Pan

Pan

Download Icelandic Subtitle

Release info

Pan 2015 BluRay-isl
A Commentary by rippmaster

Tags

other
Published on: 2022-05-16
Downloads: 33
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Ég ætla að segja ykkur sögu

um dreng sem varð aldrei fullorðinn,

um sjóræningjann sem vildi drepa hann

og um eyjuna þar sem álfar reikuðu um.

En þetta er ekki sagan sem þið hafið heyrt áður.

Vegna þess að stundum

eru vinir upphaflega óvinir

og óvinir geta upphaflega verið vinir.

Til þess að skilja til fulls hvernig hlutirnir enda

verðum við stundum að vita hvernig þeir hófust.

LOKAÐ

KENSINGTON-GARÐAR

Systur eilífrar forsjálni Lambeth-drengjaheimilið

Pétur

Ég elska þig, sonur sæll.

Ég elska þig...

Pétur minn.

Það er ræs. Allir á fætur.

Á fætur með ykkur.

Svona, áfram.

Drífið ykkur.

12 árum síðar, í Lundúnum í seinni heimsstyrjöldinni

Pétur, við missum af morgunmatnum.

Hetjurnar hafa risið úr rekkju. Nú þurfa þær að nærast.

Þögn þarna. Ég sagði þögn. Borðið allan matinn ykkar.

Ég segi það ekki aftur.

Hvar er beikonið?

Við fáum alltaf beikon um helgar.

Það er stríð í gangi og skömmtun á mat.

Þið eruð heppnir að fá nokkuð að borða.

Fyrirgefðu, Móðir Barnabas. -Færðu þig.

Ég þori að veðja að hún steli öllum matnum okkar.

Hún heyrir til þín. Hún er með fílseyru.

Fílsrass líka.

Sjáðu.

Fleiri auð sæti.

Nelson og Biggi voru báðir fluttir á brott.

Lukkunnar pamfílar.

Báðir tveir?

Hvenær? -Ég veit það ekki.

Þeir voru farnir þegar ég vaknaði.

Þeir fóru til fjölskyldu í Kanada til stríðsloka.

Mig langar að fara þangað. -Enga vitleysu. Við förum hvergi.

Svo mæður okkar geti sótt okkur?

Einmitt.

Við bíðum hérna, verndum virkið og bíðum eftir riddaraliðinu.

Farið upp á þak og þrífið skítinn úr þakrennunum.

Er það óhætt, Móðir Barnabas?

Ég hef ekki prófað það sjálf. Ekki nýlega.

En allir pappírarnir eru í góðu lagi

ef munaðarleysingi dettur fram af og deyr.

Hunskist nú þangað upp.

Þegar þið eruð komnir upp og nær Guði

getið þið hugsað um sálartetrið ykkar.

Sálartetrið sem fölnar eins og laufin.

Sko, ég hafði rétt fyrir mér.

Hún hamstrar allan matinn okkar.

Hvar felur hún hann? -Á skrifstofunni.

Enginn hefur komið þangað.

Ég heyrði að hún hefði sett upp gildrur.

Þögn, sagði ég. Þögn.

Allir niður í loftvarnabyrgið.

Dauðinn leynist í óreiðunni.

Komdu. -Mér líst ekkert á þetta.

Fort Knox.

Drekabælið.

Komdu.

Hafðu hendurnar þarna.

Lánaðu mér skóinn þinn.

Gætirðu...?

Hljóðlega. -Einmitt.

Nítján.

Tuttugu.

Pétur.

Gamli nunnusóði.

Þetta er heilsuspillandi.

Hvers vegna er Maríustyttan svona hrein?

Nebbi? -Hérna niðri.

Nebbi.

Hvað sagði ég?

Gildrur.

Þetta er fjársjóður.

Skollinn sjálfur.

Pétur.

Þetta er skjalageymslan.

Pétur.

Skýrslan þín.

Elsku Pétur...

Er það frá mömmu þinni?

Hvað stendur þarna?

Ég get ekki lesið það.

Getur þú lesið það?

Ég átti við upphátt.

Elsku Pétur.

Allt sem ég gerði

var vegna þess að ég unni þér.

Ég hlakka til þess að geta sótt þig einhvern daginn

og útskýrt allt saman.

Ekki efast um mig...

og það sem meira máli skiptir...

ekki efast um sjálfan þig.

Þú ert einstakur.

Einstakari en þú getur ímyndað þér.

Ég lofa að þú hittir mig aftur

í þessum heimi eða öðrum.

Komdu.

Þetta er mín eign. Skilaðu þessu.

Veistu, alla munaðarleysingja dreymir um að vera sérstakir.

Að móðir þeirra komi glaðvær að sækja þá.

En móðir þín kemur ekki glaðvær.

Hvers vegna ekki?

Vegna þess að þú ert ekkert sérstakur, Pétur.

Þú ert ekki einu sinni sérstakur

á þinn eigin hátt.

Þú ert ómerkilegur krakkaskítur,

yfirgefinn af gagnslausri móður

sem hefur gleymt tilvist þinni.

Litli villimaður.

Hendurnar, báðir tveir. -Hann gerði ekki neitt.

Hann er samsekur.

Réttið fram hönd...

fyrir vönd.

Heyrðu, Siggi.

Hvenær fóru Árni og tvíburarnir?

Líklega í gærkvöldi.

Allir drengirnir sem hverfa

og allir peningarnir á skrifstofunni...

Hvað er Barnabas að bralla?

Hún selur munaðarleysingja.

Ég vissi það.

Er það virkilega? Það er ekki fallegt.

Hver gæti keypt munaðarleysingja á nóttunni?

Við verðum að komast að því.

Gerum áætlun. Þetta verður gaman.

Ég hef heyrt þennan áður.

Skrattinn, hver fretaði?

Nebbi. -Það var ekki ég.

Þetta var heimskuleg áætlun. Ég er farinn aftur í háttinn.

Komdu.

Góða nótt. -Góða nótt.

Nebbi. -Pétur.

Ég sagði að þetta myndi gerast. Ég hafði rétt fyrir mér.

Hvað?

Farðu að stiganum.

Áfram.

Nebbi.

Vertu sæll, Pétur.

Þú kemur með mér. -Slepptu mér.

Pétur.

Hamingjan sanna.

Tilbúnir að sigla af stað.

Við verðum að komast héðan. Við verðum að stökkva.

Ég get það ekki.

Við verðum að gera það.

Komdu.

Nebbi.

Leggjum í hann.

Komdu.

Vinir fram í rauðan dauðann.

Pétur.

Stjórnstöð flughersins

Skrambinn, þið sökktuð freigátunni minni.

Þýskar herflugvélar nálgast.

Dömur.

Svæði 6, svæði 8 og svæði 12.

Flugvélar.

Spitfire-vélar.

Rýmið þilfarið. -Upp með sverðin.

Í guðs bænum.

Frú, þú sagðir mér að bera kennsl á flugvélina.

Þetta líkist helst...

Út með það.

Þetta líkist helst sjóræningjaskipi, frú.

Hvað sagðirðu?

Skjótið.

Farðu af mér.

Ekki deyja strax. Þú ert dýrmætur farmur.

Er ég það? -Einhverjum finnst það.

Er það móðir mín?

Við förum upp.

Upp með ykkur, litlu rottur. Hunskist af stað.

Drífið ykkur nú.

Áfram með ykkur.

Verið tilbúnir að leggja að bryggju.

Komið, strákar.

Þetta er dagsljósið. -Ég vil sjá það.

Hvað er þetta? -Ég sé ekki neitt.

Er þetta...

Kanada?

Syngdu.

Krjúpið.

Ég krýp ekki fyrir neinum.

Þú krýpur fyrir honum.

Píratinn sem allir píratar óttast. Frummynd martraðanna.

Maðurinn sem er kallaður Svartskeggur.

Syngið fyrir meistara ykkar.

Elsku, ljúfustu börnin mín.

Þið sem grátið steyptum perlum sakleysistára,

þerrið þau, kæru krógar.

Ég hef bjargað ykkur úr grimmilegri dýflissu lífsins

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left