Ron's Gone Wrong

Ron's Gone Wrong

Download Icelandic Subtitle

Release info

Rons Gone Wrong 2021 720p BluRay DD5 1 x264-iFT
A Commentary by sub.Trader

Tags

BluRay
x264
720p
720
Published on: 2021-12-15
Downloads: 23
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Við erum í beinu streymi frá höfuðstöðvum Búbblunnar.

Það er kynningardagur.

Hvaða tækniundur kynna þau?

Förum inn.

Hafið þið einhvern tíma verið alein?

Staðið á jaðrinum, vandræðaleg,

og ekki þorað að nálgast neinn?

Hvað ef þið gætuð átt einn fullkominn vin

sem finnst þið æðisleg, hjálpar ykkur að eignast vini

og auðveldar allt?

AUĐVELDAR ALLT

Allt starfsfólk í kynningarsalinn.

Már, þau eru tilbúin.

Már?

Nú er komið að því.

Loksins komið að því.

Deginum sem við hjá Búbblunni gefum öllum heiminum nýjan besta vin.

Már! Már! Már!

Við gerðum þetta saman.

Það var allt fyrir þetta.

Síðan í bílskúrnum þar sem Búbblan varð til.

Bílskúrnum mínum, gott fólk.

Já, auðvitað, Andri.

Takk fyrir.

En í dag...

tökum við stórt stökk...

frá Búbblu-símum, spjaldtölvum og úrum

yfir í nýjan heim tengingar.

Í kjarnanum er kóðinn minn.

Algóritminn fyrir vináttu.

ALGÓRITMI FYRIR VINÁTTU

Kóði sem knýr nýjan besta vin, Búbblu Bottann.

Velkomin í framtíð vináttu.

ÉG ELSKA KÓĐA

Viljið þið hitta hann? Allt í lagi!

Ég! -Ég, hérna!

Veldu mig!

ElínB9

Er ElínB9 í salnum?

Guð minn góður, það er ég!

Hæ.

Hæ, eru þetta ekki birtingar þínar, vinir og myndir?

Jú. - Allt í lagi.

Elín, þetta er handa þér.

Heimsins fyrsti Búbblu Botti.

Gjörðu svo vel.

Hleð inn vináttu

Hvað er að gerast?

Hann kynnist þér.

Öllu um þig.

APAR HÁSKAKANÍNA GEIMUR MARS

Hæ, Elín.

Háskakanína, uppáhaldsþátturinn minn.

Minn líka.

Geggjað!

Endalausir útlitsmöguleikar.

Ég dýrka apa. -Öpp, tengiliðir, myndir og spjall.

Sjá þetta!

Tónlist, auðvitað.

Stökktu á bak.

Rosalegar öryggisstillingar

til að gleðja foreldrana.

Geturðu verið allt í heiminum?

Allt í alheiminum. Bíddu.

Ég elska geiminn.

Ég líka.

360 gráðna gagntekningarvörpun.

Fyrstu sjálfuna á Mars?

Allt í lagi.

Deili.

Sítenging við Búbblu-netið.

Frábært. Læka það!

Hvað er hún að gera?

Þetta er ástæða þess að við erum hérna í dag. Hún finnur nýja vini.

Í alvöru?

Gyðarós11 vill líka verða geimfari. Vingast?

Endilega.

Hæ, Pési66.

Já!

Pési fílar Háskakanínu.

Hæ, Elín. Svalt.

Ég fór í geimbúðir í fyrra.

Besti vinur ykkar úr kassanum. -Æðislegt.

Kýlum á það!

Eignumst vini!

Baddi?

Já? - Ertu með öryggisvestið?

Já. - Og nestið?

Já, amma.

Sjáumst síðar.

Tröll til hægri.

Omina mitotae!

Náði þér. Viltu skiptast á göldrum?

Sjálfa!

Já!

Öruggt að ganga.

Komdu og sestu hérna.

Góðan daginn

Botta-brjálæði Get ég aðstoðað?

Vá!

Ertu ekki með augu?

Afsakaðu þetta.

Í alvöru?

BESTI VINUR úr kassanum

NONSUCH MIĐSTIG

Ninja-högg.

Ert þú aðdáandi?

Auðvitað.

Hæ. - Hæ.

Vinstri, Einar. Hægri. Hleyptu okkur nú yfir.

Á myrku hliðina.

Níu ný skilaboð.

Tíu læk. - Segðu Öddu að ég komi.

Vinabeiðni frá Jaka. - Sex skilaboð.

Sástu Röggu? - Deili.

Svana fylgir mér núna.

Ísak samþykkir vinabeiðni.

Þið sjáið hvernig bergkvikan úr efri möttlinum þrýstir sér upp.

Svalt. - Merkja hólf.

Strákar, er hún að koma?

Þetta verður klikkað.

Hæ, Svana. - Flottir skór.

Takk fyrir. Hæ, krakkar. Svana hérna.

Mig langar að ræða við ykkur um plastið í sjónum...

og æðislega hárið á mér.

Glatað, Rikki. - Eðalmyndefni.

Gerist áskrifendur...

Birti á síðunni.

Gráttu, trölladrengur. Ég er eldheitur!

Ekkert að sjá hérna.

Boðskort í afmæli Badda

Baddi, áttu afmæli?

Fékkstu ekki enn B-Botta?

Takk fyrir ábendinguna.

Partí hjá Badda.

Í alvöru? - Nei.

Fljúgðu frjáls, litli minn.

Er allt í lagi?

Já. Fyrirgefðu. Ég þvælist fyrir í skotinu.

Sætt af þér. Ég get klippt þig út.

Ykkar stelpa kveður. Ég elska ykkur.

Hópspjall Svönu. - Kanna fyrir Vísindaklúbb.

ENGIN SAMSVÖRUN

Allt í lagi.

Jæja, 18 mínútna frímóhelvíti. Þú getur þetta!

Kannski ekki.

Baddi! -Æ, nei.

Aleinn aftur?

Nei, allt í góðu.

Á afmælisdaginn? -Nei.

Ertu að grínast? Hver sagði henni það?

Amma þín hringdi í skólann.

Ég þarf að fara.

Ég gleymdi pústinu mínu.

Hinu pústinu.

Skil þig. Þú þarft að tylla þér.

ÞARFTU vin? Hann er Á LEIĐINNI!

VINABEKKURINN

Þetta virkar. Sannaðu til.

Alls ekki. - Jú, víst.

Þetta gerir illt verra.

Ja hérna. - Grimmilegt.

Komdu hingað, hugrakki dáti.

Hvað?

Komdu, Baddi.

Komdu og knúsaðu mig. - Litli minn.

Hversu lágt er hægt að sökkva?

Þegar einhver nálgast skaltu tala um áhugamálin þín.

Skrifaðirðu ekki ritgerð um steinasöfnun?

Jú. Nei.

Viltu tala við Badda? Hann elskar steina.

Hann þarfnast vina. Hann á afmæli í dag.

Drepið mig núna.

Til hamingju með afmælið.

Fröken Jórunn sagði að þú vildir tala um steina.

Hver fílar steina?

Fílarðu steina? En skemmtilegt.

Í alvöru? Áttu afmæli en fékkst ekki enn B-Botta?

Kannski langar hann ekki í B-Botta.

Hann vill frekar steina.

Þú ert grjótharður, Baddi.

Skrambinn. - Fattarðu?

Hver er uppáhaldsleikarinn? Steindi?

Góður, Rikki.

Ertu steini lostinn?

Stöðugt fyndnari.

Megum við setjast í helgan stein heima hjá þér?

Fyndinn, Rikki.

Megum við skoða geggjaða steinasafnið?

Nei, Rikki.

Þú mátt ekki koma heim til mín.

Af einhverri ástæðu.

Heyrðu mig nú! Slepptu þessu!

Ég á afmæli, heimska geit.

Fyrirgefðu, ertu á línunni? Já, halló!

Í dag, herra Takahashi,

kynnir Smámuna- útflutningsverslun Pudowskis

ótrúlega spennandi og skemmtilegan smámun.

Skoppa bílamunk.

Hann hristist og skoppar... -Nei.

More Icelandic subtitles for Ron's Gone Wrong

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left