The first 200 lines.
Fjandans!
Ég var ekki að reyna að flýja.
Nei, gerðu það. Ekki.
Ó Guð. Ég vil ekki deyja.
Já. Já, ég skal hreinsa þig.
Fyrirgefðu.
Ég ætlaði ekki að...
LÖGREGLUMAÐUR SKOTINN
Hæ, systa.
Hvað er klukkan?
Rúmlega átta.
Viltu kaffi?
Nei, verð að fara. Ég hringi á eftir.
Ertu viss um að ég geti ekkert gert?
Angie, þetta verður í fínu lagi. Farðu bara að sofa aftur.
Allt í lagi, ég er að koma, ég er að koma.
AÐGANGUR BANNAÐUR MAYFLOWER CORPORATION
Ben Carson.
Lorenzo Sapelli. Ég hef beðið eftir þér. Komdu inn.
Takk.
Hve lengi hefurðu unnið hérna?
Samanlagt? Fimmtán ár.
Varstu hér þegar brann?
Hryllilegt.
Öll byggingin í ljósum logum.
Það eru liðin fimm ár frá brunanum.
Það eru enn í gangi málaferli við tryggingafélagið.
Það er ómögulegt að hreinsa þetta upp.
Ég hef misst trúna á enduropnun og þar að auki,
hver ætti að vilja versla hérna eftir allt sem gerst hefur?
Meredith-fjölskyldan eignaðist þessa byggingu
eftir að St Matthews-sjúkrahúsinu var lokað 1952.
Það var fyrsta opnun Mayflower á Austurströndinni.
Já, fyrirtækið vill að við förum um svæðið á tveggja tíma fresti
en ég fer á þriggja tíma fresti. Það er meira en nóg.
Þú munt sjá að það er ekki mikið í gangi. Frekar rólegt hérna.
Gjörðu svo vel.
Snyrtivörudeildin, það sem eftir er af henni.
Guði sé lof að þú komst ekki seinna. Mér líður illa hérna á kvöldin.
Ekkert rafmagn.
Allir þessir speglar.
-Best að hafa augun ekki á þeim. -Pússarðu þá?
-Fyrirgefðu? -Speglarnir eru svo hreinir.
Nei, það er Gary. Gary Lewis.
Sá sem vann hérna á undan þér.
Hann var alveg heltekinn af þessum fjárans speglum.
Varði allri nóttinni í að hreinsa þá.
Hve langt er síðan þú hættir í lögreglunni?
Um ár.
Ég veit að það kemur mér ekki við en af hverju hættirðu?
Þú varst rannsóknarlögreglumaður, var það ekki?
Jú.
Fyrirgefðu.
Ég hef alltaf verið of forvitinn.
Það er allt í lagi.
Það var mikið lið að vinna hér fyrir brunann.
Veistu, þegar maður hugsar út í það, af öllum stórverslunum í New York
var þessi sú fallegasta, sú íburðarmesta.
Þetta er mjög dapurlegt.
Gjörðu svo vel.
Hér muntu verja mestu af tíma þínum.
Þú hefur þó rafmagn hérna inni.
Þetta er hlýtt og notalegt.
Hér er meira að segja sjónvarp.
Ég opnaði skottið þar sem hann á að hafa falið myndirnar.
Ég tók poka með vörum gekk inn í bakgarðinn,
opnaði grillið og tók kveikilöginn...
Waiting to Exhale.
Halló?
Halló.
-Hæ, Rosa, hvernig hefurðu það? -Fínt. Ég skal hjálpa þér.
Takk.
Hvar eru krakkarnir?
Uppi hjá Sefior Ben.
Takk.
Allir í skólanum mínum halda að strák sem heitir Eamon,
sem er einn besti strákavinur minn, lítist vel á mig.
Stelpa sem heitir Christiana, sem líst vel á hann, er núna að slúðra.
Viltu að ég tali við frú Ward?
Hún lætur þau langa til að pakka mér í klósettpappír á hrekkjavökunni.
-Hæ. -Hæ.
Sjáðu, mamma. Sjáðu hvað pabbi gaf mér.
Flottur. Þú verður að sýna mér seinna hvernig hann virkar.
Hann fer svo hratt.
Ben? Má ég tala aðeins við þig?
Já. Allt í lagi, þið tvö.
Þú þarft að klára heimavinnuna. Þú þarft að fara í bað.
Áfram. Engan fíflaskap, drífa sig.
Allt í lagi, áfram, Michael.
Heyrðu. Komdu hingað.
Til hamingju með afmælið.
- Takk, pabbi. -Ekkert.
-Hæ. -Hæ.
-Hvað er þetta? -Hvað?
Ég hef beðið þig um að koma ekki án þess að láta mig vita.
Þú svarar ekki símanum.
Góði, Ben, ég vil ekki rífast við þig.
Ég vil ekki rífast heldur. Ef þú svarar ekki símanum hvað...
Ég hef ekki bragðað áfengi Í meira en þrjá mánuði
en hvernig ættir þú að vita það úr því þú svarar ekki?
Ég vil ekki vita það.
Ég vil að þú virðir þarfir mínar.
Amy, ég geri hvað ég get til að virða þarfir þínar.
Ég hef ekki drukkið.
Ég fékk nýja vinnu til að brúa bilið þar til ég fæ stöðuna aftur.
Ég geri hvað ég get til að koma mér á réttan kjöl.
Hvað?
Heldurðu að fólk geti ekki breyst?
Við erum ekki að tala um fólk. Við erum að tala um þig.
Amy, ég drap mann.
Það er ekki einfalt að komast yfir það.
Ég þurfti tíma. Ég þarfnaðist þín.
-Ég var hérna. -Já.
Að dæma mig eins og allir aðrir.
Hvernig dirfistu að segja þetta við mig?
Ég var sú eina á stöðinni sem varði þig.
Hve oft hrakti ég fréttamenn burt af lóðinni okkar?
Hvernig geturðu sagt þetta við mig?
Ég hef alltaf staðið með þér!
Ég var sú eina sem trúði á þig!
Þú ert alveg ótrúlegur!
Gerðu það, ég kom ekki til að rífast.
Fyrirgefðu að ég skyldi koma án þess að hringja.
Mig langaði bara til að hitta þau.
Við verðum að setja reglur.
Hvaða fjandans reglur?
Svona nú Amy, segðu mér bara hvaða reglum ég á að fylgja
svo ég geti hitt son minn á afmælinu hans!
Líttu á sjálfan þig.
Þetta er nákvæmlega það sem ég er að tala um.
Ég veit aldrei hvar ég hef þig.
Ég verð óstyrkur í návist þinni.
Af því að ég er svo hræddur um að ég sé að missa þig.
Og ég klúðri öllu.
-Ég hef saknað þín svo mikið. -Ég sakna þín líka.
Amy, við eigum annað tækifæri skilið.
Ég veit hve mikið ég elska þig og að þarna inni elskar þú mig líka.
Gerðu það.
Gerðu það.
Ég get þetta ekki.
Ég get þetta ekki, Ben.
Fjandinn.
Helvítis.
Hvað í helvítinu?
Fjandinn!
Maður.
Hvað í...
-Þú ættir að hætta að taka þessar töflur. -Jesús!
Hvernig hefurðu það í dag?
Fínt. Mér líður mun betur. Ég er að fara rétt bráðum.
Ertu viss um að allt sé í lagi?
Gerðu það, ekki þú.
Ég er bara að segja að þú getur talað við mig ef þú vilt.
Ég er litla systir þín.
Það er nýja starfið, ekki satt?
Ég þarf á því að halda.
Ég get ekki séð um Amy og krakkana og sjálfan mig á þessum eftirlaunum.
Ég ætla ekki að sofa á sófanum hjá þér það sem eftir er ævinnar.
Kannski færðu dagvinnu, venjulegt starf.
Þetta er ekki svo einfalt.
Þú ættir að hugleiða það.
Ben! Hvað gerðist?
Láttu mig bara í friði.
Angie, út með þig! Núna!
Hvað er að gerast með þig, Ben?
Taktu þér tak.
Hjálp!
Ó, Guð! Ó, Guð! Ó...
Nei!
"Gary Lewis."
Esseker.
Esseker.
Halló?
Halló?
Hvar ertu?
Ég vil hjálpa þér en ég þarf að vita hvar þú ert!
Fjandinn hafi það!
Ég er að koma!
Er einhver hér?
Er einhver hérna inni?
Fjandinn hafi þennan stað.
Mamma! Mamma! Mamma!
-Mamma! Mamma! -Michael?
-Mamma! Mamma! -Michael?
Er í lagi með þig? Hvað er að gerast?
Michael. Hvað er að, elskan?
-Það er kona að öskra. -Hvar?
-Þarna, í speglinum. -I speglinum?
Ég sé engan nema okkur í speglinum.
-Þú fékkst bara martröð, elskan. -Allt í lagi.
Þær geta virst mjög raunverulegar en eru það ekki.
-Allt í lagi. -Förum aftur að sofa.
Svona nú. Inn með þig.
Ég er hérna rétt hjá, allt í lagi?
-Elska þig. -Elska þig líka, gæskur.
-Geturðu haft dyrnar opnar? -Auðvitað, ástin mín.
-En farðu aftur að sofa. -Allt í lagi, mamma.
...ekki ljóst hvernig það gerðist.
Sá 42ja ára kemur væntanlega fyrir rétt í þessum mánuði fyrir meinta
nauðgun fyrrum vinnufélaga í íbúð hennar
No comments yet. Be the first to leave one.