The first 200 lines.
Það var á dimmu og stormasömu kvöldi.
Stormurinn var rafmagnaður. Engin rigning.
Leitt, hefði ekki veitt af henni.
Jæja, þið öll.
Gríninu er lokið. Komið út.
Ian? Ert þetta þú? Ég er frekar varnarlaus hér.
Ég er bara hind, kvenkyns dádýr, alein í skóginum.
Hvert ertu að fara, einfalda táta?
Athuga með hljóðið. Vil tryggja að þetta sé ekki skrímsli.
Aðeins bjánar í hryllingsmyndum rannsaka skuggaleg hljóð...
...í stað þess að hlaupa í burtu.
Leyfðu mér nú að rannsaka þetta í stað þess að hlaupa í burtu.
Förin gefa til kynna...
...að þetta sé Wailing Wampus Werewolf. Haltu í mig.
Ég hélt að hann væri þjóðsaga.
Þjóðsagan lifir.
Þau þurftu hetju. Og þau voru að fá slíka.
Hver getur verndað okkur?
Ég get það!
Elliot!
Þú kemur tímanlega, drengur.
Elliot. Ég veit ekki hvaðan hugrekki þitt kemur.
Það kemur frá því að vera Wailing Wampus Werewolf hvíslari.
Segðu það hratt þrisvar sinnum.
Wailing Wampus Werewolf hvíslari, Wailing Rumpus Rufleaf Rolips.
Weeling Rimpless Roplips... Ég get það ekki! Ég er ekki eins og þú.
Allt lagi, McSquizzy. Ég sé um þetta.
Varúlfurinn tjáir sig í gegnum skýringardans, það get ég líka.
Elliot, farðu varlega. Þetta er svo hættulegt.
Hætta er ættarnafn mitt. Vertu hér á meðan ég ver heimili okkar.
Hér fer hugaðasta og myndarlegasta múldýr...
...sem hefur heiðrað þessa jörð.
Kjaftæði!
Sagan þín er algjört bull, sauðurinn þinn!
Hver segir sögu í svarthvítu, sauðfinnur!
Halló? Þetta kallast að skapa stemningu.
Aðeins algjör fáviti myndi trúa...
...svona fáránlegri sögu um varúlf.
Reyndar finnst mér sagan vera sannfærandi.
Takk, Boog. Ég get alltaf treyst á þig.
Það var enginn vafi á því, varúlfinum var alvara.
Algjör alvara.
Varúlfar eru ekki eins og ég og þú.
Nema þú njótir þess að rífa lungu úr hlutum. En ég dæmi ekki.
Það eru ábyggilega indælir varúlfar þarna úti...
...sem bíða eftir að eignast vini. En ekki þessi varúlfur. Ó, nei.
Wailing Wampus Werewolf er af annarri tegund.
Hann situr um skóginn, leitar að stærsta...
...fitustykkinu sem hann getur fundið.
Eitt er öruggt. Þessi varúlfur vildi gleypa mig.
Allt í lagi. Tími til kominn á svefn.
En hann var að komast að besta hlutanum.
Já, Boog, hérna kemur skelfingin inn.
Ég stóð andspænis óða dýrinu.
Greyið mitt.
- Ég fann andfýlu hans. - Hann var ábyggilega andfúll.
Klær hans voru langar og skarpar.
Þú kannt að lýsa hlutunum, Elliot. Með það í huga...
Aðeins eitt var skarpara en klær varúlfsins.
Ekki missa þig, Boog. Svona nú, farðu á fallegan stað.
Hans banvænu vígtennur!
Hann er verri en kanínur.
Tökum okkur smá hlé. Það eru veitingar við vatnið.
Ég meina að þið getið drukkið úr vatninu, sem er mjög hressandi.
Ég kem fljótt aftur.
Boog, þetta var frábært. Þú gerðir söguna svo raunverulega.
Þú kláraðir dæmið þegar þú pissaðir á þig.
Já, einmitt. Ég var að reyna að hjálpa þér að selja söguna.
Þökk sé þér er þetta sú hræðilegasta sem ég hef sagt alla vikuna.
Þessar varúlfasögur eru ekki í raun sannar. Er það nokkuð?
Þú þarft engar áhyggjur að hafa.
Þær eru sannsögulegar.
Wailing Wampus Werewolf er til og reiðubúinn til árásar.
Ég hafði áhyggjur af því.
Bíddu aðeins. Þú ert í raun hræddur.
- Er það ekki. - Víst.
- Er það ekki. - Víst.
- Er það ekki. - Víst, víst, víst.
Er það ekki?
Allt í lagi, ég er hræddur. Ertu ánægður?
Ég vissi það! Við hvað ertu hræddur?
Ég ólst ekki upp í skóginum. Ég bjó í notalegum bílskúr, manstu?
Ég átti þægilegt rúm með mínu eigin teppi.
Skál með nafni mínu. Fiskakex.
Og Wheel of Fortune í sjónvarpinu!
Er þetta einhjól? Endurlit þín eru best, Boog.
Málið er að ég var óhultur.
Það verður allt í lagi með þig. Þú ert feitasta dýrið í skóginum.
Þess vegna mun varúlfurinn elta mig fyrst uppi.
Ég er helsti samkeppnisaðili hans. Ég þarf að komast í burtu.
Þú ert að því. Við erum að fara í útilegu. Manstu?
Ég fer ekki í útilegu þegar skrímsli er þarna úti.
Þú getur ekki hætt við ferðina. Við höfum skipulagt hana í þrjú ár.
Hugsaðu um flúðasiglinguna. Brettabrun!
Hentar vel náunga sem heitir Boog! Vírkláfur.
Snorkl. Fallhlífarsigling. Þetta verður afslappandi.
Á ég að slaka á með varúlf á eftir mér?
En þú lofaðir að fara.
Maður stendur við loforð til vinar.
Því maður snýr aldrei baki við vini sínum. Það vita allir.
Fyrirgefðu, Elliot. Ég get það ekki. Ég ætla að smíða hræðsluherbergi...
...og fela mig þar til varúlfurinn deyr úr elli.
Hvað er hræðsluherbergi?
Öruggur staður þar sem maður getur læst sig inni fyrir varúlfum.
Fyrst grefur maður holu. Segjum að þetta akarn sé ég.
Og þessi maríubjalla er varúlfurinn.
Maríubjallan reynir að éta mig, sérðu? En hún getur það ekki.
Ertu þá líka hræddur við maríubjöllur? Meðferð.
Ég, Elliot Deer Esquire Junior the Third, fæddur Hætta, geri það hér með...
...að markmiði mínu að hjálpa þér að sigra...
...ótta þinn við varúlfinn og maríubjöllurnar.
Ekki gera neitt.
Engar áhyggjur, Boog. Ekkert slæmt mun gerast.
Nokkuð slæmt hefur gerst. Nokkuð mjög, mjög slæmt!
- Hr. Weenie! - Hvað ert þú að gera hér?
- Er það varúlfurinn? - Verra!
Minn ástkæri eigandi Bobbie er farinn.
Líka Bob, sem mér kemur vel við en er ekki náinn.
- Hvað gerðist? - Ég vaknaði í húsbílnum...
...og þeir voru ekki þar. Ég mun augljóslega aldrei sjá þá aftur.
Kannski fóru þeir í ferð.
Kannski náði Wailing Wampus Werewolf þeim.
Þetta hjálpar ekki.
Einhyrningurinn hefur rétt fyrir sér. Ekkert annað getur útskýrt þetta.
Engar áhyggjur. Við áttum okkur á þessu.
Við sigrum þennan blóðþyrsta, fáránlega stóra og grimma...
...varúlf og síðan förum við í útileguna.
Sjáumst í fyrramálið, Boogster. Dreymi þig vel.
- Elliot? - Já, Boog?
Ekki segja neinum að ég sé hræddur við varúlfinn.
Engar áhyggjur. Ég segi engum frá.
Hvað haldið þið, öll sömul! Boog er hræddur við varúlfinn!
Var þetta engin uppgerð?
- Nei. Hann er í alvörunni hræddur. - Sögurnar eru ekki einu sinni sannar.
Hvað þá? Hvernig geturðu sagt það? Þær eru að fullu sannar.
Þú hefur aldrei séð þennan svokallaða varúlf.
Ég hef aldrei séð minn svokallaða heila en ég er viss um að ég sé með slíkan.
Ég sá þetta fyrir fyrir löngu síðan.
Ég vissi að björninn myndi ekki lifa af hérna.
Hann er hálf björnvandræðalegur. Skilurðu? Björn-vandræðalegur.
Vertu góður við Boog. Öll óttumst við eitthvað.
- McSquizzy óttast ekki neitt! - Skilurðu mig?
Og, Maria, þú óttast að ef þú finnir ekki neinn...
...munir þú enda sem piparmey sem býr með tveimur gaupum.
Reyndar óttaðist ég það ekki. Fyrr en núna.
Hr. Weenie, þú ert hræddur við pylsubrauð.
Já! Og súrkrás. Og sinnep!
Serge, þú ert hræddur við einangrunarlímband.
Reilly, þú ert hræddur við flísar.
Buddy, þú ert skíthræddur við blöðrur.
Blöðrur.
Ég er hrædd við þá klikkuðu hluti sem þú munt framkvæma...
...til að hjálpa Boog að sigra ótta sinn.
Giselle er meira segja hrædd. En ég er með frábæra áætlun.
- Hún nær til okkar allra. - Hér kemur það.
Við hræðum óttann úr Boog.
Hvernig gerum við það?
Svona gerum við það. Ian, þú verður stjarnan.
Segir sig sjálft.
Við tökum nokkra skunka og nokkrar endur...
Beth! Dinkelman! Við erum komin heim! Þetta var bara slæmur draumur!
Beth, gleður mig að sjá þig! Ég vissi að þú yfirgæfir mig aldrei í skóginum!
Beth?
Martröð.
Ertu að reyna að hræða mig?
Ég var að reyna að segja nafn þitt, en þú stökkst áður en ég kom að „gu“ hljóðinu.
Boo-gu. Þú ert svo óþolinmóður.
Ég er ekki í stuði.
Ég hef nokkuð sem gleður þig.
Hvar fannstu þetta?
Aðalbjörninn minn, Dinkelman. Reyndar ert þú aðalbjörninn minn.
Dinkelman er næsti aðalbjörn minn. Smokey minn þriðji.
Viltu fá dúkkuna til baka?
Enginn snertir minn Dinkelman.
Heyrðu! Þetta var mitt síðasta.
Heppinn þú, lítill fugl sagði mér frá sendingu af Woo-Hoo stykkjum...
...á leið í bæinn. Þú hefur hitt Jerry? Litla fuglinn?
Við getum ekki farið í bæinn, varúlfurinn finnur slóðina okkar.
- Ekki ef við styttum okkur leið. - Styttum leið?
Já. Stuttu leiðina.
- Þetta lítur vel út. - Já, við förum þangað.
GLJÚFUR DAUÐA BJARNAR ÍBÚAFJÖLDI 0
- Í gegnum Gljúfur dauða bjarnar? - Er það eitthvað vandamál?
Ég er björn. Ég vil ekki deyja.
Allir birnir deyja. Sumir birnir lifa aldrei.
Förum í gljúfrið.
Kemur ekki til greina. Þar gerist aldrei neitt gott. Alls ekki í þessu.
Boog, ég vernda þig að aftan. Og að framan.
Þú ert alverndaður.
Ég veit ekki.
Ef ekki fyrir mig gerðu það þá fyrir Woo-Know-Hoo.
Hví get ég ekki fylgt innsæi mínu í stað nefs míns?
Bíddu, þið megið ekki fara. Hvað ef ég sé ykkur aldrei aftur?
Við ætlum bara í bæinn.
Það sagði Bobbie mér áður en hún var étin af varúlfi.
Ef þér líður betur með það getur þú verið með okkur, hr. Weenie.
Yndislegur dagur! Heppnin mín hefur snúið aftur.
VEIÐI SHAW
GÖNGUFERÐIR OG SKILTAMÁLUN
Komið, trjáelskendur! Þetta tré er ekki hluti af ferðinni.
No comments yet. Be the first to leave one.