84 Charing Cross Road

84 Charing Cross Road

Download Icelandic Subtitle

Release info

84 Charing Cross Road 1987 1080p BluRay H264 AAC-RARBG is
A Commentary by keejee

Tags

BluRay
1080
Published on: 2020-08-08
Downloads: 38
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

- Fyrsta ferðin til London? - Já.

Má ég ráða þér heilt?

Ekki treysta bílstjórunum.

Þeir fara krókaleiðir.

Og ekki eyða tíma í götukort.

Það ratar enginn um London. Jafnvel ekki innfæddir.

Ég ætti kannski að fara frekar til Baltimore.

Nei.

Þetta verður gaman.

London er frábær.

Er þetta viðskiptaferð eða frí?

Viðskipti sem ég þarf að ganga frá.

Leigubíll!

Hvert viltu fara?

Charing Cross nr. 84.

Herrar: Í auglýsingu ykkar í Bókmenntaritinu

segir að þið sérhæfið ykkur í fágætum bókum.

Þær eru allar fágætar.

Ég vil ekki einkaeintak Ísaja af Gamla testamentinu.

Þetta eru frægar bækur eftir fræga höfunda!

Þetta eru breskar bækur eftir breska höfunda. Enginn vill þær lengur.

Reyndu Scribner's.

Ég gerði það. Það er allt svo fínt þar.

Áttu engar ódýrar útgáfur?

Einhverjar, en engar sem þú vilt.

Mér þykir það leitt.

Þetta er fjórða búðin sem ég skoða í dag.

Les enginn enskar bókmenntir lengur í New York?

Bókmenntaritið.

5. október, 1949.

Marks & Co., Charing Cross nr. 84.

London WC2, England.

Herrar:

Samkvæmt auglýsingu ykkar í Bókmenntaritinu

sérhæfið þið ykkur í fágætum bókum.

Hugtakið "Antíkbækur" fælir mig frá

því ég legg "antík" að jöfnu við hátt verð.

Ég er fátækur rithöfundur með dýran smekk á bókum.

Þær bækur sem ég vil eru ófáanlegar hérna.

Nema dýrar og fágætar útgáfur.

Meðfylgjandi eru óskir mínar.

Ef þið eigið hrein, notuð eintök af bókunum á listanum

sem kosta ekki meira en fimm dali, gætuð þið þá selt mér þær

og sent til mín?

Virðingarfyllst,

Helene Hanff.

Kæra fröken:

Varðandi efni bréfs þíns frá 5. október

hefur okkur tekist að finna nokkur eintök.

Ritgerðirnar þrjár eftir Hazlitt má finna

í Nonesuch Press-útgáfu af Selected Essays.

Og ritgerðin eftir Stevenson

í Virginibus Puerisque.

Við sendum þér bækurnar og vonum að þær komist á leiðarenda

og að þú verðir ánægð.

Reikningur fylgir bókunum.

Ritgerðir Leigh Hunts eru illfáanlegar.

En við reynum að finna fallegt eintak með þeim öllum.

Við eigum ekki latnesku Biblíuna

en eigum Nýja testamentið á latínu og einnig á grísku.

Þetta eru nútímanlegar útgáfur.

Viltu fá þær?

Virðingarfyllst, FPD, Marks & Co.

- Helene Hanff. - Þetta er ég.

- Hæ, Maxine. - Þú ættir að vita hvað gerðist.

Ég get ekki talað núna. Ég svaf yfir mig.

- Á ég að hringja í kvöld? - Fínt.

Tala við þig seinna, bless.

14 East 95, New York.

3. nóvember, 1949.

Herrar: Bækurnar eru komnar.

Ritgerðir Stevensons eru of fínar fyrir óhrjálegar hillur mínar.

Ég hræðist mjúka kápuna og kremlitaðar síðurnar.

Ég er vön hvítum pappír og venjulegum bókakápum

og vissi ekki að bók gæti vakið slíka nautn.

Brian?

Brian!

Hérna!

Sæl, Helene. Ég vissi að þú værir hérna.

- Komdu, við verðum sein. - Ég verð enga stund.

Breti sem er með stelpunni á efri hæðinni

umreiknaði pundin í dali

og segir mig skulda þér 5,30 dali fyrir bækurnar.

Er það örugglega rétt?

Ég skal athuga það.

Eitt pund, sautján, sex, það gera 37 og hálfan skilding, deilt með...

Já, þetta er rétt. 5,30 dalir.

Ég sendi fimm og eins dala seðil.

Sjötíu sentin eru innborgun á Nýju testamentin,

en ég vil þau bæði.

Gefðu verðið upp í dölum framvegis. Mér gengur það illa sjálfri.

Reikningslistin gengur illa hjá mér.

Þín Helene Hanff.

Ég vona að fröken þýði ekki það sama og það gerir hér.

Helene Hanff.

Hún sendi okkur sex dali.

Sjötíu sentum meira.

Kæra fröken Hanff: Greiðsla þín barst okkur.

Okkur þætti betra ef þú sendir okkur póstgreiðslu næst.

Það er öruggara en reiðufé.

Það gleður okkur að þér líkaði Stevenson.

Við höfum sent Nýju testamentin ásamt reikningi

í bæði pundum og dölum.

Vonandi ertu ánægð með þær.

Hvaða svarta mótmælendabiblía er þetta!

Látið kirkjuyfirvöld vita að skemmdarverk hafa verið framin

á fallegasta prósa okkar.

Hver bað þá um að fikta við latnesku Vúlgötuna?

Þeir fá að brenna, trúðu mér.

Þetta skiptir mig engu, ég er gyðingur.

En ég á mágkonu sem er kaþólsk og meþódisti,

frændur sem eru í Öldungakirkjunni fyrir tilstuðlan Abrahams frænda

sem var frelsaður og frænku sem er í Vísindakirkjunni.

Ég held að ekkert þeirra myndi samþykkja þessa biblíu

ef þau vissu af henni.

Þau vita reyndar ekki af tilvist latínunnar.

Hvernig finnst þér hún, elskan?

Ég sendi fjóra dali fyrir skuld minni.

Fáðu þér kaffisopa fyrir afganginn.

Það er ekkert pósthús nærri og ég ætla ekki að fara alla leið

til Rockefeller Plaza og standa í röð fyrir fjóra dali.

Ef ég bíð þangað til á staðinn er komið verður ekkert eftir af peningunum.

Ég hef mikla trú á póstþjónustunni.

Áttu eintak af lmaginary Conversations eftir Landor?

Það eru til nokkur eintök.

Ég vil eintak af grísku samræðunum.

Ef þar er að finna samræður Esóps og Rhodopes

þá vil ég það eintak.

Það er það eina sem við eigum.

Cecily,

Landor, lmaginary Conversations.

Viltu finna hana?

Kæra fröken Hanff: Greiðsla þín barst okkur

og við geymum sentin þín tólf.

Við eigum annað bindi af The Works and Life of Walter Savage Landor

sem geymir grísku samræðurnar sem þú talaðir um

og einnig rómversku samræðurnar.

Útgáfan er frá 1876, lúin en vel bundin

og gott eintak.

Við sendum hana til þín í dag ásamt reikningi.

Við hörmum mistökin með latnesku biblíuna.

Við reynum að finna Vúlgötu fyrir þig.

Að ógleymdum Leigh Hunt.

Virðingarfyllst, FPD, Marks & Co.

Takk.

Mjög girnilegt.

Herra:

Það er fáránlegt að skrifa alltaf "Herrar"

þegar sama sálin sinnir mínum málum.

Ég fékk Savage Landor og las gríska ritgerð

um tvær borgir sem eyðilögðust í stríði.

Menn voru krossfestir og grátbáðu rómverska hermenn

að binda endi á þjáningar þeirra.

Það verður léttir að lesa Esóp og Rhodope þar sem aðeins er hungur.

Ég elska notaðar bækur sem opnast á vellesnum blaðsíðum.

Hazlitt-bókin opnaðist á "Mér leiðist að lesa nýjar bækur".

Og ég kalla fyrri eiganda "félaga!".

Ég sendi einn dal sem Brian, kærasti Kay,

segir að dugi fyrir átta skildinga skuld minni.

Þú gleymdir að nota dali.

Ekki okkar sök að sagt er "NEl" Munið ÞETTA ER LIFIBRAUÐ OKKAR

Takk.

Aðeins 60 grömm á fjölskyldu, elskan.

Jæja.

Brian sagði að ykkur væri skammtað 60 grömm af kjöti vikulega

og eitt egg á mann mánaðarlega!

Mér býður við þessu.

Einhver sagði Brian frá fyrirtæki í Danmörku.

Þeir senda matarpakka til Englands.

- Ég sendi mat til móður minnar. - Sýndu henni listann.

Mjög áreiðanlegir og ódýrir.

Frekar ódýrir.

Jesús!

Sjáðu þetta.

Þeir eiga kryddaða svínafitu, lifrarkæfu, kjötbollur, súkkulaðikökur,

smjörlíki, egg, ost.

Þeir eiga allt!

Mamma Brians trúði ekki eigin augum.

- Hvað sendirðu henni? - Skinku og pylsur.

Niðursoðna ávexti, plómur, hindber.

Hindber! Er þetta ekki frábært!

Heil þjóð segir orðið vitlaust!

Einmitt, fröken!

"Bjer, bjer!"

Þetta er frábært. Gerum lista.

Hvar eigum við að byrja?

Við verðum að senda skinku. Það eru jól.

Hvað með súpu?

Kryddsúpu. Þeim myndi líka það.

Hvað annað? Grænmeti?

- Hvað fá þau ekki? - Haricots verts.

Haricots verts!

Það eru til tvær tegundir af þeim: Góðar og bestar!

Banana? Sendum þeim banana!

Ég sendi þetta til þín, FPD,

hver sem þú ert.

Noël. Helene Hanff.

Réttu mér svona kort til að hengja yfir spegilinn.

Kirkjan eða jólasveinninn?

- Hvort finnst þér flottara? - Jólasveinninn.

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left