The first 200 lines.
Hr. Waters, þetta er Jeremy hjá Andrews lækni.
Ég hringi til að staðfesta eftirfylgdartíma á morgun kl. 14.
Hringdu ef eitthvað er. Sjáumst.
Bart, þetta er Andrews læknir. Þú mættir ekki í tímann í gær
svo ég er að kanna með þig.
Það er mikilvægt að við séum í sambandi við sjúklinga í nokkra mánuði
eftir meðferð.
Við skulum því bóka annan tíma.
Ég vildi bara tryggja að við komumst hjá afturför.
B, þetta er Whit.
Geðlæknir hringdi í mig í gær.
Ég er líklega enn skráð sem neyðartengiliður þinn.
Þú ættir að breyta því við tækifæri.
Hún vildi að þú hringdir til að fá tíma fljótlega.
Mig varðar ekkert um það núna
en ég vil að þú hugsir um þig.
Hringdu í hana, Bart. Gerðu það.
Allt í lagi? Ég hugsa til þín.
Bart, þetta er Andrews læknir aftur.
Það er afar mikilvægt að þú haldir áfram að...
Ég vildi að þú hefðir ekki gert þetta.
Það er ekkert vit í þessu. Já.
409. -Fyrirgefðu, ég blundaði aðeins.
Þetta er gamalt hús,
svo maður þarf að hugsa um pípulagnirnar.
Má ég? -Gerðu svo vel.
Þú þekkir þumalputtaregluna
að ef það er stærra en gullfiskur, ekki sturta því niður.
Nei. Allt í lagi.
Nei, ég sendi pípara til þín. Já. Bless.
Tæfan reynda að sturta niður stökkmús.
Hver gerir það? -Megum við vera með stökkmýs?
Ekki lengur. Djöfull. -Það er góður dagur hjá þér.
Þú ert heppinn að eiga áfengi. Takk.
Já. -Við sýnum íbúðina eftir 20 mínútur.
Er það í lagi? -Já. Ég ætla að fara.
Yfirgefðu mig ekki. -Ég vildi að ég gæti verið,
en ef þú færð þá ekki til að lækka leiguna niður í...
núll, þarf ég að fara.
Hvað á ég að gera án þín? -Þú spjarar þig.
Já, já.
Ferðu þá fyrir næstu mánaðamót?
Já.
Ég mun sakna þín.
206. Ég þoli ekki þetta helvítis starf.
Eddie, hvað?
Ég geri það ekki.
Því ég stjórna því ekki hvenær 306 á mök.
Ég get ekki sagt fólki að ríða á sófanum
því það braki í dýnunni þeirra.
Fjandinn.
Komdu inn. Ég hjálpaði en ég hef ekki lausa hönd.
Svo vil ég það ekki.
Er þetta allt dótið? -Nei, en það er lítið eftir.
Við höfum nóg pláss. Teddy, gerðu þetta ekki.
Ég er ekki Teddy. Ég er Nakti maðurinn.
Jæja, Nakti maður, ekki gera þetta. Jesús. Rachel!
Rach! -Jesús! Ég er á klósettinu.
Eve þarf þig og Nakti maðurinn er að eyðileggja stólinn.
Ég þarf smáfrið. -Guð. Ég er bara pabbi.
Komum þér fyrir. Komdu.
Nakti maðurinn!
Er allt í lagi að ég sé hérna?
Nei. Þú þarft að komast þaðan.
Það verður líka gaman að hafa þig. Eins og í gamla daga.
Rachel? Þú gætir verið hér eins lengi og þú vilt. Í alvöru.
Krakkarnir dýrka þig. -Ég er með hana.
Teddy setti dálítið sem vekur mikinn óhug
á gólfinu við klósettið ef þú gætir...
Sæll, Bart. Velkominn. Gott að fá þig.
Notaðu ekki baðherbergið.
Ertu á leiðinni? -Já.
Allt í lagi. Bless.
Ég ætti að fá þetta starf.
Þið losnið fljótlega við mig. -Gaur, þegiðu.
Þú getur verið hér áfram. Mér er alvara.
Já, maður.
Ég las sýnishornin þín
og ég er enginn bókmenntagagnrýnandi en mér fannst þau góð.
Þakka þér. -Í alvöru, gaur.
Ég er hrifinn af sögunni um manninn sem kærastan fór frá
og hann fær taugaáfall.
Hún virkar svo raunveruleg.
Hún ætti að gera það. -Mér fannst Marley & ég sorgleg en...
Hefurðu séð Marley & ég?
Nei. -Það ættirðu að gera.
Ég elska hundamyndir. En spillir, hvolpurinn deyr.
Mér finnst eiginlega að þú sért of góður í starfið.
Þakka þér fyrir að segja það en þú veist...
Satt að segja halda slíkar sögur ekki ljósunum á.
Þú skrifar ekkert mjög skapandi fyrir vörulistana okkar
en hefur eflaust gaman að því. -Skrif eru skrif fyrir mér.
Ég er til í að gera allt. -Gott. Þetta er frekar einfalt.
Þú færð vöru og rannsóknagögn,
og skrifar eitthvað sem viðskiptavinum finnst spennandi.
Eins og þessi. Þetta er nýr þvagleggur. Taktu hann.
Hann er minni og þjálli. Maður veit varla af honum.
Auðvitað veit maður af honum því þetta er stór slanga
sem liggur upp í typpið á manni.
Minni og þjálli virðast vera kostir
í heimi typpaslanga. -Sérðu?
Það hljómar strax betur.
Við látum þig vita. Ég segi alltaf nýjum vinum
að ég sé mikið fyrir leikkvöld ef þeir halda þau.
Einn, takk.
Bart, Andrews læknir aftur. Ég hef enn ekki heyrt í þér.
Ég hvet þig til að panta tíma fljótlega.
Það er ekkert stórmál. Það er bara til að meta líðan þína
og ganga úr skugga um að nýja lyfjaskömmtunin henti.
Hringdu á stofuna mína og við verðum hér.
Þetta var það fallegasta sem ég hef séð.
Sæll, félagi.
Félagi. -Heyrðu.
Myndin er búin.
Myndin er búin.
Fjandinn.
Þakka þér.
Heyrðu, félagi.
Jakkinn þinn. -Fjandinn. Þakka þér.
Þú skildir hann eftir í sætinu.
Ég var að drekka aðeins. -Já, ég sá það.
Ég haka í alla reitina.
Ekkert mál. Það virðist vera skemmtileg leið til að eyða deginum.
Já, ég hef átt verri daga. Þakka þér fyrir.
Heyrðu.
Veistu hvar ég gæti fengið svona hér nærri?
Áttu við að fá þér drykk? -Já.
Það eru tveir barir hérna.
Annar er hálfgerð búlla.
Hinn er svolítið fínni.
Með fínum kokteilum og flottum blöndum.
Flott. Komum.
Afsakaðu. Viltu að ég komi? -Já.
Ég þekki svæðið ekki. Ég hef bara slæpst um ein.
Ég er að verða hálf leið.
Þú virðist vera frekar saklaus manneskja.
Myrðir þú nokkuð fólk?
Nei. Engan myrt til þessa.
Flott.
Á meðan þú heldur áfram á þeirri braut
ættirðu að koma og fá þér drykk með mér.
Í alvöru? -Já.
Komdu.
Allt í lagi. Fjandinn hafi það. Drekkum þá.
Vísaðu veginn.
Allt í lagi.
Ég heiti Vienna. -Sæl. Ég er Bart.
Gott að kynnast þér.
Í alvöru? -Það er mjög góð mynd.
Ein af uppáhaldsmyndum þínum og þú hefur séð hana margoft
og getur ekki sagt hvers vegna. Það er bara verulega góð mynd.
Ég býst við...
Ég er dálítið viðkvæm manneskja, býst ég við.
Allt í lagi.
Fyrir nokkrum árum sá ég Being There í sjónvarpinu
og ég veit ekki hvers vegna en...
Þegar ég horfði á hana á sófanum þarna small eitthvað í mér.
Lífið verður dapurlegt, fullt af streitu, harmrænt og niðurbrjótandi
og hjá því verður ekki komist.
En myndin minnir okkur á að það er bara hugarástand.
Við getum gert eins mikið eða lítið úr þessu öllu og við viljum.
Ég er ekki að segja að myndin hafi læknað mig
en á þessu augnabliki fékk hún mig til að líða svolítið betur.
Það er eitthvað.
Gerði hún það í dag?
Eiginlega ekki. -Hví ekki?
Ég veit ekki. Hún bara gerði það ekki. -Er allt í lagi?
Já. Við erum fín. Þakka þér. -Já.
Hvað dregur þig í bæinn?
Hvaðan ertu og hvað gerirðu
og hvers vegna ertu hér?
Förum héðan.
Er það?
Já. -Farðu með mig á búlluna.
Í alvöru?
Já. Þessi er of fínn. -Komum þá.
Ég skal borga. -Ég get það.
Bara... -Jesús Kristur.
Ferðu í strípiklúbbinn á eftir eða varstu að ræna banka?
Ég á bara í erfiðleikum með bankakortið mitt
svo ég kom með reiðufé í ferðina.
Er 60 í lagi? -Sextíu? Það er allt of mikið.
Það er sko helmingurinn af því. Fínt þjórfé. Hérna.
Allt í lagi. Fínt.
Miðað við verðlag í L.A. hélt ég að það yrði meira.
Farðu með mig á búlluna.
Allt í lagi. -Bíddu.
Er þessi subbulegi bar þinn strangur á skilríkjum?
Ég gleymdi skilríkjunum heima.
Þú lítur út fyrir að vera mikið eldri en 21, svo þú sleppur.
Flott, reynir að vera heillandi.
Þú ert sæt stelpa.
Þú spjarar þig. -Finnst þér ég sæt?
Já. Þú lítur vel út miðað við fimmtuga.
Guð. Sjáðu þetta!
Stjörnuljósin?
Já, stjörnuljós.
Ég vissi ekki að þau væru framleidd ennþá.
Það er auðvelt að heilla þig.
Ég hef aldrei verið með stjörnuljós.
No comments yet. Be the first to leave one.