The first 200 lines.
Jojo Betzler.
Tíu ára gamall.
Þú gengur nú til liðs við "Jungvolk‟-æskulýðsdeildina
þessa afar sérstöku þjálfunarhelgi.
Það verður erfitt.
En í dag verður þú karlmaður.
Ég heiti því að helga allan minn kraft og styrk
bjargvætti lands vors, Adolf Hitler.
Ég er reiðubúinn og fús að fórna lífi mínu fyrir hann.
Í Guðs nafni.
Já, það er rétt.
Jæja, Jojo Betzler, hvað er hugur þinn?
Nöðruhugur.
Og hvað er líkami þinn?
Úlfslíkami.
Hvað er hugrekki þitt? -Pardushugrekki.
Og Jojo Betzler, hvað er sál þín?
Þýsk sál.
Já, maður. Þú ert tilbúinn.
Adolf.
Ég held að ég geti þetta ekki? -Hvað?
Auðvitað geturðu það.
Þú ert nokkuð mjósleginn og ekki vinsæll
og getur ekki reimað skóna þína þótt þú sért tíu ára.
En þú ert samt besti og tryggasti nasisti sem ég hef kynnst.
Svo ekki sé minnst á hversu myndarlegur þú ert.
Svo þú ferð og skemmtir þér vel, samþykkt?
Samþykkt. -Það var lagið.
Gefðu mér "heil‟, maður.
Heil Hitler.
Hvað? Þú getur gert betur en þetta.
Heil Hitler.
Láttu það bara flakka. Ekki hugsa um það.
Heil Hitler.
Þú hugsar of mikið. Heil Hitler. -Heil Hitterler.
Hver er Hitterler? Kanntu ekki þýsku?
Heil Hitler. -Þetta er ekki "heil‟.
Þetta er heil, heil! -Heil Hitler.
Heil Hitler. -Heil Hitler.
Heil Hitler. -Heil Hitler!
Heil Hitler. -Heil Hitler!
Þarna kom það. -Heil Hitler! Heil Hitler!
Hafðu það gott! Heil Hitler! -Heil Hitler!
Þú verður bestur. Þú getur það. -Heil Hitler!
Heil Hitler!
Heil Hitler, Yorki.
Heil Hitler, Jojo.
Ertu tilbúinn fyrir bestu helgi í heimi? -Já.
Förum þá!
Heil Hitler, krakkar.
Heil Hitler!
"Jungvolk,‟ velkomin í þjálfun Hitlersæskunnar.
Hér gerum við ykkur að karlmönnum og konum.
Ég heiti Klenzendorf kafteinn.
Þið megið kalla mig K kaftein.
K kafteinn.
Og þetta er Finkel undirliðþjálfi.
Þetta er fröken Rahm.
Heil Hitler, öllsömul.
Aðeins um mig. Hver er ég?
Og af hverju tala ég við hóp brjóstmylkinga hér
í stað þess að leiða herlið mitt í orrustu út í dýrlegan dauða? Góð spurning.
Ég hef spurt mig þess daglega eftir Klúðursáætlunina
þar sem ég missti gott auga í óvinaárás sem mátti afstýra.
Og samkvæmt yfirmönnum mínum
þarf tvö augu til að láta til sína taka í stríðinu.
Geta tvíeygir gert þetta?
Jesús minn.
Næstu tvo daga
fáið þið litlu pöddur, smjörþefinn af því
sem hinn mikli þýski her má þola daglega.
Og þó svo virðist sem landi okkar gangi brösuglega
og lítil von sé til þess að við vinnum þetta stríð,
virðist okkur bara ganga ágætlega.
Hvað um það. Þið hafið allir fengið "Jungvolk‟-hnífana ykkar.
Þetta eru afar sérstök og dýr vopn.
Þið ættuð aldrei að vera án þeirra.
Og ekki reyna að stinga hvern annan.
Bannað að stinga!
Bannað að stinga.
Þetta er fyrsta skrefið að karlmennsku ykkar.
Í dag takið þið þátt í hergöngu, byssustingsæfingum,
handsprengjuvarpi, skurðgreftri, kortalestri, gasvörnum,
felubúningi, umsáturstækni,
stríðsleikjum, að skjóta af byssum og sprengingum.
Stelpurnar æfa mikilvæg kvennastörf
eins og að búa um sár, búa um rúm og læra að verða þungaðar.
Ég eignaðist 18 krakka fyrir Þýskaland.
Þetta er gott ár til að vera stelpa.
Allt í lagi. Hefjumst handa.
Af stað.
Guð hjálpi mér.
Þrír, tveir, einn, hakakross!
Toga!
Toga!
Dreptu hann nú. -Nei, ekki!
Vígtennur. -Vígtennur, ja.
Snákstunga. -Snákstunga, já.
Hreistur.
Já. Því einu sinni eðlaði gyðingur sig með fiski.
Aríar eru þúsund sinnum
siðmenntaðri og þróaðri en nokkur annar kynþáttur.
Takið nú saman dótið ykkar.
Nú brennum við bækur.
Já!
Gyðingar virðast ógnvænlegir.
Það finnst mér ekki.
Ef ég hitti gyðing dræpi ég hann svona.
Bara... svona.
En hvernig vissirðu að hann væri gyðingur? Þeir geta litið út eins og við.
Ég myndi þukla höfuðið og finna hornin.
Og þeir lykta af rósakáli.
Já. Ég gleymdi þessu með rósakálið.
Hugsaðu þér að ná gyðingi og færa Hitler hann.
Þá kæmist maður örugglega í lífvarðaliðið hans.
Svo yrðum við bestu vinir.
Ég hélt að ég væri besti vinur þinn.
Yorki, þú ert næstbesti vinur minn.
Fyrsta sætið er frátekið fyrir foringjann.
Svo ef þú ert ekki Hitler dulbúinn sem lítill, feitur strákur,
myndi ég sætta mig við annað sæti.
Ég er víst bara strákur í líkama feits stráks.
Málið leyst.
Þegar þið standið andspænis óvininum og þurfið að enda líf hans,
hverjir ykkar hafa hugrekki til þess?
Gott.
Í her Hitlers er ekkert pláss fyrir þá sem skortir styrk.
Við viljum eitilharða stríðsmenn.
Menn sem geta drepið án þessa að blikna.
Getið þið það?
Já.
Johannes.
Geturðu drepið?
Auðvitað. Mér finnst gaman að drepa.
Gott. Komdu hingað.
Vertu ekki hræddur.
Gott.
Dreptu hana.
Snúðu kanínuna úr hálsliðnum og dreptu hana.
Eða ertu hræddur?
Ég er ekki hræddur. Ég er bara...
Strax.
Settu báðar hendur um hálsinn og snúðu snöggt.
Hún gæti veinað en við ljúkum því þá með stígvélinu.
Dreptu.
Dreptu.
Dreptu.
Farðu! Fljót!
Flott kast.
Þú ert heigull.
Rétt eins og faðir þinn.
Hann er ekki heigull.
Hann berst á Ítalíu.
Jæja? En það hefur ekki heyrst frá honum í tvö ár.
Hann er liðhlaupi og raggeit.
Hann er hræddur og þú líka.
Þú ert hræddur eins og kanínugrey.
Hrædda, litla kanína.
Við ættum kannski að snúa þig úr hálsliðnum.
Kanínan Jojo.
Jojo Kanína.
Jojo Kanína.
Aumingja Jojo.
Hvað er að, litli maður?
Sæll, Adolf.
Viltu segja mér frá þessu með kanínuna?
Hvað var þetta eiginlega?
Þeir vildu að ég dræpi hana.
Fyrirgefðu. Ég gat það ekki.
Fástu ekki um það. Mér er alveg sama.
Nú segja þeir að ég sé hrædd kanína.
Þeir geta sagt það sem þeim sýnist.
Fólk sagði margt ljótt um mig.
"Þessi náungi er brjálaður.‟
"Sjáið þennan brjálæðing. Hann verður okkar bani.‟
Ég skal segja þér leyndarmál. Kanínur eru ekki bleyður.
Litlar, auðmjúkar kanínur horfast daglega í augu við hættur.
Þær leita gulróta fyrir fjölskylduna, fyrir land sitt.
Í mínu ríki verður fullt af dýrum.
Ljón, gíraffar, sebrahestar,
nashyrningar, kolkrabbar,
naskolkrabbar.
Meira að segja hin mikla kanína.
Viltu sígarettu?
Nei, takk. Ég reyki ekki.
Ég skal gefa þér mjög gott ráð.
Vertu kanínan.
Auðmjúka kanínan getur leikið á alla sína óvini.
Hún er hugrökk, lúmsk og sterk.
Vertu kanínan.
Jojo!
Er allt í lagi með þig?
Við hvern varstu að tala?
Engan.
Ég hélt þú værir að gráta.
Ertu tárasérfræðingur?
Nei.
Málið leyst.
Nú er komið að því að Jojo sýni þessum aumu pöddum
hver huglausa kanínan er í raun.
No comments yet. Be the first to leave one.