The first 200 lines.
ÞÁTTARÖÐ ÚR SMIÐJU NETFLIX
Sæll, aumingi.
Sæl, Slæma Janet. Hvernig hefurðu það í dag?
Hræðilegt.
Ég kom til að láta þig vita að eftir sex mánaða fangavist
hér í vídd Góðu Janetar er dagurinn í dag sá síðasti.
Ég ætla að segja þér sögu.
Þegar því er lokið losa ég mig við þig.
Hljómar eins og einhver hafi loksins farið í djöflabuxurnar.
Hvaða saga er þetta?
Enn önnur tilraun þín til að sanna
að manneskjur séu "góðar" og "verðskuldi virðingu"
og ekki "hlunkar af saur"?
Eitthvað í þá áttina.
Ertu tilbúin?
Smávegis áður en þú byrjar...
45. KAFLI
Vá, þetta endist.
Er þetta sagan þín? Virðist leiðinleg.
Þessi bók er hluti af sögunni. Þú munt sjá.
Þetta hófst allt fyrir viku.
Við höfðum sent manneskjurnar fjórar í skíðaferð...
Og þær skíðuðu fram af kletti og brutu hvert bein í líkamanum
og buxurnar fóru niður og maður sá rassinn á þeim. Endir.
Reyndar fór þetta betur en við hefðum getað vonað.
Jæja, ég viðurkenni það. Ég hafði rangt fyrir mér.
Þetta var rosagaman!
Já! Ég gat ekki farið á skíði
því að hreyfing í halla hræðir mig,
en það voru svo mörg afdrep þar til að lesa.
Bara hvert sem litið var.
Auk þess leiddi Jianyu okkur í þessari frábæru hugleiðslu.
Viljið þið deila möntrunni ykkar?
Mín er Cate Blanchett að segja: "Rihanna."
Aftur til hamingju með sigurinn í rommíinu.
Ég hélt að ég myndi vinna þig
því ég var alltaf spilandi á skólaárunum.
Varst þú ekki í Rutgers?
Nei, ég var í Princeton.
Já, ég veit. Ég er bara að rugla í þér.
Flott. Þú varst samt að grínast, er það ekki?
Þú veist að það var Prince... Já, þú veist.
Vel gert, öll.
Þau standa sig öll vel, en Brent hefur tekið mestum framförum.
Já, þegar Simone vann hann í spilum velti hann ekki borðinu og rauk burt.
Hann rauk bara burt. Það er stórt.
Við vitum ekki enn hvort hann hefur í alvöru breyst
eða hvort hann er bara að reyna að komast inn í "Ofurhimnaríki".
En hegðun hans hefur breyst.
Munið, það er leiðarvísirinn.
Fyrst breytum við hegðuninni, síðan vinnum við að hvatanum.
Og núna...
stundin sem við höfum öll beðið eftir.
Verðlaun sem Mannkynsbjargvættur vikunnar fær...
Jason!
Já!
Haltu áfram þessari frábæru vinnu með Chidi.
Og verðlaun sem kynþokkafyllsti bjargvættur vikunnar fær...
Eleanor Shellstrop!
Þakka þér fyrir, ég tek við þeim.
Ég er aldrei "kynþokkafyllstur".
Ég veit ekki hvað ég get sagt þér.
Kannski að fara í ræktina. Hressa upp á líkamann.
Þetta var algjör hápunktur.
Skíðaferðin, ekki svindlkeppnin um kynþokkann.
Okkur hafði aldrei liðið betur með tilraunina.
Og svo gerði Brent nokkuð...
mjög brentískt.
Hver hefði getað séð það fyrir?
Hei, skíðadúllur.
Frábærar fréttir.
Ég skrifaði bók og þar sem þið eruð lúðalegustu vinir mínir
fáið þið að lesa hana fyrst.
"Sex fetum undir pari: Ráðgáta með Chip Driver."
Já. Þetta er að hálfu njósnasaga, að hálfu morðgáta.
Líka að hálfu kafbátaævintýri, að hálfu erótískar minningar
og að hálfu pólitísk spennusaga.
Hún er líka að hálfu golfkennsla og að hálfu athugasemdir um samfélagið.
Eru þetta þá þrjár og hálf bók í einni?
Að minnsta kosti. Svo lesið hana snöggvast.
Ég verð með áritunarveislu og ég vil að þú kynnir mig.
Talir um hve frábær ég er.
Veislan er eftir tvo daga, svo drífið ykkur.
Tahani. Afboðaðu áform þín.
Við ætlum að deila vínflösku og lesa hræðilega bók Brents upphátt.
Drottinn minn.
Við ættum kannski ekki að gera grín.
Hann virtist ljúfari í skíðaferðinni.
Hann útbjó sykurpúðasamlokur fyrir okkur.
Sagðist reyndar líka hafa fundið þær upp.
Áður en þú verð hann ættirðu kannski að skoða ástarmál Chips Driver.
Ó, nei.
"Hún hét Scarlett Pakistan
og var þannig stelpa sem maður gat ekki tekið alla í einu, annars dæi maður.
Maður varð að taka henni í bútum, eins og frábæru listaverki,
eins og Louvre."
"Brún augu hennar voru eins brún og brúnasti vaxlitur.
Hún var með leggi eins og Jessica Rabbit úr myndinni."
"Langir, flaksandi lokkarnir ilmuðu eins og tunglið í ljósaskiptunum á par fjögur.
Mér þykir þetta leitt.
Ég hef þolað verra.
Einu sinni, í afmælisveislu Elons Musk,
sat ég á milli Silvio Berlusconi og Elon Musk.
Þetta er slæmt.
Brent og Simone er erfiðasta sambandið okkar.
Hún á það til að fella illa ígrundaða dóma um fólk
og hann er maður sem ítrekað staðfestir dóma hennar.
Við þurfum að fá hana til að trúa að Brent sé betri en verstu gjörðir hans.
Eins og að segja að Tahani "hafi hreim eins og Englandsdrottning,
en án hinna öldruðu ógeðslegu andlitshluta."
Okkur fannst við geta ráðið við leiðindin út af bók Brents.
En eins og oft er með svona
fór það neikvæða að dreifa úr sér.
Eins og þegar einhver ælir í rútunni
og síðan finnur einhver lyktina og ælir?
Já, vissulega.
Hvað er að, vinur?
Brent skrifaði þessa bók og hafði sum okkar augljóslega í henni.
Það er huglaus persóna sem kallast Gleraugna-Glámur,
sem "notar gleraugu og klæðist vestum
og gerir aldrei neitt af fingrum fram eða flott."
Ég er að kenna ykkur siðfræði. Hvað er flottara en það?
Ef þú vilt prófa eitthvað af fingrum fram er ég þinn maður.
Næstum allt sem ég gerði á jörðinni gerði ég án umhugsunar
eða án þess að hafa áhyggjur af hvað myndi gerast.
Þannig fékk ég viðurnefnið mitt, Sakborningurinn.
Ekki bestu rökin, en þú hefur rétt fyrir þér.
Hvað er eitthvað af fingrum fram sem ég get gert núna?
Búum til lista með tíu möguleikum
og skerum hann svo hægt niður á næstu fjórum dögum.
Betri hugmynd, dönsum, vinur.
Ekki ofhugsa hlutina.
Svona sigrum við Glám, leiðinlega lúðann.
Já.
- Sjáðu gamla Glám dansa. - Þarna.
Ég hef aldrei heyrt þetta áður Hver er þetta?
Ég. Ég samdi þetta. Lagið heitir "Ég mun ávallt elska þig,"
undirtitill, "Láttu bossann dúa í baðinu."
Skemmtileg staðreynd, lögreglusírenurnar í bakgrunninum eru alvöru.
Ég var eltur þegar ég tók þetta upp.
Allt í lagi. Nei...
Gaga mín góð.
Augljóslega var þetta óþægileg framvinda.
Geturðu bara hoppað yfir í endann?
Nei. Ég þarf að segja þér alla söguna.
Af hverju? Allar sögur um manneskjur enda á sama veg.
Segðu mér bara hvernig þau klúðruðu og losaðu mig undan þjáningunni.
Þú ert of fljót að dæma þau.
Treystu mér, ég hef varið mun meiri tíma með fólki en þú.
Og ég veit bókstaflega allt sem hvert og eitt þeirra hefur gert.
Veistu hvað er að gerast núna á jörðinni?
Stríð, morð, konur í 400 dala jógabuxum neita að bólusetja börnin sín.
Hefnigjarnir lúðar hjá Apple eru að breyta lögun hleðslusnúranna aftur.
Hvaðan kemur þessi von, maður?
Þessi klikkaða von um að fólk sé ómaksins virði.
Til að vitna í hræðilegt lag
eftir hræðilegan tónlistarmann sem fólk dýrkar svo mikið
að það setur lagið stöðugt í hræðilegar kvikmyndastiklur,
manneskjur eru "s-slæmar inn að beini."
Jæja, ég tel þær g-góðar stundum
og þú ættir að leyfa þeim að n-njóta v-vafans.
Jæja...
Hvar var ég?
John hafði fyrir slysni uppgötvað sannleikann um Jason.
Að varðveita svona leyndarmál er einmitt
það sem John átti í basli með á jörðinni.
Eða til að umorða svo þú skiljir, slúðurklóið var alveg að yfirfyllast.
Ég skil það núna. Þakka þér fyrir.
Þannig að Jianyu er í alvöru Jason frá Flórída?
Hverjir fleiri vita um þetta?
Er það bara ég? Er þetta leyndarmál?
Já, og við verðum að halda því þannig.
Ef sannleikurinn kemur í ljós vitum við ekki hvað kemur fyrir Jason.
Þú veist ekki hvað þú ert að biðja mig um.
Hverfið er augljóslega meiriháttar,
en það er líka smávegis eins og "þáttaröð 4 af Downton Abbey."
Fallega hannað, en mjög leiðinlegt.
Að Jason sé mistök
er það mest spennandi sem hefur gerst síðan við komum hingað.
Hvað ef, í staðinn fyrir þagmælsku þína kenni Jason þér
Magic Mike mjaðmahreyfingarnar?
Þú sagðir alltaf að þig langaði til að læra þetta.
Jæja þá.
En ég vil læra allan dansinn.
GÓÐU DISKARNIR
Við vonuðum að Simone myndi gleyma öllu um bók Brents,
en því miður...
"Chip Driver kom á morðstaðinn á 1968 árgerðinni af Cadillac.
'Hafðu hann nærri, ' urraði hann á bílastæðisþjóninn, Luis.
'Auðvitað, señor , ' sagði Luis,
sem í laumi dáðist meira að Chip en sínum eigin föður."
"Chip leit á kynþokkafullar útlínur fórnarlambsins á gólfinu.
'Þvílík sóun á línum, ' urraði hann.
Hann leit á Rolex-úrið sitt, sem var ekta.
Klukkan var næstum golf svo málið varð að bíða.
Gott að hann hafði þegar leyst það.
Morðinginn var Luis, bílastæðisþjónninn."
Hann leysir morðgátuna á blaðsíðu tíu. Um hvað er restin af bókinni?
Hvernig gengur, dömur?
Bara að sökkva okkur ofan í frábært bókmenntaverk.
No comments yet. Be the first to leave one.