The first 200 lines.
Suður-Afríku, 1902
Hertogi.
Ég kem á vegum Rauða krossins, ég vil tala við Kitchener hershöfðingja.
Hér er enginn með því nafni.
Hertogi? Hleypið honum inn fyrir.
Ef Morton er hér er Kitchener varla langt undan.
Ég biðst afsökunar. Öryggi er fyrir öllu núna.
Heimsókn þín er leyndarmál.
Maður er aldrei of gætinn með Búana og þeirra skæruliðabrögð.
Of varlega?
Mér sýnist ekki veita af meiri umhyggju hér.
Ég bið forláts,
en vegna þessara fangabúða erum við að vinna stríðið.
Þessa leið.
Orlando. Riddarinn okkar á hvítum fáki.
Takk fyrir að koma.
Hvað er á seyði, Kitchener?
Þú hefur víst farið frjálslega með sannleikann.
Tíminn hefur ekki unnið með okkur.
Það þarftu að segja Emily.
Þegar ég sný til Englands verður það mitt fyrsta verk.
Hún er fyrir utan
með Conrad.
Af hverju komum við, mamma?
Manstu af hverju Arthur konungur og riddarar hans höfðu hringborð?
Því það þýddi að allir menn voru jafnir.
Það er mikilvægt að forréttindafólk stjórni með góðu fordæmi.
Þess vegna störfum við faðir þinn fyrir Rauða krossinn.
Við hjálpum öðrum
en notum ekki stöðu okkar sem afsökun.
Gleymdu því aldrei.
Ég ætla að gá að föður þínum.
Bíddu hérna.
Þetta voðalega stríð væri búið
ef Arthur konungur og riddarar hans væru hér.
Auðvitað. Og hvaða riddari værir þú?
Ég væri Lancelot.
Pabbi væri Arthur og mamma Guinevere.
Og þú hinn mikli Merlín. -Virkilega?
Þetta er fáránlegt. Við sóum dýrmætum tíma.
Sjáið þetta, fólkið er að deyja.
Við höfum neyðarhjálp frá Rauða krossinum.
Guði sé lof að hún er á okkar bandi. -Í það minnsta á mínu bandi.
Hún er kröftugri en nokkur óvinanna.
Þarna er Kitchener hershöfðingi.
Opnið hliðið! Komið með birgðirnar!
Emily!
Leggstu þar til ég kem aftur.
Farðu til Conrads.
Farðu til helvítis, Kitchener.
Ég hæfði hann! Hættið að skjóta!
Emily!
Hættið að skjóta!
Ég er hér, elskan mín.
Ég er hérna.
Þú verður að vera hjá mér.
Þú verður að vera hjá mér. Elskan mín.
Verndaðu drenginn okkar.
Verndaðu hann fyrir þessum heimi.
Láttu hann aldrei sjá stríð aftur.
Lofaðu mér því.
Ég lofa því.
12 árum síðar
Veistu, Conrad,
þarna uppi er ég frjáls.
Já, ég hlakka mikið til míns fyrsta einkaflugs.
Mundu hvernig fór fyrir Íkarusi
þegar hann flaug of nálægt sólinni.
Ég man að hann þurfti að flýja. -Hann brenndist.
Við sjáum víst ekki þá sögu með sömu augum.
Velkominn, heim, hertogi. -Takk, Shola.
Komið þið sæl. -Sæll, hertogi.
Tilbúinn fyrir þína fyrstu flugferð?
Hefði Guð ætlað manninum að fljúga hefði Hann gefið honum vængi.
Ætli það ekki. Ekurðu bílnum hans pabba?
En þú hefur engin hjól.
Watkins fóstra.
Á skrifstofuna mína eftir fimm mínútur.
Já, hertogi.
Hertogi. -Ég ætti að ávíta þig fyrir ósvífni þína.
Eitt er að hafa skoðun bak við luktar dyr
en ég líð ekki slíkt fyrir framan starfsfólkið.
Ég spila eftir þínum reglum þegar þú spilar eftir mínum.
Heldurðu að ég viti ekki þín leyndarmál?
Hvað áttu við?
Enn og aftur hafnarðu boði Felix frænda um að Conrad heimsæki hann í Rússlandi.
Hvernig veistu það?
Við fóstrurnar dýrkum slúður.
Við tókum eftir að þú ert sáttur við að Felix komi hingað
en þér virðist ekki um að Conrad ferðist þangað.
Eða reyndar nokkuð annað.
Já, ég er sekur. Fyrirgefðu.
Ég átti að ræða það við þig.
Hefurðu gleymt háttseminni í öllum þessum flugferðum?
Hvað hef ég nú gert?
Þú býður mér ekki drykk.
Fyrirgefðu.
Hefðum við rætt þetta hver hefði mín skoðun verið?
Þér finnst óttinn um öryggi Conrads vera veikleiki.
Ótti er eðlilegur.
Vandinn er að því meiri sem óttinn er þeim mun líklegra er að hann rætist.
Svo við þörfnumst báðir fóstru.
Svo er að sjá.
Hærra!
Geturðu barist með annarri hendi? -Ó, já.
Ef ég hefði einhvern til að berjast við.
Shola. Heldurðu að hnífur sé öflugri en byssukúla?
Svona berjast menn nú til dags.
Þvoið ykkur nú fyrir síðdegisfundinn.
Pabbi kom líka með mig hingað fyrir fyrstu fötin mín.
Kingsman, heimsins besti klæðskeri.
Góðan dag.
Hertogi. Mátunarklefi númer eitt er tilbúinn fyrir þig.
Takk fyrir.
Ég vildi að mamma þín gæti séð þig.
Hún væri svo stolt af þér.
Það vona ég.
En veiðijakki gæti nýst mér betur eða þá smókingjakki.
Hvað sem hjálpar góðri fuglaveiði.
Láttu nú ekki svona.
Þetta er stór heimur.
Fyrr eða síðar þarftu að leyfa mér að njóta hans þótt...
Þótt þú viljir það ekki.
Veistu, Conrad,
forfeður okkar voru skelfilegir menn.
Þeir rændu, rupluðu, lugu og drápu þar til dag einn
að þeir urðu aðalsmenn.
En sú ættgöfgi verður ekki rakin til riddaramennsku.
Hún var sprottin af hörku og vægðarleysi.
Að kallast "herramaður" í þá daga hefði verið dauðadómur.
Ekki sá heiður sem það er nú.
Við erum Oxford-menn, ekki þrjótar.
Oxford!
Kitchener.
Það gleður mig að við deilum klæðskera.
Já. Viðskiptavinir Kingsmans eru öfund allra klúbba.
Má ég aðeins tala við þig? Getum við talað í einrúmi?
Ég get bent á sniðstofuna uppi. -Fyrirtak.
Conrad, þetta er Morton aðstoðarforingi minn.
Morton, viltu líta eftir Conrad fyrir okkur?
Með ánægju, herra minn. -Ágætt.
Þú hafnaðir víst boði vinar okkar Ferdinands erkihertoga á veiðarnar.
Friðarstefna þín nær þó varla til nokkurra fugla, er það?
Var það nokkur tilviljun að við rákumst á hvor annan hér?
Veggirnir í Whitehall hafa eyru.
Því fannst mér öruggara að spjalla hér hjá Kingsman.
Ég óttast að Ferdinand stafi hætta af sinni pólitísku framagirni.
Ég þarf að biðja þig um smágreiða.
Hvers konar greiða?
Svo þú vilt í alvöru verða hermaður? -Já.
Hvaða deild?
Fótgönguliðadeild. -Einmitt það.
Láttu mig vita þegar þar að kemur. Ég skal sjá hvað ég get gert.
Conrad.
Þú munt þarfnast veiðifatanna eftir allt.
Fjárhirðir minn.
Ég lét sérsmíða Fabergé-egg handa ykkur.
Og lítið á innihaldið.
Smækkuð eftirlíking af Angusi, eftirlætisgeitinni ykkar.
Þú mætir of seint.
Fáðu þér sæti.
Hvað er traust?
Traust er að hafa trú á heilindum annars manns.
Það verður okkar vopn til að breyta heiminum.
Hverjum treysti ég?
Dýrum.
Þau bregðast mér aldrei
og hlýða skipunum mínum í blindni.
Spurning mín nú er,
get ég treyst ykkur til að haga ykkur eins?
Opnið öskjurnar fyrir framan ykkur.
Þessir hringar verða tákn meðlima í hjörðinni minni.
Setjið þá upp og þið takið þátt í velgengni okkar.
En bregðist trausti mínu
og þá munuð þið finna síðustu gjöf mína til ykkar.
Skjaldbaka?
Er ég ekki verður betri skepnu?
Rasputin, ég fékk björn. Ég skal skipta við þig.
Já, Princip. Ég verð hinn mikli björn Rússlands.
Takið það sem teljið vera ykkar.
Og fyrir alla muni
sýnið Fjárhirði okkar sömu virðingu
og þessari mannleysu sem kallar sig keisara.
Svona, Rasputin, taktu það.
Ég mana þig.
Svona nú, Mata og Erik. Við erum saman í liði.
Og hann Rasputin hér
er eins og minn ástkæri Angus.
Alltaf að stanga
og riðlast.
En ekki villast á dálæti og veikleika,
seinfara rússneski bjáni!
Eins og allir vita
sigrar skjaldbakan í kapphlaupinu að lokum.
Njósnari minn eða ætti ég að segja uppljóstrarinn
í bresku ríkisstjórninni,
segir mér að Kitchener hafi áhyggjur af öryggi Ferdinands erkihertoga.
Princip, minn litli björn.
Ertu tilbúinn að sýna að áhyggjur Kitcheners séu réttlætanlegar?
Já, Fjárhirðir minn. Ég mun ekki bregðast þér.
No comments yet. Be the first to leave one.