Shang-Chi and the Legend of the Ten Rings

Shang-Chi and the Legend of the Ten Rings

Download Icelandic Subtitle

Release info

Shang-Chi And The Legend Of The Ten Rings 2021 BDRip x264-VETO
A Commentary by sub.Trader
Retail | Jóhann Axel Andersen

Tags

bdrip
bdr
x264
BDR
Published on: 2021-11-11
Downloads: 81
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Goðsögnin um Hringina tíu hefur verið sögð í þúsundir ára.

Með hverri kynslóð stækkar sagan.

En í kjarna sögunnar er ávallt einn maður.

Sagt er að hann hafi fundið Hringina í gíg eða stolið þeim úr grafhýsi.

Þeir færðu honum guðlegan styrk

og veittu honum eilíft líf.

Hann hefði getað notað þá til góðs.

En það eina sem hann vildi

var meiri völd.

Hann kallaði her sinn Hringina tíu.

Öldum saman dreifðu þeir sér víða um veröld.

Þeir unnu í skuggunum...

felldu ríkisstjórnir...

og breyttu gangi sögunnar.

Hann eltist við meiri peninga og völd í þúsund ár.

En hann vildi samt meira.

Hefurðu heyrt goðsögnina um Ta Lo?

Falið þorp með töfraskepnum og fornum göldrum.

Þar sem fólkið iðkar bardagalistir guðanna.

Ég vil finna það.

Auðvitað, ég sendi menn að kanna svæðið

og kem aftur með nánari upplýsingar.

Ég vil fara núna.

Skógurinn...

hreyfist.

Það var ekkert eftir á jörðu fyrir hann að sigra.

Þá leitaði hann uppi heimilið mitt.

Hvar er inngangurinn að Ta Lo?

Þú ert óvelkominn í þorpið okkar.

Þú veist ekki við hvern þú talar.

Mér er sama hver þú ert.

Snúðu við núna og þá þarf ég ekki að meiða þig.

Var þetta allt og sumt?

Þetta var í fyrsta sinn sem ég hitti föður ykkar.

Ég bjóst alls ekki við því að falla fyrir slíkum manni.

En ástin hafði annað í huga.

Shang-Chi.

Þú þarft að læra meira um goðsögn Hringjanna

en þú gerir það þegar þú verður eldri.

Ef Hringir pabba eru svona máttugir, hvernig tókst þér að sigra hann?

Á mínum heimaslóðum fáum við styrk frá töfrum Verndarans mikla.

Þegar þú ert með hjarta drekans

geturðu gert ótrúlega hluti.

Geturðu enn gert þetta?

Ég skildi þá krafta eftir í Ta Lo hjá drekanum okkar

en það sem ég fékk í staðinn er miklu betra.

Ég vil að þú fáir þetta.

Hvenær sem þú ert vegvilltur

hjálpar þetta þér að rata heim.

Geturðu munað það?

Í DAG

Jæja.

SENT FRÁ MAKAÓ Í KÍNA

Sæll, herra. Velkominn á...

Ég keyri.

Þú gerir það ekki, Katy.

Heyrðu, komdu hingað.

Skilaðu lyklinum.

Opnaðu bílinn.

Guð minn góður.

Út með þig.

Komdu inn.

Ef hann skemmist verðum við atvinnulaus

og skuldug til æviloka.

Hættu. Ekkert kemur fyrir bílinn.

Ég er asíski Jeff Gordon.

Ég þekki hann ekki.

Sigursælasti NASCAR-ökuþórinn.

Komdu út úr bílnum.

Shaun.

Við höfum verið vinir í áratug.

Þú veist að ég er enginn asni.

Komdu í bílinn. Ég skal keyra hægt.

Katy, passaðu þig...

Ég sá strax í menntó að Katy væri vandræðapési.

Mér var strítt mikið af sömu ástæðum og okkur öllum.

Nýfluttur til landsins og átti erfitt með enskuna.

Dag einn, á leið í mat,

kallaði helmingi stærri gaur eftir ganginum:

"Hvað segir Gangnam Style?"

Ég svaraði: "Ég er ekki kóreskur."

Ég kom að og sá gaurinn kasta skólatöskunni

og abbast upp á hann.

Rétt áður en hann kýldi mig

birtist Katy skyndilega,

steig á milli okkar og öskraði textann við Hotel California.

Hvað?

Ruglingur virkar gegn heimskingjum.

Þannig kynntumst við.

Ég dró hann á bílaplanið.

Þá sagðist hún hafa stolið lyklunum að Mustangnum hans.

Við fórum á rúnt um hverfið.

Konan þín var með í bílnum.

Alveg rétt.

Hvað þá?

Ég sat í aftursætinu.

Það tilheyrir bílnum. -Algjörlega.

Því hef ég ekki heyrt það?

Hún var villt áður en hún varð lögmaður.

Hvað gerðist?

Ég fullorðnaðist.

Hvað áttu við?

Já, hvað áttu við?

Kannski kemur að því að þið hættið að rúnta svona

og reynið að nýta hæfileika ykkar.

Ertu að grínast, Soo?

Sko...

nú lifum við í heimi

þar sem helmingur mannkyns getur horfið skyndilega.

Lífið er of stutt og viðkvæmt.

Katy, þú ert bílastæðaþjónn með gráðu frá Berkeley

og Shaun talar fjögur tungumál.

Ég þekki enga hæfileikaríkari.

Hvers vegna eruð þið smeyk við að nýta það af einhverri alvöru?

Ja hérna.

Þú hljómar eins og mamma.

Og klæðir þig eins.

Er þetta úr Talbots?

Við flýjum ekki að fullorðnast.

Er það flótti að njóta starfsins?

Ekkert vit í þessu.

Heldur hún að þetta sé auðvelt?

Starfið er afar krefjandi. Við þurfum að kunna á fólk og bíla.

Soo kann ekki að leggja í stæði.

Næstum komið miðnætti. Við eigum morgunvakt.

Við ættum að sýna ábyrgð og fara í háttinn.

Við getum alveg verið ábyrg.

Eða...

EFTIRGLOPPUKVÍĐI? ÞIĐ ERUĐ EKKI EIN.

STUĐNINGSLÍNAN GLOPPUHJÁLP

Góðan daginn, frú Chen.

Hún er ekki tilbúin.

Fáðu kaffi á meðan þú bíður.

Katy, Shaun er kominn.

Alveg að koma, mamma.

Ruihua, þú átt að hjálpa pabba þínum á lagernum í búðinni.

Ég get ekki unnið á tóman maga. Þá fæ ég fótakrampa.

Shaun getur hjálpað til frekar en að borða hérna alla daga.

Ég hjálpa með ánægju.

Nei, það er verk Ruihuas. Hann sér um það.

Amma.

Þetta er sætið hans afa.

Afsakaðu.

Hann fær allt uppáhaldið sitt þetta árið á Qingming-deginum.

Má afi taka með sér lauksnakk og sígarettur í framhaldslífið?

Hann má taka hvað sem er.

Í fyrra lagði ég viskíflösku á leiðið hans.

Hún var horfin næsta morgun.

Ég veit að ykkur krökkunum þykir þetta kjánalegt.

Okkur þykir það ekki, amma.

En afi hefði viljað að þú héldir áfram og nytir lífsins.

"Að halda áfram" er bandarísk hugmynd.

Þú ert bandarísk, mamma. Mundu það.

Shaun.

Sótti dóttir mín um einhver ný störf í vikunni?

Hún er ánægð í starfi sínu.

Við erum það bæði.

Afi flutti ekki hingað frá Hunan

svo þú gætir lagt bílum.

Talandi um það, við erum að missa af strætó.

Afsakið óásættanlega starfið.

Og að ég skuli vaka lengi og njóta lífsins.

Þið verðið stolt einhvern daginn.

Ég er stoltur af þér.

Það er rosa erfitt að leggja bílum.

Takk, brói.

Kannski nærðu bílprófinu og lifir í draumi eins og ég.

Komdu, Shaun.

Hvenær ætlið þið að gifta ykkur?

Amma, við erum bara vinir.

Jæja. Farðu þá bara.

Sjáðu stelpuna þarna.

Hún skrifar ritgerð í strætó.

Hvað með það?

Svona dóttur vildi mamma fá út um píkuna á sér.

Afsakaðu hana.

Hvað er títt?

Fáðu mér hálsmenið

og enginn meiðir sig.

Þekkirðu þennan gaur?

Ég veit ekki hvað þú átt við.

Heyrðu! Slepptu mér!

Hvað er að, fíflið þitt?

Ég vil engin vandræði.

Fáðu okkur þá hálsmenið.

Þetta er rangur maður.

Sýnist þér hann geta slegist, brói?

Ertu ómeidd?

Hvað segið þið? Klev hérna

í beinni úr strætó.

Ég lærði smá sjálfsvarnarlistir þegar ég var yngri

og reyni að dæma þennan bardaga í beinni.

Fjandinn hafi það.

Hver ertu?

Þú getur þetta.

Mín mistök.

Nei, nei, nei!

Fyrirgefðu.

Hvað er í gangi?

Viltu ræða það núna?

More Icelandic subtitles for Shang-Chi and the Legend of the Ten Rings

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left