The first 200 lines.
Gerðu svo vel.
Hvernig var leikurinn?
0-8. Tackleberry var rekinn út af í fjórða leikhluta.
Fjárinn. Ég hélt með ykkur.
Við getum ekki allir verið sigurvegarar eins og Stan The Man hérna.
Gættu þín. Ég segi mömmu þinni að þú hafir angað af áfengi.
Já. Ég varð ekki svona klár með því að vera heimskur.
Hvernig gerðirðu það þá?
Verk drottins, býst ég við.
Ekki var það úr bókum. -Já.
Haltu þig á fáförnum vegum.
Líttu vel í kringum þig. -Allt í lagi.
Þakka þér fyrir góð ráð. Já. -Þú ættir að vera ráðgjafi.
Stanley, ég veit að þú ert hér. Ég heyri andardráttinn.
Hvað ertu með, Stanley?
Ég er með 592 dal... Nei.
Ja hérna, 529 dali og 34 sent.
Fjandinn.
Viltu að ég telji aftur?
Nei, nei, ég þarf að manna vakt og komast í póker.
Ég tel ekki aftur fyrir 34 sent.
Ertu viss? Ég get byrjað frá grunni.
Það er ekkert vandamál.
Veistu að síðasta vaktin mín er á mánudag?
Þrjátíu og átta ár upp á dag.
Já, 38, það er rétt. Þeir sögðu að það væri altalað.
Það er tæknilega á þriðjudagsmorgun, samkvæmt laununum.
Þá er það hasta la vista, baby.
Það er The Terminator. Það er úr...
Það er reyndar T2.
Ég veit ekki hvað við gerum án þín, Stanley.
Við verðum líklega bara að loka.
Það efa ég.
Fannstu einhvern á næturvaktina?
Já. Ég er að vinna í því.
Hver sem það verður vona ég að hann standi sig.
Eins og mamma mín sagði alltaf:
„Sumir koma og bretta upp ermar, aðrir koma alls ekki.“
Til fjandans með Shazz.
Hún er afbrýðisöm því þú losnar loks úr þessari skítaholu.
Albion er engin skítahola.
Ef þú bæðir tíu venjulega Bandaríkjamenn
að lýsa Albion í Michigan með tveim orðum,
yrðu „skíta“ og „hola“ efst á listanum.
Af hverju ætti einhver að koma til Albion?
Margir koma í sídermylluna.
Geturðu ekið mér til að sækja flutningakassana?
Ég vil ekki róta í bílskúr systur minnar.
Þú býrð þar. -Mér finnst það samt ónæði.
Ég hef ekki efni á að kaupa tóma kassa bara til að flytja.
Ég er félítill án þess.
Það er hálf heimskulegt að kaupa tóma kassa.
Ég ætti að vera að læra fyrir bílprófið.
Hefurðu enn áhyggjur af því?
Ég sagði þér að bara fávitar og fyrrum fangar falla á því.
Hvað veistu um þann sem tekur við af þér?
Ekkert, nema að hann heitir Jevon.
Jevon?
Hvers konar nafn er það? -Það veit ég ekki.
Ég vona bara að hann sé ekki letingi.
Ég er heimakær.
Jevon Williams.
SKILORÐSSTOFNUN ALBION
Siturðu yfirleitt svona í inntökuviðtali?
Afsakaðu. Ég vissi ekki að þetta væri viðtal.
Ég spyr spurninga. Þú svarar þeim, ekki satt?
Hér stendur að þú sért að koma úr sýslufangelsinu.
Ætlarðu þér að fara í launaða vinnu?
Ég sótti um nokkur störf í bænum
en hef hætt eða verið rekinn úr þeim flestum.
Því er ég í vandræðum.
Það var hringt í mig frá Oscar's Chicken N' Fish.
Það er svæðisbundin keðja. Ekki kannski hátt launað.
Kelly sér um þig. Hún var að koma frá Fangelsismálastofnun.
Sæll. Gott að hitta þig. Þú getur kallað mig Evelyn.
Hún hittir þig hér á morgun kl. 14
til að fara betur yfir skilyrði skilorðsins.
Allt í lagi.
Nú skil ég. Er þetta svona „góð lögga, slæm lögga“?
Eik og víðir? -Hr. Williams,
full vinna og skráning í skóla eða verknámsfræðslu.
Það eru grundvallarskilyrðin.
Ef þú uppfyllir þau ekki telst það brot á skilorði.
Hvað þýðir það?
Að þú farir aftur í fangelsi og afplánir allan dóminn.
Tíu mánuði.
Að skemma minnismerki er alvarlegur glæpur.
Svo kallaðir þú lögregluþjón „húsnegra“,
streittist á móti handtöku og það sem þú gerðir í rúllustiganum.
Það var beinasta leiðin, bró. -Þetta nægir.
Þú mátt fara.
Fjandinn. Alt í góðu með smábarnalungun?
Gras er erfitt að fá í sýslufangelsi. -Já, allt í lagi.
Hvað er sagt?
Maður getur aldrei farið heim aftur. -Þú þarft ekki að fara heim
en þú getur ekki sofið á sófanum mínum, hommi.
Þú ættir að sauma þetta út í púða.
Allt í lagi, þá eru Dylan og brúður hans komin 500 dölum yfir.
Ekkert móttökuteiti? -Þarna er sykurplóman mín!
Ó, elskan.
Hvar hefurðu verið? -Ég sagðist þurfa að gera dálítið.
Elskan mín, alltaf eitthvað að bralla.
Fékkstu ekki að borða þarna? Þú ert svo grannur.
Sæll, Charles frændi. -Hvað varð um „þrjár máltíðir og rúm“?
Hvernig var í Sveitaklúbbi Jacksonsýslu? -Ég vil ekki heyra um það hér. Alls ekki.
Viltu heilsa upp á pabba? Heilsaðu pabba. -Sæll, stóri strákur.
Hvert ertu að fara? Ég var að koma.
Hvað er títt? -Varstu að reykja?
Nei, ég er hættur. -Af hverju ertu þá rauðeygður?
Ég veit það ekki. Árstíðaofnæmi?
Lastu greinina um marijúana og minnistap?
Nei. Ég hef gleymt því. -Mér leiðist að minna þig á
en Carter er aftur með útbrot. -Hvað sagði læknirinn?
Sydney svaf þegar hann átti tímann. Segðu honum það.
Ég lagði mig milli vakta því ég fann tvær vaktir.
Að selja gömlum hvítum konum augnkrem?
Það er ekki bara augnkrem. Það er lífræn húðmeðferð.
Það er bara um tíma. -Geturðu farið með Carter á heilsugæsluna?
Þarftu ekki bílinn til að komast í vinnu?
Ég hringi og segist verða seinn.
Alveg eins og með Foot Locker.
Hvað sagði ég um að reykja nær Carter? -Hann er langt í burtu.
Svo eru þetta léttar.
Ég get fengið að sitja í.
Ég þarf að greiða mér fyrst. -Til að fara til læknis?
Ég fer ekki út svona.
BÍLASÖLUR
Halló!
Opnaðu dyrnar!
Matsalurinn er lokaður! Aðeins lúga eftir kl. 22!
Nei, ég er í þjálfun. Opnaðu! -Það er lokað! Bara lúga!
Ég er Jevon. Í þjálfun.
Heyrðu!
Oscar's Chicken N' Fish. Get ég aðstoðað?
Þetta er Jevon. Ég á að byrja í kvöld.
Hvernig hefurðu það?
Það er verið að éta mig hérna úti. Opnaðu fjárans dyrnar!
Fjárinn. Allt í lagi, bíddu. Ég kem strax.
Hélstu að ég ætlaði að ræna ykkur?
Svaraðu þessu ekki.
Ég er Jevon.
Ég er Stanley.
Komdu. Byrjum á pappírunum þínum.
Rekurðu þetta allt einn?
Eiginlega.
Fernando er í undirbúningi til miðnættis og svo er maður einn til sex.
Hver er Fernando?
Hann er í undirbúningnum.
Hann þurfti að fara fyrr vegna laser tag.
Jæja þá.
Hefurðu reynslu af skyndibita?
Bara að borða hann.
Hvað um sjóðvél?
Nei, en ég gæti talið.
Ertu félagslyndur?
Ég hélt ég væri kominn með starfið. Shazz spurði hvort ég gæti byrjað strax.
Hvað, ert þú óopinber bæjarstjóri hér?
Ég er næturstjórinn.
Hvað er Shazz þá?
Aðal vaktstjórinn.
Hver er munurinn?
Bara hvenær dagsins unnið er. Við erum eiginlega jafnokar.
Er hún ekki yfir þér? -Við erum með svona...
Við vinnum þetta saman.
Mér heyrist það vera einfalt stigveldi. -Allt í lagi.
Þetta er handbók starfsmanna.
Í henni eru allar reglurnar. Þar er...
Þar er eldunarhiti. Hvernig eigi að loka.
Ég tala um þetta sem biblíuna okkar. -Sem biblíuna ykkar.
Fannstu upp á því sjálfur?
Já. Eiginlega.
Það er snjallt.
Þá er það þetta eyðublað.
Á því stendur að þú hafir lesið handbókina.
Ertu með penna?
Þú átt að lesa handbókina fyrst.
Þú átt að lesa handbókina fyrst.
Þú mátt vera fjarverandi þrisvar án ástæðu áður en þér er vikið úr starfi.
En ef strætó er á eftir áætlun?
Ég hef tekið hann í 38 ár og aðeins komið seint einu sinni.
Það var þegar bílstjórinn fékk slag og ók inn í smurstöð.
Ég varð að vinna alla vaktina með tognaðan úlnlið.
Alvöru Willis Reed?
Það er meira í starfinu en það sem er í handbókinni.
Það er list við þriðju vaktina. Það þarf að gera smá af öllu.
Maður þarf að elda og þrífa og undirbúa og bera fram
og spinna.
Einu sinni þurfti ég að búa til súrar gúrkur.
Einu sinni sáum við um afmælisveislu og tómatsósan kláraðist.
Hvað gerðirðu? -Það sem ég þurfti að gera.
Það var ekki fallegt.
Hér verða töfrarnir til.
Hver samloka er framleidd hér.
Kjúklingur til hægri, fiskur til vinstri. Blandaðu þeim aldrei.
Aðskilin en jöfn. -Já, þannig lagað.
Á töflunni hér sérðu hvað fer í hverja samloku.
Ég reyni að spara súru gúrkurnar. Ég set þrjár á samloku.
Já, það stendur hér.
Þá er þetta eiginlega komið. Fylgdu bara reglunum.
Notaðu ekki básinn á karlasnyrtingunni.
No comments yet. Be the first to leave one.