The first 200 lines.
ÞÁTTARÖÐ ÚR SMIÐJU NETFLIX
- Eitthvað? - Nei. Enginn veit neitt.
Hvað í héranum er í gangi?
Við höfum ekki fengið nýtt fólk til að kvelja í heila viku.
- Ég sakna þess. - Ég veit.
Ég varð svo örvilnaður í morgun að ég reyndi að fletja út eggaldin.
Það er bara ekki eins.
Hei! Aumingjar. Fundur.
- Um hvað? - Ég veit það ekki.
Líklega um illa þefjandi pung pabba þíns.
Vonandi ekki meiri þjálfun vegna kynferðislegrar áreitni.
Við erum nýbúin með það. Ég er strax svo góður í henni.
Allt í lagi! Við fengum þau.
Allt í lagi, það var lagið!
Já, það er ekki alveg það sem er að gerast hérna.
Slæmi staðurinn mun breytast.
Og ég er...
Nú, ég er eiginlega yfirmaður núna.
Hann er að grínast, er það ekki?
Ég er hræddur um ekki.
Hlutirnir eru að breytast.
Michael og ég munum reyndar vi...
vi... vi...
vinna... saman.
Þoldi þetta ekki.
Ég þoldi ekki að segja það, tilfinninguna, þoldi þetta ekki.
Þið hafið verið valin
til að vera fyrstu arkítektar Slæma staðarins sem læra á nýja kerfið.
Af hverju þurfum við nýtt kerfi?
Pyntingar virka. Þannig hefur það alltaf verið gert.
Með fullri virðingu, en "þannig hefur það alltaf verið gert,"
er afsökun sem hefur verið notuð í hundruð ára
- til að réttlæta rasisma, kvenhatur... - Einmitt.
Sko? Þessi gella skilur þetta.
50. KAFLI
Þessar tölvur hafa aðgang
að öllum skrám allra sem eru núna á Slæma staðnum.
Og við þrjú höfum mjög mikilvægt starf.
Að finna út hvaða fyrrum forsetar Bandaríkjanna voru laumuhommar.
- Nei. - Jæja þá. Tvíkynhneigðir.
Auðvitað, en einnig,
á meðan Michael er að reyna að þjálfa arkítektana,
eigum við að finna fyrstu þúsund manneskjurnar til að taka prófið.
Fólk sem mun sigla í gegnum það svo við getum byggt traust á kerfinu.
Hverjar eru forsendurnar?
Ætti það að vera fólk með flest stig samtals?
Eða sem sigraðist á mestu erfiðleikunum?
Ég held að við getum byrjað á þeim auðveldustu.
Allra besta fólkinu sem var uppi...
Evel Knievel, Kool-Aid manninn, Mini-Me,
DJ Jazzy Jeff, anda svo við getum óskað okkur eilífðar...
- Jason... - Ekkert mál, hafið mig með líka.
Einnig Fat Bastard, áhugaverðasta manni í heimi,
Pikachu, Karate Kid,
Wendy úr Wendy's, úrilla köttinn
og GPS-konuna sem segir manni hvert á að fara.
Þetta virðist góður tími til að hætta.
Látum gott heita í dag. Komum aftur fersk á morgun.
- Vel gert, öll! - Hvað...
Janet er að dreifa skránni um Tahani Al-Jamil,
sem bauð sig fram til að taka prófið í dag.
Skoðið þetta og svo höldum við áfram.
Þau virðast ekki mjög áhugasöm.
Þetta gæti orðið erfiðara en ég hélt.
Eins og þegar við reyndum að kenna Taylor Swift að dansa.
Lengstu fjögur ár ævi minnar.
Við erum að umbylta öllu kerfi Slæma staðarins
og þessir arkítektar eru vanir sínum háttum.
Þetta mun kosta mikla vinnu.
En vinnan er skemmtilegi hlutinn.
Skiptir engu hve langan tíma það tekur,
við klárum og hefjum betri og bjartari framtíð.
Fari þetta til fjandans. Ég vinn ekki fyrir svikara.
Phil farinn.
Það er nafnið mitt, Phil.
Ó, Phil. Hei. Svona, vinur.
Ég valdi þig persónulega
byggt á frumlegri vinnu þinni í deild yfirborðskenndrar vakningar.
Vá.
Frábært hjá þér að hrútskýra deildina mína fyrir mér.
Og ég móðgast.
Maður minn! Hvílík goðsögn!
- Um hvern ertu að lesa? - Mig.
Ég var flottur á jörðinni.
Ég saug svo mikið af bensíni, Eleanor.
Jafnvel þótt bíllinn væri á ferð,
brennandi, eða úr báti.
Ég náði alltaf þessu bensíni.
Maður minn.
Ég hugsaði aldrei út í að við gætum skoðað eigin skrár.
Ég prentaði út skrár okkar allra.
Ég elska þig, allt í lagi?
Orðin eru ljúf, en tónninn hræðir.
Við erum ástfangin og allt er frábært, og ef við ætlum að halda því
verður þú að lofa mér að lesa skrána mína aldrei, aldrei.
Ef þú vilt það ekki þá geri ég það auðvitað ekki,
en ekkert þarna gæti breytt tilfinningum mínum til þín.
Þú segir það núna, en þú veist ekki hvað ég gerði á hrekkjavöku 2013.
Hvað gerðir þú á hrekkjavöku 2013?
Ég man það ekki, en hlýtur að hafa verið slæmt.
Því daginn eftir vaknaði ég í stóru gúmmííláti
í kjallara hjá einhverju fólki
og ég ældi yfir gömlu myndaalbúmin þeirra.
Þetta er svipurinn sem við reynum að forðast, vinur.
Ég þarf ekki að lesa skrána þína.
Ég þekki þig.
Ég elska þig og get ekki beðið eftir að verja eilífðinni með þér.
Augljóslega höfum við verk að vinna
og þurfum bæði að ná prófinu.
En að lokum verðum við saman til eilífðar.
Þú verður að lesa skrána mína strax.
Ha? Ég er ráðvilltur. Er þetta leikur?
Er þetta einhvers konar kynlífsleikur?
Ég get ekki tekið áhættuna.
Hvað ef við verjum hálfri eilífðinni saman
og svo finnur þú eitthvað sem breytir tilfinningum þínum til mín
og svo fyrirlítur þú mig fyrir að sóa hálfri eilífð þinni?
Nei. Það er betra að rífa plásturinn beint af
og þú lesir allt það slæma núna, þegar við erum heit og áköf.
- Gott og vel. Ég skal lesa hana. - Já.
Má ég klára að lesa um Oskar Schindler fyrst?
Er ég á eftir honum? Listagaurnum? Við erum glötuð, gaur.
Eftir eins margar tilraunir og þarf, ef manneskjan ykkar nær prófinu,
og sýnir að hún á skilið að fara á Góða staðinn,
heyrið þið þetta hljóð...
Góði staður, hér kem ég.
Þetta nýja kerfi er frábært!
Hverjum eigum við að þakka þessa áreynslulausu...
innleiðingu þess?
Hver sem það er, getum við verið sammála um að það er snilld.
Það var ég. Bless, öll.
Detti mér allar dauðar lýs!
Er þessi mynd loksins búin?
Henni er lokið. Bara eitt smá...
Þetta er próf
Betra en önnur próf
- Ég held að við... - Jæja, vangaveltur?
Já. Þetta hljómar allt svo hallærislega.
Nei, það er núverandi kerfi sem er hallærislegt.
Það er svo einfalt.
Þið fáið skrá manneskju
og verum hreinskilin, þið lesið hana aldrei.
Þið bara farið beint í kaflann um ótta og fóbíur
og notið það til að kvelja hana.
Ótti við snáka? Hendið henni í snákagryfjuna.
Áhyggjur af að eitthvað komi fyrir þinn venjulega, sívala lim?
Fletjum hann.
Þessi nýja leið gerir ykkur kleift
að prófa sálræna galla fólks og veikleika.
Og trúið okkur, það er nóg af þeim.
- Hei! - Fyrirgefið. Ég er í söluham.
Þetta er tækifærið ykkar til að vera hluti af nýrri framtíð.
Ætlið þið að segja mér að ekki sé til einn einasti djöfull
sem langar til að hanna fyrsta prófið í þessu nýja kerfi?
Sá er til.
Og hún er ísköld gella.
Vicky, hvað ert þú að gera hér?
Slakaðu á. Ég heyrði um nýja kerfið. Líst vel á það og vil vera með.
Fyrirgefðu að ég skuli efast,
eftir að þú reyndir að eyðileggja allt heila hverfið mitt.
Sko. Eftir að þú sprengdir mig í slím
hafði ég mikinn tíma til að hugsa á meðan það var að endurraðast.
Ef hlutirnir eiga að breytast verð ég að breytast með þeim.
Breytingar geta vissulega verið ógnandi, en ég er listakona,
sem þýðir að ég á að vera hrædd.
Jæja þá, fáðu þér sæti.
Janet lætur þig fá skrá Tahani.
Ó, nei. Ég þarf ekki skrána hennar.
Ég þekki Tahani mjög vel.
Sjálfsheltekin, fjölskylduvandamál, of upptekin af því að vera hávaxin.
Dæmigerð Vicky, talandi niður til fólks.
En það skiptir ekki máli því ég er fyrir ofan það.
Því ég er nær sólinni.
Ég er hávaxin.
Ó, nei. Ég vissi það. Nú hatarðu mig.
Hvað varð til þess? Þegar mér var stefnt af góðgerðastofnuninni?
- Nei. - Ég veit hvað það var.
Mér til varnar þá vissi ég ekki að hann væri tvíburi kærastans míns
fyrr en í miðjum klíðum
og á þeim tímapunkti er þetta fórnarkostnaður.
Ég hata þig alls ekki.
Þú fékkst erfið verkefni.
Þú þurftir að ala þig upp sjálf,
en þú varst samt sjálfsöruggari við 13 ára aldur en ég var nokkurn tíma.
Að sjá allt þitt líf lagt svona fram er...
er alveg einstakt.
Gott og vel, svo þú elskar mig enn.
Þig langar enn í mig.
Hvað er þá að?
Ég er ekki nógu góður fyrir þig!
Ég meina... Sjáðu skrána mína.
Hún er einn tíundi miðað við þína því ég gerði ekkert í lífinu.
Já, við erum ólík, en við vitum það nú þegar.
Af hverju ertu að fara á taugum?
Þú ert svali, sjálfsöruggi Chidi núna, manstu?
Ég er öruggur með tilfinningar mínar til þín.
Ég er líka öruggur með að ég sé hundleiðinlegur
og þú eigir skilið að vera með einhverjum sem er það ekki.
Eins og Nicolas, slökkviliðsmanninum sem þú varst með 2009.
Hann bjargaði fólki úr brennandi húsum og hann var svo flottur.
No comments yet. Be the first to leave one.