Ammonite

Ammonite

Download Icelandic Subtitle

Release info

Ammonite 2020 720p BluRay DD5 1 x264-iFT
A Commentary by sub.Trader

Tags

BluRay
x264
720p
720
Published on: 2021-08-13
Downloads: 28
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Færðu þig!

Þakka ykkur, herrar mínir. Varlega, takk.

SJÁVAREÐLA FUNDIN AF FR. MARY ANNING LYME REGIS

ICHTHYOSAURUS - LYME REGIS FRÁ H HOSTE HENLEY

Mary!

Ættirðu ekki að vera úti?

Það vantar fleiri skeljar.

Litlu ammonshornin, ferðamannarugl.

Og rekaviður.

Áður en slær að mér.

Hvað ertu að gera?

Já?

Láttu mig ekki trufla þig. Ég er sáttur við að horfa á þig vinna.

Það er lokað, herra. -Er þetta ekki dásamlegt?

Cornu ammonis?

Ammonshorn.

Það er brotið. -Samt fínt sýni.

Vantar þig eitthvað, herra?

Fyrirgefðu. Leyfðu mér kynna mig, fr. Anning. Roderick Murchison.

Ég verð að játa að ég er fullur aðdáunar.

Orðstír þinn hef ég oft heyrt ræddan

í Landafræðifélaginu í Lundúnum.

Allir strákarnir saman. -Já, ja...

einmitt.

Innsæi þitt og hæfni eru goðsagnakennd.

Mér datt í hug að í fornleifafræðiferð minni um meginlandið

gæti ég ekki sleppt tækifærinu að hitta þig.

Og hér ertu að störfum.

Ég hélt að ágætir herramenn í Lundúnum

hefðu ekki lengur áhuga á sjávardýrum mínum.

Tískan breyttist, ekki satt?

Jú. Ég er hræddur um að ég sé seinn til.

Ég gat ekki annað en viljað hitta sitjandi gyðju af Lyme.

Það væri venjan að herramaður skrifaði mér...

til að mæla sér mót áður en hann kæmi óundirbúið.

Já, ófyrirgefanlegt.

Hættu að fitla við þetta?

Afsakaðu. Má ég kynna eiginkonu mína, Charlotte Murchison?

Þú sérð að ég er hætt að grafa upp stærri hluti.

Ég hef séð þennan tiltekna grip á British Museum.

Heill ichthyosaurus? Er það rétt?

Er þetta einn af þínum?

Heillandi.

Mig langar að kaupa þetta ammonshorn af þér

en ég verð að vera hreinskilinn. Það sem ég vildi helst

er tækifæri til að vinna með þér um tíma á ströndinni,

sjá það sem þú sérð.

Ég er hætt að vera með leiðsögn.

Ég er ekki ferðamaður. Ég er vísindamaður.

Maður frá nýja heiminum og mig langar að læra allt sem ég get af þér.

Og auðvitað er ég reiðubúinn að greiða þér fyrir tíma þinn.

Og þar sem þetta er óhagræði fyrir þig

greiddi ég hæsta verð fyrir að vera einn.

Fyrir utan að kaupa þetta ágæta ammonshorn, auðvitað.

Vinnan er ekki auðveld.

Gott. -Ég get ekki lofað fundi.

Náttúrlega.

Gott og vel. -Fyrirtak.

Þetta er mér afar mikils virði.

Vinir mínir öfunda mig.

Ertu nokkuð með hljóðlátari matsal? -Já, en...

Tónlistin er frekar yfirþyrmandi við þessar aðstæður.

Gætum við ekki...? -Ekki gera ónæði.

Hvaða súpa er þetta? -Héri.

Ég ætla að fá ostrurnar. Eru þær í fitu? -À la mode.

Fullkomið. Og nautið. Snöggsteikt. -Gott og vel, herra.

Soðsteikt sellerí, soðnar kartöflur. Rjóma á kartöflurnar.

Viltu færa okkur vínlistann? Nei, komdu með rauðvínsflösku.

Við eigum '26 eða '35.

'35.

Konan mín vill einfaldan hvítfisk. Bakaðan, enga sósu.

Þetta er ekki tíminn til að búa til annað barn.

Fr. Anning.

Fr. Anning.

Afsakaðu. Er ég seinn?

Gamla konan á vinnustofunni... -Móðir mín.

Auðvitað. Afsakaðu. Móðir þín sagði að ég fyndi þig hér.

Það var bjartur morgunn og fjara. Ég gat ekki beðið.

Auðvitað. Ég vildi bara ekki missa af neinu.

Þú ert hér nú.

Já.

Ekkert.

Naut. Kalksteinn.

Kalsítkristall. -Og þetta?

Sjáðu hérna.

Það er lítið ammonshorn inní. Dældin bendir til að það brotni.

Það má höggva það upp en það verður ekki gott.

Þetta er gott.

Steinrunnin mykja. Mjög gott.

Ég kannast ekki við þetta.

Ef þú skoðar vandlega...

sérðu örlítil fiskbein.

Litlu svörtu flekkirnir...

eru hreistur.

Þetta fægist vel. -Þakka þér fyrir.

En hvað er það? -Steingerður saur.

Afsakaðu? -Já, hr. Murchison.

Skítur.

Það fer að flæða að. Við ættum að halda heim.

Charlotte, sjáðu hvað ég fann með Anning.

Charlotte?

Hvað ertu að gera? -Fara með þig út.

Ég vil það ekki. -Það er ekki lengur val.

Við höldum ekki svona áfram. Þú ert eins og skuggi.

Það gengur ekki.

Það er geðveiki að halda að þú verðir nógu hraust í ferð til útlanda.

Þú virðist þurfa meiri tíma til að jafna þig.

Roddy.

Lyme virðist vera fullkominn staður fyrir þig.

Leiðangurinn fer víða.

Þér var skipað að hvílast. Stunda sjóböð. -Mér líka þau ekki.

Smá örvun.

Ég vil fá björtu, fyndnu, kláru konuna mína aftur.

Ég vil ekki vera ein.

Er það eitthvað fleira?

Konan mín, Charlotte, hefur ekki verið hraust undanfarið.

Hún þjáist...

Það er vægt þunglyndi, kannski.

Læknirinn mælti með sjávarlofti en það hefur gengið hægt.

Ég gert ráðstafanir svo hún geti verið áfram í Lyme.

Þótt ég sé fullvissaður um að vel verði hugsað um hana

yrði hún ein.

Ég var að hugsa...

vona, raunar...

hvað það væri dásamlegt fyrir hana

að fara í gönguferðir með þér.

Gönguferðir? -Já.

Ganga með ströndinni með þér. Læra af þér.

Mig vantar ekki lærling. -Nei, auðvitað ekki.

Ég get ekki hugsað um sjúkling.

Nei, þú þyrftir þess ekki.

Þú varst svo góð við mig í gær, deildir þekkingu þinni,

og ég vonaði að þú gætir gert það sama fyrir konu mína.

Það gæti hjálpað henni að fá áhuga á einhverju.

Það væri aðeins í fjórar vikur.

Kannski fimm.

En aldrei meira en sex.

Afsakaðu,

en hr. Murchison bað mig að hjálpa þér að klæðast fyrir útivist í dag.

Ég ætla ekki.

Afsakaðu, frú Murchison, en hr. Murchison var ákveðinn

að ég kæmi þér fram úr rúminu og klæddi.

Ekki kasta fleiru að mér.

Hvað er það?

Eitthvað. Ekkert.

Ættirðu ekki að grafa það upp?

Gerirðu það ekki? Maðurinn minn sagði að þú sýndir mér það.

Ég skal tala skýrt.

Ég vil þig ekki hér. Maðurinn þinn borgaði mér fyrir þetta.

Mér er sama hvort þú vilt vera hér.

Reyndu ekki að segja mér hvernig ég sinni mínu starfi.

Ég kom til að fá hjálp vegna sjúkdóms.

Baða mig og ganga, ekki vinna eins og verkamaður.

„Baða“?

Þá skaltu losa mig við þig og fara í betra bað.

Maðurinn minn... -Hann yfirgaf þig.

Mér sýnist ekkert vera að þér.

Þetta nægir, drengur!

Mamma!

Mamma! Andskotinn.

Mamma!

Þú ert nýr.

Já.

Útlendingur?

Já.

Það virðist vera hár hiti. Varð henni kalt í gær?

Vöknaði í rigningu kannski? -Ég veit það ekki.

Kannski fór hún í bað.

Ó, já, vatnspyntingar.

Hún þarf umönnun. Nótt og dag. -Ég er ekki hjúkrunarkona, læknir.

Ég þekki konuna varla.

Já.

Fr. Anning...

er ekki hlutverk konu að hlúa að kynsystur sinni?

Sjáðu til að henni sé hlýtt en ekki of heitt.

Kaldir bakstrar ættu að lækka hitann.

Ég skrifa manni hennar og sendi eftir eigum hennar.

Kallaðu mig til ef ástand hennar breytist.

Hafðu það gott í dag.

Hve lengi ætlar hún sér að búa hér?

Þú ættir að senda hana heim til Lundúna.

Það er ekki okkar mál.

Hún gæti dáið, mamma.

Á hverju lifum við á meðan þú leikur einkaþernu?

Við komumst af.

Ef hún á að búa á heimili mínu, fá stöðuga umönnun

og þú rekin úr rúmi þínu...

þarf maðurinn hennar að borga þér meira.

Nei.

Nei.

Ég gerði það ekki.

Ég sá hana ekki...

í jörðinni.

Kalt.

Kalt.

Mary.

Halló.

Ég þarf bara að kaupa áburðarkrukku. -Áburð?

Ekki þó mamma þín aftur? Aumingja Molly. Er hún verri?

Viltu koma inn?

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left