The Swan Princess: A Fairytale Is Born

The Swan Princess: A Fairytale Is Born

Download Icelandic Subtitle

Release info

The Swan Princess A Fairytale is Born 2023 1080p WEB H264-ALLDAYiN
A Commentary by sub.Trader
Letiția Lazăr

Tags

web
1080
Published on: 2023-05-23
Downloads: 38
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Í KVÖLD

Kaupið miðana ykkar núna.

Fljótir, vinir mínir. Þeir hverfa fljótt.

Síðasta tækifærið til að sjá hina heimsfrægu Madame LaCroix.

Standandi síðasta sýning

í heimsferð Madame LaCroix.

30 ÁRUM FYRR

Hvaða læti eru þetta?

„Skilaboð til Ubertu prinsessu frá kónginum.“

Nú, nú, ert þú Uberta?

Ó, já, frá toppi til táar.

Ó, gott, gott.

„Kæra Uberta, ég er látinn.

Sem langfrændi þinn gegnum fjórðu eiginkonu mína,

sem þú hittir einu sinni á matarbasar þriggja ára gömul, ert þú nú drottningin.

Því er eiginmaður þinn konungurinn.

Hér eru lyklarnir að kastalanum.

Stóri lásinn er stífur en snúðu bara snöggt.

Gangi þér vel. Kóngurinn.“

Ég er drottning!

Og þú ert kóngurinn!

Þetta var rétt með lykilinn.

Snúa snöggt, vinur. Snöggt.

Halló?

Hérna!

Er allt þetta fólk hér fyrir mig?

Ó, já. Allt til að tryggja velgengni þína. Ég sé að þú veltir fyrir þér...

Hvað þarf til að vera drottning?

Það er líklega best að við byrjum á grunninum...

Á því hvað þarf til að vera drottning.

Lífið þitt áður þarf að fara.

Það verður ekki aftur snúið. Þú ert á leið þinni.

Við erum til að hjálpa þér. Við sýnum þér hvernig farið er að.

Hvað þarf til að vera drottning?

Þegar þú þarft að skipuleggja stífa dagskrá.

Gerðu það sem þarf til að vera drottning.

Þú þarft að halda í við hverja konungslega diskfylli.

Við þurfum að auka þol þitt.

Þetta líf er ekki fyrir hina hógværu. -Við vinnum átta daga á viku.

Svo hefur þér verið boðið í konunglegt te hjá William og Aubri.

Hvað þá? -Allir kóngar og drottningar verða þar.

Verð ég? -Þú verður.

Það þarf virðuleika og þokka

með fullkomnum smekk.

Hún hefur stíl.

Og snilli til vara.

Klaufi get ég verið. Ég braut annan.

Þú hlýtur að að vera Uberta.

Ég er Aubri. Við verðum bestu vinkonur.

Ég dáist að öllum sem geta leikið tebolla.

Þú ert góð og ég er klaufi.

Við fáum litlafingur til að standa vel út á skömmum tíma.

Það sem William minn er að reyna að segja er...

Það sem þarf til að vera drottning

fyndir þú ekki í neinni konunglegri kennslubók.

Þú ert þegar drottning. -Er það?

Auðvitað. -Auðvitað.

Allt sem þú þarft er innan í þér.

Það skín nógu bjart til að fylla salinn.

Ég sé allt það góða sem þú gerir.

Hér kemur drottningin af Wixom.

Hún þolir ekki galla. -Ekki einn.

Hún finnur sviðsljósið.

Hún elskar að deila málstað sínum. -Málstað mínum?

Málstaður minn er auðvitað hundar.

Ekki bara einhverjir blendingar.

Þeir þurfa að vera mikilvægir og alveg hreinræktaðir.

Eins og ég.

Málstaðurinn minn er konunglegir hundar.

Málstaður? -Engar áhyggjur.

Þú finnur málstað sem hentar þér.

Drottning, það er enn margt ógert til að búa þig undir krýninguna.

Kórónan bíður þín, drottning.

Höku upp. -Standa bein.

Gakktu bein og virðuleg...

Til að verða drottning.

Krýningin verður að vera glæsileg.

Við þurfum að lyfta útliti þínu konunglega.

Smá kunnáttu svo að fólk stansi og stari.

Og vertu hávöxnust með hári.

Hún er reiðubúin.

Gættu þín, góði. Það eru átta tímar af hári þarna.

Þetta þarf til að verða

drottning. -Þetta þarf til að verða...

Þetta þarf til að verða...

Þetta þarf til að verða drottning.

Ó, ó,

ó, mikið ósköp.

Það er margt að óttast.

Hvernig get ég verið sú sem þau telja mig vera?

Ef þú sæir það sem ég sé,

vissirðu alveg hvað þau eiga við.

Þú verður drottning

drottninganna.

Ég? Að taka sæti í Kórónuráðinu?

Það virðist vera alveg agalegt.

Tíu kórónur að vinna saman að því að dreifa gæsku og verja hver aðra.

Einmitt.

Getur hann ekki gert það? -Ég er ekki með blóðið, elskan.

Get ég ýtt þessu yfir á hann? -Það máttu.

Því ég hef málstað að finna.

Þessi dagur varð öðruvísi en ég átti von á.

Þessi Wixom. Hún náði besta málstaðnum.

Ég er ekki svo viss.

Ég vissi að þú hefðir svarið. Er það? Segðu mér það.

Skyldi vandinn með hunda sem enginn vill endast lengur?

Leyfðu mér fá þetta á hreint. Málstaður þinn verður „Björgum hundunum“.

Já, og þú þarft að hjálpa mér að finna góðan hund til kynningar.

Það er enginn slíkur hundur hér.

Bara blendingar sem þarf að smala saman vikulega.

Ef það er viðhorf þitt er engin furða að það sé enginn kynningarhundur.

Flótti úr númer 3!

Gerðu það.

Ég skal taka... hann, þennan og hinn.

Þessi eru verstir af þeim öllum. Þeir leika á þig.

Það gekk. Slepptu þeim lausum.

Hvað ætlarðu að kalla þá?

Hann, Þessi og Hinn.

Vel gert, Uberta.

Af hverju þarf ég að tala við Kórónuráðið?

Það er þitt stóra augnablik.

Láttu þau ekki sjá þig svitna.

Uberta drottning og Maximillian konungur af Chamberg.

Komið.

Í dag gengur þú, Maximillian konungur, í Kórónuráðið.

Ég býð þér að ávarpa okkur.

Þakka þér, Sebastian konungur.

Og ég býð konu minni að segja nokkur orð.

Ef Sebastian hefði viljað að hún mælti, hefði hann beðið hana.

Ég var einmitt að fara að segja það sama.

Mig langar að segja ykkur frá þófunum mínum.

Ég á við málefni. Ég er auðvitað ekki með þófa.

En vinir mínir eru það. Hvuttarnir.

Þeir eru með þófa.

Þraukaðu, Bertie.

Ó, hve margir bestu vinir mannsins liggja í búrum núna

eða þvælast um göturnar í leit að mat og umhyggju?

Já, ég tala um hunda sem enginn vill.

Eru hundar ekki málefni Wixcom drottningar?

Hún verður ekki hrifin af þessu.

Viljið þið ekki hvert og eitt taka í þófa dapurs og einmana hunds í dag?

Ég er með. -Ég líka.

Ég lofa einnig stuðningi mínum.

En hvað um alla kettina sem enginn vill? Aumingja kisurnar?

Bjargið hundunum. -Bravó, Bertie.

„Bjargið hundunum.“

Snúum okkur að þjófunum sem stela uppskeru okkar og hjörðum.

Við þurfum að góma og fangelsa hvern einasta þessara þjófa.

Það er rétt hjá Edgar. Við reisum fleiri fangelsi ef þarf.

Já. Fangelsum barbarana. -Barbarana?

Faðir minn er af þeim kominn.

Ég sá hann aldrei koma með exi að matborðinu.

Það væri betra að kalla þá það sem þeir eru í raun:

Svangt fólk sem vantar vinnu.

Vinnu? Hver ræður þjófa?

Allir landeigendur sem sjá viskuna í að ráða verkamenn frekar en byggja fangelsi.

Heldurðu að þú getir komið á samningi milli landeigenda og þjófa?

Kannski ekki, en Ráðið er mesta afl til góðs í heiminum.

Skuldum við þeim ekki að gera okkar besta?

Ég legg til að við sendum Maximillian konung til að ræða við þá.

Nei. Leyfðu honum mistakast.

Ég styð tillöguna. Allir sem samþykkja rísi úr sætum.

Meirihlutinn er sammála.

Mér leiðist að gera þetta. -Verum snöggir.

Þetta hljómar ljúffengt.

Hérna, vinur. Komdu.

Komdu, vinur. Komdu hingað.

Góður strákur.

Þetta er ekki hundur.

Rólegur. Ég er einn og óvopnaður.

Max frændi? -Peter frændi.

Þú hefur fitnað. Þú lítur vel út.

Maximillian konungur?

Þið getið ekki flúið endalaust.

Það er rétt. Hann er búinn að sjá okkur. Hann þekkir mig.

Hvað gerum við þá? -Ég er með tillögu frá Ráðinu.

Væri þér sama? -Afsakaðu.

Við gætum rænt honum og krafist lausnargjalds.

Þið fáið ekkert frá Ráðinu.

Konan mín elskar mig og hún borgar kannski eitthvað.

Látum sjóræningjana hafa hann. -Já, sjóræningjana.

Látið ekki svona. Í alvöru?

Þögn. -Komdu.

Vitið þið hvað þurfti

til að Ráðið leyfði mér að koma og tala við ykkur?

Þeir vilja reisa fleiri fangelsi. Þar verjið þið ævinni

ef þið hlustið ekki á mig.

Ég get kannski útvegað ykkur vinnu.

Og ekki bara ykkur heldur öllum í ykkar stöðu.

Enginn ræður fólk eins og okkur, Max.

Við vitum það ekki ef við reynum ekki.

Strákar, komið.

Þið komist ekki upp með þetta núna.

Romberg lávarður. -Maximillian konungur?

Þú hefur fitnað. En þú lítur vel út.

Allir líta svo vel út í kvöld.

Hvað? Hvers vegna ert þú hér?

Ég kem mér að efninu.

Þessir menn stela aldrei frá þér aftur ef þú ræður þá í vinnu.

Viltu að ég ráði þjófa?

More Icelandic subtitles for The Swan Princess: A Fairytale Is Born

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left