Inglourious Basterds

Inglourious Basterds

Download Icelandic Subtitle

Release info

Inglourious Basterds 720p BluRay x264-METiS
A Commentary by Yawbus

Tags

BluRay
x264
720p
720
Published on: 2010-02-15
Downloads: 164
Hearing Impaired: Yes

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Fyrsti kafli

Endur fyrir löngu...

í Frakklandi undir hernámi nasista

Farið aftur inn og lokið dyrunum.

Julie, sæktu mér vatn svo ég geti þvegið mér

og farðu svo inn.

Tilbúið, pabbi.

Takk, elskan mín.

Farðu nú inn til systra þinna.

Ekki hlaupa.

Er þetta landareign Perrier LaPadite?

Ég er Perrier LaPadite.

Það er ánægja að hitta þig, herra LaPadite...

ég er Hans Landa, ofursti í SS.

Hvað get ég gert fyrir þig?

Ég var að vona að þú myndir bjóða mér inn á heimili þitt

svo við gætum rætt saman.

Vissulega. Á eftir þér.

Landa ofursti, þetta er fjölskyldan mín.

Hans Landa ofursti í SS,

ungfrú,

til þjónustu reiðubúinn.

Orðrómurinn í þorpinu um fjölskylduna þína er réttur.

Dætur þínar eru hver annarri fallegri.

Takk.

Vinsamlegast...

fáðu þér sæti.

Suzanne, viltu færa ofurstanum vín?

Nei.

Kærar þakkir, herra LaPadite, en ekkert vín.

Þar sem þetta er mjólkurbýli ætti að vera til mjólk hér.

Já.

Ég kýs þá frekar mjólk.

Gott og vel.

Julie, viltu loka glugganum?

Takk.

Herra, við bæði fjölskyldu yðar og kýrnar þínar

segi ég: " Bravó."

Takk.

Sestu hjá mér við borðið.

Gott og vel.

Herra LaPadite,

það sem við þurfum að ræða er betur rætt í einrúmi.

Þú sérð að ég skildi menn mína eftir úti.

Ef það móðgar þær ekki, viltu biðja dömurnar um að stíga út fyrir?

Það er rétt.

Charlotte, viltu fara út með stelpurnar?

Ég og ofurstinn þurfum að ræða saman.

Herra LaPadite...

ég er því miður kominn í þrot í frönskukunnáttu minni.

Að halda áfram að tala hana bjagað myndi bara verða mér til skammar.

Hins vegar er mér tjáð að þú talir ensku ansi vel.

Já.

Það vill svo til að það geri ég líka. Þar sem þetta er heimili yðar

bið ég um leyfi til að skipta yfir í ensku

það sem eftir lifir samtalsins.

Fyrir alla muni.

Þótt ég sé vel kunnugur þér og fjölskyldu þinni

er mér ekki kunnugt hvort þú vitir hver ég er.

Ertu meðvitaður um tilvist mína?

-Já. -Það er gott.

Veistu hvaða verk mér hefur verið falið að vinna í Frakklandi?

Já.

Segðu mér hvað þú hefur heyrt.

Ég hef heyrt...

að Foringinn hafi falið þér að smala saman gyðingunum í Frakklandi

sem nú eru í felum eða þykjast vera annarrar trúar.

Foringinn hefði ekki getað orðað þetta betur.

En tilgangur heimsóknar þinnar,

þótt ánægjuleg sé, er mér hulin ráðgáta.

Þjóðverjar leituðu að földum gyðingum í húsinu mínu fyrir níu mánuðum

og fundu ekkert.

Mér er það ljóst.

Ég hef lesið skýrslurnar um þetta svæði.

En líkt og sérhver framkvæmd sem fær nýja stjórnendur

er alltaf einhver endurtekning á verkum.

Mest af því er alger tímasóun en þarf samt að gerast.

Ég er bara með nokkrar spurningar, herra LaPadite.

Ef þú getur hjálpað mér með svörin

getur deild mín lokað skýrslunni um fjölskylduna þína.

Jæja.

Fyrir hernámið voru fjórar gyðingafjölskyldur á þessu svæði.

Allt mjólkurbændur líkt og þú.

Dolerac, Rollins, Loveitt-fjölskyldan...

og Dreyfus-fjölskyldan.

Er það rétt?

Samkvæmt bestu vitund minni

voru þetta gyðingafjölskyldurnar á meðal mjólkurbændanna.

Herra ofursti, myndi það trufla þig ef ég reykti pípuna mína?

Herra LaPadite,

þetta er þitt hús, láttu fara vel um þig.

Samkvæmt þessum blöðum

er vitað um afdrif allra gyðingafjölskyldnanna á þessu svæði

nema Dreyfusanna.

Einhvern tíma á síðasta ári virðast þau hafa horfið.

Ég dreg því þá ályktun að annaðhvort hafi þeim tekist að flýja

eða einhverjum hefur tekist að fela þau.

Hvað hefurðu heyrt um Dreyfus- fjölskylduna, herra LaPadite?

-Bara kjaftasögur. -Ég dái kjaftasögur!

Staðreyndir geta verið svo villandi.

En kjaftasögur, sannar eða falskar, afhjúpa oft margt.

Jæja, herra LaPadite,

hvaða kjaftasögur hefurðu heyrt um Dreyfus-fjölskylduna?

Ég ítreka að þetta er bara orðrómur,

en við heyrðum að Dreyfus-fjölskyldan hefði komist til Spánar.

Svo þú hefur heyrt orðróm um að þau hafi flúið?

Já.

Þar sem ég hef aldrei hitt Dreyfusana, viltu staðfesta fyrir mig

heimilisfólkið og nöfn þeirra?

Þau voru fimm.

Faðirinn, Jacob.

Eiginkonan, Miram

og bróðir hennar, Bob.

Hve gamall er Bob?

30, 31 .

Haltu áfram.

Og börnin,

Amos

og Shosanna.

Aldur barnanna?

Amos var níu eða tíu ára.

Shoshanna Amos 9-10

-Og Shosanna? -Og Shosanna var

18 eða 19. Ég er ekki viss.

Þetta ætti líklega að nægja.

En áður en ég fer, get ég fengið annað glas af ljúffengu mjólkinni?

Að sjálfsögðu.

Herra LaPadite,

ertu meðvitaður um gælunafnið sem franska þjóðin hefur gefið mér?

Ég hef engan áhuga á slíkum hlutum.

En þú veist hvað þau kalla mig.

Ég veit það.

Hvað veistu?

-Að þau kalla þig Júðaveiðarann. -Nákvæmlega.

Ég skil ótta þinn við að endurtaka það.

Heydrich er sagður hata viðurnefnið

sem íbúar Prag hafa gefið honum.

Það er mér óskiljanlegt af hverju hann hatar nafnið Böðullinn.

Hann hefur gert allt í sínu valdi til að ávinna sér það.

Ég, á hinn bóginn, dái óopinberan titil minn

vegna þess að ég hef áunnið mér hann.

Það sem gerir mig að svona skilvirkum gyðingaveiðara er

að ólíkt flestum þýskum hermönnum

get ég hugsað eins og gyðingur

en þeir geta aðeins hugsað eins og Þjóðverjar.

Eða öllu heldur, þýskir hermenn.

Ef maður ætti að ákvarða hvaða eiginleika þýska þjóðin deilir með dýri

væri það lævísi og ráneðli fálkans.

Ef maður ætti að ákvarða hvaða eiginleika gyðingarnir deila með dýri

þá væri það eðli rottunnar.

Foringinn og áróðursvél Göbbels hafa sagt nánast það sama.

En munurinn á niðurstöðum okkar

er sá að ég lít ekki á samanburðinn sem móðgun.

Ímyndaðu þér eitt andartak heiminn sem rotta lifir í.

Það er vissulega fjandsamlegur heimur.

Ef rotta myndi skjótast inn um útidyrnar þínar núna,

myndirðu mæta henni með fjandskap?

Ég býst við því.

Hefur rotta gert þér eitthvað til að skapa þetta hatur þitt á þeim?

Rottur breiða út sjúkdóma. Þær bíta fólk.

Rottur voru valdar að svartadauða en það er orðið langt síðan.

Þá sjúkdóma sem rotta gæti dreift

gæti íkorni allt eins borið.

Ertu sammála því?

Samt deilirðu væntanlega ekki sama hatri í garð íkorna

-og þú berð til rottna, er það? -Nei.

En samt eru hvort tveggja nagdýr, er ekki svo?

Og fyrir utan rófuna eru þau frekar lík, er það ekki?

Þetta er áhugaverð hugmynd, herra ofursti.

En hversu áhugaverð sem hugmyndin kann að vera

breytir hún í engu tilfinningum þínum.

Ef rotta gengi hingað inn í þessum töluðu orðum

myndirðu taka á móti henni með skál af ljúffengu mjólkinni þinni?

Líklega ekki.

Ég átti ekki von á því.

Þér geðjast ekki að þeim.

Þú veist ekki hvers vegna þér geðjast ekki að þeim.

Þú veist bara að þér þykja þær viðbjóðslegar.

Þar af leiðandi leitar þýskur hermaður í húsi

sem grunur leikur á að hýsi gyðinga.

Hvar leitar fálkinn?

Hann leitar í hlöðunni, á háaloftinu, í kjallaranum,

hann leitar á öllum stöðum sem hann myndi fela sig á.

En það eru margir staðir sem engum fálka dytti í hug að fela sig á.

En ástæðan fyrir því að Foringinn hefur kallað mig frá Ölpunum í Austurríki

og staðsett mig á kúaslóðum í Frakklandi er sú að mér detta þeir í hug.

Því ég veit hvaða miklu dáðir manneskjur eru færar um

þegar þær láta sjálfsvirðinguna lönd og leið.

Má ég líka reykja pípuna mína?

Gjörðu svo vel, ofursti, vertu eins og heima hjá þér.

Jæja. Starf mitt krefst þess

að ég láti menn mína koma inn á heimili þitt

og gera nákvæma leit

áður en ég get formlega strikað fjölskylduna þína af listanum mínum.

Ef eitthvað misjafnt er að finna máttu vera viss um að það finnst.

Nema þú hafir eitthvað að segja mér

sem gerir leitina ónauðsynlega.

Ég gæti líka bætt við að hverjum þeim upplýsingum

sem gera mér starf mitt auðveldara verður ekki mætt með refsingu.

Reyndar þvert á móti. Það verður verðlaunað fyrir þær.

More Icelandic subtitles for Inglourious Basterds

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left