The first 200 lines.
- Troy, þú verður að hætta að ljúga. -Ég er ekki að ljúga.
Negrinn var með svona stóra vatnsmelónu
og sagði. "Hvaða vatnsmelóna, hr. Rand?"
Ég sprakk úr hlátri. "Hvaða vatnsmelóna, hr. Rand?"
Og þarna er hún, risastór.
-Hvað sagði hr. Rand? -Hann sagði ekkert.
Ef hann væri of heimskur til að vita að þetta var vatnsmelóna
væri varla hægt að ná miklu af viti úr honum.
Reynandi að fela stóru vatnsmelónuna undir frakkanum.
Hræddur við að láta hvíta manninn sjá hann bera hana heim.
Ég er eins og þú. Ég hef ekki tíma fyrir slíkt fólk.
Hvað er hann að æsa sig yfir
manni frá verkalýðsfélaginu að tala við Rand?
Hann kom að mér og sagði: "Troy Maxson verður til að við verðum reknir."
Ég sagði honum: "Ekki kvarta við mig yfir þessu."
Hann kallaði þig vandræðagemsa þegar hann gekk burt.
Hvað sagði hr. Rand?
Ekkert. Sagði mér að fara niður
á skrifstofuna næsta föstudag.
Þeir vildu fá mig til að hitta sig.
Svo fremi sem þú færð kvörtunina skráða
geta þeir ekki rekið þig.
Einn af hvítu gaurunum sagði það.
Ég hef ekki áhyggjur af uppsögn.
Ætla þeir að reka mig fyrir að spyrja spurningar?
Ég gerði ekkert annað.
Ég fór til hr. Rands og spurði hann.
Ég spurði hann: "Af hverju?"
"Hví keyra þeir hvítu á meðan þeir svörtu lyfta?"
Sagði við hann: "Hvað er að?" Telst ég ekki með?
"Eru bara hvítir hæfir til að keyra bíl?"
"Þetta er engin pappírsvinna. Allir geta keyrt bíl.
"Hví læturðu alla hvítu keyra en þá lituðu lyfta?"
Hann sagði: "Talaðu við verkalýðsfélagið." Ég gerði það.
Núna ætla þeir að koma með eintómar lygar.
Ég sagði Brownie að ef maðurinn kæmi og spyrði
ætti hann bara að segja satt.
Einhver laug því upp á þig
því þú settir inn kvörtun.
Brownie er ekki svo klár.
Ég var ekki að hugsa um neitt.
Vildi bara að þeir breyttu starfslýsingunni,
gæfu öllum tækifæri til að keyra bílinn.
Brownie skilur það ekki. Hann er ekki nógu klár.
Hvernig heldurðu að honum gangi
að reyna við stelpuna á Taylors?
-Þessa Albertu? -Hver?
Brownie.
Eins og þér og mér, gengur eins vel og okkur.
-Sem er sama og ekkert. -Er það?
Ég reikna með að þér gangi betur en mér.
Og ég segi ekkert um hvernig mér gengur!
Negri, sjáðu til. Ég þekki þig.
Ef þér hefði gengið eitthvað með þessa stúlku
myndir þú segja einhverjum frá 20 mínútum síðar.
Og sá fyrsti sem þú segðir það,
sem þú myndir vilja monta þig við, væri ég.
Ég segi það ekki.
Ég hef séð þig horfa á hana.
Ég horfi á allar konur. Ekkert fer fram hjá mér.
Enginn getur sagt að Troy Maxson horfi ekki á konu.
Þú hefur gert meira en það.
Þú hefur boðið henni upp á drykk.
Ég bauð henni drykk. Hvað með það?
Ég bauð þér líka upp á einn.
Hvað meinarðu með þessu?
-Ég er bara kurteis. -Í lagi að bjóða einn drykk.
Það kallast kurteisi.
En er þú kaupir tvo eða þrjá
ertu farinn að sýna mikinn áhuga.
Sjáðu til. Þann tíma sem þú hefur þekkt mig
hefurðu vitað til að ég eltist við konur?
Já! Eins lengi og ég hef þekkt þig. Ég þekkti þig í gamla daga.
Ég er að tala um eftir að ég giftist Rose.
Ekki eftir að þú giftist Rose.
-Ég get staðfest það. -Gott og vel. Málið dautt.
Ég hef séð þig við hús Albertu.
Þú átt að vera á Taylors og gengur þarna upp eftir.
Hvað ert þú að fylgjast með mér?
Ég er ekki að því.
Ég hef séð þig ganga þangað oftar en einu sinni.
Þú sérð mig ganga um allt.
Segir ekkert þótt þú hafir séð mig á gangi þar.
Hvaðan kom hún annars?
Hún birtist bara einn daginn.
Tallahassee. Það sést að hún er frá Flórída.
Það eru stórar og heilbrigðar stúlkur þarna niður frá.
Rækta þær upp úr jörðinni.
Það er smá indíáni í henni.
Það er smá indíáni í flestum negrum í Flórída.
Ég veit ekki með þennan indíánahluta
en hún er vissulega stór og heilbrigð.
Konan gengur í stórum sokkum.
Með risastóra fætur og mjaðmir eins breiðar og Mississippi-fljót.
Fætur skipta engu.
Maður ýtir þeim bara frá.
En þessar mjaðmir,
-þær mýkja reiðina. -Þú ert bilaður, Troy.
Það er satt. Eins og þú á Goodyear-dekkjum!
Hvað eruð þið að koma ykkur í?
Hvað ert þú að hafa áhyggjur af því, kona?
Þetta er karlatal.
Mér er sama um hvað þið talið.
Bono, verðurðu í kvöldmat?
Nei, takk, Rose,
Lucille er að elda svínalappir.
Svínalappir? Fjandinn, ég fer heim með þér.
Gæti jafnvel verið í nótt ef þú ert með svínafætur.
Áttu eitthvað sem slær út svínafætur, Rose?
Ég er að elda kjúkling. Ég er með kjúkling og grænkál.
Farðu aftur í húsið.
Leyfðu okkur Bono klára spjallið.
Þetta er karlamál. Ég tala við þig seinna.
Og þú veist hvað ég meina.
Farðu inn og gerðu þig klára.
Hættu þessu, Troy!
Komdu hingað, kona.
Sjáðu til, Bono.
Er ég hitti þessa konu fyrst
var ég að koma úr fangelsi.
Ég leitaði hér og þar, sá Rose og hengdi mig á hana.
Ég hengdi mig á hana og sagði henni... Ég skal segja þér sannleikann.
Ég hengdi mig á hana og sagði henni: "Elskan, ég vil ekki giftast.
"Ég vil bara vera þinn maður."
Rose sagði mér... Segðu honum hvað þú sagðir mér, Ro.
Ég sagði að væri hann ekki giftingartýpan
ætti hann að hverfa svo að giftingartýpan fyndi mig.
Þetta sagði hún mér: "Negri, þú ert fyrir mér.
"Þú spillir útsýninu.
"Farðu frá, svo ég finni mér eiginmann."
-Ég hugsaði um það í 2-3 daga. -Tveir, þrír dagar, rugl.
Þú komst aftur sama kvöld.
Ég kom aftur og sagði henni: "Allt í lagi, elskan,
"en ég kaupi hana
"til að setja í bakgarðinn.
"Og er hann sér ókunnuga koma
"blakar hann vængjunum og gólar."
Sjáðu til, Bono. Ég fylgist sjálfur með framdyrunum.
Ég hef áhyggjur af bakdyrunum.
Ekki tala svona! Troy, þú ert bara að ljúga.
Málið var að við giftum okkur, gleymum hananum. Við eigum engan garð.
Ég heyri í þér.
Við Lucille vorum saman á Logan Street.
Vorum með tvö herbergi með útikamri fyrir aftan.
Kamarinn truflaði mig ekkert.
En þegar vindurinn næddi í gegn um veturinn,
það var málið!
Enn í dag velti ég fyrir mér hví ég dvaldi þarna í sex löng ár.
En, sjáið til, ég vissi ekki að ég ætti betri kosti.
Ég hélt að bara hvítt fólk væri með inniklósett.
Mjög margir halda
að þeir geti ekki bætt aðstæður sínar.
Stundum þarf maður að læra. Margir versla enn hjá Bellu.
Er eitthvað að Bellu? Hún býður ferskan mat.
Ég sagði ekkert um ferskan mat.
Ég er að tala um verðið.
Hún rukkar 10 sentum meira en AgP.
A8P hefur ekkert gert fyrir mig.
Ég eyði fénu þar sem mér er sýnd kurteisi.
Ég fer niður til Bellu og segi:
"Mig vantar brauð, ég borga á föstudag," ég fæ það.
Þegar ég á svo peninga, hví ætti ég
að eyða þeim annars staðar
og hunsa manneskjuna sem hjálpaði mér?
Þetta er ekki í Biblíunni.
Við erum ekki að tala um Biblíuna.
Hvaða vit er að versla þar er hún rukkar of hátt?
Þú verslar þar sem þú vilt,
ég versla þar sem fólk er gott við mig.
Ég held bara að hún eigi ekki að rukka of mikið.
Ég verð víst að drífa mig.
Lucille verður með læti.
Hvert ertu að fara? Flaskan er ekki tóm.
Komdu og kláraðu flöskuna.
Já, ef þú fæst til að sleppa henni.
Eitt má segja um A8P, ég er glaður að Cory fékk vinnu þar.
Hjálpar við skólafatnaðinn og slíkt.
Gabe flutti út er þrengdist um okkur hér.
Hann fékk þessa vinnu,
hann getur séð um sjálfan sig.
Cory fékk samning hjá háskólaliði í fótbolta.
Ég sagði drengnum frá þessu háskólafótboltadóti.
Hvíti maðurinn hleypir honum hvergi nærri fótboltanum.
Ég sagði honum það er hann nefndi þetta fyrst.
Nú segir þú að hann sé farinn að taka enn meiri þátt.
Hann ætti að fara á samning Í bílaviðgerðum,
einhverju sem hann getur lifað á.
Hann er ekki að tala um að lifa á fótbolta.
Strákar í skóla stunda hann.
Þeir senda mann til að tala við þig. Hann útskýrir.
Hann er ekki að tala um að lifa á fótbolta.
Það er heiður að vera valinn.
Það er blindgata, Bono staðfestir það.
Ef hann verður eins og þú í íþróttum verður hann í lagi.
Aðeins tveir menn hafa spilað hafnabolta eins vel og þú.
Það eru Babe Ruth og Josh Gibson.
Þeir eru þeir einu sem slógu fleiri heimhlaup en þú.
Hvað gerði það fyrir mig? Ég á ekki bót fyrir boruna,
alveg staurblankur.
Tímarnir hafa breyst síðan þú spilaðir, Troy.
No comments yet. Be the first to leave one.