The first 200 lines.
Frábært.
Hlærðu að mér, tölvudrasl?
Ég gæti tekið úr þér rafhlöðuna og drepið þig.
Svo ekki ybba gogg.
27-0-7 til stjórnstöðvar.
Stjórnstöð 27-0-7.
Ég vil athuga skilaboð.
Ég bíð eftir vini að nafni Freddie. Hann kom ekki.
Hefur hann hringt?
Stjórnstöð 27-0-7, engin skilaboð.
Allt í lagi, skilið. Gæti ég fengið að opna símalínu?
Tengdu mig við 555 3312, takk.
Símtal til kærustunnar vegna seinkunar
er ekki nauðsynleg samskipti.
Þú ættir að vita það núna, 27-0-7.
Yfir og út.
Yfir og út. Skilið. Takk fyrir ekkert, stjórnstöð.
Já. Þetta er frábært.
Fjandinn!
Ástarbrautin.
Hæ!
Lögreglan! Neyðartilfelli.
Ég þarf að nota símann. Ég sá loftnetið.
Afsakið að ég bleyti sætin.
Látið eins og ég sé ekki hérna. Ég verð snöggur.
Hundrað dollara kampavínsflaska. Hún er þess virði.
Fjandinn, símsvarinn er á.
-Ertu með símsvara? Ég hata þá. -Já...
Áttu tissjú?
Gleymdu því. Ekkert mál. Þetta næst af.
Hæ, Tracy. Þetta er Dooley.
Ég vildi láta þig vita að mér seinkar aðeins...
Hvað er þetta?
Ég verð að fara.
Þetta er ekki Eyewitness fréttateymið.
Einhver er víst fúll út í mig.
Einhver er örugglega fúll út í mig.
Hæ, Dooley!
-Byers, ég þarf bíl. -Má ég spyrja þig að einu?
Seinna. Gerðu það, ég þarf bíl. Minn sprakk.
Bara eina spurningu.
Hversu margar löggur nota frídaginn sinn til að láta skjóta sig?
-Ég var leiddur í gildru. -Hve margar?
Ég hef hann, allt í lagi?
Ég er svona nálægt því. Ég næ Lyman.
Segðu mér hve margar. Ég vil skrifa það niður.
Allt í lagi, 50 milljón.
Lyman sendir 50 milljónir.
Þetta er stóra málið, og ég næ honum.
Mike, þú hefur ekkert á Lyman!
Þú ert með blaut föt, slæmt viðmót og sprunginn bíl!
LÖGREGLUVERKEFNI
Það er rétt. Ég sagði það, ég þarf bíl.
Ef þú vilt bíl, fáðu þá félaga. Tveir fyrir einn pakki.
-Nei, ég vil ekki félaga. -Taktu Davis.
-Davis hatar mig! -Jæja, hvað um Spencer?
-Ég hata Spencer. -Þú þekkir listann. Veldu einn.
-Lydecker. Hann er góður. -Lydecker er dáinn.
Þess vegna líkar mér hann. Hægir ekki á mér.
Rog, 50 milljónir.
Fimmtíu milljónir og Lyman.
-Fimmtíu millur. -Já.
Hvernig veistu að það er sending á leiðinni?
Fínstillt löggueðlisávísun. Þú manst það, Rog.
Þú varst einu sinni með þannig, manstu?
Áður en þú varðst pennanagandi pjattrófa.
Pennanagandi pjattrófa, flott.
Geturðu sagt það hratt fimm sinnum?
-Pennanagandi pjattrófa... -Þú ert ömurlegur.
Þú ert afbrýðisamur því ég fékk stöðuhækkun á undan.
Það er rétt. Einmitt. Ég er grænn af öfund
því mig langar að eyða dögunum hér
með munninn límdan við rass lögreglustjórans!
-Farðu til fjandans, Dooley! -Komdu! Gerðu það núna!
-Ekki ögra mér! -Kýldu mig almennilega!
Þú gerðir það. Þú kýldir mig.
Ég trúi ekki að þú hafir kýlt mig.
-Fæ ég bílinn? -Ætlarðu að fá félaga?
-Nei. -Þá færðu ekki bílinn.
Allt í lagi.
Ég þarf ekki hjálp þína. Ég næ Lyman einn.
Elskan?
Ljúfan?
Trace?
Trace? Ég veit að þú ert reið og þú hefur rétt á því.
Ég veit að þetta kvöld átti að vera sérstakt.
Ég meina, vínið, hvítlaukskjúklingur, uppáhaldið mitt.
Kartöflugratín, baunir.
Baunir! Þó að ég hati baunir,
þá eru þær hollar fyrir mig, sem sýnir að þér er annt um mig, elskan.
Ég veit að ég er þremur tímum of seinn.
-Ég reyni ekki að segja það... -Hæ.
-Hæ... Hæ. -Hæ.
-Þetta er Chad, Mike. -Chad.
Já, Chad.
Hann er vinur úr vinnunni. Vinnur hjá PanAm.
Er hann svona töskuberagaur?
Ekki beint. Frekar svona flugstjóragaur.
Elskan, þú ert ritstjóri. Hvernig kynntist þú honum?
Hann hefur líka skrifað þrjár metsölubækur.
Bækur? Handbækur?
-Já, sko... -Leiðbeiningar?
Ég þarf að fljúga snemma. Kannski ég...
-Takk fyrir myndina. -Mín var ánægjan.
Borðum saman þegar ég kem frá Hong Kong. Við þrjú.
Vá, það verður áhugavert kvöld.
-Góða nótt. -Góða nótt.
Góða nótt, Chad.
Ferðu á stefnumót? Var þetta það?
Við erum vinir. Við fórum í bíó.
-Gerðu mér greiða. -Mike.
Gerður mér greiða. Þegar þú ferð í bíó
farðu þá með ljótum mönnum.
-Ljótum mönnum í skítastörfum. -Þú ert í skítastarfi.
Einmitt. Skilurðu mig? Ég hélt að við værum fullkomin saman.
Af hverju beiðstu ekki?
Því ef ég lifði eftir þinni stundaskrá myndi ég brjálast.
Ég yrði morðóð innan mánaðar.
Það er mér nógu erfitt að vita að handtaka
er mikilvægari fyrir þig en ég.
Ég elska þig, Mike,
en ég get ekki treyst á þig svo ég geri það sem þarf.
Borðaðu baunirnar, þær eru hollar.
Veistu, ég er að vinna að stórmáli.
Þú ert það alltaf.
Það er Lyman, ég held að hann sé hræddur.
Hann reyndi að drepa mig í kvöld.
Einmitt það sem ég vildi heyra. Mér líður mun betur.
Hvað viltu að ég geri? Hvað viltu að ég segi?
Ég segi það, hvað sem þú vilt.
Það er frekar það sem ég veit. Ég veit hvað er þér mikilvægt.
Það er ekki ég. Það er næsta handtaka eða næsta sending
eða næsti suður-ameríski skíthællinn. Núna veit ég það.
Annað hvort þarf ég að sætta mig við það, eða lifa lífinu öðruvísi.
Jæja, fyrst þú hatar það svona mikið geturðu bara flutt út!
Taktu skóna þína og farðu!
Ég á þetta hús. Þú fluttir inn til mín.
Það er rétt.
Ég var að hugsa hvernig ég hefði efni á svona flottu húsi.
Það er svo... Það er svo smekklegt.
Það er mjög fínt. Þú stóðst þig vel.
Gleymdu þessu í bili.
Ég veit að mælskulistin er ekki þín sterka hlið.
Hver er mín sterka hlið?
-Ekki þessi heldur. -Þú lýgur.
-Þú ert montrass. -Montrass?
Halló, Dooley.
Fékkstu heimilisfang fyrir Freddie?
Nei, gefðu mér það.
Nei, enga lögreglubíla. Ég vil ekki hræða hann.
Nei, nei...
Ég missti af því.
Náði því...
Ernie, que pasa, hvar hefurðu verið?
Ömurleg nótt. Hví ertu ekki heima uppi í rúmi með konunni?
-Hví ert þú það ekki? -Ég er að koma með pizzuna þína.
-Með osti og sveppum? -Eins og venjulega.
-Hérna. Sjö, er það ekki? -Já.
-Hvað um munnþurrku? -Hvað um þjórfé?
Köld fjandans pizza!
Þarf að fá örbylgjuofn hingað.
Heyrðu! Þú fórst yfir stöðvunarskyldu!
Góðan dag.
Hæ, Freddie, minn maður!
Þetta getur ekki verið að gerast.
Taldirðu mig dauðan? Hissa að sjá mig. Þú leiddir mig í gildru!
Ég gerði ekkert!
Frá hverju ertu þá að hlaupa?
Ég þarf á æfingunni að halda.
Æfingu? Ég get aðstoðað þig.
Ég bara skil ekki þetta skokk.
Dooley, hvað ertu að gera?
Hins vegar, ef maður hleypur ekki,
missir maður af kostum þess að hafa gott þol.
Gefðu merki til hægri.
-Takk. Jæja, Freddie... -Hvað ertu að gera?
-Nöfn. Mig vantar nöfn. -Ég veit ekkert!
Veistu hverjum ég er hrifinn af? Edwin Moses.
-Láttu ekki svona. -Frábær grindahlaupari, vissirðu það?
-Svona, vinur, hoppaðu! -Nei, nei, nei!
Þú verður að hlaupa til að verða bestur!
-Jesús, Dooley! -Svona nú, upp, upp!
Allt í lagi, þeir voru að selja.
Að selja? Gættu þín á staurnum!
Þú vilt ekki pirra símafyrirtækið!
Segðu mér hvað þeir heita!
-Nöfn, Freddie. -Ég veit þau ekki!
-Var það Lyman? -Ég veit það ekki. Ég sver það.
Benny múldýr borgaði mér. Hann var byssumaðurinn.
-Er það? -Jesús, hvað ertu að gera?
Ertu í ítölskum skóm án reima?
Þar fór í verra.
HRAÐBRAUT
Ég hunsa þetta skilti, við teljumst sem saman í bíl.
Dooley, þú munt drepa mig!
Hvað ertu að gera?
Allt í lagi. Þú náðir stórri sendingu af kókinu þeirra.
Segðu mér, ætla þeir að flytja inn meira?
Þeir eru að flytja mikið meira inn, ekki satt, Freddie?
Hvað? Segðu það hreint út, Freddie.
No comments yet. Be the first to leave one.