The Last Duel

The Last Duel

Download Icelandic Subtitle

Release info

The Last Duel 2021 1080p AMZN WEB-DL DDP5 1 H 264-CMRG
A Commentary by sub.Trader
Jóhann Axel Andersen

Tags

Web-DL
web-dl
web
WEB-DL
1080
Published on: 2021-12-01
Downloads: 37
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Byggt á sönnum atburðum

Snúðu þér til hægri, frú.

Þakka þér fyrir.

Svona.

Hlustið, hlustið, hlustið!

Lávarðar! Riddarar! Skjaldsveinar!

Og allir aðrir þegnar.

Samkvæmt fyrirmælum herra okkar, Frakklandskonungs,

er stranglega bannað

að viðlagðri dauðarefsingu og eignaupptöku

fyrir nokkurn viðstaddan að vera vopnaður

eða bera sverð eða rýting

nema hann hafi fengið sérstaka undanþágu

frá herra okkar, konungi.

Hvor maður berst

á hestbaki og standandi

vígbúinn að eigin geðþótta

með hvers konar vopni eða varnartóli sem er.

Að undanskildum hverjum þeim vopnum eða varnartólum

sem smíðuð voru með göldrum eða fjölkynngi

eða öðru slíku sem Guð og kirkjan telja forboðið

öllum kristnum mönnum.

Ef annar keppenda tekur með sér á vígvöllinn

nokkur vopn sem hafa verið styrkt með álögum,

göldrum, fjölkynngi eða öðrum myrkralistum

skal þeim illvirkja vera refsað sem óvini Guðs...

eða sem svikara...

eða sem morðingja.

Þéttar. Þéttar.

Riddarar, af stað.

Af stað!

Af stað! Af stað!

FYRSTI KAFLI

Sannleikurinn samkvæmt JEAN DE CARROUGES

Komið og berjist!

Þið deyið allir!

ORRUSTAN UM LIMOGES 19. september 1370

Deyið eins og svín!

Komið nú!

Komið, misheppnuðu óþverrar...

Við verðum að aðhafast.

...og berjist!

Pierre skipaði okkur að verja brúna.

Skítt með skipanir. Fyrir konung.

Fyrir konunginn!

Fyrir konunginn!

Þakka þér fyrir.

Ég mun hvergi afsaka það hvernig þið börðust í dag.

Það var heiður að standa með ykkur.

Limoges féll.

Bandamönnum okkar mistókst að ná höfninni í Brest.

Nýi höfðinginn okkar, Pierre...

hefur fallið frá herferðinni og skipað okkur heim.

Förum í dögun.

Heyr, heyr.

Skál fyrir konungi.

Sagt er að Pierre sé ekki ánægður.

Mannslíf björguðust.

Ekki í Limoges.

Við skulum snúa heim, vinur.

Þú bjargaðir lífi mínu í dag.

Þakka þér fyrir.

BELLÊME-VIRKIĐ

Kynnið ykkur!

Jean de Carrouges skjaldsveinn.

Sonur höfuðsmanns virkisins.

Opnið hliðin!

Það er heiður að Pierre skyldi fagna í kastala föður þíns.

Ég þarf að taka við höfuðsmanns- stöðunni að föður mínum gengnum.

Vonandi eftir mörg ár.

Faðir. Móðir.

Höfuðsmaður. Lafði.

Skjaldsveinar.

Ekki láta Pierre bíða.

...þinn maður. Þjónn til æviloka.

Lávarður, ég verð þinn maður og þjónn til æviloka.

Lávarður, ég verð þinn maður og þjónn til æviloka.

Lávarður, ég verð þinn maður og þjónn til æviloka.

Lávarður, ég verð þinn maður og þjónn til æviloka.

Lávarður... - Nær.

Lávarður, ég verð þinn maður

og þjónn til æviloka.

Kynnið ykkur.

Þetta er ég, Helena fagra.

Le Gris.

Gott að sjá þig, vinur.

Ég kem ekki aðeins sem vinur.

Ég er hræddur um að ég komi í öðrum erindagjörðum.

Talaðu.

Pierre hefur falið mér að innheimta skuldir.

Ég skil.

Ég hef þegar heimsótt alla aðra lénsmenn hans.

Og núna...

Komstu til mín.

Kom ég til þín.

Þessi gjöld renna til hervarna.

Þú veist að óvinurinn er nálægur.

Verum tilbúnir.

Hvenær hef ég ekki barist fyrir konung?

Þú gerðir það.

Oftar en nokkur annar.

Pierre vill þér annað.

Pierre vill...

Það fé sem þú skuldar honum.

Ég á það ekki til.

Plágan tók helming vinnuaflsins.

Leigutekjur minnkuðu.

Það varð uppskerubrestur.

Og kostnaðurinn hefur aukist.

Já.

Hvernig borguðu aðrir lénsmenn?

Þeir borguðu því að ég krafðist þess.

Ég skil.

Ætlarðu nú að krefjast þess af mér?

Ég ræði við Pierre.

Hann er sanngjarn maður.

Ég útskýri stöðu þína.

Þú ert sannur vinur.

En ég má ekki snúa tómhentur til baka.

Auðvitað ekki.

Þakka þér fyrir.

Ég skal athuga hvað ég á.

Hugsaðu málið. -Ég gerði það.

Alls ekki.

Ég berst með de Vienne.

Englendingar fara ránshendi um Cotentin-skaga.

Plágan tók eiginkonu þína og son.

Neðra-Normandí má ekki falla.

Ekki vera þrjóskur.

Þú átt engan erfingja.

Ef þú deyrð fær Pierre greifi allt.

Hann gerir sér það ljóst.

Hann hyglir mér ekki eins og þér.

Þú átt margt að lifa fyrir.

Hvað á ég að lifa fyrir?

Nafnið.

Þetta er of sögufrægt nafn til að fara með af gáleysi.

Faðir þinn er höfuðsmaður Bellême.

Þú erfir setuliðið þar og allt sem því fylgir.

Og ég er vinur þinn.

Við erum mörg sem viljum ekki að þú fallir í valinn.

Ég geri þetta ekki af gáleysi.

Ekki aðeins til að berjast.

Hvers vegna þá?

Jacques.

Ég er...

blankur.

Mig vantar peninga.

Lengi lifi konungurinn!

Lengi lifi konungurinn!

Þeir eru komnir. - Komið fljótt!

Ég skal taka þetta. -Ég skal hjálpa þér.

Snúðu þér við, vinsamlegast.

Lyftu upp handleggnum.

Gefið þeim brauð.

Hérna. Þeir vilja meira.

Robert de Thibouville.

Hann veitir okkur húsaskjól og vistir.

De Thibouville?

Hann studdi Englendinga gegn okkur í Poitiers.

Já, en hann var náðaður ásamt hinum.

Nú styður hann okkur.

Og lærir að það er honum fyrir bestu.

Rólegur, Jean.

Við fáum þak yfir höfuðið.

Auk þess...

á hann ansi góðan vínkjallara.

Þvílík fegurðardís.

Er hún de Thibouville?

Já, ættarnafn hennar er eldra en þitt.

Hún er einkadóttir hans.

Henni fylgir góður heimanmundur.

Eiginmaðurinn þarf að bera smánarblett föður hennar.

Það er varla mikil þolraun að geta erfingja með henni.

Herrar mínir, velkomnir.

Þið börðust frækilega.

Takk fyrir hýsinguna.

Ég vil kynna... - Jean de Carrouges.

Þekktur af orðsporinu.

Eins og þú sjálfur.

Það er mér sönn ánægja að hýsa ykkur.

Það er rétt að styðja þá sem berjast fyrir kónginn.

Sumt lærir maður seint á ævinni.

Ég vil kynna dóttur mína.

Marguerite.

Marguerite? Jean de Carrouges skjaldsveinn.

Ánægjulegt að kynnast þér, lafði.

Mín er ánægjan.

Heimanmundinum fylgir þessi landskiki að auki.

Hann byrjar við veiðilendurnar.

Hvað með jörðina hér í norðri?

Aunou-le-Faucon.

Eins og ég sagði byrjar skikinn við veiðilendurnar.

Ég vil fá þessa jörð að auki.

Að sjálfsögðu.

Amen.

Ég er sérlega afbrýðisamur maður.

Í kvöld ertu mín og dansar ekki við neinn annan.

Þannig verður það hér eftir.

Vertu alveg ósmeyk.

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left