The first 200 lines.
Nei, nei, nei!
Og klippa!
Endamerki. Og merking.
Jæja, hættum. Endurstilla.
Kveikið á öðru slökkvitæki. Strax!
Bakkið. Bakkið bara.
Farið frá, farið frá.
Halló? Mig vantar aðstoð.
Slepptu mér!
Nei, við erum í vandræðum.
Snertu mig ekki! Segðu ekki orð!
Fyrir hvað er verið að handtaka mig?
Heldurðu að þú sért merkilegur?
Þú veist ekki hve góður ég er í mínu fagi.
Af hverju er ég hér?
Svaraðu helvítis spurningunni!
Svaraðu spurningunni, skíthæll!
Heimski skíthæll!
Af hverju er ég hér?
Svaraðu spurningunni!
Svaraðu helvítis spurningunni! Af hverju er ég hér?
Það eru engir verðir hér, Otis.
Ég sá það.
Þar sem þetta er þriðja ölvunarbrot þitt,
látum við dómarann vita ef þú ferð, og þá situr þú þessi fjögur ár af þér.
Einmitt.
Hvar byrjum við?
Ég veit ekki, stjóri. Ég get greinilega ekki tekið ákvarðanir.
Ég er loftbelgur með minnimáttarkennd.
Reynum aftur.
Hvað um atvinnugeðklofi? Hvað viltu að ég segi? Ég er einskis virði.
Skrifaðu niður minningar þínar,
svo við getum byrjað á afhjúpunarmeðferð.
Hvað er það?
Einföld leið til að hætta að forðast áfallaminningar sem kveikja á þér.
Forðast ég áfallaminningar? Öll vinna mín mótast af þeim.
Ég er að tala um gikki sem gera þjáningu þína óviðráðanlega
og ofbeldisfulla. -Eins og?
Hvað sem gerir þig reiðan. Þar byrjum við.
Otis, ég hef gert þetta lengi.
Ég sá prófin þín og þú ert greinilega með ÁSR.
Nei.
Eftir hvað?
Klippa!
Ein mínúta.
Þakka þér fyrir.
Fínn bökuslagur, Otis.
Þakka þér fyrir.
Ert þú gæludýramanneskja?
Við eigum hund. -Jæja?
Ég átti hænu, Henriettu LaFugl. Fyrsta áhættuhæna í heimi.
Pabbi, losaðu afturhlutann. -Ég vissi það því allar... Hvað?
Losa að aftan. -Já. Augnablik.
Ég átti hænu. Ég setti hana á hausinn á mér og fór handahlaup.
Hún hljóp frá haus niður á rass, aftur og aftur.
Ég var mikið með hænum í ótemjureiðunum. -Pabbi.
Svo setti ég hænuna á hausinn... Hérna er það.
...og lagði rafmagnsvír niður ermina að henni,
setti KFC fötu á gólfið og kveikti í.
Svo hleypti ég á straumi og Henrietta flaug af mér og lenti í fötunni.
Áhorfendur trylltust. Það var mikið mál.
Vá. -Já, það var gott.
Einu sinni hitaði ég upp fyrir Stevie Nicks.
Andskotinn, pabbi!
Hvað sögðum við um munnsöfnuð?
Að ég eigi ekki að tala svona. -Að þú eigir ekki að tala svona.
Þú biður Pam afsökunar. -Já.
Ó, já.
Fyrirgefðu, Pam. -Það er allt í lagi.
Hengdu upp gallann. Þakkaðu Donnu. -Já.
Þú áttir góðan dag annars. -Já.
Varði miklum tíma með hænum. Veistu hvað ég lærði af því?
Þú hefur séð hvíta blettinn í miðjum hæsnaskít.
Veistu hvað það er? -Nei, hvað?
Það er líka hænsnaskítur.
Var þessi ekki góður? Ertu með símanúmer?
Já.
Má ég fá það hjá þér? Seinna. Á morgun?
Allt í lagi. -Allt í lagi.
Hafðu það gott.
Ertu á? -Já.
Ertu góður? -Já.
Hvern varstu að tala við?
Engan. -Ég sagði þér að vera ekki í þessum toppi.
Bannaði ég þér ekki að vera í honum? -Það var ekkert annað hreint.
Rocco! Ég er þarna!
Réttu mér tökuáætlun. Þar eru dagpeningarnir.
Snertu þá ekki, Rocco! Ég á þessa sokka!
Geturðu ekki gefið því 10 mínútur enn? -Fimm mínútur.
Það þarf að fá aðra þvottavél og þurrkara.
Þetta er að verða martröð.
Ó, nei.
Ó, nei, barnaleki.
Þú ert með gyðingasprænu. Fjandans.
Þakkaðu móður þinni. Typpið á þér er eins og golfblýantur.
Það skilar sínu hlutverki. -„Skilar sínu hlutverki.“
Hvaða helvítis hlutverk er það? -Stelpur.
Stelpur. Þú gætir ekki riðið sjálfum þér með því.
Þú hefur líklega migið á punginn á þér.
Er pungurinn blautur? -Ég er 12 ára.
Já, 12 ára typpi.
Þegar ég var 12 ára heyrðist svona í typpinu.
Bíddu eftir því.
Heyrirðu þetta?
Heyrirðu það skella á skálinni?
Þetta eru rætur, vinur.
Blóð.
Þaðan sem þú ert.
Það skiptir máli.
Ég veit að þér er skítsama, kúkarass. Hvað var ég að segja?
Vandinn með þig er að þú hlustar ekki. Þú ert eigingjarn.
Ég var að segja þér frá fjölskyldunni og þú horfir bara á þetta.
Ég sé þig. Einbeittu þér. Vertu 12 ára. Bökuslagur.
Það er ekki bökuslagur.
Ekki? Hvað er það? Þú trúðast, vinur.
Það er ótemjureið. -Nei.
Það er það sama og trúðleikur. -Nei.
Hvernig veistu? Þú hefur aldrei farið. -Víst.
Ljúgðu ekki. Hver fór með þig? -Tom.
Fór Tom með þig á ótemjureið? -Já.
Auðvitað. Hvert fóruð þið?
Ég veit það ekki. Það var ótemjureið. -Þú manst það ekki.
Voru trúðar þar? Nei. Þið fóruð á markaðinn í Pomona.
Þið fóruð á markað. Sjáðu mig í Muskogee.
Ég er að tala um ótemjureið, ljós.
Fjandinn. Tæki. Dýr. Málaði sjálfur andlitið, búningur.
Commedia dell'arte. Ég sat nautin þar til ég braut öll rassbeinin.
Ég er ekki trúður.
Það er ólíkt, já. En líka það sama, skítseiði.
Þetta skít.... Hann er inni. Rocco, var ég ekki að segja það?
Sagðist ég ekki eiga sokkana?
Fjandinn. Komdu með áætlunina og taktu töskuna.
Þetta skítseiði...
Þakka þér!
Þú færð það á eftir!
Pabbi... -Sex. Þú ferð snemma að sofa.
Já, varðandi það.
AJ útvegaði miða á leik með Dodgers,
sem er flott því Nomo kastar. -Þú segir ekki. Flott.
Hann ætlar með mig á leikinn.
Hver kastar? -Eftir sólsetur á morgun. Nomo.
Heitir hann Nomo? -Já, Nomo hvirfilbylur.
Þú segir ekki. -Ég þarf pening.
Flott nafn. Hvirfilbylur. -Fyrir pylsum og svoleiðis.
Hann neglir þá út með bundið fyrir augun. -Já, líklega.
Veistu hvað japanskt augnbindi kallast? Skóreim.
Þetta er fyndið. Svona nú.
Pabbi, bara... -Þá það.
Ég var að búa mig undir annan. Sérðu mig koma með hann?
Ég ætlaði að nota Sum Ting Wong brandarann. Kanntu hann?
Hann er svakalega fyndinn. Heyrðu... Þú brýtur gleraugun mín.
Ég ætlaði það ekki. -Settu í pokann. Djöfull.
Gættu að hvar hendurnar eru.
Þannig að þú ætlar á leikinn með AJ? -Já.
Hver ekur þér?
AJ.
Nei, nei. Þú ætlar á leikinn með AJ, en hver ekur?
Því hann er 14 ára og foreldrar hans í Castaic.
Hver ekur ykkur á leikinn?
Tom.
Ekur Tom ykkur?
Já.
Segirðu mér ekki fleira? -Fyrirgefðu, pabbi.
Hvað?
Að ljúga að þér.
Ég hélt bara að þú...
Þú verður skrítinn, veistu?
Taktu fimm sokka.
Fimm? -Já, þú þarft tvo.
Ef þú missir þá, tekurðu tíu armbeygjur.
Svona, já.
Pabbi. -Já.
Manstu að þú sagðist smíða trjáhús handa mér?
Við áttum aldrei tré. Kauptu tré og ég byrja.
Fyrirgefðu. -Hvað var þetta? Taktu hann upp.
Fórstu á fundinn þinn? -Já.
Var hann góður? -Já.
Það er gott. -Við erum jafnir.
Já, það voru eins og 45 ár þar.
Stórar kökur.
Ég er að nálgast fjögur sjálfur. Það veistu.
Það er klikkað. -Já.
Jæja, haltu áfram. Tíu. -Tíu?
Ætlarðu að gefa mér köku? -Já, ef þig langar í.
Veistu hvað fleira ég vil? -Hvað?
Sjá hvort Tom sé hænsnahaukur. -Hann er það ekki.
Ég veit það ekki. -Þú verður að treysta mér.
Sömuleiðis. Hví get ég ekki hitt hann?
Mamma heldur að þú bilist. -Hún heldur margt.
Hún lifir í geimnum. -Hún hefur alltaf verið til staðar.
Já, og á Endurreisnarhátíðinni.
Ég hef verið staðar. Ég vek þig kl. 04. Hver er hér nú?
Hún er upptekin. Hún vinnur. -Hví er hún upptekin?
Hún... -Af hverju vinnur hún?
Hugsaðu það til enda. Af hverju vinnur mamma þín?
Bara til öryggis. -Til öryggis vegna hvers?
Ég veit það ekki. -Ef þú bregst.
Ef það gengur ekki upp. -Nei.
Hún gerir þig hræddan. Það geri ég aldrei?
Ég dæli í þig styrk.
No comments yet. Be the first to leave one.