The first 200 lines.
Við færum honum Helga fæðu en ekkert gerist.
Dýrið hefur opinberað sig...
tvisvar...
fyrir skara hinna buguðu...
en þeir trúa samt ekki.
Það er engin bylting.
Dennis.
Vertu óhræddur.
Þú verður að treysta mér eins og þú hefur alltaf gert.
Sjá ykkur allar.
Ég heiti Patricia.
Hverja langar í samloku með hnetusmjöri og sultu?
Þig.
Búmm!
Sjáðu hann.
Meistarastykki.
Superman-högg, tík.
Heyrðu!
Farðu. Forðum okkur.
Er í lagi með þig?
Búmm!
Sástu hvernig pokinn datt?
Þetta kallast dramatísk áhrif.
Þetta fær svo mikið áhorf.
Er þetta þvottabjörn aftur?
Skildirðu dyrnar eftir opnar? - Ég lokaði.
Halló?
Hver er þar?
Við tökum Salt Bae á þig.
Gefðu honum Superman-högg.
Fjandinn. Þetta ert þú.
DUNN HEIMAVÖRN
Fjórum stúlkum rænt
Stúlkan sem Dýrið þyrmdi
Þeir rákust á mig við jarðlestina.
Ég gat ekki sleppt þeim, Joseph.
Átti þetta ekki að vera sértæk gönguleit?
Þetta er ekki eins og búðarrekstur. Ég læt kylfu ráða kasti.
Allt annað á að sitja á hakanum á sértækri gönguleit.
Reksturinn virkar því að við höfum reglur.
En þetta var vel gert.
"Við tökum Salt Bae á þig." Þvílíkur skíthæll.
Þetta fer í bókina.
ÉG LEM TANNSKÁNINA AF ÞÉR
ÉG GERI ÞIG TANNLAUSAN
"Tek Salt Bae á þig."
En hvað þýðir það annars?
Það er gaur af Netinu. Slátrari sem saltar kjöt með tilþrifum.
Einhver sá þig.
VAKTMAÐURINN Náðist á mynd
Og góðar fréttir.
Þú ert ekki kallaður Læðupokinn eða Flotarinn lengur.
Flestir eru farnir að kalla þig Vaktmanninn.
Það er svalt.
Aldrei minnast aftur á nafnið Læðupokinn.
Gerir hann ekkert annað en að krydda kjöt?
Pabbi, þú ert þreytulegur.
Tökum næstu göngu ekki á morgun heldur hinn.
Þegar við finnum Hjörðina skal ég taka veikindadag.
Jæja þá.
Ég hef nýja haldlitla kenningu.
Köllum hana "Haldlitla kenningu tvö"
Fyrsti stúlknahópurinn sem var limlestur
í dýragarðinum fyrir þrem vikum var hérna.
Annar hópurinn hérna.
Með nýjasta hópnum sem hvarf myndast hálfgerður þríhyrningur.
Þú beiðst eftir lestinni í dag í miðjum þríhyrningnum.
Samkvæmt "Haldlitlu kenningu tvö" er hann ekki innan þríhyrningsins.
En hann hefur greiðan aðgang að þessari þríhyrndu veiðilendu.
Ég held að hann sé hérna í verksmiðjuhverfinu.
Allt í lagi.
Ég skal ganga þar á morgun.
Pabbi, ég hlusta vel á lögreglutalstöðina.
Þeir leita ansi stíft að þér.
Farðu mjög varlega.
Allt í lagi.
Fíladelfía hefur eignast nýja hæstu byggingu.
Osaka-turninn verður hæsti punktur borgarinnar.
Arkitektúrinn er einstakur.
En þar fyrir utan er turninn alveg sjálfbær.
Allt rafmagnið í turninum kemur frá sólarþiljum og sagt er...
Audrey, ég verð að segja þér svolítið.
Audrey.
Patricia bannaði mér að leika við ykkur. Ekki biðja um það.
Ég átti einu sinni kærustu.
Þið þekkið hana ekki.
Við kysstumst.
Ekkert stórmál.
Hættu að fíflast í okkur. Hvað viltu?
Vera, ekki reita hann til reiði. Hann er sjúkur.
Ekki segja mér nein nöfn.
Þau bönnuðu mér að spyrja ykkur að nafni
því að ég gæti orðið dapur.
Eftir kvöldið.
Því valdirðu okkur, Hedwig?
Vegna þess að þið eruð óhreinar og hafið ekki fengið að þjást.
Þekkið þið strákaböndin?
Sum eru ágæt, en Drake?
Drake er nýja uppáhaldið mitt.
Dýrið kemur að sækja ykkur á hverri stundu.
Ég fæ að taka á móti honum.
Það eru verðlaunin mín fyrir að halda Hjörðinni í ljósinu.
Ég fæ að flytja hann til skara hinna buguðu.
Best að fara.
Hann kemur hvað úr hverju.
Ég vil ekki að hann vakni með hjólaskauta á fótunum.
Patricia myndi frétta það og verða reið...
og svo framvegis.
Takk fyrir komuna. - Takk.
Ég get sett þetta upp, það er auðvelt.
Þetta er innrauð útimyndavél.
Þú getur notað eins margar og þú vilt í blokkinni.
Þú notar 16 rása HD DVR á skrifstofunni.
Einn íbúanna var myrtur utan hússins og hinir eru á nálum.
Allir vilja finna til öryggis. - Skiljanlega.
Ég ætla að fara í göngutúr.
Ég held að þú þurfir ekki að fara út í dag, pabbi.
Kannski á morgun eða hinn.
Nei, ég ætla í göngutúr núna.
Þú mátt ekki fara svona ört út að ganga.
Þú gætir orðið þreyttur.
Leyfðu pabba þínum að fara í göngutúr. Jesús.
Já.
Kannast ég ekki við þig?
Vannstu á ruðningsvellinum?
Í 15 ár.
Ég hékk með skuggalegu liði á vellinum í æsku.
Sneri við blaðinu með jákvæðri hugsun.
Ætlarðu að fá þetta? Við þurfum að loka snemma.
Já.
Háannatíminn er liðinn. Ég missti af þeim.
Ég kem aftur á morgun þegar verksmiðjunum er lokað.
Ég get komið aftur í búðina fyrir vörutalningu.
Allt í lagi. Sjáumst í búðinni.
Eruð þið hrifnar af teiknimyndum?
Þær eru barnalegar.
Ég er það ekki.
Ég er meira fyrir heimildamyndir. Horfið þið á þær?
Ég horfði á heimildamynd um geiminn.
Hann er risastór.
Fyrirgefðu, maður.
Þetta er hann. Ég sá herbergi.
Með rauðleir í hrúgum.
Einhvers konar verksmiðja. Þær eru allar þarna.
Bíddu, ég skal leita á svæðinu.
Ég fann múrsteinaverksmiðju.
Hún er gömul og yfirgefin.
Í hvaða átt?
Í suðurátt.
Pabbi?
Pabbi?
Þú sagðir að ég mætti fá þetta.
Ég veit það.
Þú hirðir allt sjálfur.
Taktu af þessu.
Halló.
Guð minn góður.
Þú sagðir að ég mætti fá þetta.
Ég veit.
Hvað?
Þú hirðir allt sjálfur.
Ég veit það ekki.
Hver ert þú?
Ég er þið.
Koma svo.
Koma svo.
Hvert fór það?
Farið héðan.
Nei. Ekki skjóta.
Við getum leyst þetta. Gangið frá byssunum.
Hvað er að gerast?
Ég gerði ekkert af mér. Ég heiti Barry. Allt í lagi?
Við þurfum að halda Kevin í ljósinu. Ekki skjóta okkur.
Ekki skjóta.
Hann gerir engum mein núna.
Þú gætir komist burt héðan
en þá þarftu að meiða marga lögregluþjóna.
Margt fólk.
Það þurfa ekki fleiri að meiða sig, David.
Þetta verður allt í lagi, Joseph.
Farið með þá á Raven Hill-sjúkrahúsið.
Í vesturálmu Raven Hill-sjúkrahússins.
Raven Hill-geðsjúkrahúsið
Ekkert mál.
Haltu áfram.
Haltu áfram.
Ekki gera þetta.
Ekki. Nei. - Varlega.
Heyrðu!
Það er allt í góðu hérna.
Hann vill ekki láta snerta sig. Ég get gengið sjálfur.
Haltu áfram.
Ég heiti dr. Ellie Staple og ég er geðlæknir.
Herbergið hlýtur að virðast illúðlegt.
Veggirnir eru útbúnir með 46 háþrýstistútum
sem liggja í tæplega 60.000 lítra vatnstank fyrir utan.
Við skrúfum frá vatninu ef þú ert ógnandi eða reynir að strjúka.
Þetta er dáleiðsluljós...
Dennis.
Mín er ánægjan, Dennis.
No comments yet. Be the first to leave one.