Basic Instinct

Basic Instinct

Download Icelandic Subtitle

Release info

Basic Instinct 1992 720p BrRip x264 YIFY is
A Commentary by keejee

Tags

brrip
x264
720p
720
Published on: 2018-10-18
Downloads: 35
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

ÓGNAREÐLI

- Sæll, Nick. - Sæll.

Góðan dag, rannsóknarlögreglumaður.

- Sæll. - Góðan dag.

Þarna uppi.

- Hvað er títt, Gus? - Góðan dag, Pete.

- Hver er kauði? - Rokkarinn Johnny Boz.

- Ég kannast ekkert við hann. - Fyrir þinn tíma, kúreki.

- Hvar halda þeir sig? - Uppi, til hægri.

Nokkur metsölulög á sjötta áratugnum. Á klúbb á Filmore.

Ekki lengur.

- Er dauðastund þekkt? - Hér um bil.

- Þekkið þið Talcott kaftein? - Vissulega.

- Því er fulltrúi stjórans hér? - Til að fylgjast með.

- Hver er niðurstaðan, læknir? - 33 stig. Sex klukkustundir.

Hann hefur látist um tvöleytið.

- Dragið tjöldin fyrir. - Þetta er ljóta útreiðin.

Þernan kom fyrir klukkutíma og fann líkið.

- Hún býr ekki hér. - Kannski drap þernan hann.

Hún er 54 ára, 120 kíló á þyngd.

Engir marblettir á líkinu.

- Það er ekki þernan. - Það er aldrei að vita.

Fyrirgefið.

Hann fór með kærustunni úr klúbbnum um miðnætti.

- Hvað var notað? - Ísnál.

Hún var skilin eftir á borðinu í setustofunni.

Sæðisblettir í sængurfötunum.

Afar áhrifamikið.

Hann fékk úr honum áður en honum var stútað.

Þetta er viðkvæmt mál.

Boz lagði fram stórfé í herferð borgarstjórans.

Hann var stjórnarformaður Listasafnsins...

En þú sagðir að hann væri rokkstjarna.

Hann var hættur að vera rokkstjarna.

Samfélagslega sinnuð og virt rokkstjarna.

Og hvað er þetta þarna?

Samfélagslega sinnað og virt kókaín, sýnist mér.

Taktu nú eftir, Curran. Ég verð undir miklu álagi.

Ég vil ekkert klúður.

Hvað heitir kærasta Boz?

Catherine Tramell. Divisadero 162.

- Ætíð ánægjulegt, kafteinn. - Hann vaknar fyrir allar aldir.

Yfirleitt kemur hann ekki fyrr en eftir golfið.

Johnny og borgarstjórinn hafa verið aldavinir.

Nick. - Já.

Þú kemur klukkan þrjú.

- Viltu að ég vinni að málinu? - Þú kemur, sagði ég.

Gott og vel. Ég kem.

Ég heiti Curran og þetta er Moran.

Frá lögreglunni í San Francisco.

Mig langar að ræða við fr. Catherine Tramell.

Komið inn.

Fáið ykkur sæti. Andartak.

Er þetta ekki fallegt? Sitt Picasso-málverkið hvort.

Ég vissi ekki að þú vissir hver Picasso var. - Það stendur hér.

Hennar er stærra.

Fyrirgefðu ónæðið. Fáeinar spurningar.

- Frá siðgæðisdeildinni? - Nei, morðdeildinni.

Hvað er ykkur á höndum?

Hvenær sástu John Boz síðast?

Er hann dáinn?

Af hverju heldurðu að hann sé dáinn?

Væruð þið hér annars?

Varstu með honum í gærkvöldi?

Þið viljið hafa tal af Catherine, ekki mér.

- Hver ert þú? - Ég heiti Roxy.

Ég er vinkona hennar.

Veistu hvar vinkona þín er, Roxy?

Hún er í strandhúsinu í Stinson.

- Seadrift 1402. - Þakka þér fyrir.

Þetta er tímasóun.

Catherine drap hann ekki.

Fr. Tramell?

Góðan dag.

Curran og Moran, lögreglumenn.

- San Francisco-lögreglan. - Ég veit hverjir þið eruð.

- Hvernig dó hann? - Hann var myrtur.

Augljóslega.

- Hvernig var hann myrtur? - Með ísnál.

Hvað varstu lengi með honum?

Ég var ekki með honum. Ég reið honum.

- Ertu í bransanum? - Nei, ég er leikmaður.

- Hve lengi voruð þið saman? - Í hálft annað ár.

Varstu með honum í gærkvöldi? - Já.

Fórstu úr klúbbnum með honum? - Já.

- Fórstu heim með honum? - Nei.

Við fengum okkur í glas saman.

Við urðum samferða út. Hann fór heim og ég hingað.

Var einhver hjá þér í gærkvöldi? - Nei.

Ég var ekki upplögð í gærkvöldi.

Má ég spyrja þig að einu, fr. Tramell?

- Harmarðu andlát hans? - Já.

Mér þótti gott að ríða honum.

Mig langar ekki að ræða þetta frekar.

Við getum yfirheyrt þig á stöðinni ef þú vilt.

Lestu mér þá réttindi mín og handtaktu mig.

Þá fer ég á stöðina.

Hunskist héðan að öðrum kosti.

Gerið svo vel.

Indæl stúlka.

Fyrirgefðu, Beth. Ég tafðist í Stinson.

- Hvernig líður þér, Nick? - Ágætlega.

Láttu ekki svona, Beth. Þú veist að mér líður vel.

- Hve lengi á að standa í þessu? - Meðan eftirlitið vill. Sestu.

- Þetta er bull. Þú veist það. - Ég veit það.

En fáðu þér samt sæti svo unnt sé að ljúka þessu.

Hvernig gengur annars?

Bærilega.

Ég sagði þér að allt væri í besta lagi.

- Hvernig er einkalífið? - Kynlíf mitt er ágætt.

Raunar er kynlífið skítt síðan ég hætti að hitta þig.

Það er komið sigg í lófann.

Fyrirgefðu.

En áfengismálin? - Ég hef ekki smakkað dropa í þrjá mánuði.

- Hvað um kókið? - Nei.

Nei? - Nei.

Ég strita í líkamsræktinni, hættur að smakka það.

Ég hætti meira að segja að reykja.

- Hvernig er að reykja ekki? - Ömurlegt.

Segðu eftirlitinu að ég sé heilsugóð, snarrugluð lögga.

Leyfðu mér nú að fara.

- Já. - Þakka þér fyrir.

Ég sakna þín enn, Nick.

- Hvað er títt, Nick? - Sæll.

Talcott er þarna inni. Þeir bíða. Hvernig gekk?

Hún saknar mín.

Hafi stúlkan mök er það ævilangt. - Lagðirðu undir?

Byrjum þá á þessu. Harrigan.

31 stungusár á hálsi og bringu.

Engin nothæf fingraför. Ekki innbrot, einskis saknað.

Engin fingraför á ísnálinni. Þær fást í öllum búðum.

Trefillinn var frá Hermes. Þeir eru rándýrir.

Um 20.000 stykki seljast af þeim um allan heim árlega.

Púðrið var kókaín.

Í háum gæðaflokki. Öflugt. Hann saug það.

Smáagnir fundust á vörum hans og getnaðarlim.

Boz lætur eftir sig 5 milljónir dala.

Engir ættingjar á lífi, ekki á sakaskrá.

Hann vildi sitt dóp, stelpur og rokkið.

Og hann kunni líka vel við borgarstjórann.

Hvað um kærustuna hans?

- Liggur hún undir grun? - Já.

Á hvaða forsendum?

Kærasta Catherine Tramell. Þrítug. Ekki á sakaskrá.

Útskrifaðist með láði frá Berkeley 1983.

Tvær aðalgreinar. Bókmenntir og sálfræði.

Dóttir og eini afkomandi Marvins og Elaine Tramell

sem létust í siglingaslysi 1979.

Einkaerfingi: Cathrine Tramell. Áætlaðar eignir: 110 milljónir.

Þú ert að gantast.

Heitbundin Manuel Vasquez. Hann er látinn.

Manny Vasquez?

Fyrrverandi hnefaleikari. Lést í hringnum 1984.

Hún er forrík, sefur hjá boxurum og rokkstjörnum

auk þess að hafa próf í að rugla menn í kollinum.

Og bókmenntagráðu. Hún er rithöfundur.

Gaf út skáldsögu undir dulnefni.

Viltu fræðast um efni hennar?

Hún fjallar um fyrrv. Rokk- stjörnu sem kærastan myrðir.

Ástin særir Catherine Wolf

Blaðsíðu 67, kúreki.

Veistu hvernig hún stútar kærastanum?

Með ísnál.

Í rúminu. Hendurnar bundnar með hvítum silkitrefli.

Doktor Garner.

Ég bað doktor Lamott að vera okkur til halds og trausts.

Dr. Lamott kennir greiningu á sálsýkihegðun við Stanford

og starfar í sálfræðihópi dómsmálaráðuneytisins.

Doktor Lamott.

Ég sé tvö möguleika.

Sá fyrri: Höfundur bókarinnar er morðinginn.

Og fylgdi morðlýsingunni út í ystu æsar.

Sá síðari:

Einhver sem vill vinna höfundinum mein las bókina

og myrti á sama hátt til að beina grun að honum.

Ef það er höfundurinn, við hvað er þá að eiga?

Þá áttu í höggi við slæga og djöfullega persónu.

Bókin var rituð hálfu ári, jafnvel mörgum árum

áður en hún kom út.

Höfundurinn hefur því þurft að leggja á ráðin

í undirmeðvitund sinni. Það að glæpurinn var framinn

bendir til sálsýkislegrar þráhyggju,

ekki aðeins hvað morðinu sjálfu viðvíkur

heldur einnig fyrir fram undirbúnum varnarviðbrögðum.

Stundum á ég erfitt með að greina kúk frá skít, doktor.

Hvað varstu að segja?

Bókin átti að vera fjarvistar- sönnun hennar. - Einmitt.

Heldurðu að ég sé svo heimsk að drepa mann á sama hátt

og ég lýsti í bókinni, spyr hún.

Það gerði ég ekki því þá veit ég að grunur fellur á mig.

En sé það ekki höfundurinn. Heldur einhver lesandi.

Þá áttu í höggi við aðila sem er svo altekinn

að hann eða hún drepur blásaklaust fórnarlamb

til að grunur beinist að þeim sem ritaði bókina.

Ég á við djúpstætt, þráhyggjuhatur

og algert virðingarleysi fyrir mannslífum.

Þetta er þá kolklikkaður brjálæðingur.

Áttu við það, doktor?

Hann er stórhættulegur.

Og fársjúkur.

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left