The first 200 lines.
ÞÁTTARÖÐ ÚR SMIÐJU NETFLIX
Tilraun númer 803 í nýja verkefninu mínu.
Nú er komið að því. Ég finn það á mér.
Ég er tilbúinn.
Og nú byrjum við.
"Sykurpúðakisan er inni"?
Samdi ég þetta? Merkingarlaust.
- Janet. - Sælinú. Hvernig ganga lagasmíðarnar?
Ég er alveg týndur og ræð ekki við asnalega E-hljóminn.
Viltu töfragítar sem spilar alla hljómana fyrir þig?
Það er algengasta ósk karla yfir fimmtugu sem ég hef fengið hér.
Nei, aðalmálið er að læra að gera svona
án þess að nota eftirlífstöfra.
Kannski hafa hann tiltækan. Ég veit það ekki. Skiptir engu.
Við ættum að fara. Við verðum sein.
Hvert fer tíminn?
Þegar allt kemur til alls nær þetta aftur til setningar úr bók Mays prófessors:
"Dauðleiki veitir lífum okkar merkingu og siðferði leiðbeinir um þá merkingu."
Bíddu, það sem ég held að standi er:
"Dauðleikinn veitir merkingu inn í viðburðina í lífum okkar."
Skoðaðu sjálfan þig.
Ég held að Chidi Anagonye,
sem bókstaflega hannaði eftirlífið, viti um hvað hann er að tala.
Ég er nokkuð viss um að þetta sé rétt því þetta er mín bók.
Já, May prófessor, líklega rétt hjá þér hvað þú skrifaðir.
Hann ætti samt að skoða sjálfan sig.
Við sjáumst aftur hérna í næstu viku.
Hieronymi prófessor mun fara yfir klípuna með vagninn.
Komið með ábreiður. Þetta verður sóðalegt.
Ertu tilbúinn, Chidi?
Sæll, Jeff. Safnið hefur stækkað.
Vissulega. Ég á núna 322 froskahluti.
Þrjú hundruð tuttugu og þrjá. Ég var að fá enn einn!
Aldrei er þessi ekki spenntur yfir froskum.
Hann veit hvað honum líkar.
Þessi fundur Aðalráðs eftirlífsmála er settur.
Höfum þetta stutt. Ég var að byrja að horfa aftur á The Leftovers.
Í hreinskilni, þegar ég komst að því að Carrie Coon fékk aldrei tilnefningu
eyddi ég næstum 2% mannkyns.
Michael, nýjustu upplýsingar.
Þetta gengur nokkuð vel.
Nýr hópur af manneskjum var að komast í gegnum prófin.
Á meðal eftirtektarverðra sem komust inn voru Roberto Clemente,
Zora Neale Hurston, heilagur Tómas af Akvínó...
- Já! - Áttundu aldar Sufi-dulspekiskáldið
Hazrat Bibi Rabia Basri og Clara Peller.
Hún var "Hvar er kjötið?" konan.
"Hvar er kjötið?" konan komst inn.
Það er skemmtilegt.
Í hreinskilni er stærsti vandi okkar að það vantar fleiri arkítekta og leikara.
Því miður eru yngri djöflaleikarar ekki trúir grein sinni.
Þeir halda að þeir geti bara byrjað að leika.
Þeir verða að læra að leikur felst í viðbrögðum.
Og viðbrögð eru for-viðbrögð.
En forviðbrögð? Nú, það er bara að vera.
Slakaðu aðeins á klónni, Daniel Day-Lewis.
Shawn? Hvað ert þú með?
Ég ætla að segja fyrst að þetta kerfi er ömurlegt
og Michael er ömurlegur
og við ættum að henda þessu öllu í ruslið
og fara aftur yfir í eins og við vorum þegar öll voru kvalin.
Það eru enn hindranir í veginum, en kerfið er gott og það virkar.
Svona nú, viðurkenndu það.
Ég mun aldrei... nokkurn tímann...
nokkurn tímann...
nokkurn tímann...
nokkurn tímann viðurkenna það.
Ég veit, vinur. Ég veit.
LOKAKAFLINN
AÐ LIÐNUM 2.242 BEARIMYUM
- Hvað er klukkan? - Ég veit það ekki.
Í alvöru?
Já.
Á einum tímapunkti, fyrir hundruðum Bearimyum síðan
slökkti ég á getu minni til að vita hvað tímanum líður
hvar sem er í alheiminum þegar við tvö erum saman.
Mér líkar að vita það ekki.
Hún er 10:42.
Fyrirgefðu, það var undarlegt að segja upphátt að ég viti ekki.
Mér líður undarlega þegar ég veit eitthvað.
Þú og ég erum mjög ólík.
Ég þarf að hitta pabba. Ætla að reyna einu sinni enn.
- Gangi þér vel. - Takk.
Ég er að fara á taugum.
Þú nærð þessu, gaur. Ein tilraun enn til að klára.
Ég elska þig og trúi á þig.
Takk, pabbi.
Nú byrja ég.
Bortles ætlar að kasta... já!
MENDOZA TEKST ÞAÐ!!!
- Mér tókst það! - Þér tókst það!
Það tók þig yfir 433.000 tilraunir,
en þú varst að spila fullkominn Madden-leik!
Þér tókst það!
FULLKOMINN LEIKUR
Minn maður.
Mér tókst það.
Gott og vel.
- Janet? - Sælinú.
Sæl, Janet. Ég útbjó kvöldverð.
Þú útbýrð alltaf fyrir mig svo núna langaði mig að gera hann.
Í alvöru talað þá tókst mér ekki vel til.
Þetta er spaghetti.
Ég veit að það lítur undarlega út,
en ég tók einn bita og það er reyndar nokkuð vont.
Ég lagði líka niður gaffla og hnífa eins og kóngar og drottningar gera.
Nálægt diskunum.
Líka...
Ó, maður.
Já.
Jæja...
Ég þarf að tala við alla.
Ætti ég að biðja þau um að koma hingað?
Nei, ég...
Ég var með betri hugmynd.
- Sæl, þið tvö. - Halló.
Skemmtilegt að hittast hérna!
Þú endurbyggðir það eins og það leit út áður.
Hvað kveikti þetta, J-Dawg? Ertu æstur í frosna jógúrt?
Nei.
Ég er með tilkynningu.
Ég er að fara.
Fer í gegnum dyrnar.
Ertu viss?
Já, ég er það.
Það er tímabært.
Okkur fannst best
að safna öllum saman í eins konar kveðjupartí.
Við ætlum að borða og drekka og það verður dansað...
Gaman.
Jæja, vinir, þið eruð döpur.
Ég sé það því þið eruð með sama svip og kennarinn minn
þegar ég rétti upp hönd í tíma.
En verum hamingjusöm. Ég ætla að spila tónlist.
Það verður raftónlist í allt kvöld. Komið.
Komið.
Nú er ég niðurdregin út af tvennu.
Sæll, Doug.
- Hæ. - Skemmtirðu þér?
Ég hef borðað svo mikið af kjúklingi.
Líklega gott að þú valdir ungan líkama þinn.
Já.
Hvernig hefurðu það?
Ég hef það fínt, Michael.
Hvernig hefur þú það?
Nú...
Ég er dapur.
Og ég veit að þú ert sú þróaðasta í alheiminum,
en mér finnst ég verða að segja þér að þú megir líka vera döpur.
Ég veit.
Ég er það, en ég veit líka að þetta er rétti tíminn fyrir hann að fara.
Það er í alvöru í lagi með mig. Alveg satt.
Viltu koma og tala við mig ef þú ert það ekki?
Alltaf.
Hvernig hafið þið það í kvöld?
Gott og vel, vinir, við erum með dálítið sérstakt.
Gamli danshópurinn minn er hérna!
Eruð þið tilbúin að taka á því í síðasta skiptið?
Þetta var sérstakt.
Ég mun aldrei gleyma þessu kvöldi...
fyrr en ég geng í gegnum dyrnar og leysist upp út í alheiminn.
Má ég spyrja þig að einu, vinur?
Hvernig... vissirðu það?
Það var ekki eins og ég hefði heyrt í bjöllu eða neinu slíku.
Það kom bara allt í einu yfir mig ró,
eins og loftið í lungum mínum væri það sama og utan við líkamann.
Það var friðsælt.
Kannist þið við þegar maður telur að jalapeño-bátur sé of heitur,
en svo bítur maður samt í hann og hitastigið er fullkomið?
Ótrúlegt en satt, ég þekki þá tilfinningu. Hún er æðisleg.
Einmitt.
Má ég spyrja ykkur ráða varðandi dálítið?
Ég er hræddur um að Janet muni gleyma mér.
Ég er alveg sáttur við að hún verði ástfangin af öðrum.
Ef Jason Momoa eða Lara Croft, Tomb Raider, komast inn
og Janet segir: "Það er í gangi!"
Allt í góðu.
En það væri dapurlegt ef hún gleymdi mér.
Svo ég útbjó þetta handa henni.
Hvernig líst ykkur á?
Þetta er yndislegt.
En hún mun ekki gleyma þér. Hún bókstaflega getur það ekki.
Hún man allt sem hefur nokkurn tímann gerst.
Jafnvel þótt hún gæti gleymt einhverjum held ég að hún gleymi þér ekki.
Takk.
Þegar ég átti Jason var ég 18 ára.
Á margan hátt ól Jason mig upp eins mikið og ég hann.
Takk fyrir að vera frábær pabbi, sonur!
Ég elska þig, pabbi!
Jason er sá allra sannasti.
Ekkert okkar er raunverulegt lengur.
Við erum öll bara draugurinn Kasper eða hvaðeina.
Sem er fyndið því við Jason erum ekki einu sinni hvítir.
Af hverju eru allir draugar hvítir?
Ó, maður, eru draugar rasistar?
Það sem ég er að reyna að segja: "Ég elska þig, gaur.
Þú ert hetjan mín.
Þú ert besti vinur minn.
Og þú ert Minshew-vörðurinn minn."
Þú mátt sitja á þessum bekk eins lengi og þú vilt.
No comments yet. Be the first to leave one.