The first 200 lines.
BYGGT Á SÖNNUM ATBURÐUM.
Haltu áfram að taka upp. Við höfum þá bara meira efni.
Getur einhver þurrkað af honum? Hann hefur svitnað aðeins.
Eyes on the Prize 2, 3. Mars 1989...
Viðtal við Bill O'Neal.
Þegar litið er til baka á athafnir þínar á sjöunda og áttunda áratugnum,
hvað myndirðu segja syni þínum um það sem þú gerðir þá?
Sjáið loganna himininn lýsa
Ég hef aldrei séð eld svona hátt rísa
MORÐIÐ A MARTIN LUTHER KING I MEMPHIS VELDUR ÓEIRÐUM
Sjáið loganna himininn lýsa
Ég hef aldrei séð eld svona hátt rísa
Eruð þið að hlusta á mig tala?
Lítur út fyrir að surtunum er dauðans alvara
HERINN GEGN UPPÞOTI SVARTRA Í WASHINGTON VARÐLIÐ Í CHICAGO, DETROIT, BOSTON
Surtunum er dauðans alvara
Surtunum er dauðans alvara
Surtunum er dauðans alvara
Þetta eru ekki óeirðir. Þetta er uppreisn.
Fólk gerir uppreisn vegna aðstæðna
en ekki vegna einstaklinga.
Enginn einstaklingur skapar byltingu. Hún skapast út frá aðstæðunum.
Byltingin er eina lausnin
Byltingin er eina lausnin
FRELSIÐ HUEY
-Byltingin er eina lausnin -Byltingin
Allt í lagi. Hver er þetta?
Huey P. Newton.
Og hvar er Huey?
Í fangelsi.
Það fyrsta sem Svörtu hlébarðarnir gerðu
í Oakland var að stofna vopnað eftirlit
til að ganga úr skugga
um að svart fólk yrði ekki fyrir áreiti eða ógnunum
af lögreglunni.
Og ef lögreglan handtók einhvern
fylgdum við honum að fangelsinu og greiddum tryggingargjaldið
hvort sem hann var meðlimur eður ei.
Svörtu hlébarðarnir eru forystufólk.
Þeir rífa niður kerfið út frá botninum,
byrja á botninum og fara upp.
Ríki án kapítalisma. Það er markmiðið.
Já, við erum vopnuð. Við erum vopnuð útbreiðslusameind,
en megináhersla okkar er samfélagsverkefni...
ÓKEYPIS SJÚKRABÍLAÞJÓNUSTA SVÖRTU HLÉBARÐANNA
...sem hjálpa fólkinu.
ÓKEYPIS HEILSUGÆSLUSTÖÐ FÓLKSINS OPNAR BRÁTT!
Frí heilsugæsluþjónusta, frír matur fyrir börn,
sameignarstofnunin í frelsisskólum,
ókeypis lögfræðiaðstoð, menntun fyrir samfélagið.
Svörtu hlébarðarnir
eru mesta ógnin gegn þjóðaröryggi okkar.
Meiri ógn en Kína. Jafnvel meiri en Rússland.
Gagnnjósnakerfi okkar verður að koma í veg fyrir að svartur messías
rísi upp í hóp þeirra.
Einhver sem getur sameinað kommúnista-,
andstríðs- og vinstrihreyfingarnar.
Við slökkvum ekki eld með eld, heldur eld með vatni.
Þessi maður.
Við svörum ekki rasisma með rasisma, heldur samstöðu.
Fredrick Allen Hampton.
Mótsvarið við kapítalisma er ekki svartur kapítalismi.
Mótsvarið við kapítalisma er sósíalismi.
LEONS KRÁ
Helvítis Krúnu-gengið. Að sjálfsögðu.
Allt í lagi, gamanið er búið. Allir að veggnum.
Hvað er í gangi? Ég borgaði O'Mally í síðustu viku.
Heyrðirðu í mér?
Lít ég út eins og einhver ómerkilegur kúgari?
Hvað stendur hérna?
Alríkislögreglan?
Alríkislögreglan. Það var rétt hjá þér, stórlax.
Hvert ert þú að fara? Komdu hingað, asni.
Setjið allir hendur á borðið.
Komdu hingað!
Við erum bara að slappa af hér.
Við höfum ekki gert neinum neitt.
Já, já, í sundur með fæturna.
Drullastu af mér, svín.
Hvað hefurðu hér?
Hafið þið ekkert betra að gera í kvöld?
Bara að slappa af? Hvað er þetta?
Hvað er þetta? Hálfviti.
Það er ekkert verra en blökkumaður með barmmerki.
-Pontiac-inn? -Allt í lagi, verið rólegir.
Allt í lagi, þú ert á leiðinni í steininn.
-Hvað? -Já.
GTO bíllinn fyrir utan,
-þessi rauði, áttu hann? -Já.
Honum var stolið fyrir tveimur mánuðum.
-Komdu nú. -Nei! Þetta er bíllinn minn!
Hægan, hægan!
-Slepptu mér. -Vertu rólegur.
Ég er með öll gögnin.
Þú ert handtekinn.
-Ég gerði ekki neitt! -Segðu dómaranum það.
Af hverju er alríkislögreglan að leita að stolnum bíl?
Hafiði enga svertingja til að drepa?
-Skíthæll. -Andskotinn!
Hei, harðjaxl. Engar brellur.
Vertu rólegur. Ekki gera neitt.
Hann er bara krakki.
Þú ert engin helvítis lögga, surtur.
Komið ekki nálægt mér!
Náið honum!
-Komdu þér úr bílnum! -Farið burt!
Andskotinn!
Hypjaðu þig út!
Komdu þér þaðan út!
Ekki beina þessu að mér! Fjandinn!
Drullastu af bílnum mínum!
Drullastu af þessu!
Helvítis ræfill!
Mitchell fulltrúi, alríkislögreglan.
Lítur næstum jafn vel út og þitt.
Af hverju notaðirðu barmmerki?
Af hverju notaðirðu ekki hníf eða byssu eins og flestir bílaþjófar?
Barmmerki er meira ógnvekjandi en byssa.
Geturðu útskýrt það fyrir mér?
Það getur hver sem er komið höndum á byssu, herra.
Með barmmerki er eins og allur herinn sé með þér í liði.
Það er þá best að ég týni þessu ekki.
Varstu í uppnámi þegar dr. King var myrtur?
Hvað?
Varstu í uppnámi þegar dr. King var myrtur?
Ég veit það ekki.
Þú mátt vera hreinskilinn.
Já, ég var það dálítið.
Og hvað með Malcolm X?
Ég hef ekkert hugsað út í það.
Hugsaðirðu aldrei út í það?
Nei.
Þú átt yfir höfði þér 18 mánuði fyrir bílaþjófnaðinn
og fimm ár fyrir að þykjast vera alríkislögreglumaður.
Eða þú getur farið heim.
...sem er í takt við tölur og menningu
80% hlutfalls svartra nemenda.
Svo dr. Charles Hurst úr Howard háskóla verður rektor.
Og skólinn verður kallaður Malcolm X háskólinn héðan í frá.
FRELSIÐ HUEY
Í anda aðgerðastefnu,
og fyrir hönd flokksstjórnar svartra nema í Wright háskóla,
er ég stolt að kynna
varaformann Svörtu hlébarðanna í Illinois, Fred Hampton.
Ég þarf ekki hljóðnema. Heyriði í mér?
Já!
Gott.
Malcolm X háskólinn, ég fíla það.
Dr. Charles Hurst frá Howard. Æði.
Hvað nú?
Haldiði að nemarnir þar verði frjálsir?
Þeir leyfa ykkur að breyta nafni skólans eða ykkar eigin nafni,
klæðast afrískri mussu. Vitiði af hverju?
Þeir ætla samt að senda ykkur til Víetnam
til að skjóta fátæka hrísgrjónabændur eða verða sjálfir fyrir skoti.
Þetta er greinarmunurinn á byltingu
og yfirborðskenndri umbót.
Umbót er leið fyrir þrælahaldarana til að kenna þrælunum
að vera þægari þrælar.
Með umbót, ef við losnuðum við helvítis þrælahaldarana,
myndu þrælarnir samt vinna alla vinnuna fyrir þá.
Það er til maður sem kallast kapítalisti.
Hörundslitur hans skiptir ekki máli, svartur, hvítur, brúnn eða rauður.
Því kapítalistinn hefur aðeins eitt markmið.
Það er að arðræna fólkið.
Hann getur klæðst jakkafötum eða afrískri mussu,
því pólitískt vald fylgir ekki klæðnaði.
Pólitískt vald fylgir byssuhlaupi.
Við Svörtu hlébarðarnir trúum ekki á menningu
nema hún sé byltingarkennd.
Það þýðir menning sem frelsar ykkur!
Ég vil ekki látbragðsleik í gervi galdralækna
eða hvað sem ykkur finnst tákna ættjörðina.
Gef mér réttsýnan klæðnað frelsisbaráttumanns Mósambík.
Gef mér AK-47 riffil
eða axlarfetil eins og í Angóla!
Gef mér skammbyssur handa fólkinu sem vill frelsa sig!
Bróðir.
Mussan mun ekki hjálpa þér
þegar þeir koma hingað á skriðdrekum
eins og í Henry Horner blokkunum.
Þú þarft verkfæri, bróðir.
Við höfum verkfæri á Madison stræti.
Get ég fengið smá klink, bróðir?
Smá klink, systir?
Hæ.
Góða kvöldið.
Mér fannst ræðan þín áhugaverð.
Takk fyrir, systir.
Hefurðu gaman af ljóðskap?
Það er alveg í lagi en eins og Che Guevara sagði...
"Orð eru falleg en aðgerðir eru þeim æðri," skilurðu?
Eg skil það.
En þú notaðir orð á sviðinu...
Kannski ættirðu að vera varkárari með þau næst,
í staðinn fyrir að níðast á fólkinu sem þú reynir að safna í lið með þér
fyrir að sýna stolt af kynþætti sínum.
En bara svo þú vitir það, þú ert ljóðskáld.
Hver er skilgreiningin á stríði?
Stríð er ofbeldisfull átök milli tveggja eða fleiri aðila.
No comments yet. Be the first to leave one.