The first 200 lines.
"Verið algáðir, vakið
því óvinur yðar, djöfullinn, gengur um sem öskrandi ljón,
leitandi að þeim, sem hann geti gleypt."
Fyrra Pétursbréf 5:8
Móðir mín sagði mér sögu sem barn
um hvernig djöfullinn ráfaði um jörðina.
Stundum sagði hún að hann tæki mannsmynd
svo hann gæti refsað þeim fordæmdu á jörðinni áður en heimtaði sálir þeirra.
Þeim útvöldu var safnað saman
og þeir kvaldir er hann faldi sig á meðal þeirra, þóttist vera einn þeirra.
Ég taldi alltaf að móðir mín væri að segja mér þjóðsögu.
Saga móður minnar hófst ætíð á sama hátt,
með sjálfsmorði sem ruddi veginn fyrir komu djöfulsins.
Og hún endaði alltaf á dauða þeirra klófestu.
Ég hef það fínt. Mér líður mjög vel.
Veistu af hverju fólk byrjar aftur að drekka?
-Nei. -Giskaðu.
Ruðningsliðið Eagles.
Gremja.
Erum við í alvöru að ræða þetta aftur?
Þetta er mikilvægt.
Geta þín til fyrirgefningar mun ákvarða
lífsgæði þín meira en nokkuð annað.
Sko, sumt er ekki hægt að fyrirgefa.
Þú ert á leið í þá áttina.
Þú hefur tekið ábyrgð á gjörðum þínum. Hálfur sigurinn er þá unninn.
En til að vera raunverulega frjáls
verður þú að trúa á eitthvað máttugra en sjálfan þig.
Það hljómar vel.
Það gerir það.
En þegar ég hugsa um þann sem myrti fjölskylduna mína,
á ég Í erfiðleikum með að trúa á nokkuð.
Vertu bara opinn fyrir því.
Getum við bara fengið okkur morgunmat?
Talað um venjulega hluti.
Ég er stuðningsaðili þinn. Þú getur rætt venjulega hluti við aðra.
-Hæ. Er með einn góðan fyrir þig. -Er það?
Já, það er ekkert vit í þessu.
Maður lendir á vörubíl með krafti eins og hann hefði fallið af annarri hæð.
Pottþétt stokkið.
Ertu viss um að honum hafi ekki verið hent?
Hann heldur á talnabandi.
Nokkuð sem maður grípur ekki til í fáti.
Einmitt.
-Elsa. -Bowden.
Hæ.
Það er ekkert gler á götunni.
Vörubíllinn var ekki hér þegar hann féll. Hann hlýtur að hafa rúllað.
Maðurinn stökk af þessari byggingu.
Og hvað? Beygði hann hér?
Þessir hlutir eru gerðir til að þola vörubíla.
Þú ert að grínast.
-Göngum þetta. -Já.
Larson.
Heyrðu, kona, þú verður að skrá þig inn.
Hvar er Ramsey? Hann þekkir mig.
Ramsey er veikur. Ég er hér og því verðurðu að skrá þig inn.
Lít ég út fyrir að vera ógnun?
Ekki kenna mér um. Þetta eru bara reglur.
Láttu þig dreyma, félagi.
Þú verður að sjá um skráninguna. Einhverjir lögfræðingar á 39. hæð þurfa þetta strax.
Ekki ætlarðu að labba upp stigana aftur?
Hvernig á ég annars að halda mér í formi?
Á 39. hæð. Taktu bara lyftuna.
-Komdu inn. -Þetta er of þröngt fyrir mig.
-Þú getur troðið þér inn. -Nei.
Bíðið.
Takk.
-42. hæð, takk. -Ekkert mál.
Sérðu, þetta get ég.
-Gætuð þið stöðvað hana. -Fyrirgefið.
-Takk fyrir hjálpina. -Ekkert mál.
Þetta er ekki gott.
Láttu ekki svona.
Ekki gera mér þetta.
Koma svo, Timonen, settu kylfuna niður.
-Hvernig gengur okkur? -Sama skor.
-Takk. -Já.
Hví er númer sex í viðgerðarfasa?
Lyfta sex.
Fullt hús. Tvær drottningar, þrír gosar.
-Hringdu í Dwight. -Já.
Heyrðu, Dwight, það er smá vandamál.
Veit allt um það. Er uppi á 35. hæð að laga það.
-Lyftuna? -Nei, brotna gluggann.
Ertu ekki að laga lyftuna? Skjárinn gefur til kynna að sex sé í viðgerðarham.
Það er fólk fast í henni.
Ertu viss um það? Þú sérð ekki eins vel og áður.
Veistu hvað? Mamma þín skoðar þetta fyrir mig
næst þegar ég tek hana á tölvuborðinu.
Mamma er 78 ára. Láttu vaða.
Já. Farðu upp í vélaherbergið og athugaðu málið.
Er á leiðinni.
Er að leita að einhverju til að ræsa hana aftur.
Eru engar neyðarráðstafanir til staðar?
Ég veit það ekki. Ég er bara að leysa af. Var að byrja hér.
En gerið þið ekki við þessa hluti?
Reyndu að ýta á neyðarhnappinn.
Haldið þið ekki tækjunum ykkar vel við?
Ég veit það ekki. Eins og ég sagði...
Ertu ekki með talstöð?
Nei. Ég hélt ekki að ég þarfnaðist hennar.
-Hefði það ekki verið... -Geturðu haldið þér saman?
Já, róaðu þig niður.
Í alvöru!
Ertu ekki með talstöð?
-Heyrið, við sjáum ykkur. -Við erum föst!
Haldið ykkur fast, það er byggingarverkfræðingur á leiðinni.
Hvenær heyrðirðu einhvern segja "haldið ykkur fast" síðast?
-Hvað sagðirðu? -Ekkert.
-Hvað sagðirðu? -Ekkert.
Er hann að reyna að stofna til vandræða?
Gæti eitthvert ykkar horft í myndavélina og sagt eitthvað hátt og skýrt?
Byggingin þín er glötuð!
Ég heyri ekki í þér. Hátalarinn á að virka á báða vegu,
-en þú heyrir í mér? -Það virkar hérna megin, já!
Hann sagði að hann heyrði ekki í okkur, sagði okkur ekki að tala hærra.
Allt í lagi, gefið okkur smástund.
Jæja, þetta er traustvekjandi.
Ég þarf að vera annars staðar.
Það er ekki hægt að hringja héðan.
Ég verð að hringja í vinnuna svo ég missi ekki vinnuna.
Dæmigert kjaftæði.
Er tenging hjá ykkur?
Það er ein stika hjá mér.
Halló? Þetta er Larson.
Geturðu gefið mér samband við vinnuna mína í öryggisþjónustunni?
-Heyrirðu í mér? -Segðu þeim að koma okkur út!
Halló?
Þeir verða bara að ráða við það.
Við höfum að minnsta kosti tónlist.
Ekki sitja undir eplatrénu með neinum nema mér
Svona, gamla, þú þekkir textann
Neinum nema mér
Ekki láta eins og fífl.
Fyrirgefðu, fröken Kurteis. Gekk ég fram af þér?
-Róaðu þig, vinur. -Farðu bara í rassgat.
Þetta er frábært.
Ráðumst bara á indæla manninn fyrir smá léttúðleika.
Kannski ættum við öll að þegja um stund.
Allt í lagi.
Allt í lagi, ég var bara að grínast.
-Dwight, ertu kominn? -Nánast.
Ég er bara ánægður að þú sért farinn að fara út aftur.
Ég er ánægður að þú sért það.
Þú veist hvað ég meina. Eftir öll þín vandræði...
Ég veit hvað þú meinaðir.
-Hvernig hefur þetta svo gengið? -Vel.
90 dagar á morgun.
Vá, 90 dagar!
-Mér finnst eins og það hafi verið í gær... -Ekki mér.
Ekki er brotinn gluggi þarna uppi?
Jú.
Sem snýr í þessa átt?
Nógu stór til að manneskja komist í gegnum hann?
Ætli það ekki.
Hættu að sópa.
Þetta er vettvangur glæps.
Bíll 602.
Hvað í fjandanum er þetta?
Passaðu þig.
-Þú ættir að tryggja þetta betur. -Allt í lagi!
Saklaust fólk deyr alltaf í sögunni hennar.
Lánlausar, hjálpfúsar sálir, sem gera sér ekki grein fyrir hvað þær eiga í höggi við.
Hann tekur því ekki vel þegar fólk stendur í vegi fyrir honum.
Heyrðu, gamli. Það er ekki að sjá viðgerðarham hér. Rafrásin lítur vel út.
Allt í lagi. Prófaðu að endurræsa lyftu sex.
Ég segi fólkinu í henni það. Teldu upp í 20 og gerðu það síðan.
Flott.
"Skoðuð og löggilt þann 12. ágúst af G. Carson."
Hvað með að heimsækja G. Carson þegar við erum farin héðan?
Segjum honum álit okkar á hans skoðunargetu.
Við ætlum að slökkva á ljósunum Í eina sekúndu
-til að sjá hvort það hafi orðið skammhlaup. -Ætlarðu að taka rafmagnið af?
Hröpum við þá ekki?
Það verður allt í lagi. Ég vildi bara ekki að...
-Hvað er í gangi. -Ekki láta svona!
Ekkert. Ekkert. Slakið bara á.
Láttu ekki svona.
Ekki koma við mig!
Ekki koma við mig!
Fyrirgefðu.
Hvað er að þér, maður?
Þegar ég var yngri læsti bróðir minn mig í skotti í sex tíma.
Mér líður ekki vel í þröngu rými.
Frábært.
Láttu ekki svona.
Getum við komist þaðan út?
Hvað ætlarðu að gera? Klifra upp kaplana?
Þú ert mun öruggari hér.
Veit einhver hvar klósettið er hér?
-Virkaði það? -Nei, þau eru enn föst.
Ég athuga stofnleiðsluna í kjallaranum.
Allt í lagi, takk kærlega. Vá.
Hvað er í gangi?
-Manstu eftir glugganum á 35. hæð? -Já.
Einhver virðist hafa stokkið út um hann.
-Í dag? -Já. Í morgun.
Takk fyrir að sýna okkur bíðlund.
Lyftan ætti að fara í gang eftir nokkrar mínútur.
No comments yet. Be the first to leave one.