The first 200 lines.
Hvað í fjandanum?
Tímabært að fara á fætur.
Hvað sögðu Verndararnir?
Um hvað?
Fjórar dánar geimverur á fótboltavelli.
Ein sprengdi hálfa lögreglustöð.
Já, hringi ekki í Verndarana.
Hvað erum við þá að gera?
Ég þjálfa þig.
Í alvöru, taktu tíma.
-Hvað erum við að gera? -Hvað meinarðu?
Þú hefur suðað í mánuð að læra að fljúga.
-Í dag lærir þú. -Við höfum mál að vinna að.
Jesús Kristur almáttugur. Slakaðu á.
Ertu tilbúinn?
Fljúgðu.
Fljúga?
Fljúgðu!
Allt og sumt? Bara… bara fljúga?
Nei. Fyrirgefðu. Vinsamlegast, fljúgðu.
Þetta á að vera eðlislægt. Einbeittu þér.
-Ég er orrustuflugmaður. -Frétti það.
Þegar ég hugsa um flug er það sjálfvirkt, einbeittu þér bara.
Hugsaðu flug.
Frábært. Takk.
Bakkaðu aðeins.
Hvað í fjandanum er þetta.
Held þetta sé fugl, herra.
Hættu með þetta „herra“ kjaftæði? Vitum að þú meinar það ekki.
Eins og þú vilt.
Hringurinn tæmist.
Ný lexía. Ókeypis. Réttu mér hringinn.
Koma svo.
Er vandamál?
Nei.
Nei.
Þegar hleðsla hringsins er lítil er…
einnota endurhleðslubragð.
Þú þarft bara…
Þarft að slá í.
Hringhleðsla fimm prósent.
Allt í lagi.
Ný flugáætlun.
-Bókaði gluggasæti. -Ég skil ekki.
Í flugvél, sæti nær gluggum,
sæti nær ganginum og sæti í miðju líka.
Enginn vill þau.
Málið er að ég þarf lantern til að hlaða hringinn.
Farðu heim til mín í Strandborg og sæktu hann.
Heimilisfangið er aftan á og lykillinn undir steini fyrir framan.
Hal, það var búið að bóka.
Hvað hefðir þú gert ef ég hefði getað flogið?
Þú flaugst ekki. Skiptir ekki máli.
Gerðu þig kláran. Ég þarf lantern.
Eitt enn. Viltu gefa Earl að éta?
Maturinn hans er hjá klakavélinni.
Hvað er Earl? Er hann hundur? Köttur?
Veistu hvað? Ein æfing í viðbót.
Taktu þennan fugl með þér og komdu með hann lifandi.
Ef þú missir einbeitinguna hverfur hann. Hverfi hann, bregst þú.
Ekki bregðast.
Hvað ætlar þú að gera?
Nýt þess að svara ekki spurningum þínum.
VÍSUNDAR ÁRÁS!
HEIMILI BRAUTRYÐJENDANNA
DEILDARMEISTARAR
Þú hefur náð sambandi við lögregluna í Rushville.
Ef það er neyðartilvik, hringdu þá í Neyðarlínuna,
annars, vinsamlega lestu inn skilaboð
og einhver af stöðinni…
Þarna.
Hleðsla hringsins klárast brátt.
-Fjandinn. -Þrír, tveir, einn…
DEILD NÚMER 161
Varstu að tala um mig?
Þú varst að tala um mig.
Afsakið.
Afsakið.
Afsakið.
Haltu áfram.
Við vorum að tala um hvort leikurinn á föstudag ætti að fara fram.
Væri það kveikja fyrir áfall
eða gæti hjálpað að sameina samfélagið?
Þjálfari, þú ætlaðir að segja eitthvað?
Einmitt. Já.
Ég hef talað við drengina og…
þeim er ansi órótt.
Þetta er líka eitthvað sem þeir hafa unnið að allt tímabilið.
Ég á við,
spurning hvað við vorum að kenna þeim ef við pökkum saman og gefumst upp.
Við erum að reyna að átta okkur á því.
Góðar fréttir.
Fékk dómarann til að fella niður kæruna.
Kann að meta það. Hve mikið kostar það mig?
Nei, í boði hússins.
Augljóslega höfum við áhyggjur…
Góðu fréttirnar, frjálst að fara aftur til Strandborgar
eða eitthvað annað sem þig langar.
Um hvað voruð þið að tala þegar ég kom inn?
Fimm manns dóu hérna.
Geimvera sprengdi sig á lögreglustöðinni.
Það er mikið að vinna úr.
Sagði konan þín þér að geimveran hafi röflað um hefnd
þegar hann sprengdi sig?
Þetta vil ég virkilega að þið talið um.
Ég mætti á þennan fótboltavöll út af hugboði.
Bara hugboð um að þetta væri utan úr geimi.
En menn föður þíns skutu fjóra.
Engu að síður er það vinur þeirra sem er geimvera?
Er þetta… spurning eða?
Nei, bara svona að segja
að þið skjótið ekki fólk út af hugboði.
Ég myndi ekki vita það.
Nei, ég segi það. Það er ekki gert.
-Ókei. -Hvernig vissu menn föður þíns
hverja ætti að miða á?
Þú þyrftir að spyrja hann.
Ég spyr þig sem lögmann minn, umhugað um velferð mína
og að því er virðist, ferðaáætlanir.
Enn í lögmannstrúnaði, geri ég ráð fyrir.
Afsakaðu, elskan.
-Já. -Já!
Ég talaði við manninn minn.
Já, auðvitað.
Ef þið ætlið að halda áfram að tala þarf herra Jordan að fara.
Hann byrjaði.
Ég á um 30 sekúndur af þolinmæði eftir.
Ég þarf bara 40.
Og ég veiti þær með ánægju þegar við erum búin hér.
Hve langan tíma tekur það?
Eins langan og þarf.
Já, held ég geti ekki þagað svo lengi.
Afsakið. Ég verð að svara.
Eins og þú varst.
Talaðu, Junior.
Þetta hús er klikkað.
Hringdir þú til að segja það?
Nei. Ég finn ekki lykilinn.
Gáðir þú undir steininn?
Hvaða stein, Hal?
Til vinstri, undir runnanum.
Líkist kartöflu með brosi, eða grettu, ef hann er á hvolfi.
Kartöflusteinn.
Hvernig gegnur þarna?
LÆKNAMIÐSTÖÐ RUSHVILLE
Ég fæ á tilfinninguna að allir vilji mig burt.
Eiginlega… fær mig til að finnast ég þurfa að vera áfram.
Það fengi mann til þess.
Lantern er í fataskápnum.
Ef þú ert við útidyrnar er hann uppi til vinstri.
Hve mikið fá lantern greitt annars?
Ekki nóg, get ég sagt þér.
Húsið þitt heldur öðru fram.
Hvað var þetta?
Engar áhyggjur.
Ég fékk húsið hjá ríkum manni.
Bjargaði krakkanum hans. Pabbinn vansæll því hann gat ekki hjálpað.
Ég vildi ekki gelda hann meira svo ég…
leyfði honum að gefa mér hús.
Hvenær ætlar þú að flytja inn?
Hvað áttu við?
Ég hef búið í húsinu í átta ár.
Engin húsgögn.
Ég er með rúm.
Fann herbergið þitt.
Lantern er í kassa aftast í fataskápnum.
Farðu á ganginn og beygðu til hægri.
Hei, á ég…
að koma með búning til baka eða eitthvað?
Ekki nema þú kennir mér hvernig hægt er að pissa
í þessum fjárans hlutum.
Ég sé kassann.
Gott. Hann er raddstýrður.
Þegar þú ert með hann, settu á hátalarann.
Sælir, Hal Jordan.
Auðkenndu þig til að komast að geymslunni.
Tilbúinn.
Mogo umgengst ekki fólk.
Opnaðu kassann. Lantern er í honum.
Allt kolsvart.
Þetta er vasavídd. Þreifaðu bara fyrir þér þarna og…
þú finnur hann.
Náði honum.
Ekki gleyma að gefa Earl. Skeiðin er á bekknum.
EARL JORDAN SÉRÚTBÚIÐ NAUTA- OG VÍSUNDAKJÖT
Earl.
Hei, Earl.
Kvöldverður.
Earl?
Ég er með uppáhaldið þitt. Naut og vísund.
Earl.
Hei, Earl. Ég veit ekki hvar þú ert, en…
Vil eiginlega klára þetta með matinn.
Hvað er að þér, Jordan?
Hvað segirðu? Hei, Earl, ég er…
Ég heiti John og kom að gefa þér mat.
Ekki éta fuglinn…
allt í lagi?
Einu sinni voru hamborgarar málið hjá mér líka.
Hæ!
No comments yet. Be the first to leave one.