The first 200 lines.
HORFIÐ TIL HÆGRI
Sæll, ókunnugi maður.
Fyrirgefðu, ég var að leita að sígarettu.
Ég er hættur.
Áttu að mæta einhvers staðar? -I vinnuna.
Leist þér ekki á samlokurnar?
Ég borða ekki fisk. -Af hverju ekki?
Fiskar pissa í sjóinn.
Það gera börn líka. -Ég borða ekki heldur börn.
Hvað starfarðu?
Ég er eins konar blaðamaður.
Hvers konar blaðamaður? -Ég skrifa minningargreinar.
Heldurðu að það verði löng bið?
Þessi var 21 árs þegar hún kom hingað.
Finnurðu til?
Ég tóri.
Á ég að lyfta fótleggnum á þér?
Já. takk.
Hver skar skorpuna?
Ég.
Skar mamma þín hana þegar þú varst lítill?
Já, ég held það. -Þú ættir að borða skorpuna.
Þú ættir að hætta að reykja.
Var ég lengi meðvitundarlaus?
Í svona 10 sekúndur. -Hvað svo?
Þú rankaðir við þér, leist á mig
og sagðir: "Sæll, ókunnugi maður."
Meiri dræsan!
Bílstjórinn signdi sig og sagði: "Ég hélt að ég hefði drepið hana."
Ég vildi fara með þig á spítala. Hann hikaði.
Svo ég setti upp snúð og sagði:
Keyrðu okkur á spítala.
Sýndu mér snúðinn.
Gott hjá þér, stráksi.
Þakka þér fyrir.
Ég sagði að ég væri hættur. -Reyndu betur.
Býrðu hérna?
Ég er nýkomin frá New York.
Ertu í fríi?
Í könnunarleiðangri.
Hvar er farangurinn þinn?
Hvar býrðu? -Ég er á flækingi.
Rauður strætisvagn.
Lögregluþjónn eða "bobby". Taktu eftir hjálminum.
St. Paul dómkirkjan, taktu eftir hinni frægu hvelfingu.
Þetta er stórkostleg útsýnisferð. -Sem ferðamenn fá aldrei.
Hvað er þetta? -Ég hef ekki hugmynd um það.
Þetta er fólk sem lét lífið við björgun annarra.
Ég hef komið hingað áður.
Við komum hingað fyrir 20 árum.
Mamma er dáin og við pabbi komum hingað daginn sem hún dó.
Hún reykti. Hún dó á spítala.
Er pabbi þinn enn á lífi? -Hann þraukar.
Hann er á elliheimili.
Þú ert orðinn seinn í vinnuna. -Viltu að ég fari?
Þú ert orðinn seinn í vinnuna.
Hvernig byrjaðirðu að semja minningargreinar?
Mig dreymdi um að verða rithöfundur
en ég hafði ekkert fram að færa.
Svo ég endaði í þessari Síberíu blaðamennskunnar.
Segðu mér hvað þú gerir. Ég vil ímynda mér þig í Síberíu.
Virkilega?
Við köllum það "minningarsíðurnar".
Við erum þrír, ég, Graham og Harry.
Þegar ég mæti, bregst ekki... Ertu viss um að þú viljir heyra þetta?
Ef mikilsverður maður hefur dáið förum við í frystikistuna
sem er tölvuskjal
með minningargreinum og finnum æviferil hins látna.
Eru minningargreinar skrifaðar um fólk sem er á lífi?
Stundum.
Svo ákveður Harry, ritstjórinn, hvern við notum.
Við hringjum, öflum upplýsinga.
Klukkan sex hópumst við kringum tölvuna og skoðum síðuna fyrir næsta dag.
Gerum lokabreytingar.
Skemmtum okkur við að bæta við veigrunarorðum.
Hvernig þá?
"Hann var glaðvær maður“, sem þýðir að hann hafi verið alkóhólisti.
"Hann mat einkalífið mikils“, hommi.
"Hann naut einkalífsins“, dilllbossahommi.
Hvaða veigrunarorð fengi ég?
"Hún sló vopn úr höndunum á manni." -Það eru ekki veigrunarorð.
Jú, víst.
Hvað gerðirðu í New York? -Þú veist.
Nei, ég veit það ekki. Varstu í námi?
Fatafella.
Að sjá litlu augun þín.
Ég sé ekki litlu augun mín.
Af hverju fórstu?
Strákavandi.
Kærasti? -Eiginlega.
Fórstu bara frá honum?
Það er eina leiðin. "Ég elska þig ekki lengur. Vertu sæll."
En ef maður elskar ennþá? -Þá fer maður ekki.
Hefurðu aldrei farið frá þeim sem þú elskar? -Nei.
Hér vinn ég.
Skemmtu þér vel.
Mundu að umferðin hér kemur frá hægri.
Bless.
Áttu kærustu?
Já. Ruth.
Hún er kölluð Ruth. Hún stundar málvísindi.
Hvað heitirðu? -Alice.
Ég heiti Alice Ayres.
Ég þarf að skipta um filmu. Hefurðu nógan tíma?
Má ég reykja? -Ef þú verður.
Ég þarf þess ekki. -Slepptu því þá.
Bókin þín er góð.
Takk.
Hvenær kemur hún út? -Á næsta ári. Hvar lastu hana?
Útgefandinn sendi mér handrit. Ég las hana í nótt.
Þú hélst fyrir mér vöku til fjögur.
Ég er upp með mér.
Byggirðu söguhetjuna á einhverjum sem þú þekkir?
Hún heitir Alice.
Hvað finnst henni um að þú stelir lífi hennar?
Fái það lánað.
Ég tileinkaði henni bókina. Hún er ánægð.
Heldurðu sýningar?
Stundum. Ég sýni á næsta ári.
Andlitsmyndir?
Af hverjum? -Ókunnugu fólki.
Hvað finnst fólki um að þú stelir lífi þess?
Fái það lánað.
Er ég ókunnugur?
Nei, þú ert vinna.
Og hokinn. Réttu úr þér.
Fannst þér bókin ekki klúr?
Hvað? -Bókin.
Mér fannst hún nákvæm.
Varðandi hvað?
Varðandi kynlíf. Og ást.
Hvernig þá?
Þú samdir hana. -Þú last hana til klukkan fjögur.
Ekki lyfta augabrúnunum. Það gerir þig sjálfumglaðan.
En þér fannst hún góð? -Já, en ég gæti skipt um skoðun.
Stattu upp.
Myndirðu gagnrýna eitthvað?
Titilinn.
Hefurðu betri titil?
Fiskabúrið.
Þú hafðir gaman af kláminu.
Hefurðu gaman af fiskabúrum? -Fiskar gleðja sálina.
Ferðu í sædýrasöfn? -Þegar ég kem því við.
Hittirðu ókunnuga þar?
Ókunnuga til að ljósmynda.
Komdu hingað.
Þú ert falleg.
Ég kyssi ekki ókunnuga menn.
Ekki ég heldur.
Búið þið Alice saman?
Já.
Ertu gift?
Já.
Nei. Jú. -Hvort er það?
Skilin.
Áttu börn? -Nei.
Langar þig til þess? -Jú, en ekki í dag.
Langar Alice að eiga börn?
Hún er of ung.
Hún vinnur á kaffihúsi hér nærri. Hún kemur að hitta mig.
Mjög fljótlega.
Því sóarðu tíma hennar?
Þú ert dómhörð. -Þú ert undirförull.
Ég sóa ekki tíma hennar. Hún er svo indæl.
Það er ekki hægt að fara frá henni.
Og þú vilt ekki að annar snerti hana.
Karlmenn eru skíthælar. -En samt sem áður...
Þeir eru samt skíthælar.
Listagyðjan þín.
Þú hefur eyðilagt líf mitt. -Þú jafnar þig.
Skyrtan.
Ertu búinn?
Hvernig er ljósmyndarinn? -Fagmannlegur.
Ströng. Stingandi augnaráð. Úr ykkar hópi.
Kona? -Americano.
Komdu.
Anna?
Þetta er Alice.
Fyrirgefðu að ég trufla. -Nei, við vorum að klára.
Má bjóða þér te? -Nei, takk.
Ég bar það fram í allan dag. Má ég fara á klósettið?
Það er þarna.
Hún er falleg.
Ég verð að hitta þig. -Nei.
Af hverju ekki? Föðurlandsást?
Ég vil engin vandræði. -Það verða engin.
Þú ert frátekinn.
Ég verð að hitta þig. -Því miður.
Þú kysstir mig. -Ertu tólf ára eða hvað?
Ég er ísklumpur.
Viltu taka mynd af mér?
Atvinnuljósmyndari hefur aldrei myndað mig.
Ég get borgað þér.
Nei, það væri gaman.
Bara ef þér er sama.
Því væri mér ekki sama?
Af því þú verður að fara.
Við viljum ekki hafa hann hér á meðan eða hvað?
Nei, alls ekki.
Ég verð á kránni á horninu.
No comments yet. Be the first to leave one.