Rams

Rams (Hrútar)

Download Icelandic Subtitle

Release info

Rams 2015 LIMITED BDRip x264-BiPOLAR
A Commentary by all.out.now
Top quality ! (Replaced a previous version after discovering very minor issues)

Tags

bdrip
bdr
x264
BDR
Published on: 2017-02-26
Downloads: 42
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Svona já.

Jæja kerlingin, já... þú ert svo góð.

Þú ert góður strákur.

Já... Lukka mín, þú ert dugleg.

Ert' að bíta, já.

Dugleg að bíta, já.

Já, komdu kallinn.

Svona kallinn minn, já.

Svona, góður strákur.

Góður strákur, já.

Sæl veriði.

Svona...

Svona... já, já.

Þú átt eftir að standa þig vel. Já, já.

Jæja...

Læri.

Átján.

Malir.

Átta.

Bak.

Níu.

Enginn á stærri þátt í lífi þjóðar

er þraukaði af í landi íss og glóðar.

Þolin og hörð í þrautum, hvað sem á dynur,

þúsund ár mannsins bjargvættur og vinur.

Árið um kring í sælu, sorg og kífi

samtvinnast kindin bóndans starfi og lífi.

Ef leið henni vel var sól og bjart í sinni,

svartnætti ef það þrengdi að fjárhjörðinni.

Þá er komið að því að afhenda verðlaunin fyrir þrjá bestu hrútana.

Það er hún Katrín dýralæknir sem gerir það.

Í þriðja sæti er Finnur Guðjónsson með hrútinn Heysa.

Heysi er undan Kveik og Góu frá Svínafelli.

Hann fékk 84 stig.

Í öðru sæti er Guðmundur Böðvarsson

með hrútinn Garp.

Garpur er af hinu fræga Bólstaðarkyni, undan Goða og Birtu.

Hann fékk 86 stig.

...en ég vil taka það fram að það munaði mjög litlu

á tveim efstu hrútunum.

Úrslitin réðust á þykkt bakvöðvans.

Þessir hrútar eru af sama kyni

og sigurvegarinn í ár

er Kristinn Böðvarsson með hrútinn Sprota.

Sproti er undan Loka og Surtlu frá Bólstað.

Hann fékk 86,5 stig.

- Hjartanlega til hamingju, Kiddi minn. - Já, takk fyrir.

- Stórglæsilegt hjá þér! - Takk fyrir.

- Til hamingju Gummi, flott maður! - Til hamingju Gummi minn!

Gott hjá þér, Flott!

- Skál, fyrir Bólstaðarbræðrum! - Já já.

Já, nei takk... nei nei.

Það munaði nú litlu, Gummi? Bara einn vöðvi. Ha?

- Þú tekur'edda á næsta ári, Gummi? - Já já.

- Kiddi minn, gangi þér vel í framtíðinni. - Takk!

Svona kallinn, já.

Þarna er bakvöðvinn.

Hvað, er eitthvað að?

Komdu!

Komdu!

Svona kallinn já. Svona já. Svona, komdu!

Komdu kallinn, já!

Rólegur! Rólegur! Rólegur!

Svona Garpur minn. Svona Garpur minn.

Þú stóðst þig vel, Sproti minn! Jaaahá!

Svona kallinn já, svona kallinn já!

Svona já.

Svona já.

- Sæl veriði. - Nei, nei blessaður Guðmundur minn.

- Blessaður Gummi. - Sæl Hildur mín.

- Hvað segirðu? - Bara allt meinhægt.

Hérna, værirðu til í að ræða aðeins við mig?

Já, já. Já, já.

Ég ætla aðeins að skreppa með honum Gumma.

Er eitthvað að?

Ég er hræddur um að það sé kominn einhver andskotinn í rollurnar hans Kidda.

Nú? Og hvað gæti það verið?

Ég held bara það gæti verið riða.

Riða? Það getur alls ekki verið.

Hrúturinn hans þarna, sem að vann keppnina...

Já.

ég skoðaði hann í gær, og...

hann virðist bara vera með öll einkennin.

Guðmundur minn. Heldurðu hún Katrín hefði ekki tekið eftir því

ef verðlaunahrúturinn væri með riðu?

Viltu að ég tali við Kidda?

- Fái einhvern til að skoða hrútinn? - Já, værirðu til í það?

Ja... þið hafið nú ekki talast við í fjörutíu ár

og farið nú varla að taka upp á því úr þessu.

Hérna... ef að þetta reynist nú vera riða

er þá ekki bara líklegt að það verði skorið niður hjá okkur báðum?

Ég hef enga trú á því að þetta sé riða.

Hér hefur aldrei komið upp riða

og ég veit ekki hvernig hún ætti að hafa borist hingað.

Ert' ekki bara sár út af hrútakeppninni, ha?

Hafðu þetta, helvítið þitt!

Þú kemst ekki upp með þetta helvítis hrútamorðinginn þinn!

Hann er ekki með neina helvítis riðu!

Þú ert bara að búa þetta til.

Þú ert bara... þú ert bara tapsár!

Gummi!

Gummi, heyrirðu í mér?

Hvað gerðist?

Það var... það var skotæfing í gær.

Hérna, ég var að frétta að það væri verið að rannsaka hrútinn hans Kidda?

Heldurðu það geti verið að hann sé með riðu?

Ja, þú verður að spyrja hann að því.

Nei, ég var að tala við 'ann.

Ja, hann sagði að þetta væri allt frá þér komið.

Já... sagð'ann það já?

Ja, ég er nú enginn riðusérfræðingur Grímur, en

þegar ég skoðaði hann í gær

þá var þetta það fyrsta sem mér datt í hug.

Andskotinn sjálfur!

Ef það er komin upp riða í sveitinni þá erum við í djúpum skít.

Ja, þið þarna austur frá þurfið nú ekki að hafa áhyggjur af því

þó að það komi upp riða hér.

Við fengum hann lánaðan í vetur.

Það er helmingur lambanna undan þessu kvikindi.

Til Kidda!

Hvað segir þú, kallinn?

Hvað ertu með núna?

Sæll, Guðmundur.

Ég er ekki með góðar fréttir.

Það er komin upp riða hjá bróður þínum.

Við erum að rannsaka bæina hérna í kring.

Megum við kíkja inn í fjárhúsið?

Já.

Riðuveiki er komin upp á bænum Bólstað í Bárðardal.

Þetta er í fyrsta sinn sem veikin kemur upp í dalnum.

Að sögn Katrínar Níelsen, héraðsdýralæknis

greindist riðan í fullorðnum hrúti

og er verið að kanna hvort hún finnist á nærliggjandi bæjum.

Ekki hefur verið ákveðið hvort farið verður í niðurskurð.

Talið er að riðuveiki hafi borist til landsins

með breskum hrút í lok nítjándu aldar

og ekki hefur enn tekist að stöðva útbreiðslu hennar.

Þetta er smitsjúkdómur sem leggst á heila og mænu kinda

og er hann ólæknandi.

Kæru vinir.

Það var að koma niðurstaða úr rannsókninni

og það fannst riða á tveimur bæjum,

Haugi og Seljatungu.

Það hefur því verið ákveðið,

að skera allt niður í dalnum.

Verður þetta endanleg ákvörðun?

Ja, þeir telja að samgangurinn sé það mikill,

að ef að eigi að útrýma veikinni,

þá verði að skera allan dalinn.

Á þá ekki bara að skera okkur líka?

Klára þetta bara, allt saman?

Við verðum að treysta dýralæknunum.

Huh, þeir vita ekkert í sinn haus.

Háskólamenntaðir bjánar að sunnan!

- Hvað vilt þú gera, Kiddi? - Ég vil að við stoppum þessa vitleysu af.

- Og hvernig eigum við að gera það? - Við bara neitum að skera niður.

Hvernig haldiði að verði að búa hérna

þegar að við verðum búin að missa kindurnar, ha?

- Hafiði hugsað út í það? - Þetta eru bara tvö ár.

Og hvað svo?

Það verður flutt inn eitthvert vestfirskt hormónakjöt.

Ég er sammála Kidda, við getum bara ekki sagt já og amen við þessa dýralækna.

Þeir eru ekkert heilagir.

Ég treysti Katrínu til að taka algjörlega rétt á þessu máli. Það er bara þannig.

Sko, eins og ég sé þetta, þá er þetta spurning um að skera niður strax

eða hafa þessa riðu hérna hangandi yfir okkur næstu árin.

Þú gerir það sem þú villt, Finnur, en ég tek ekki þátt í þessu.

Það er mjög mikilvægt núna að við stöndum saman.

Þetta er mikið áfall fyrir okkur öll

og eðlilegt að menn séu sárir,

en þessi ákvörðun hefur verið tekin

og henni verður ekki breytt.

Já, Guðmundur.

Já, já sæl Katrín.

Mmmhh... Já.

Ég... Já, já.

Já... já, maður er það.

Já, já... svona er lífið.

Já... Nei, ég vil grafa þær hér.

Já... Nei, þær ólust hér upp og ég vil að þær hvíli hér.

Já.. Nei ég er alveg harður á því.

Já.

Já já...

Já... Já... Blessuð.

Svona já. Elsku kerlingin mín, já.

Svona já.

Látiði mig vera í friði, helvítis djöfulsins helvítis andskotans... Ahhhh...

Látiði kindurnar í friði!

Hvers vegna varstu að þessu, Gummi?

Ég vil drepa mínar kindur sjálfur.

- Er þetta allt saman? - Já.

147 stykki.

Allt í lagi. Hreinsiði þetta upp.

- Ætlar þú að ná í dótið? - Já, ég geri það.

Þú verður að fara eftir reglunum, Gummi.

Þú átt ekki að slátra sjálfur.

Ef við eigum að geta upprætt þennan sjúkdóm,

þá verðum við að fara eftir reglunum.

Við greiðum fyrir hverja kind, sem er fargað,

svo færðu svokallaðar afurðatjónsbætur.

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left