Sully

Sully

Download Icelandic Subtitle

Release info

Sully 2016 720p BluRay x264-SPARKS
Sully 2016 1080p BluRay x264-SPARKS
A Commentary by egskil

Tags

BluRay
x264
1080
720p
720
Published on: 2017-02-12
Downloads: 52
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Kaktus 1549, leyfi til flugtaks á flugbraut fjögur

Kaktus 1549, klár fyrir flugtak.

Mayday, mayday. Kaktus 1549.

Við misstum afl á báðum hreyflunum.

Það kviknar á hvorugum.

Kaktus, ef það gengur upp geturðu lent á flugbraut 1-3?

Við ættum að ná þessu. Ég sný aftur á LaGuardia.

LaGuardia-turn, Kaktus 1549 reynir að ná inn á braut 1-3.

Við fljúgum of lágt, Sully.

Of lágt, Sully.

Koma svo.

Örlítið lengra.

Koma svo.

Sully!

Lorrie, ég elska þig.

Hvað er að þér?

150 farþegar voru um borð,

BJÖRGUN FLUGS 1549

þrír flugliðar og tveir flugmenn, en annar þeirra

flugstjórinn, þurfti að treysta á reynslu sína og hæfileika

í bland við heppni sem er kraftaverki líkust

og niðurstaðan var ótrúleg.

Minni háttar áverkar

en allir lifðu af.

Fyrstu myndirnar af US Airways flugi 1549 sýna...

Maður heldur að lífinu sé lokið.

Maður heldur það.

En svo bjargast maður eins og fyrir kraftaverk.

Takk, flugstjóri.

Þakka þér fyrir.

Ég þakka ykkur öllum fyrir.

Takk, Sullenberger, fyrir komuna í dag.

Við bjóðum Skiles aðstoðarflugmann velkominn.

Við erum ánægð að þið komust.

Ekki eins ánægð og við.

Flugtæknisérfræðingar komu að rannsókninni

ásamt flugsmiðum, vettvangsliðum

og sérfræðingum í flughæfi, flugumferðarstjórn,

villtum dýrum, björgunarþáttum og neyðarviðbrögðum.

Í dag hefst rannsóknin á mannlegu þáttunum

sem snúa að brotlendingu flugs 1549.

Lendingu á vatni. - Flugstjóri?

Við brotlentum ekki eða steyptumst í ána.

Við vissum hvað við gerðum.

Ekki brotlending heldur nauðlending á vatni.

Því reyndirðu ekki að snúa aftur á LaGuardia?

Flughæðin var ekki næg.

Hudsonfljót var eini staðurinn sem var nógu langur og sléttur

og með nóg pláss fyrir örugga lendingu.

Samkvæmt flugumferðarstjórn

sagðistu stefna á LaGuardia en þú gerðir það ekki.

Þegar ég beygði til vinstri

áttaði ég mig á því að ég næði ekki til baka

og að það útilokaði aðra möguleika.

Það hefðu verið mistök að snúa til baka.

Ræðum hvernig þú reiknaðir þetta út.

Ég hafði ekki tíma til þess.

Ég stólaði á reynslu mína af flughæð og hraða

eftir þúsundir fluga í fjóra áratugi.

Reiknaðirðu ekki. . .?

Ég skaut á þetta.

Skaustu á þetta?

Já.

Mestu líkurnar á öruggri lendingu voru á ánni.

Ég hefði lagt lífið undir.

Reyndar gerði ég það.

Ég myndi gera það aftur.

Flugverkfræðingar telja

að aflið hefði nægt til að lenda á flugvellinum.

Verkfræðingar eru ekki flugmenn.

Þeir hafa rangt fyrir sér.

Þeir voru ekki þarna.

Við könnum alla möguleika á handvömm

því það fylgir rannsókninni.

Tölvurnar reikna út hvort þú hefðir náð til baka.

Við gerum hermiprófanir með sömu forsendum.

Tveim óvirkum hreyflum í þessari hæð

og öðrum breytum sem þú stóðst frammi fyrir.

Ég vil hafa yfirumsjón með tölvuprófunum.

Það má ekki í miðri rannsókn.

Þú sagðir að báðir hreyflarnir hefðu gefið sig

eftir að þið fluguð á fjölmarga fugla.

Það væri fordæmislaust.

Allt er fordæmislaust

þar til það gerist í fyrsta sinn.

Hversu lengi svafstu fyrir flugið?

Í átta tíma. Nægur svefn.

Gæti blóðsykurinn hafa verið of lágur?

Ég var úthvíldur, skýr og meðvitaður um aðstæður.

Hvenær drakkstu síðast áfengi?

Fyrir níu dögum.

Fíkniefni?

Nei, aldrei.

Skiles aðstoðarflugmaður?

Ég drekk ekki og hef aldrei gert.

Hefurðu átt í erfiðleikum heima fyrir, flugstjóri?

Ekki frekar en allir aðrir.

Ekkert sem hefur áhrif á starfið.

Þetta er kjaftæði.

Því leita þeir að mistökum þegar allt endaði vel?

Þetta fór illa fyrir flugfélagið og tryggingafélagið.

Við fáum neikvæð viðbrögð.

Hvað geta þeir sagt, Mike?

Mátti hann ekki bjarga öllum?

Ekkert persónulegt.

Rannsóknarnefndin sinnir sínu starfi.

Þau verða róleg þegar staðreyndirnar liggja fyrir.

Sully.

Þú ættir að fá orðu og fara aftur í vinnuna.

Talhólfið er fullt.

Ég heyrði bara í Lorrie í morgun en allir aðrir hafa hringt í hana.

Afsakaðu ónæðið en ég verð að segja

að það er heiður að aka með þig í dag.

Þakka þér fyrir.

Hvernig hefur árið verið?

Bernie Madoff, tvö endalaus stríð

og fleiri milljónir án atvinnu.

Aðeins fyrstu tvær vikurnar í janúar.

Fyrirsögn föstudagsins?

HETJAN Á HUDSON

Þetta er fallegt.

Eigum við að fá bílstjórann sem skapgerðarvitni?

Loksins.

Já, loksins.

Rannsóknarnefndin hélt okkur í allan dag.

Ég veit það.

Ég þurfti að heyra í þér.

Ég hef heyrt í öllum öðrum.

Þú átt ótrúlega margt frændfólk.

Mér finnst ég ekki vera í faðmi fjölskyldunnar hérna.

Það er allt rólegt hérna líka.

Blaðamennirnir biðja mig að lýsa innri manni þínum.

Hvað á ég að segja þeim?

Segðu að þú megir ekki tala við neinn.

Ég heyri ekki í þér.

Lorrie, ég. . . - Hringdu aftur

Þú þarft ekki að tala við neinn.

Ég heyri ekki í þér. Hringdu aftur.

Ég vildi segja þér..

Sully flugstjóri. Sully flugstjóri.

Hvernig er að hafa gert kraftaverk?

Ein spurning, Sully.

Hvernig tókst þér hið ómögulega?

Sully flugstjóri.

Afsakið.

Mér datt í hug að keyra yfir blaðamennina.

Sjálfsvörn. Myndi kviðdómur dæma mig?

Gerðu það sem þú þarft.

Ég tek þessu sem leyfi. Löggan kemur að finna þig.

Sullenberger gat ekki komið til okkar

Hann má ekki ræða við fjölmiðla á meðan rannsóknarnefndin

vinnur að rannsókninni.

Sully, ertu að hlusta?

Við ættum að tala saman seinna.

Þetta er seinna.

Ég hef beðið í allan dag.

Er allt í lagi með þig?

Já, ég er bara þreyttur.

Hvernig líður stelpunum?

Þær eru dálítið eftir sig. Mér heyrist þú vera það líka.

Já, þær jafna sig.

Þetta er ekkert smáræði.

Það er satt.

HETJUDÁÐ Á HUDSON

Allur heimurinn talar um þig.

Sully minn.

Ég trúi þessu ekki.

Ég þarf að vera um kyrrt hérna

vegna rannsóknarinnar.

Sagði ég þér það?

Fyrirgefðu ef ég gleymdi því.

Þú þarft ekki að biðjast afsökunar

Þú ert þar sem þú verður að vera.

Ég vil að þú vitir að ég gerði mitt allra besta.

Auðvitað gerðirðu það.

Þú bjargaðir öllum.

Tölum saman í fyrramálið.

Ég er þreyttur.

Öll þessi athygli er yfirþyrmandi.

Ég fer í sjónvarpið í fyrramálið.

Hvaða spurningar fæ ég? Hvernig svara ég?

Viltu að ég komi til þín?

Nei, Lorrie.

Takk, en stelpurnar þarfnast þín.

Skilaðu ástarkveðju til þeirra.

Ég elska þig. Reyndu nú að sofa.

Já.

Kannski verður 14. janúar þegar ég vakna.

Væri það ekki fínt?

Ég elska þig.

Hvers vegna tók Sullenberger þá afdrifaríku ákvörðun

að breyta Hudsonfljóti í flugbraut?

Hann einn getur svarað því.

En nú vitum við að þetta var röng ákvörðun.

Ákvörðun sem stofnaði lífi allra um borð í hættu.

Á meðan þorri landsmanna hyllir hann sem hetju

munu þessar nýju upplýsingar gjörbreyta skilningi allra

á hinu svokallaða kraftaverki á Hudsonfljóti.

Sully Sullenberger Ertu hetja eða loddari?

Halló? - Jeff?

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left