The first 200 lines.
Og sjá! Koopas konungurinn!
Opnið hliðið eða deyið!
Árás!
Þetta er forsmekkurinn af ofsa okkar.
Gefstu upp?
Ekki séns.
Nei.
Ég fann hana loksins.
Og nú getur enginn stöðvað mig!
Við erum Mario Bros Í píparaleik
SUPER MARIO BROS. PÍPULAGNIR
Þar fagmennskan ræður Erum ekki feik
Ef að allt stíflast hjá þér Hringdu í okkar símanúmer
Við erum sneggri en hinir Erum bræður og vinir
Þetta er-a ég, a-Mario!
Og-a Luigi!
Eruð þið þreytt á að borga of mikið fyrir pípulagnir?
Mamma mia!
Þess vegna eru Super Mario bræður hér.
A-til að bjarga Brooklyn. -Og-a Queens.
Og-a veskinu þínu.
Takk, Super Mario bróar.
Það eina sem þið virðist ekki hafa þurrausið er bankabókin mín.
A-gleymið dýru pípulagningafyrirtækjunum þar sem þið eruð bara andlit.
Því hjá Super Mario bræðrum eruð þið fjölskylda!
Bræður og vinir
Vá! Þú varst frábær.
Var ég frábær? Ertu að grínast? Þú varst frábær!
Ég er alsæll yfir að eyða ævisparnaðinum í auglýsinguna.
Þetta er ekki auglýsing! Þetta er listaverk.
Hvað um ýkta hreiminn? Er hann einum of?
Einum of? Hann er-a-fullkominn.
Va-hú!
Ágætt, ég ætla að treysta þér.
Hvað er að sjá.
Ef það eru ekki mestu lánleysingjar Brooklyn, Súru Mario-bræður.
Frábært. Spike er hér.
Hæ, Spike.
Já. "Þetta er-a ég!"
Já.
Segið mér, hafið þið fengið eitt einasta símtal
síðan þið hættuð hjá mér og stofnuðuð fyrirtækið?
Ja, satt best að segja, Spike, reyndar.
Vá, er það?
Já. Mamma okkar hringdi
og sagði: "Strákar, þetta er besta auglýsing sem ég hef séð!"
Og ég sagði: "Kærar þakkir, mamma. Við erum stoltir af henni."
Svo, búmm!
Gangi þér vel í rekstri með þessum hálfvita.
Segðu þetta aftur um bróður minn og þú munt iðrast þess.
Jæja?
Troddu þessu í litla heilann, Mario.
Þú ert brandari og þú verður það alltaf.
Ertu brjálaður?
Hann er þrefalt stærri en þú!
Luigi, hættu nú.
Þú getur ekki alltaf verið hræddur.
Þú yrðir hissa.
LEYNINÚMER
Halló, Super Mario bræður.
Einmitt.
Lekur kraninn hjá þér? Frábært!
Ég meina, frábært að þú hringdir í okkur
því við getum komið og lagað hann í hvelli. Einmitt.
Mario, við fengum verk!
Og Super Mario bræður taka til starfa!
Æ, nei. Við komum of seint.
Ekki satt. Komdu. Af stað.
Hey, bíddu.
Þessa leið.
Komdu, Lu. Drífðu þig.
Afsakaðu?
Gjörðu svo vel!
VEGUR LOKAÐUR
Mario. Hvað ertu að gera?
Hey! Burt með ykkur.
Þið megið ekki vera…
Mín mistök!
BLAUT STEYPA
Hypjið ykkur! -Afsakaðu.
Þetta er vinnusvæði! -Afsakaðu.
KASTALA BORGARI
Áfram, Luigi. Sprettu úr spori.
Ég reyni. Ég reyni.
Hnén eru léleg.
Ja hérna. Við duttum í lukkupottinn.
Lekinn er uppi við endann á ganginum.
Getið þið lagað hann? -Ég tel það víst.
Gætið þið þess að sóða ekki út?
Frú, ég fullvissa þig, við sóðum ekki út. Við hreinsum til.
Þetta er Francis.
Honum líkar við þig.
Hey.
Mamma, mamma, mamma elskar krúttið.
Lykil?
Og fyrsta verkinu er lokið.
Hey! -Hey!
Francis er hér.
Hey, lagsi.
Mario! Gerðu eitthvað!
Mamma mia!
Mario?
Vítishundurinn mun sleppa!
Vitleysa.
Heyrðu, Mario?
Hver er góður hvolpur?
Hver er góður strákur?
Fann vandamálið!
Mamma, gerðirðu þetta? -Vel heppnað, ha?
Því gerirðu það ekki svona?
Hey-ó!
Hey-ó!
Sjálfir Super Mario bræður úr sjónvarpinu!
Er veittur Óskar fyrir versta leikara?
Heyrðu! -Hvað gerði ég?
Svo allir sáu þá auglýsinguna?
Já. Við sáum hana. -Og?
Ekki hætta í dagvinnunni.
Úbbs! Hann gerði það samt.
Mér fannst hún alveg stórkostleg.
Hún á heima í kvikmyndahúsi.
Sveppir?
Allir elska sveppi, ekki satt?
Ég elska sveppi. Ég tek þá. -Já.
Mario, í alvöru. Hvað varstu að pæla með auglýsingunni?
Hvað? Hún átti að vera fyndin. -Vill einhver rétta brauðið?
Já, en hvað með gallana?
Píparar með hvíta hanska?
Hárrétt, maður þarf vörumerki til að skera sig úr.
Ekki hlusta á þá.
Heimurinn hló líka að da Vinci.
Ég efast um það, mamma.
Pabbi, hvað fannst þér?
Mér finnst þú klikkaður.
Þú hættir ekki í föstu starfi fyrir ruglaðan draum.
Og það versta? Þú dregur bróður þinn niður með þér.
Takk, pabbi.
Takk fyrir stuðninginn.
Hvað sagði ég?
ÉG ER BÚINN AÐ VERA!
Takk fyrir að stilla á Fréttastöð 4.
Hey.
Þú ert ekki að draga mig niður.
Veistu hvað?
Hvað vita þau, ha?
Það eru ekki bara þau.
Allt okkar líf hafa allir sagt að við getum ekki hitt eða þetta.
Ég er hundleiður á að virðast svo smár.
Aðalvatnsæð rofnaði neðanjarðar í dag
og stöðvaði jarðlestar og olli flóði í miðbæ Brooklyn.
Við höfum fulla stjórn á þessu, ég lofa því.
Viðgerðinni fer senn að ljúka.
Farið frá! -Stígið frá!
Sendið strax hjálp! Einhver bjargi Brooklyn!
Bjargi Brooklyn?
Luigi, þetta er tækifærið.
Lukkudísin kallar.
Dísa Del Vecchio úr menntó?
Hvað? Nei! Komdu bara.
Leitaðu að renniloka, ha?
Götuholræsin ráða ekki við þetta.
Fljótir, við verðum að dæla.
Málinu reddað.
Þeir leita ekki á réttum stað.
Komdu, Lu.
Þú ert þó ekki í alvöru að íhuga…
Mario!
Við verðum að komast að þrýstilokanum.
Mamma mia!
Mario!
Ég vissi að björgun Brooklyn væri slæm hugmynd.
Komdu.
Hvaða staður er þetta?
BORÐ 1-2
Það virðist enginn hafa verið hérna lengi.
Luigi?
Luigi, ertu þarna inni?
Luigi?
Hvað?
Luigi!
Mario!
Réttu mér höndina!
Þetta verður allt í lagi.
Hvernig verður þetta í lagi?
Í alvöru, ekkert getur meitt okkur svo lengi sem við erum saman.
Mario!
Luigi!
Ekki snerta sveppinn! Þú deyrð!
Afsakaðu. Þessi er í fínu lagi.
Þetta er lítill sveppakall. Já, lítill sveppakall talar við mig.
Gaman að kynnast þér. Ég er Toad.
Mario.
Svo þetta er…
Þetta er þá ekki draumur?
Var þetta sárt? -Já!
Pottþétt ekki draumur.
Þá er þessi staður…
Sjálft Svepparíkið!
Sveppir? Jæja?
Það er grimm örlagagletta.
No comments yet. Be the first to leave one.