The first 200 lines.
Sýndu hvað þú getur! -Já! Ég get þetta.
Ekkert sárt!
Þú hefur ekki við mér, Köggull! -Ég er bestur!
Nú hef ég þig!
Allt í lagi, ég geri þetta.
Þú nærð mér ekki!
Já, flýðu bara!
Farðu frá! -Passaðu þig!
Varlega.
Rétt slapp.
Geturðu ekki meira?
Halló, vinur. Ég sagðist koma aftur.
Vörubíllinn!
Farið frá, aular!
Sjáið þetta. -Flott.
Já! Sigurvegarbíllinn.
Er það í dag?
Hvað er í dag?
Veistu ekkert, Ferdínand?
Þegar þessi bíll kemur velur nautabaninn naut.
Hvern heldurðu að hann velji?
Auðvitað pabba minn.
Og þegar hornin mín vaxa kemur að mér.
Fólk kemur af öllu landinu til að sjá mig, Valíant mikla!
Grimmasta naut allra tíma.
Ég sigra hann glæsilega. Maður gegn nauti.
Verður það fallegt? Nei.
Veður það æðislegt? Ó, já!
Mannfjöldinn tryllist og ég verð meistari.
Svo lifi ég kóngalífi það sem eftir er.
Láttu þig dreyma, Valíant.
Ég verð valinn.
Ég er farinn að æfa sigurbrosið.
Nautabaninn er kominn!
Hvar?
Mér er óglatt. Ó, mamma.
Það er enginn nautabani, Gæi. -Hvað?
En sú bleyða.
Gleymdu því, Gæi. Hann velur mig.
Ég er snöggasti og versti tuddinn hér.
Ég er svo snöggur að þeir sjá mig ekki.
Köggull? -Já?
Þú verður aldrei valinn. Viltu vita af hverju?
Af hverju?
Af því þú ert lítil beinahrúga.
Meiddirðu þig?
Ég þarf ekki þína hjálp, furðufugl. Það er ekkert að!
Varlega.
Hvað ertu með þarna, Ferdínand?
Ekkert.
"Ekkert."
Þurfið þið ekki að hnybbast meira?
Nei, þetta er meira gaman.
Er hann ekki ótrúlegur? Nautabaninn ætlar að velja naut
og hann hugsar bara um asnalegt blóm.
Hættu þessu, Valíant!
Láttu mig hætta.
Slagur! Slagur!
Ég ætla ekki að slást við þig.
Æ, blómatuddinn er hræddur.
Ég er ekki hræddur.
Komdu þá. Það gera naut.
Þú getur stangað mig en láttu blómið vera.
Ætlarðu að láta hann mala þig?
Hvað er gaman að því?
Jæja þá. Eigðu þetta asnalega blóm.
Stóru nautin fara inn.
Óskaðu mér góðs gengis.
Gangi þér vel, pabbi.
Sýndu þeim það, pabbi!
Komið þið, fylgjumst með þeim hérna.
Farðu frá!
Áfram, tuddar!
Þetta er nautabaninn. Nú velur hann.
Mér er óglatt. Ég þarf að æla.
Þú verður valinn næst, pabbi.
Hver spurði þig?
Á hvað ertu að glápa?
Ferdínand!
Þarna ertu!
Hann valdi mig. Trúirðu þessu?
Pabbi þinn berst til sigurs í hringnum.
Verðurðu að fara?
Auðvitað verð ég að fara, Ferd.
Þetta er draumur allra nauta.
Ætli það ekki.
Er í lagi þótt það sé ekki minn draumur?
Þú ert ennþá krakki.
Þegar þú stækkar breytast draumar þínir.
Allt breytist.
Eitt af því sem breytist
er að þú verður stærri og sterkari en pabbi gamli.
Ómögulegt. -Jú, mögulegt.
Og þá ferð þú í hringinn og þú verður hetjan.
Gæti ég orðið hetja án þessa að berjast?
Æ, Ferdínand.
Ég vildi að líf þitt gæti verið þannig.
En það er ekki okkar líf. Skilurðu það?
Nú er komið að því.
Þú kemur aftur, er það ekki?
Hvað? Þessi nautabani hefur ekkert í mig.
Jæja þá.
Eftir sigurinn kem ég og sýni þér brögðin mín.
Líka leynilegu brögðin.
Pabbi!
Pabbi.
Ég sagði þetta.
Hann var aumur.
Og þeir aumu falla alltaf.
Það á að stinga á kaf.
Hvað ertu að gera hér úti?
Komdu. Inn með þig. Aftur á básinn.
Komdu hingað, litli.
Það slapp kálfur! Náðu honum!
Náið honum!
Það er allt í lagi.
Allt í lagi.
Halló.
Ekki hræddur, litli, stóri gaur.
Ertu hrifinn af blómum?
Ég skal gæta þín vel.
Komdu.
Nú áttu heima hér.
Farðu bara.
Nú þú.
Hver er góður strákur? Þú ert góði strákurinn.
Ég hélt að ég væri góði strákurinn.
Góða nótt, Ferdínand.
Ferdínand!
Góða nótt, Ferdínand.
Georg, vakna nú, félagi.
Vakna, Georg! Koma svo!
Sem ljúf tónlist. Þetta verður góður dagur.
Ég finn það á hornunum.
Pakó!
Pakó! Pakka-rakki! Halló.
Ertu spenntur í dag?
Spenntur? Hefurðu séð mig spenntan?
Ég hef slæmar fréttir.
Segðu ekki meira.
Engar slæmar fréttir því í dag er blómahátíðin.
Bara besti dagur ársins.
Það er málið. Í ár... -Bíddu með þetta.
María, ertu tilbúin að blaka þessum vængjum?
Ég var að enda við að smala þessum hænsnum.
Flugtak!
María?
Ó, nei. María?
Til hamingju. Þú skaust Maríu upp í sólina.
Það var lagið, María.
Hver segir að hænur fljúgi ekki?
Lögmál náttúrunnar segja það. Ég segi það.
Hænur eru hænur. -Byrjar það.
Hundar eru hundar og... -Naut eru naut.
Já, einmitt. Eðlilegt.
Ef ég væri eðlilegt naut hefði ég ekki fundið þennan bæ.
Og við værum ekki bræður.
Hundur og naut geta ekki verið bræður. Það væri furðulegt.
Jæja? Af hverju dillarðu þá skottinu þegar ég segi bróðir, bróðir?
Hættu þessu.
Furðulegt telst víst nú eðlilegt.
Komdu áður en allir fara á undan okkur.
Bíddu, Ferdínand!
Ég var að reyna að segja þetta.
Þarna ertu.
Ertu tilbúinn?
Því miður, Nína. Ferdínand kemur ekki þetta árið.
En hann kemur á hverju ári.
Já, en hann er ekki lítill kálfur lengur.
Þá fer ég ekki heldur.
Það er honum fyrir bestu, vina.
En, pabbi. Þetta er bara Ferdínand.
En þorpsbúar þekkja hann ekki eins og við.
Því miður, litli stóri gaur.
Ég skal koma með fallegasta vöndinn handa þér.
Hresstu þig, félagi.
Blóm eru ofmetin.
Ég færi ekki á hátíðina þótt ég fengi borgað.
Eigum við ekki að fara með Pakó? Það er gaman.
Ætli það ekki.
Ég er ekki spenntur. Ekkert spenntur.
Þetta er út í hött.
Ég er ekki lítill kálfur lengur, hvað með það?
Meira af mér til að elska.
Og stærra naut þýðir betri aðstoð.
Ég fer.
Nei. Húan sagði nei.
Húan sagði nei, ég fer ekki. Það er ákveðið.
En Nína verður leið án mín. Hún þarfnast mín.
En ég verð að fara, en ég má það ekki. Fara. Vera.
Hvað á ég að gera?
Ef appelsínan fellur ekki áður en ég tel upp að þremur, fer ég.
Einn...
Ef þessi steinn er ennþá kyrr þegar ég tel...
Til hvers vantar þig þetta eiginlega?
Ef eggið ungast ekki út áður en ég tel upp að tíu, fer ég.
Einn...
Tveir, þrír, fjórir, fimm, sex, sjö, átta, níu, tíu.
Enginn ungi. Blómahátíð, nú kem ég!
Þú gleymdir hjólinu þínu. Ég læt það hérna.
No comments yet. Be the first to leave one.