The first 200 lines.
EINHVERS STAÐAR Á HAUSKÚPUEYJU
KONG EINANGRUNARSVÆÐI MONARCH BÆKISTÖÐ 236 - HAUSKÚPUEYJU
Viðvörun, lífhvolf rofið.
ÞAK ROFIÐ SVÆÐI 7G
Dr. Andrews, sástu þetta?
Búsvæðið mun ekki duga mikið lengur.
Við þurfum að huga að nýjum lausnum.
Eyjan er það eina sem hefur haldið honum einöngruðum.
Ef hann fer héðan mun Godzilla finna hann.
Það geta ekki verið tveir alfa jötnar.
Allar kenningar um fornan fjandskap eru komnar úr þjóðsögum Iwi-fólksins.
Hann er orðinn of stór.
Þetta umhverfi mun ekki duga mikið lengur. Það er of óstöðugt.
Hæ.
Hann er reiður.
Bíddu eftir mér, elskan.
Hann deyr ef hann fer héðan.
Heldurðu að Kóngurinn geti ekki séð um sig sjálfur?
Það hlýtur að vera til betri leið.
FORNIR ÓVINIR
RISAR BERJAST NEÐANJARÐAR
Að finna út hvaðan þessar verur koma er nauðsynlegt fyrir afkomu mannkynsins.
Innvols Jarðar innihalda stór rými og loftbólur
sem tengjast með náttúrulegum göngum.
Aðmírállinn hóf könnunarleiðangur sinn
í leit að inngangi að földum heimi.
Tilgangur ferðarinnar er að finna og kynna fyrir heiminum
alla óþekktu fjársjóði Suðurskautsins í þágu mannkynsins.
-DR. NATHAN LIND -UMDEILDUR VÍSINDAMAÐUR ÓFRÆGÐUR
Meðlimir týnda hópsins fundust aldrei aftur.
Enn er óvitað hvað gerðist.
DR. NATHAN LIND HOL JÖRÐ
Það er vistkerfi þarna úti, ólíkt öllu sem við þekkjum.
Og við finnum það á þessari eyju.
HAUSKÚPUEYJA HEIMILI JÖTNA
"AÐGERÐ HAUSKÚPUEYJA"
SKRÍMSLI Í JAPAN
"KJARNORKUANDARDRÁTTUR"
JÖTUNN GODZILLA
KJARNORKUPÚLS
JÖTUNNINN MUTO SIGRAÐUR
JÖTUNNINN KONG
JÖTUNN KONG
JÖTUNNINN CRANIUM REPTANT SIGRAÐUR
GHIDORAH "ÞRÍHÖFÐA DJÖFULLINN"
SIGRAÐUR
SIGRAÐUR
Daginn, góðir hlustendur.
Velkomin í JH, Jötnahlaðvarpið. Þáttur númer 245.
Í dag er dagurinn. Kannski síðasta upptakan mín.
Og ég veit að ég sagði það fyrir viku
og kannski vikuna fyrir það og í nokkur önnur skipti.
En sjáið til, svona er staðan.
Eftir fimm ár af njósnum hjá Apex Cybernetics
ætla ég loks að taka af skarið.
Eitthvað slæmt er í gangi hér.
Ég veit ekki hvað, en ég ætla að niðurhala sönnunargögnum
og fletta ofan af risastóru samsæri.
Þið megið kalla mig uppljóstrara, en ég er ekki bara að uppljóstra.
Þetta er meira en leki. Þetta er flóðbylgja.
Og trúið mér, þetta flóð mun afhjúpa allar lygar Apex.
Þið megið stóla á það.
APEX CYBERNETICS PENSACOLA, FLÓRÍDA
Velkomin til Apex Cybernetics.
Engir óviðkomandi aðilar fá að fara lengra.
Þegar við stofnuðum Apex Cybernetics
létum við okkur dreyma um leiðir til að ná lengra en var mannlega hægt.
Vélmenni, mannshugurinn, gervigreind.
Hver veit hvaða framtíðarsýn okkur dreymir næst?
Ég er Walter Simmons,
og það eru mín forréttindi að leiða Apex inn í nýja framtíð mannkynsins.
Við erum ekki á förum.
Og ekki þú heldur.
Þarna ertu, gæskan.
Nei, ekki borða þetta!
Það er ótrúlega óhollt.
Allt erfðabreytta draslið.
Að fá annað höfuð gæti verið gagnlegt. Láttu mig vita hvernig það fer.
Því ég sjálfur? Ég ræð varla við mitt eina.
Bernie, þú átt ekki að vera hérna inni.
Veltirðu einhvern tímann fyrir þér hvað við erum í raun að gera hérna?
Ég meina í alvöru.
Hví ertu hér? Þetta er ekki verkfræðideildin.
Ég þurfti að bíða því þeir eru að flytja ný gögn
sem mun taka...
Reiknivélahamur.
...yfir einn klukkutíma, kannski lengur.
Svo yfirmaður minn sagði mér að ganga um og eignast nýja vini.
Fyrst við erum núna vinir, má ég þá deila dálitlu með þér?
Ég veit það er hérna einhvers staðar.
Þetta er handspritt sem ég gerði sjálfur. Það er alveg ótrúlegt.
Veit ekki hvort ég notaði þetta.
Já. Líttu á þetta.
Þetta er netmagnari
sem getur líka tekið upp hljóð.
-Gettu úr hverju. Svona nú. -Mér er sama.
Brauðrist! Úr brauðrist. Líttu á þetta.
Ég þarf að fara á salernið.
Númer eitt eða tvö? Ef tvö, þá er það líklega eplunum að kenna.
Viltu nota handsprittið sem ég bjó til?
Ég er góður.
Allt í lagi, ég bíð bara hérna.
Allt í lagi. Já.
Látum okkur sjá.
AFRITA
Skjár.
FARMSKRÁ
Hvað eru þeir að flytja til Hong Kong? Hvað er Kjallari 33?
Hvað í...
Rýming, jötnaviðvörun.
Þetta er ekki æfing. Allir starfsmenn, vinsamlegast farið...
Tími til að fara.
Farið í neðanjarðarbyrgið í einfaldri röð. Áfram!
Menn notuðu blásýruhylki í stað byrgja til að varðveita leyndarmál,
en þú veist, skiptir ekki máli, ekki hlusta á mig.
Annars stigs starfsfólk, þessa leið! Áfram, áfram!
Já, þessa leið.
Tíminn er kominn!
Við þurfum að fara núna!
Rýmið svæðið.
Ein hæð í einu, allt í lagi.
Nei.
Heyrðu, þú!
-Hvar er aðgangspassinn þinn? -Veistu hvað?
Það að þú biður um aðgangspassa
á neyðarstundu er óttalega ófagmannlegt.
Við ættum að ræða rýmingu svæðisins.
Vó! Allt í lagi!
Guð minn góður.
Ó, nei. Hvað í fjáranum er þetta?
Mikilvægar fréttir frá CNN.
GODZILLA EKKI LENGUR BJARGVÆTTUR
Sjóher Bandaríkjanna hefur verið sendur
til suðausturstrandarinnar
eftir óvænta árás Godzilla í gærkvöld.
Friðartíminn rann út
þegar risastóri jötunninn, eitt sinn talinn bjargvættur mannkynsins,
gekk á land í Pensacola í Flórída.
Þótt skaðinn hafi að mestu leyti einskorðast
við höfuðstöðvar Apex Cybernetics í Bandaríkjunum
taka ríkisstjórnir heimsins enga áhættu
eftir fyrsta staðfesta jötuninn í meira en þrjú ár.
Forstjórinn Walter Simmons hafði þetta að segja.
Þetta snýst um að vinna saman
til að tryggja öruggari heim.
Godzilla ógnar mannkyninu og Apex getur stöðvað hann
fyrir fullt og allt.
Nemendur og kennarar, takið eftir
að fundur verður haldinn kl. 14:00 í dag.
Námsráðgjafar munu einnig
vinna lengur þessa viku fyrir einstaklings- og hóptíma.
Velkomnir aftur, ágætu hlustendur, í Jötnahlaðvarpið , þáttur 246.
Guð minn góður, ég var þarna.
Árás Godzilla á Apex. Ég sá það gerast!
Teljið þið það tilviljun að hann birtist á ný
og eyðileggur þessa tilteknu starfsstöð?
Nei. Það er engin tilviljun.
NEYÐARBÚÐIR MONARCH PENSACOLA, FLÓRÍDA
Pabbi, ég segi þér það,
það er eitthvað sem ögrar honum sem við sjáum ekki.
Hví ætti Godzilla að sýna styrk sinn
ef enginn annar jötunn er í nánd?
Þetta hlaðvarp fyllir þig af ranghugmyndum.
-Þú ættir að vera í skólanum. -Ég vil bara hjálpa.
Ég vil ekki hjálp þína. Ég vil að þú sért örugg.
Við þurftum áætlun til að halda friðinn við þessar verur
og okkar besta áætlun er ónýt. Ég hef enga varaáætlun.
Og ég má ekki við því að hafa líka áhyggjur af þér.
Godzilla bjargaði okkur. Þú sást það með mömmu.
Hvernig geturðu efast um hann?
-Það hlýtur að vera mynstur. -Svo er ekki.
-Ástæða fyrir þessari hegðun. -Það er engin ástæða.
Hvernig veistu það?
Því skepnur, líkt og fólk, geta breyst.
Og núna er Godzilla að meiða fólk og við vitum ekki hvers vegna.
Svo sýndu pabba þínum skilning, allt í lagi?
Sjáumst heima, pabbi.
Viltu vita mína kenningu?
Auðvitað viltu það. Þess vegna ertu að hlusta.
Þetta snýst allt um mynstur og breytur.
Sjáðu til. Ég skal hafa þetta einfalt.
Godzilla gerir árás þegar honum er ögrað, það er mynstrið.
Pensacola hefur einu Apex-stöðina með þróaða vélmennatækni.
Það er breytan. Leggjum þetta saman og þá sjáum við
að Apex er vandamálið.
DENHAM-HÁSKÓLINN HUGVÍSINDI
FÍLADELFÍA, PENNSYLVANÍU
Get ég aðstoðað þig?
Ef þú vilt viðtal þá er opið milli níu og fimm.
-Vinsamlegast, dr. Lind. -Hvað í...
Menn eins og við vinnum ekki á venjulegum tímum, er það?
HOL JÖRÐ
Ég hef verið hugfanginn af Holri Jörð eins lengi og þú.
Kenning þín um að hún sé fæðingarstaður allra jötna er heillandi.
Bókin þín var tilkomumikil.
Fannst þér það? Ég á 30 óselda kassa
í íbúðinni minni ef þú vilt eintök.
Walt Simmons.
Ég veit hver þú ert. Heiður að kynnast þér.
Heiðurinn er minn. Og neyðin er líka mín.
No comments yet. Be the first to leave one.