt.
Fyrirgefðu, Annie.
Fólk hefur brugðist þér síðan þú varst lítil stúlka.
Nú verður þú að hugsa um sjálfa þig.
Farðu í áheyrnarprófið.
Ég veit hvað þú ert að hugsa.
Í hvert skipti sem þú nálgast eitthvað sem þér er annt um
birtast örlögin og hrifsa það frá þér.
Ekki í þetta skiptið, Annie.
Ekki í þetta skiptið.
- Sæll, herra Weston. - Jesús minn.
Ég sagði þér að hringja
og skila ferilskrá til ritarans.
Til hvers, ef ég get talað beint við þig?
Vertu nú skynsöm.
Ég sendi hana en þú leist ekki á hana.
Jack Driscoll vinnur ekki með hverjum sem er.
Veittu mér áheyrn. Ég bið ekki um annað.
Þú gefst ekki upp.
Ég kann hlutverkið aftur á bak.
Verst að við erum búin að ráða í hlutverkið.
Því miður. Við erum búin að ráða leikarana.
Þetta eru erfiðir tímar.
Viltu gott ráð?
Notaðu það sem þú átt. Þú ert ekki ólagleg.
Stúlka eins og þú þarf ekki að svelta.
Það var verið að opna nýjan stað.
Sjáðu til, prinsessa. Þetta er ekki Palace-leikhúsið.
Spyrðu um Kenny K og segðu að ég hafi sent þig.
Komdu fram, taktu peningana
og gleymdu að þú hafir verið þarna.
Hvað er mikið eftir?
Aðrar fimm spólur.
Kveiktu ljósin.
Var þetta allt?
Fáum við þetta fyrir 40 þúsund?
Aðra safarímynd?
Þú lofaðir rómantískum atriðum á milli Baxter og McKenzie!
Þið vitið hvernig samningurinn er.
Maureen kemur inn
þegar hún hefur látið laga tennurnar.
Við höfum mestar áhyggjur af peningunum.
Þú hefur eytt tveimur mánuðum í tökur, Carl.
Bruce og Maureen verða eldheit
þegar þau koma um borð í skipið.
Hvaða skip?
Það sem við leigðum til að komast á tökustaðinn.
Hvaða tökustað? Þú tekur myndina fyrir utan myndverið.
Já, ég skil það.
Við erum hættir við þá kvikmynd
og ég skal segja ykkur ástæðuna.
Söguþráðurinn breyttist. Við endurskrifuðum handritið.
Lífið skarst í leikinn.
Ég fékk kort í hendurnar.
Einu heimildina sem til er um ókannaða eyju.
Stað sem fyrirfannst aðeins í goðsögnum.
Þar til núna.
Rólegan æsing, Carl.
Vill hann meira?
Eigum við að fjármagna skýjaborgir?
Þetta er frumstæður heimur sem menn hafa aldrei séð.
Þarna liggja rústir fornrar siðmenningar.
Það tilkomumesta sem nokkur hefur séð.
Þarna ætla ég að gera kvikmynd.
Verða brjóst í henni?
Brjóst?
Túttur. Júgur. Bobbingar.
Fólk fer bara á þessar myndir
til að sjá naktar, innfæddar stúlkur.
Ertu fáviti?
Var De Mille krafinn um nekt?
Nei, þeir virtu listamanninn. Þar sýndu menn siðfágun.
Sem þú þekkir ekki, skítseiði!
Farðu fram, Carl.
Komdu með þetta.
Þetta er ekki áfengt.
Þú átt mikið ólært um kvikmyndabransann.
Ekki afskrifa hann. Hann er skapbráður
en hann gerir áhugaverðar myndir
og hefur nálgast vinsældir.
Hann selur sjálfan sig.
Hann hefur metnað en enga hæfileika og er bara ræfill.
- Ég skil vonbrigðin... - Hann getur ekki leikstýrt.
- Hann er ekki nógu gáfaður. - Hann er búinn að vera
og allir vita það.
Þessi flottræfill setur okkur á hausinn.
Dýramyndirnar eru verðmætar.
Universal vantar svona myndir til að eiga.
Seljum dýramyndirnar og gleymum kvikmyndinni.
Við verðum að græða eitthvað á þessu brölti.
Kallaðu á hann.
Herra Denham.
Komdu leikurum og tökuliði um borð.
Ekki gera þetta.
Segðu að ferðinni hafi verið flýtt.
-Þetta er siðlaust! - Ætli þeir í mál við mig
mega þeir fara í biðröðina.
Þeir kæfa ekki myndina.
Kvikmyndatökuvélarnar eru ekki komnar um borð.
Við höfum engin tilskilin leyfi.
Þú sérð um það, Preston.
Við eigum engan gjaldeyri, enga peninga.
Enga fjármuni af neinum toga.
Hann er þarna.
- Inn með þig. - Hver borgar fyrir skipið?
Inn með þig.
- Út með þig! - Gefðu í botn!
Þú ert búinn að vera, Denham!
Engar áhyggjur. Ég hef mikla reynslu af þessu.
Mér tekst alltaf að rugla rugludallana.
40% áfengt viskí fer í kassa merkt sem "límonaði."
Skal gert.
Maureen hefur ekki sex tíma til að farða sig.
Ef hún vill leika verður hún að mæta á skipið.
Hún vill ekki leika í myndinni.
- Maureen hætti við. - Hætti hún við?
Í gær. Ég sagði þér það.
Sagðirðu að við myndum taka myndina upp í Singapúr?
Þú sagðir henni það.
Við gerum það ekki.
Þú þurftir bara að horfa í augun á henni og ljúga.
Ég tala við menn Jean Harlow.
Hún er upptekin.
En Myrna Loy? Clara Bow? Mae West?
Þú kemur henni aldrei í stærð 4.
Þig vantar stúlku sem passar í búningana hennar Maureen.
No comments yet. Be the first to leave one.