The first 200 lines.
"ÞAÐ ER STÓRFENGLEGT AÐ BÚA YFIR STYRK RISA...
EN ÞAÐ ER HARÐSTJÓRN AÐ NOTA STYRKINN EINS OG RISI"
Frank sagði alltaf: "Segðu söguna gangandi."
Hann var heimspekilegri en hefðbundnir spæjarar
en hann vildi tala gangandi og svona fór þessi saga.
Það er eitthvað að mér í höfðinu. Það er mikilvægt að vita.
Ef!
Eins og gler í heilanum.
Ég toga allt í sundur...
sný öllu á hvolf og endurraða því.
Sérstaklega orðum og hljóðum.
Eins og kláði sem ég verð að klóra.
Ekki toga í þetta. Þá fer allt í klessu.
Þráðaraus í haus.
Þráðaraus í haus!
Þráðaraus í haus, maður!
Svo fæ ég mikla kippi.
Það er frekar áberandi.
Eins og ég sé spastískur
en ef ég reyni að stöðva þetta versnar það.
Fjandinn, hjálpaðu mér.
Eins og ég sagði, þá fór allt í klessu.
Þú eyðileggur aðra peysu, fríkið þitt.
Nei, skerðu þetta nær.
Allt í klessu er rétt.
Nunnan sagði að sálin væri óróleg og ég ætti að iðrast.
Frank sagði að sá sem kenndi um ást Guðs og berði mann með priki
hefði ekkert um neitt að segja.
Frank Minna.
Ef þú mættir velja einn mann þér við hlið
væri hann besti valkosturinn.
Minna stjórnar leiknum. Við erum bara með í liðinu.
—Piltar. —Stjóri.
Frank, Frankly Frankady Franko!
Jæja, takið eftir.
Svona er planið. Ég verð uppi á þriðju hæð.
Lionel fer í símaklefann eftir 20 mínútur.
Þegar þeir koma, líklega þrír eða fjórir,
þá hringir þú í mig.
Ég hleypi þeim inn. Coney bíður við dyrnar.
Ég hleypi honum inn á ganginn.
Lionel hlustar og tekur vel eftir öllu.
Ef ég segi að það sé komið upp vandamál kemurðu yfir.
Coney hleypir þér inn og þið komið upp
til að hjálpa mér.
Hvað er í gangi, Frank?
Ég verð að halda þessu undir hattinum.
Feitir pattar með hatta!
Einmitt þeir, vinur.
Veiðum einn stóran og fitnum sjálfir.
—Við erum óvopnaðir. —Hvað segirðu?
Ég er ekki með hólk.
Hólk? Kallaðu þetta byssu, Gilbert.
—Ég er ekki með byssu. —Ég stóla á það.
Þannig sef ég á nóttunni, vitandi af þér án byssu.
Ég er með byssu. Komið bara upp.
Ég vil ekki að þið bjálfarnir komið hlaupandi upp
með hárspennu og munnhörpu.
Hármunnur og spennuharpa! Ekki stríða mér.
Með vindling og kjúklingavæng.
—Brooklyn? —Vindlavæng!
Ég dangla í vindvænginn!
Í alvöru. Ekki gera mér þetta.
—Segðu okkur allt hitt. —Allt í lagi.
Ef ég segist ætla að fara á klóið
erum við á leiðinni út.
Sæktu Gil og verið tilbúnir að elta okkur.
Ég gæti þurft að koma mér undan. Skilurðu það?
"Vandamál" upp stigann og "klóið" tilbúnir að elta.
Skilja, skildi, skil þig!
Lionel náði þessu. Þú hlýðir honum.
Ertu ekki að grínast?
Coney, hvað sagði ég þegar ég mætti á þriðjudaginn?
—Hvað? —Lionel?
Þú hengdir upp frakkann, settir hattinn á þriðja hanka
og sagðir: "Ég sá stelpu í ferjunni
og brosið frá henni dugar mér út veturinn."
Þú kastaðir bókinni til Dannys og sagðir:
"Hvernig virðir maður hjónabandið með 22ja ára á matseðlinum?"
Eins og ég sagði sér Lionel um þetta.
Sittu á því, Bailey!
Andskotans Bailey.
Ef!
Hausinn á mér kallar mig Bailey.
Hann kallar á mig ef ég streitist á móti.
Ákveðnir hlutir róa hann.
Tyggjó og grasreykingar.
Stundum eitthvað sterkara ef ég er mjög slæmur.
En ef ég reyni að hafa hemil á þessu versnar það.
Ef ég verð stressaður versnar það.
Ef ég verð æstur versnar það.
Ef!
Rifrildi sem ég get ekki unnið.
Heyrðu!
Dæmigert fyrir Minna.
Við frjósum hérna og vitum ekki neitt.
Hafðirðu einhver plön fyrir helgina?
Já, kannski.
—Stefnumót? —Já, hugsanlega.
Coney—eyja!
Pylsur á Coney—eyju!
—Coney—pylsur hérna! —Heyrðu, frík.
Hafðu aðeins lægra.
Nú byrjar það. Vertu klár.
—Sæll. —Hæ, stjóri.
Stjórnsama tík!
Ertu rólegur, Brooklyn?
Ég er með tyggjóið. Ég næ að hafa hemil á þessu.
Mundu að hlusta vandlega.
Ég gæti þurft á þessum kolli að halda.
Ég redda þessu, stjóri.
Ég veit það.
Vinir þínir eru komnir.
Hversu margir?
Tveir koma gangandi og tveir í bílnum.
—Sérðu þá? —Já, ég sé þá.
Jesús, sjáðu stærðina á þessum.
Þeir eru óárennilegir. Er allt í lagi, stjóri?
Allt í himnalagi. Við þurfum bara að ræða málin.
"Hér hvílir Frank Minna með allt í himnalagi."
Þetta verður skrifað á legsteininn hans.
Ég veit ekki hvort það var uppeldið í Greenpoint eða bardagar við Japana
en hann var ótrúlega rólegur undir álagi.
Ég var ánægður að vinna með honum.
Ef það er eitthvað sem þessi óþolandi heili getur
er það að hlusta og muna.
Herrar mínir, takk fyrir komuna.
—Drykk? —Við stoppum ekki lengi.
Útskýrðu þetta bull.
Hvað skilur þú ekki?
Til dæmis að þú hafir byrjað að snuðra
um einhverja svarta stelpu.
Hún vinnur fyrir nefndina.
Hún er helvítis ritari.
Þú áttir að njósna um Horowitz og finna skít til að stöðva þau.
Það var ekkert að finna, Lou.
Viltu vita hvað er á seyði?
Svarta stelpan sér um megnið af vinnunni við Hamilton.
Ég varð að kanna það líka.
Þú leitaðir á skrýtnum stöðum.
Hvað get ég sagt? Ég starfa við að snuðra.
—Það kallast nákvæmni. —Það kallast tímasóun.
Þetta er helvítis kínverska.
Ef þú þarft kort til að skeina þér get ég ekki hjálpað.
Farðu í gegnum þetta með okkur svo að allt sé á hreinu.
Þetta stendur allt þarna.
Vill einhver túlka þetta öðruvísi?
Þú getur ekki sannað þetta.
Undirskriftin er ósvikin.
Ef þú þekktir manninn vissirðu að það væri ólíklegt.
Ég bar hana saman við önnur skjöl. Þetta er undirskrift hans.
Pappírarnir styðja það.
—Veit Horowitz af þessu? —Nei.
Annars væruð þið þegar farnir að éta skít.
Þetta hefði ratað beint í blöðin.
Er stúlkan gift? Á hún fjölskyldu?
Þetta stendur allt þarna. Móðirin látin og engin systkini.
—Hvað með föður hennar? —Vonlaus uppgjafahermaður.
Hann rekur djassklúbb og drekkur óhóflega.
Herra Minna, þú veist væntanlega hvað gerist þarnæsta fimmtudag.
Já.
Skilurðu þá mikilvægi þess
að þessu sé haldið frá andstæðingum okkar?
Já, þannig er leikurinn.
En þetta eru ljósmyndir.
Ertu með upprunalegu gögnin?
—Já. —Glæsilegt.
Þú þarft að láta þau af hendi.
Mig grunaði það.
Ég vildi ræða skilmálana.
Hvern andskotann áttu við?
Hefurðu misst vitið?
Engan leikaraskap.
Þið sendið stærstu peningalest aldarinnar af stað.
Ég vil bara fá sæti aftast.
Það er óhugsandi.
Ég fæ helmingi meira frá blöðunum í bænum.
Ég ætla að láta sem þú hafir ekki sagt þetta.
Saklaus athugasemd.
Ég kom í góðri trú.
—En ég met þetta... —Gleymdu því.
Jesús, Lou. Má maður ekki fá borgað fyrir vel unnið verk?
Þú þiggur laun fyrir ekki neitt.
—Ekkert svona. —Slakið á.
—Fjandinn. —Hvað er í frakkanum?
—Hvað? —Ertu vopnaður?
Komstu með byssu á fundinn?
Ég hef notað hana síðan í stríðinu.
Heyrðu, ég læt vin minn...
—troða henni upp í boruna á þér. —Augnablik, Lou.
Ekki verða svona æstir. Þetta eru bara viðskipti.
Herra Minna, við erum þakklátir fyrir þjónustu þína.
Þessir herramenn fylgja þér að sækja gögnin
og ef allt er í lagi finnum við ásættanlega lausn.
Eins og ég sagði kom ég í góðri trú.
Leyfið mér að fara á klóið.
Komdu, komdu. Komdu.
—Kýlda kló, kýldi hann á klóinu! —Hvað gerðist?
Ég held að þeir hafi kýlt hann.
Hvað erum við að gera hérna?
No comments yet. Be the first to leave one.