The first 200 lines.
Ríó de Janeiró
Ég held að konur geti gert hvað sem er.
Það þýðir ekki að þær eigi að gera hvað sem er.
Hugsaðu þér konur gera við bíla,
aka leigubíl, fást við húsasmíði.
Því ekki? -Nei.
Trúðu mér. Stelpa eins og þú vill þetta ekki.
Stelpa eins og ég?
Ég vil hafa alla valkostina svo ég geti ákveðið sjálf.
Ungfrú Sjálfstæð.
Já. Það er ég.
Það er frábært.
Komdu hingað.
En þú situr hér, þiggur matinn minn, nýtur útsýnis míns.
Ég valdi það.
Nei, ég valdi þig.
Ég valdi að þú tækir eftir mér.
Það er ekki þitt val, Sabina.
Það er gjöf Guðs til þín.
En skiptir ekki mestu hvað við gerum við þessar gjafir?
Sérhvert okkar.
Karlmenn, konur.
Við viljum bara nýta hæfileika okkar.
Fullnægja hjartans þrá.
Í þannig heimi vil ég búa.
Í mínum heimi
græði ég milljónir með þig mér við hlið.
Ég er bara svo fær í svo mörgu. -Er það, já?
Eins og hverju?
Í mínu starfi telst það kostur að vera kona.
Ef þú ert falleg er eiginlega ekki ætlast til meira.
Og ef ekki, ertu nokkurn veginn ósýnileg.
Og í mínu starfi...
ósýnileiki og litlar væntingar...
kemur sér mjög vel.
Hún talar eins og húsmóðir.
Það er ekkert að því að vera húsmóðir.
Það er bara ekki mitt val.
Ég tala ekki portúgölsku.
Ég veit.
Já, svona.
Vissirðu að... -Hvað?
...menn eru sjö sekúndum lengur en konur
að skilja að ógn stafi af konu?
Er það ekki klikkað?
Hver ertu? -Hver, ég?
Ég er bara tálbeitan, foli.
Hve margir? -Níu.
Sendu þá alla!
Þú stalst fé til hjálpar konum, börnum og flóttafólki.
Það kallast fjárdráttur.
Fjárdráttur? En flott.
Þú ert víst bókhaldarinn.
Hver ert þú?
Opnaðu peningaskápinn.
Ó, elskan.
Þú flettir til hægri! Nú er ég kærastan þín!
Allt í neðstu hillunni.
Þetta hentar þér ekki.
Ég mæli með nýju starfi.
Bosley!
Gott kvöld, englar.
Þetta lofar góðu.
Frábært.
En hvað með ástralska Jonny?
Þig mun iðrast þessa.
Ég hefði gefið þér heiminn.
Þú talar allt of mikið og ert svo uppáþrengjandi
og þú ert allt of ágengur.
Þú ert æðislegasta kona sem ég hef hitt.
Ég veit.
Þetta var fjögurra mánaða eftirlit, tvö lönd
tvö lönd og pínlegasta stefnumót ævi minnar. -Nei.
Er þetta búið?
Ég sendi þetta til dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna
ásamt nýju vinunum þínum hér.
Þetta er klárt. -Flott. Þá fer ég, maður.
Ég tek mér vikufrí og fer í brjáluð strandapartí í Taílandi.
Þú ættir að prófa það, Jane. Strendur, láta einhvern leika við...
Ég skemmti mér á minn hátt.
Flott.
Brýnirðu samúræ-sverðin á kvöldin?
Ferð í kattakonubúning? Ég myndi borga fyrir að sjá það.
Borðar stundum glúten á kvöldin...
Þetta var skemmtilegt.
Hverjir voru þær?
Þú varst í nærveru engla.
En spurningin er, Jonny,
hver ert þú?
HAMBORG
ÁRI SEINNA
Sæl, Ingrid.
Þú mætir of seint. Herra Fleming bíður.
Var fundurinn ekki klukkan níu?
Jú, hann byrjar klukkan níu sem er nákvæmlega núna.
Hefurðu varið tíma með herra Brok?
Nei, auðvitað ekki.
Ég heimsótti hann í kastalann í Frakklandi.
Og við sátum þar og ég spyr hann:
„Hefurðu heyrt um Humphry Davy?“ Hann segir, nei.
Ég segi: „En Joseph Swan? Alexander Lodygin?“ Ekki hugmynd.
Svo ég segi: „Jæja þá, hvað með Thomas Edison?“
„Auðvitað. Hann fann upp ljósaperuna.“
En veistu hvað?
Það gerðu hinir mennirnir líka. Á undan Edison.
En Edison markaðssetti þær fyrstur.
Skilurðu hvað ég á við?
Við höfum vöru sem mun valda byltingu í orkuiðnaðinum.
En við verðum að vera fyrst. Þetta er rétti tíminn.
Og ég sagði Brok það og hann er mér sammála.
Auðvitað.
Ég... -Takk fyrir að koma, Elena.
Þetta var svo gott samtal.
Tæknilega hef ég ekki sagt neitt.
Það er óþarfi að metast um hver sagði hvað.
Herra Fleming. Ég veit hvað Calisto er mikilvægt.
Ég er aðalforritarinn. Það er mitt hugðarefni.
En eins og ég sagði í skýrslunni,
sem stendur gæti yfirsveifluþátturinn snúist við
og við vitum bæði um hættuna af því.
Þú veist ekki það sem ég veit.
Þekkirðu Julio? Verkfræðinginn?
Hann er enn á spítala eftir heilablóðfall
og hann var bara óvarinn að hluta...
Að því sagt er.
Og Julio var bjáni.
Ég þarf bara grunnaðgang og tíma
til að bæta villuna í bitakeðjunni svo hún verði örugg...
Ingrid, get ég fengið cappuccino?
Ég las skýrsluna þína.
Ég lét aðra lesa skýrsluna.
Við erum einfaldlega ósammála.
Las Brok skýrsluna?
Ég held að ef hann læsi... -Ég skal vera hreinskilinn.
Við höfum þróað Calisto í fimm ár og nú verður það sett á markað.
Það er öruggt og tilbúið og það segjum við Brok.
Og þú segir Brok ekki neitt.
Sjáðu til.
Þú ert of snjöll til að halda áfram með þetta, er það ekki?
Gott.
Ég vissi hver Humphry Davy var.
Gott hjá þér.
Þú misstir eitthvað.
Nei. Ég á þetta ekki.
Ég hendi ekki rusli á gólfið svo þú átt það.
Þú gætir þurft það.
TOWNSEND SKRIFSTOFAN
Bosley, 001.
VELKOMINN BOSLEY
Gamli skröggur.
Hélstu að við leyfðum þér að laumast burt?
Þetta var óþarfi.
Það er ekki bara ég.
Óvænt ánægja!
Óvænt ánægja.
„Bonjour.“
„Buenos días, señor.“ -„Buenos días.“
Allur hópurinn er hér.
Við vildum öll óska þér gleðilegra eftirlaunaára.
Takk, Bosley.
Og þakka þér. -Bosley.
Bosley, takk.
Þú.
Þú vannst gott starf. Það er vert að fagna því.
Ég setti saman myndband með minningum.
Ó, nei. -Nú byrjar það.
Ungur nýútskrifaður frá Oxford.
Ég gróf djúpt eftir þessum. Sjáðu þetta.
Þetta er ekki dulargervi.
Þú hefur greinilega skemmt þér vel.
Lífið var gott í þá daga.
Hvar fékkstu þessi föt? -Í Monte Carlo.
Þetta gerðist. Þarna er sönnunin.
Þegar þú opnaðir skrifstofur í Evrópu
varð Townsend alþjóðlegt.
Ekkert okkar væri hér án þín.
Sérstaklega ég. Þakka þér fyrir.
Ég er djúpt snortinn.
Þakka ykkur öllum.
Segðu nokkur orð. Ræða, Bosley.
Ræða, ræða.
Satt að segja er ég djúpt snortinn.
Ég er þakklátur
fyrir allt það starf sem við höfum unnið saman.
Og Charlie trúði ekki
að við gætum endurtekið velgengni hans hér í Kaliforníu.
En okkur tókst það... -Það er rétt.
...í heimi sem var ekki tilbúinn fyrir englana.
Í 40 ár fann ég þá og þjálfaði þá.
Og ég er svo stoltur af þeim.
Bosley-menn, verndið þá.
Heyr! Heyr!
Við gerum það, vinur.
Svo eins og Charlie sagði, tími til að fara út af sviðinu til vinstri.
Fyrst þú minnist á Charlie...
Halló, Bosley.
Halló, Charlie.
Ef þú lítur í kringum þig, gamli vinur,
sérðu þá menn og konur sem færa framtíðinni arfleifð þína.
Forysta þín og skuldbinding er óviðjafnanleg.
No comments yet. Be the first to leave one.