The first 200 lines.
Með hverri sól kemur nýr dagur. Ný byrjun.
Von um betri tíð í dag en í gær.
En ekki fyrir mig. Ég heiti Ípa.
Og þetta er fjölskylda mín, Crood-fjölskyldan.
Og ef þú sást það ekki á dýrafeldunum og slútandi ennunum þá erum við hellisbúar.
Við eyðum flestum dögum í hellinum okkar, í myrkrinu.
Nótt eftir nótt, dag eftir dag.
Jamm, heima er best.
Þegar við fórum út var erfitt að finna mat í vægðarlausum og óvinveittum heimi.
Og ég átti erfitt með að umbera fjölskyldu mína.
Við vorum þau síðustu á svæðinu. Einu sinni voru nágrannar.
Gort-fjölskyldan, sem mammút klessti.
Hork-fjölskyldan, sem sandsnákur gleypti.
Erf-fjölskyldan, mýflugnabit.
Throg-fjölskyldan, venjulegt kvef.
Og Crood-fjölskyldan, það erum við.
Crood-fjölskyldan lifði af vegna pabba míns.
Hann var sterkur og hann fylgdi reglunum.
Þeim sem voru málaðar á hellisveggina.
Allt nýtt er slæmt, forvitni er slæm.
Að fara út á nóttunni er slæmt. Í stuttu máli er allt skemmtilegt slæmt.
Velkomin í mína veröld.
En þetta er saga um hvernig það breyttist allt á einu augnabliki.
Af því að það sem við vissum ekki var að veröld okkar
var að taka enda.
Og engar reglur á hellisveggjum okkar gátu búið okkur undir það.
Þú átt að bíða eftir merki frá mér. Ípa?
Búú.
Ái! Nei!
Við höfum verið í þessum helli heila eilífð.
Þrír dagar eru ekki heil eilífð.
Jú, með þessari fjölskyldu.
Ípa, viltu koma hingað niður? Þú ert svo dramatísk.
Nei, Sandy, komdu aftur.
Mundu eftir merkinu. Góðar stelpur bíða eftir merkinu. Gugga.
Þegar ég hef náð Sandy fer ég aftur inn og þú getur gefið merkið.
Nei, þú ert komin út núna.
Ég er að bíða eftir merkinu, pabbi.
Skiptir engu, Þöngull. Komdu bara út.
En ef þú gefur ekki merki, hvernig veit ég þá að þú ert pabbi minn?
Merkið er ekki svo þú vitir hver ég er.
Heldur svo þú vitir að dýr hafi ekki étið mig.
Af hverju er merkið þá dýrahljóð? Er það ekki bara ruglandi?
Ég veit það ekki. Ég er enn að bíða eftir merkinu.
Mamma, við erum tilbúin að leggja af stað.
Mamma?
Enn á Iífi.
Enn árla morguns.
Og þú ert enn feitur.
Morgunverðaruppstilling!
Ég vil sjá alvöru hellisbúatakta þarna úti. Við vinnum hratt.
Við vinnum ákveðið. Við vinnum sem fjölskylda.
Og aldrei vera ekki hrædd!
Jibbí, morgunverður.
Hver er næstur?
Köstum upp á það. Veldu á meðan hún svífur.
Haus!
Sporður. Þöngull er næstur. Stöður.
Allt í lagi. Þöngull...
Af stað.
Svona, Þöngull.
Það var lagið. Í hellinn með það.
Sleppið krakkanum!
Náðu þeim, Sandy! Af stað!
Náðu þeim, mamma!
Gömul kona fallin! Ípa, hefndu mín!
Takk.
Ípa!
Passið ykkur!
Pabbi, getum við étið það núna?
Bíddu þangað til við komum heim.
Ípa, settu bremsurnar á.
Ípa!
- Hver er svangur? - Það var lagið, pabbi.
Hérna, Þöngull. Drekktu.
- Afsakið, pabbi. - Það er víst skyndibiti í kvöld.
Þetta er í lagi. Ég borðaði í síðustu viku.
Tveggja hnúa viðvörun!
Svona, Crood-fjölskylda. Af stað.
Svona nú. Myrkrið færir okkur dauðann. Þetta vitum við.
Tunglið er fullt. Baðkvöld.
- FIýjum! - Þú Iíka, mamma.
Ég vil ekki missa varnarskjöld minn.
Mamma, þú ert öll í maurum.
Sko? Ekki kvartar Sandy.
Er hún enn úti?
Þú veist að hún hatar hellinn, Gruggur.
Gerðu það, komdu aftur á morgun.
Af hverju Iíkar henni ekki við hellinn? Hann er svo notalegur.
Hann er svolítið dimmur, Gruggur.
Hann er ekki svo dimmur.
Ípa!
Ípa?
Komdu, ég verð að loka hellinum.
Ípa!
Allt í lagi.
Svona.
Ípa! Komdu niður!
- Þetta var of naumt. - Ég var að fylgjast með.
- Hvað varstu að gera þarna uppi? - Ég veit það ekki.
- Að hverju varstu að leita? - Engu?
- Hví fórstu þá upp? - Ég veit það ekki.
Hví veistu það ekki?
Hættu að leita að einhverju.
Óttinn heldur okkur á Iífi, Ípa. Aldrei vera ekki hrædd.
Hver er tilgangurinn með þessu öllu?
Hvað varstu að segja?
Af hverju erum við hér? Til hvers erum við að þessu?
Enginn sagði að það væri gaman að lifa af.
Ekkert er gaman.
- Komdu hérna niður. - Gruggur.
- Ípa. - Gruggur.
- Já. - Burt!
- Já, ég veit. Ég er að reyna að... - Burt.
Til hvers þarf hún sína eigin syllu?
- Það er bara það. - Hún er að átta sig
og þarf sitt pláss.
Átta sig á hverju? Hvað tekur það langan tíma?
Í alvöru? Hún er strax hætt að hlusta á mig. Heyrðu!
Sko. Hún hlustar á þig.
Ef hún vill lifa af þá verður hún að fylgja reglum okkar.
Hvað um sögu? Ípa elskar sögur.
Það er góð hug... Hvað um sögu?
Já, segðu okkur sögu.
Allt í lagi. Má ég fá þetta lánað? Takk.
Ípa, gamli uppáhaldsbangsinn þinn.
Ég hef ekki leikið mér með hann í mörg ár.
Í kvöld heyrum við söguna um Krispy bangsa.
Fyrir löngu síðan var þessi bangsi á Iífi.
Hún var á Iífi af því að hún hlustaði á pabba sinn
og lifði Iífi sínu vanabundið í myrkri og ótta.
Svo að hún var hamingjusöm.
En Krispy átti við eitt skelfilegt vandamál að etja.
Hún var uppfull af... forvitni.
- Gruggur. - Já. Já.
Og einn daginn þegar hún var uppi í tré
vildi litli forvitni bangsinn klifra upp á topp.
Og um leið og hún var komin upp á topp
sá hún svolítið nýtt og dó!
- Bara sisona? - Já!
Síðustu hryllingsandartökin enn frosin á andliti hennar.
Alltaf endar það eins.
Ég skil, pabbi. Ég geri sko aldrei neitt nýtt eða öðruvísi.
Gott hjá þér, Þöngull.
Allt í lagi, brýnið tennurnar öllsömul og hrúgum okkur saman.
Loft.
Þú talar.
Ég er manneskja, eins og þú.
Næstum eins og þú.
Allt í lagi, allt í lagi.
Heyrðu, heyrðu!
Væri þér sama...
Þetta kitlar.
Heyrðu, heyrðu!
Þögn!
Ég á ekki að vera hérna úti.
Ípa er farin.
Hvað? Gruggur!
Vertu kyrr í hellinum.
Vá. Þú ert mjög sterk.
Heyrðu! Nei! Ég á þetta.
- Hættu! Bíddu. - Nei!
- Hann deyr! Ég get lagað! - Nei! Ég náði honum!
Hættu! Gerðu það.
Ég kann ekki við myrkrið.
Svona, svona, svona.
Gerir hann það sem þú segir?
Já. Eiginlega.
Sólin?
Nei, nei, nei. Eldur.
Halló, eldur.
Hann er ekki lifandi.
En þú sagðir að hann væri að deyja.
Afsakaðu.
Kemur hann þaðan sem þú kemur?
Nei. Nei, ég bý hann til.
- Búðu til handa mér. - Allt í lagi.
Búðu til!
Hann kemur ekki úr mér.
Búðu til! Búðu hann til!
Þú gerir mikið af þessu.
Ertu dauður?
Má ég fá eldinn þinn ef þú ert dauður?
Frá!
Heyrðu, þessir eru kaldir!
Heldurðu það? Hlustunarskeljar virkjaðar.
Ég er sammála.
Tígrisstúlka, við verðum að fara strax.
Ég þekki þig ekki einu sinni.
Ég er Gæi.
Gæi?
Og þetta er Belti. Kokkur, samræðumaður, siglingafræðingur.
Og svo heldur hann buxunum uppi.
Hvað er "buxunum uppi"?
Hver ert þú?
Ípa.
Lof mér að útskýra, Ípa. Heimurinn er að enda.
Ha?
Ég kalla það "Endirinn."
Hvernig veistu það?
No comments yet. Be the first to leave one.