The first 200 lines.
Afsakið.
Afsakið, farið frá.
Jesús minn.
Fjórir slasaðir við Lee's. Sendið tvo sjúkrabíla.
Hvað gerðist? Keyrði einhver á þá?
Nei, þetta voru slagsmál.
Einn gaur lúbarði þá alla á nokkrum sekúndum.
Hann er ennþá inni.
Þessi þarna.
Snúðu þér við, góði. Upp með hendur.
Hægt og rólega.
Herskilríki.
Útrunnin.
38 dalir.
Og tannbursti.
Ekkert heimilisfang.
Með öðrum orðum, heimilislaus.
Líkamsárás er annars stigs stórafbrot í þessu ríki, herra...
Reacher. Eiginnafnið er Jack. Ekkert millinafn.
Þú færð 10 til 20 ára dóm þegar strákarnir geta borið vitni.
Skráðu handtökuna og sendu hann í varðhald.
Það er tvennt sem gerist á næstu 90 sekúndum.
Hvað segirðu?
Í fyrsta lagi á síminn eftir að hringja.
Í öðru lagi...
verður þú handjárnaður og á leið í fangelsi.
Það er enginn smáræðis spádómur, herra Reacher.
Þetta er Turner majór
frá 110. herlögregludeild í Alexandríu í Virginíu.
Þú og strákarnir úti gerðuð reginmistök
með því að starfa á svæði í eigu hersins.
Hvað ertu að tala um?
Þið rænduð ólöglegum innflytjendum
og selduð þá.
Herlögreglan er á leiðinni.
Ef ég mætti ráða myndi ég drepa þig.
Síminn hringir bara áfram.
Raymond Wood lögreglustjóri.
Hver í fjandanum ertu?
Maðurinn sem þú reiknaðir ekki með.
Þakka þér fyrir.
110. herlögregludeild. Leach liðþjálfi.
Turner majór, takk.
Augnablik.
Turner hérna.
S. Turner majór?
Það er hún. Hver er þetta með leyfi?
Jack Reacher.
Er það virkilega? Gaman að heyra loksins í þér.
Takk fyrir ábendinguna um lögreglustjórann.
Nei, ég...
Ég vildi þakka þér fyrir að hafa hjálpað mér úr klípunni.
Gera hermenn þetta ekki hver fyrir annan, majór?
Fyrrverandi majór.
Eitt sinn majór, ávallt majór.
Hvaðan hringirðu?
Ég held að ég sé við lndependence.
Þú ert ekki viss.
Það skiptir ekki máli. Ég er mikið á ferðinni.
Ég heyrði það. - Hvað fleira hefurðu heyrt?
Góði besti, þú ert goðsögn hér á bæ.
Sumir velta enn fyrir sér hvers vegna þú hættir.
Ég vaknaði einn morguninn og búningurinn passaði mér ekki.
110. herlögregludeild. Leach liðþjálfi.
Jack Reacher að hringja í Turner majór.
Augnablik, majór.
Reacher.
Hvernig er skrifstofan mín?
Ég sit hérna núna.
Það er stór dæld í skrifborðinu.
Sagt er að þú hafir gert hana með höfðinu á einhverjum.
Er það satt?
Ekki mín besta stund.
Ertu kominn aftur í klípu?
Ég frétti að þú ættir til að rata í vandræði.
Eða þefa þau uppi.
Ég skulda þér líklega kvöldverð fyrir greiðann um daginn.
Þú varst lengi að komast að þeirri niðurstöðu.
Hvenær kemurðu til Washington?
Ég kem þangað á endanum.
Þá bíð ég ekki í ofvæni.
Þú segir ekki neitt.
Ég er að hugsa hvort mér muni líka við þig í eigin persónu.
Hvað heldurðu? - Ég er á báðum áttum.
Ég veit ekki hvort þú ræður við mig.
Ég hef engar áhyggjur.
Hafðu örlitlar áhyggjur.
Farðu vel með þig, Reacher.
Jack Reacher. Er Turner majór við?
Reacher majór. Leach liðþjálfi, við ræddum saman í síma.
Velkominn aftur.
Bara Reacher.
Ég er óbreyttur borgari núna.
Já, herra. Ég skal fylgja þér upp.
Fyrirgefðu, ég var...
Gakktu í bæinn, majór.
Sam Morgan. Komdu inn.
Komdu inn.
Fáðu þér sæti.
Ég hef heyrt mikið um þig.
Ég leit við til að hitta Turner majór.
Það er vandamál.
Turner hefur verið leyst frá störfum.
Við töluðum saman fyrir örfáum dögum.
Hún var handtekin.
Hún fer fyrir herrétt.
Hver er ákæran?
Njósnir.
Ég tek við stöðunni þar til við finnum eftirmann.
Get ég aðstoðað þig?
Nei, þetta var einkamál.
Þekktust þið þegar þú varst stöðvarstjóri?
Við höfum aldrei hist.
Leitt að færa þér slæmu fréttirnar, majór.
Fyrrverandi majór.
Ég vildi vara þig við.
En hvað? - Morgan ofursti bannaði mér það.
Þú gætir varað mig við núna.
Talaðu opinskátt, liðþjálfi.
Turner majór er frábær yfirmaður, herra.
Hefur henni verið úthlutaður lögmaður?
Mér var skipað að tjá mig ekki um það.
Ég skil.
Hlýddu öllum skipunum, liðþjálfi.
En fyrir forvitni sakir... Hver sá um herþjálfun þína?
Greene liðþjálfi.
Ef Greene liðþjálfi yrði ákærður fyrir eitthvað
gætirðu mælt með lögmanni handa honum?
Já, ekki spurning.
Það yrði Moorcroft ofursti á Dyer-herstöðinni
þar sem fangar dúsa í hámarksöryggisvarðhaldi.
VELKOMIN Í DYER-HERSTÖÐINA
Ofursti?
Þú varst skipaður verjandi Susan Turner majórs.
Ég heiti Jack Reacher, fyrrverandi yfirforingi 110. deildar.
Ég velti fyrir mér hvenær þú kæmir.
Turner majór sagði að undir engum kringumstæðum
ætti ég að veita þér heimsóknarleyfi.
Því sagði hún það? - Hún hefur lesið sér til um þig.
"Andsnúinn yfirvaldi, andfélagslegur..."
Á móti lögmönnum.
Vonlaus faðir?
Hvað segirðu?
Þú borgaðir aldrei meðlag.
Ég er ekki faðir.
Kona að nafni Candace Dutton heldur því samt fram.
Hún óskaði eftir bótum frá hernum
fyrir dóttur sína, Samönthu Dutton, sem er orðin 15 ára.
Þetta eru mistök. -Þau eru það oftast.
Móðirin hefur verið dæmd fyrir vændi og fíkniefnabrot.
Stelpan hefur flækst á milli fósturheimila alla ævi.
Hvað finnst þér um það? - Fósturheimili? Lífið er skítt.
Ég átti við barnið.
Ég á engin börn og hef aldrei heyrt um Candace Dutton.
Ég kom vegna Turner majórs.
Hver eru sönnunargögnin?
Harður diskur með leynilegum gögnum sem fannst heima hjá Turner.
Talið er að hún hafi selt leyndarmál.
Er það allt og sumt?
Viltu mynd af henni í búrku að detta í það með Talíbönum?
Hvað sagði hún þér?
Ég má ekki tala við hana fyrr en á morgun.
Undanþága vegna almannaheilla.
Sættirðu þig við það?
Hvar tókst þú lögfræðipróf?
Kannski varstu einu sinni góður lögmaður, ofursti.
En nú blasir við mér
þreyttur, æviráðinn lögmaður sem vill ekki ógna lífeyrinum.
Láttu mig vita þegar þú manst hvað einkennisbúningurinn táknar.
Þakka þér fyrir.
Hversu lengi gerum við þetta? Ég er svangur.
Vertu þolinmóður.
Hvað ætli hann sé að borða? -Þegiðu.
Ný byssa? - Já.
Hún er flott. Hendurnar á þér virðast stærri.
Ertu hrifinn af stórum höndum?
Þú færð eina í smettið ef þú heldur svona áfram.
Hvert fór hann? - Kannski á klósettið.
Þú áttir að fylgjast með honum.
Heldurðu að ég sé með augu í hnakkanum?
Hvað er títt?
Ekki.
Sýndu mér.
Kastaðu henni aftur í.
Mér er illa við að láta elta mig.
Mér er illa við að láta elta mig.
Á gangstéttinni áðan.
Og í versluninni.
Þú ert lítill þjófur.
Ertu lögga? - Lít ég út eins og lögga?
Kannski fíknó.
Þekkirðu margar fíkniefnalöggur?
Það er klippingin.
Takk, ég klippti mig sjálfur.
Ertu að leita að einhverju skrýtnu?
Sjáumst.
Ertu dóttir Candace Dutton?
Hvað gerði hún núna? - Ekki neitt.
Ég er gamall vinur.
Er það?
No comments yet. Be the first to leave one.