The first 200 lines.
Vorið 1940 - sex mánuðum eftir upphaf styrjaldarinnar.
Stríðsvél Hitlers er á leið til Noregs.
Höfuðmarkmiðin eru að ná stjórn á:
strönd Noregs,
kónginum,
ríkisstjórninni
og gullforða landsins.
Þetta er sagan um gullið.
8. APRÍL 1940 KVÖLDIÐ FYRIR INNRÁSINA
-Vá! -En fínt!
-Ertu að koma? -Já, alveg að koma.
-Augnablik. -Láttu þetta vera. Komdu.
Ég er næstum búinn.
-Halló! -Hæ!
-Fyrirgefið hvað við erum sein. -Allt í lagi. Halló.
-Hæ, Chris. -Hæ, Fredrik frændi.
Við erum að byrja á kökunni.
Ef Fredrik getur slitið sig frá henni.
Halló.
-En fínt. -Sjáðu hver er kominn! Chris!
-Hún er orðin nógu fín. -Ég kveiki á kertunum.
Húrra fyrir þér á afmælinu. Við óskum þér til hamingju.
Við stöndum í kringum þig og síðan marserum við.
Hneigjum og nikkum og beygjum hné.
Við verðum að fara niður í kjallara.
-Allir. -Nei, pabbi! Þetta er bara æfing.
-Hvar er Nils? -Nils?
-Tókst þú hann ekki með? -Nei, Nils kom ekki með.
Heyrðu ...
-Nils passar íbúðina. -En pabbi, ég verð að fá Nils.
Við megum ekki fara upp til að sækja Nils í loftárás.
Við getum það ekki.
-Er eitthvað að? -Nils er uppi.
Viltu að ég bjargi því? Á ég að sækja Nils?
Nei, þú þarft ekki að gera það.
Jú. Nils er mikilvægur.
Ókei. Nini frænka sækir Nils. Það verður allt í lagi.
Sjáið hvað ég fann.
-Og ég kom með þessa. -Já!
Nils!
Til hamingju með afmælið.
Yfirmaður flotans talar:
Í kvöld sigldu þýsk herskip framhjá virkinu í Óslóarfirði
undir skothríð frá fallbyssum virkisins
og héldu áfram.
Klukkan 4:30 um morguninn fréttist af skothríð
milli herskipanna og Óskarsborgar.
Beitiskip sigldi hjá virkinu
en strandaði svo við Digerud.
Önnur skip hafa skotið á Horten.
Þýsk herskip hafa líka, undir skothríð frá virkinu,
farið inn í Bergen sem hefur verið hertekin.
Tvö skip sigldu inn til Þrándheims.
Borgin virðist vera hernumin.
Eitt skip kom til Narvíkur,
líklega eftir bardaga við norsk skip.
INNRÁSARDAGURINN 9. APRÍL, SNEMMA MORGUNS
-Hvað höfum við mikinn tíma? -Þeir eru komnir.
-Hvað þurfum við? -Kraftaverk.
Meðan við bíðum eftir því, hve marga vörubíla?
20, kannski 25, auk þeirra sem við eigum.
-Þú verður að finna þá. -Ég galdra ekki fram 20 vörubíla.
Nema þú viljir að ég steli bílum.
Frábær hugmynd. Af stað.
Er verkefnið skýrt? Við verðum að finna bíla.
Já, ég bara ...
Ég held það sé aðeins utan við starfslýsinguna mína.
Þú ert með nýtt starf.
Dagurinn í dag verður dálítið óhefðbundinn.
Já ...
GULLFLUTNINGURINN
Irene, hlustaðu á mig. Elskan ...
Nei! Þú getur ekki meinað að við sitjum bara og bíðum.
Þetta tekur bara nokkra tíma. Ég kem fljótt heim.
Ég heyrði í flugvélunum. Ég veit hvað það þýðir.
-Restin af Ósló veit það líka. -Þess vegna verð ég að fara.
Við höfum viðkvæmar upplýsingar sem mega ekki falla í hendur Þjóðverja.
Veslemøy, gerðu það.
Getur ekki einhver annar gert það?
Þú stjórnar ekki skrifstofunni. Þú ert ritari.
Ég hef verk að vinna og ég verð að fara niðureftir.
Við förum til Mylla um leið og ég kem heim.
Bústaðurinn er öruggasti staðurinn, og ég kem fljótt aftur.
Ég lofa því.
DRØBAK 36 KM UTAN VIÐ ÓSLÓ
-Ósló, takk. -Nei, við ætlum til Kolbotn.
Þú ekur mér til Óslóar. Það er mikilvægt.
Ég verð að komast í seðlabankann. Það er mjög mikilvægt.
Þú ert blautur.
Skipið sökk.
-Skipinu okkar var sökkt. -Voru fleiri um borð?
HÖFUÐSTÖÐVAR VERKAMANNAFLOKKSINS
Brenndu þau.
-Brenndu þau. -Allt í lagi.
-Tölfræði frá áramótum. -Brenndu hana.
Þetta?
-Brenndu það. -Allt í lagi.
Þetta verður sent. Ekki setja það út fyrr en bílarnir eru komnir.
Brenndu það.
Bíddu, bíddu, bíddu.
-Afsakið? Haslund? -Já.
-Skrifstofa fjármálaráðherra. -Ég hringi seinna.
-Brenndu það. -Haslund.
Þetta er ráðherrann sjálfur.
Ókei.
Brenna. Skoða. Brenna.
Halló?
-Halló? -Oscar? Er allt í lagi?
Fredrik, ég þarf ökumann.
Við verðum að flýja.
Ég skil ekki. Þarftu ökumenn?
Jesús kristur. Þetta er innrás.
Ég þarf einhvern sem ég get treyst.
-Eins og gamlan vin, Fredrik. -Ég skil.
-Ég kem um leið og ég get. -Takk. Þakka þér fyrir.
Irene?
Elsku Fredrik, komdu um leið og þú getur.
Ástarkveðja, stelpurnar þínar.
Bretar hafa rekið námur við strönd Noregs.
Á Þýskaland að bjarga okkur?
Það ætti að gelda svona pjakka sem sleikja rassinn á brúnstökkum!
Drullið ykkur burt!
Hver andskotinn?
Heyrðu!
Nei, nei, nei! Nei!
Ég er ekki bílþjófur. Ég er ekki að stela vörubílnum.
Ég er frá norska seðlabankanum.
Ef þú ert frá seðlabankanum þá er ég Jesús frá Nasaret.
Nei, nei, nei!
Ég er í mikilvægu verkefni. Við þurfum flutningabíla.
Til Lillehammer. Hérna.
Lestu þetta.
Hypjaðu þig.
Hypjaðu þig, sagði ég!
Hvað á að flytja?
NORSKI SEÐLABANKINN
Áfram!
Ég fann ökumann og vörubíl.
-Fínt. Hvað er þetta? -Ég vil ekki ræða það.
-Fyrirgefðu? -Þetta var erfið reynsla.
Sittu kyrr!
-Þetta er ekki hann. -Jú.
Ég hefði átt að fresta tímunum mínum.
-Heimurinn virðist vera að ... -Hæ, hæ, hæ!
Þetta er hann.
Einmitt.
Engin herútkvaðning?
Ég sé Þjóðverjana út um gluggann!
Nanna, hver er staðan á vörubílunum frá Kristiania Transport?
Þeir voru allir sendir til norska seðlabankans.
Halló! Get ég fengið athygli ykkar?
Ég var að tala við Welhaven lögreglustjóra
og rýmingarnefndin hefur verið leyst upp.
Það tekur strax gildi.
En við erum með rýmingaráætlunina.
Ríkisstjórnin hóf rýmingu án okkar.
En það er okkar eini tilgangur.
Við verðum að tæta allt og fara úr borginni.
Hvað, flýja? Við ættum að berjast á móti.
Gjörðu svo vel að bjóða þig fram og finna byssu,
en ég er farinn ...
Gerðu það!
-Er þetta síðasti kassinn? -Sá síðasti.
Hérna.
Aktu beint til Lillehammer. Ekki stoppa eða taka farþega.
-Farðu inn. -Á pallinn?
-Þú gætir farmsins. -Nei, ég er bankastarfsmaður.
Þú vinnur í bankanum. Þetta verður mikilvægasta verkefnið þitt.
Að sitja aftan á vörubíl á hraðferð?
Þarf ég að útskýra fyrir mínum eigin starfsmanni
hvernig gullfótur virkar?
Þetta er undirstaða efnahagslífsins.
Ef Þjóðverjar ná því hafa þeir kverkatak á okkur.
Farðu inn!
-Fjandinn hafi það! -Hæ, stoppaðu! Stopp!
Ekki orð við neinn um það hvað við erum að flytja.
Og ef við hittum Þjóðverja er hann sem betur fer vopnaður.
Fjárinn.
Farið heim.
Það verður ekki gaman að vinna næstu daga.
Kristiansand hefur orðið fyrir loftárásum.
Þýskt herlið fór í land hjá Egersund.
Tønsberg segir að klukkan 5:30 í morgun
hafi þýsk hersveit farið í land við Vallø
utan við Tønsberg með um 20 hermenn.
Íbúar hafa yfirgefið vitann
og fara í átt til Tønsberg.
Norðmenn hleyptu af skoti,
en Þjóðverjarnir halda ró sinni.
Nei, stopp! Bíddu.
-Gullið? -Á leið til Lillehammer.
Og seðlabankastjóri?
Ég næ ekki í hann, en hann veit hvað á að gera.
Ókei. Af stað.
Við höfum ...
leitað, en ...
við finnum ekki ...
-Schlüssel? -Die? Der?
-Der Schlüssel. -Der Schlüssel.
Hr. Rygg.
No comments yet. Be the first to leave one.