Jesus Revolution

Jesus Revolution

Download Icelandic Subtitle

Release info

Jesus Revolution 2023 BDRip x264-PiGNUS
A Commentary by sub.Trader
Oddur Jonasson

Tags

bdrip
bdr
x264
BDR
Published on: 2023-07-07
Downloads: 31
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

BYGGT Á SANNRI BYLTINGU

Sumir segja þetta endalok tímabils.

Aðrir segja að þetta sé upphafið að einhverju nýju.

Getur þú kannski útskýrt það?

Það er ekkert að útskýra. Það verður að upplifa það.

Það sem þú sérð er tákn um nýtt líf.

Sérhver eftirsjá, sérhver efi,

Allt afmáð að eilífu.

Josiah. Fréttamaður.

Greg.

Fólk kallar þetta Guðs eilífu fjölskyldu. Ert þú hluti af henni?

Er þetta fjölskylda fyrir þér?

Ég veit það ekki.

Ég veit ekki hvað það er að eiga fjölskyldu.

Hvernig endaðirðu hér?

EINU ÁRI FYRR

Mótmælendur mótmæla þátttöku Bandaríkjanna

í stríðinu í Víetnam

í fjölmennum kröfugöngum, útifundum og samkomum.

Án útvíðra buxna í beinni frá San Fransiskó,

sjálfskipaðri hippa-höfuðborg heimsins,

þangað sem hundruð þúsunda ungmenna hafa safnast

til liðs við þessa vaxandi ungliðahreyfingu.

Orðin „friður“ og „ást“ eru mikið notuð af þeim.

Þessir krakkar kalla sig „hippa“

og standa fyrir nýja uppreisn gegn óbreyttu ástandi

og hinni svokölluðu efnishyggju foreldra sinna.

Gerger. -Skilaboð þeirra til heimsins:

„Vaknið, verið þið sjálf og hættið harkinu.“

Við tengjumst ekki fjölskyldum okkar. Feður okkar vinna endalaust.

Svo maður vaknar loksins.

Gregory? -Ég kem aftur á eftir, mamma.

Hipparnir skapa félagslega klemmu.

Með fötunum sem þeir klæðast,

boðskap sínum um ást í stað haturs,

frið í stað stríðs.

Þessar skoðanir stilla þeim upp sem uppreisnarfólki

gegn efnishyggju, afturhaldssemi og gamaldags þjóðfélagi.

NEWPORT BEACH Í KALIFORNÍU

Allsstaðar vaknaði ungt fólk og hætti harkinu.

Hipparnir, gras, spítt, sýra.

Áfengisneysla virtist á undanhaldi.

Þið starið á þetta eins og heimurinn sé að farast.

Ég held að heimurinn sé að farast.

Mér finnst þetta fallegt sem þau gera.

Elskan?

Ertu á eiturlyfjum?

Nei, ég er ekki á eiturlyfjum. Hættu að spyrja að þessu.

Ég á við að þau vilji ást og frið.

Það sama og þið, ekki satt? -Ég held að þau þurfi hjálp.

Þau þurfa að baða sig. Ég held að þeim sé ekki viðbjargandi.

Og þar liggur einmitt vandinn.

Að dæma fólk án þess að þekkja það.

Þú hefur aldrei hitt hippa. -Þeir tala ekki við skarfa.

Sagðirðu ekki að ég væri skarfur? -Þú ert táknmynd skarfsins.

Þegar Guð gengur hér inn og færir mér hippa

spyr ég hann um hvað málið snúist. Því ég skil það ekki.

Kannski er kirkjan þín tóm vegna þess.

Hvert ertu að fara? -Að neyta eiturlyfja.

Hún er dóttir þín.

Rússland, Kórea, Kambódía.

Ef við stöðvum ekki framgang kommúnisma mun hann smitast um þjóðir heims.

Það kallast dómínókenningin.

Þess vegna erum við í Víetnam.

Þetta er æfing. Allir undir borð.

Undir borðið, Laurie.

Vissuð þið að atómsprengjan er öflugri

en 50 milljón tonn af TNT-sprengiefni?

Ein sprengja myndi þurrka alla borgina út. Af hverju erum við að þessu?

Hæ.

Hvað er að þér, maður?

Hvað, ertu...?

Ertu frá fíknó? -Ha?

Vinnurðu fyrir alríkislögguna?

Ég er að grínast, maður. Ég heiti Charlie. Gaman að hitta þig.

Ég heiti Greg. -Að sjá þig, Greg.

Skjannafínn, herra.

Allt í lagi.

Á hvað ertu að horfa?

Leyfðu mér að giska. Já...

Viltu að ég kalli á hana? -Nei, nei.

Hún er góð vinkona mín. -Nei, það er allt í góðu.

Cathe! -Ég sagði nei.

Komdu, ég held að þennan gaur langi að hitta þig.

Hann er pínu skrítin svo vertu blíð við hann.

Allt í lagi.

Hæ, skarfur.

Ég er ekki skarfur.

Afsakaðu, þú klæðist eins og skarfur.

Þetta er Greg, hann ætlar að koma að læra hér.

Reyndar má ég ekki læra neitt hér.

Mátt ekki?

Þú mátt gera hvað sem þú vilt.

Þú veist það, ekki satt?

Reyndar máttu það kannski ekki, hermaður.

Ha? Þetta? Nei, nei.

Þetta er ekki mín hugmynd. Mamma á þessa hugmynd.

Hún telur að herskólinn muni „víkka út möguleika mína“.

Ég vil heldur víkka út hugann.

Láttu ekki svona. Þú ert í gaggó. Þeir kenna bara áróður og lygar.

Þá það.

Hvað ef...?

Hvað er það er enginn sannleikur?

Hvað ef allt snýst bara um ólík sjónarmið?

Varstu að vitna í Allen Ginsberg?

Já.

Hvað?

Lest þú Ginsberg?

Já. Smá. En veistu hvað? Ég er reyndar ósammála honum þarna.

Sumt er pottþétt sannleikur. -Jæja? Eins og hvað?

Ég veit það ekki. Hef ekki fundið hann. En nú spyrjum við réttra spurninga.

Charlie.

Við ættum kannski að bjóða Greg um helgina?

Hvað gerist um helgina? -Það er viðburðurinn.

Stærsta samkoma sögumanna sannleikans í Suður-Kal.

Spámaðurinn sjálfur, Timothy Leary, verður á staðnum.

Grateful Dead mæta. -Janis Joplin.

Janis Joplin mætir, maður! Það er allt að gerast.

Svo...

ertu með?

Núna átt þú að segja já.

Já.

Já, auðvitað mæti ég. Að sjálfsögðu.

Gott og vel.

Jæja, þá...

sækjum við þig á morgun.

Bless, Greg.

Sjáumst seinna, Greg.

Þessi kynslóð.

Týnd.

Stefnulaus.

Ritningin segir okkur að án sýnar

muni fólk

farast.

Á hebresku þýðir orðið

að kasta af sér hlekkjum.

Er það ekki það sem við sjáum í dag? Kynslóð án hlekkja?

Einmitt. -Afneitar yfirvaldinu.

Afneitar hefðum.

Afneitar siðferði.

Afneitar Guði.

Þetta...

eru fyrirsagnir okkar tíma.

ER GUÐ DAUÐUR?

Er þetta framtíð okkar?

Við virðumst jafnvel þegar standa frammi fyrir endalokunum.

En með orðum Jesú Krists, drottni vorum og frelsara:

„Hverjum þeim er þraukar allt til enda

skal björgun hljóta.“

Amen.

Við skulum biðja.

Hæ.

Viltu far? -Já, takk.

Svöl skikkja.

Þokkalega. Ég málaði hana sjálfur.

Já...

Ég heiti Lonnie. -Janette.

Hæ. -Hæ.

Á hvaða leið ertu? -Ég er á leið frá San Fransiskó.

Breiði út fagnaðarerindið til hvers þess sem heyra vill.

Hvað um þig, Janette?

Þekkirðu veginn, sannleikann og lífið?

Þú verður að hitta pabba minn.

Mergjað.

Fílar hann hippa? -Nei.

Guð minn, hví hafið þér yfirgefið mig?

Hví er hjálp þín svo fjarri mér?

Nú dámar mér.

Hæ, Chuck Smith. -Hver ert þú?

Hvernig þekkirðu nafn mitt?

Dóttir þín sagði mér það. Þegar hún pikkaði mig upp.

Segðu mér hvar dóttir mín er, á stundinni.

Janette! -Hvað?

Hérna. -Hver er þetta?

Takk. -Lonnie.

Hæ.

Hæ.

Væri þér sama að stíga aðeins út fyrir, herra...?

Sjálfsagt. Frisbee. Lonnie Frisbee.

Frisbee.

Áttu nokkuð sykur? -Takk fyrir.

Hvað er í gangi?

Þú sagðist vilja að Guð sendi þér hippa.

Ég sagði það en meinti það ekki.

Það er eitthvað við þennan náunga, pabbi.

Við spjölluðum í alla nótt. Hann er ótrúlegur.

Eyddirðu nóttinni með honum? Hann gæti verið axarmorðingi.

Það á við um alla.

Hlustaðu bara í tíu mínútur

og ef þér finnst hann galinn hendi ég honum sjálf út.

Það eru góðir straumar í þessu húsi.

JESÚS ELSKAR ÞIG

Svo gaman að hitta þig.

Það ilmar dásamlega hérna.

Hvað ertu að laga? -Steikt eggjabrauð.

Ég elska steikt eggjabrauð.

Tíu mínútur.

Greg!

Greg?

Hvað eruð þið að gera hér? -Við komum að bjarga þér. Komdu.

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left