The first 200 lines.
Ég gerði eitt ferlegt.
Ætlarðu að segja mér það eða á ég að giska?
-Nefndi ég að Marnie sefur nakin? -Ekki við mig.
Hún skríður ber upp í rúm bara til að fara að sofa.
Audra sefur aldrei nakin.
Nei. Audra er bara nakin í algjörri neyð.
Í sturtunni. Eða ef ég klæði hana úr við kynmök.
Viltu ræða það eða það slæma sem ég gerði?
Ég vil heyra það slæma. Þú fórst að ræða konuna þína.
-Ég notaði það. -Ekki hliðarspor.
-Það er skylt. -Gott.
Það ætti ekki að koma á óvart
að kynlíf minnkar mikið þegar börn eru komin.
Síðan börnin fæddust höfum við átt mök kannski 12 sinnum.
-Þitt elsta er 11 ára. -Ég veit hve gömul börnin eru.
-Kannski 24 eða 36. -Þrátt fyrir það, 36 sinnum á 11 árum.
-Er það 3,3 sinnum á ári? -Hættu að reikna.
Mikilvægast er að Marnie hefur engan áhuga á að ríða mér.
-Reynirðu að koma henni í stuð? -Gaur, ég er orðinn svo þreyttur.
Það hefði verið eitt ef hún hefði fitnað.
Þá riði ég henni ekki mikið, en hún lítur vel út.
Finnur tíma til að fara í æfingatæki. Má ekki vera að því að fara í mig.
-Eða hefur girnd. -Já. Þess vegna reyni ég að njóta
kynlífs með Audru á meðan við reynum að verða ófrísk.
Njóttu þess, því við gerðum það sjö kvöld í viku.
Ég held að þið gerið það vikulega, svo þegar Audra verður ófrísk
kemst þú næst á hana þegar krakkarnir fara í háskóla.
Ég varð ófrísk eftir fyrsta kærasta minn á þriðja ári í miðskóla.
Þá ert það ekki þú. Noel er með lélegt sæði.
Ekki endilega. Kannski var Greg með ofursæði.
-Þú varðst ófrísk og fórst í fóstureyðingu. -Nei, ég gerði það ekki.
Áður en ég þorði að segja foreldrum mínum missti ég fóstrið.
Það var heppilegt. Þú eignaðist ekki barn á þriðja ári í miðskóla?
Þú slappst við kúlu.
Greg baðst til að kvænast mér 17 ára. Lífi mínu hefði verið lokið.
Hann hefði verið ferlegur faðir.
Noel er hins vegar dásamlegur og yrði magnaður pabbi.
-Ef hann væri ekki með lélegt sæði. -Við vitum það ekki.
Hvað fyndist honum ef hann vissi að óléttunni?
Það væri slæmt. Það átti að vera lokað inni.
Pör þurfa leyndarmál.
Segðu mér frá því slæma sem þú gerðir.
Í gærkvöldi þegar ég lagði til atlögu slökkti hún á mér eins og áður.
Veltir sér á hina hliðina, fer að sofa. Ég ligg með hann reiðan og þrútinn
og fer að strokka þarna í rúminu við hliðina á henni.
Ég er argur.
Ég er fúll. Ég tuldra eitthvað andstyggilegt um hana.
-Vaknar hún ekki? -Nei, hún sefur vært.
Þegar ég er að fara að blása fer ég á hnén og losa yfir brjóstin á henni.
-Ó, guð. -Ég var bara þar og horfði á hana.
Brosti breitt.
Svo fór ég inn á bað og náði í rakt þvottastykki,
kyssti hana á ennið, þreif hana.
Hún veit ekki að það hafi gerst.
-Pete, þetta er verulega slæmt. -En ég naut þess.
Ég var alveg í skýjunum á eftir.
Hjónaband mitt er hundrað sinnum betra í dag en það var í gær.
Kannski er ég skrímsli. Ég saurgaði konu mína.
Besta tilfinningin í marga mánuði.
-Annan bjór? -Já, alla vega einn enn.
-Taktu koddann. -Lyfta.
Allt í lagi.
Ég var að hugsa að við ættum að bjóðast til að passa fyrir Pete og Marnie.
Af hverju?
Ég held að Marnie sé ánægð með barnfóstruna.
Nei, ég átti við heila helgi.
Svo þau geti farið eitthvert ein.
-Sagði Pete eitthvað við þig? -Um hvað?
Um hve mikið kynlíf þau stunduðu?
-Áttu við hve lítið? -Um að þau stundi ekki kynlíf?
-Hvað sagði Marnie við þig? -Hvað sagði Pete við þig?
Við ættum líklega ekki að ræða þetta.
-Allt í lagi. -Já.
Ég hélt þau hafi gert það oft áður en þau áttu börnin
og það hefur verið mikil breyting.
Þú meinar að af því við gerðum það sjaldan til að byrja með,
þá tækjum við síður eftir ef við hættum?
-Já. Ég er einmitt að segja það. -Gott og vel.
-Ég elska þig. -Ég elska þig líka.
Harriet, hvað er að gerast hér?
Það er ekkert að gerast.
Hvað varð um hamingjusama heimilið?
Ertu ekki hamingjusamur?
Marnie, ertu vakandi?
Viltu hjálpa mér að leggja á borð?
-Marnie? -Nei, ég get það.
-Hvað? Allt í lagi. -Marns.
-Ég vil ekki deila um það. -Ég er ekki að því.
Ekki ég heldur. Ég er bara að reyna að eiga samtal.
Hafðu það eins og þú vilt.
Auðvitað geri ég það. Þannig á það að vera.
Eiginmaðurinn og faðirinn á að vera höfuð heimilisins.
Auðvitað. Þannig hefur það alltaf verið.
Fjandinn.
-Er allt í lagi? -Já.
Ekki sýnist mér það.
Hef ég ekki nefnt Holly við þig?
-Holly. -Herbergisfélaga úr háskóla.
Alveg rétt. Holly.
Sem þér sinnaðist við yfir einhverju heimskulegu?
Yfir einhverju heimskulegu.
-Sagði ég það? -Ég held það.
-Er hún dáin? -Nei. Af hverju segirðu það?
Fyrirgefðu. Þú ert þannig á svipinn
að þú hafir komist að því að einhver sem þú hefur ekki talað við sé nú dáinn.
-Er það sérstakur svipur? -Þú ert með hann.
Eða mjög líkan svip. Þetta er hann.
Hún er lifandi. Hún sendi mér skilaboð á Facebook.
-Hvað skrifaði hún? -„Fann þig hér fyrir nokkru.
Hugsaði um að senda vinabeiðni. Ákvað að fylgjast bara með þér.
Vonandi hefurðu það gott og hatar mig ekki enn.
Ég verð í grennd við þig í viðskiptaferð og langar að hitta þig. XO, Holly.“
„XO“? Það virðist ekki vera neinn illvilji hjá henni.
Við höfum ekki talað saman í 12 ár.
Um hvað rifust þið?
-Var það strákur? -Nei.
Hún var bara aðeins of villt og frjálslynd fyrir mig.
Ætlarðu að bjóða henni?
Nei.
-Ertu ekki forvitin um hana? -Nei.
Ég gerði það aftur.
-Hvað er eiginlega að? -Ég veit það ekki.
Kannski ég haldi bara framhjá eins og aðrir karlar.
Ekki halda framhjá og ekki runka þér á hana.
-Þú getur trútt um talað. -Ég get trútt um talað.
Ég get alveg sagt þér að það sé engin sviðsmynd
þar sem má runka sér yfir sofandi eiginkonu.
Flestir ef ekki allir kvæntir karlar lenda í kynferðislegri gremju.
-Eðlilegt. -Já.
Og sjálfsfróun dregur úr gremjunni.
Af einhverri ástæðu
hverfur hún næstum við að runka mér yfir sofandi konuna.
Hvað sem kvæntur maður getur gert til að bæta hjónabandið...
án þess að meiða makann, ætti að vera í lagi.
Sumir skilgreina það sem þú gerir sem kynferðisbrot.
Fjandinn hirði þá. Þeir vita ekkert um þetta.
Hún lofaði að taka, eiga og halda.
Ertu að segja að það dekki þetta ekki?
Já, ég er að segja þér það.
Allt í lagi.
Sjáðu til. Ég veit að það er á mörkunum.
En aðrir fá ekki að ákveða hvað er ásættanlegt í hjónabandi mínu.
-Við Marnie ákveðum það. -En hún veit ekki að þú brundar á hana.
Einmitt, og ef hún vissi það, yrði hún kannski sátt.
Hún gæti talið það betra en mök við mig,
eða að fá skilnað eða að ég haldi framhjá.
-Er það? -Já.
Hefurðu hugleitt að halda framhjá Audru?
Áttu við að ég ímyndaði mér að ríða annarri konu,
eða hugsaði um að gera það í alvöru?
-Hugsaðir um það. -Nei, aldrei.
Kannski Marnie haldi framhjá mér. Þess vegna kannski vill hún það ekki.
Kannski fær hún allt sem hún þarf annarsstaðar.
-Þú veist að það er ekki satt. -Ég veit ekkert.
Í alvöru.
Heldurðu að þú vitir hvað einhver hugsar eða gerir þegar þú fylgist ekki með?
Heldurðu það í alvöru?
Þú veist ekki neitt.
Förum burt um helgina. Ökum eitthvert eða fljúgum til Vegas.
Því við ætlum að verða ófrísk og það gerir slíkt mun erfiðara.
Það er falleg hugmynd.
Ég held ég hafi skipt um skoðun.
Hvað, varðandi óléttu?
Nei, nei. Auðvitað ekki.
Afsakaðu. Um að hitta Holly.
Hún er í bænum um helgina og mér datt í hug
að bjóða henni heim á laugardaginn.
Já, það er fínt.
-Ég sendi henni þá skilaboð. -Þú ættir að gera það.
Sjáumst á laugardag.
Þá er það ákveðið.
Heyrðu.
Noel, ég þarf að tala við þig.
-Heyrðu. -Hvað?
Eitt þarftu að vita um Holly.
-Hvað, núna? -Já, gerðu það.
Allt í lagi.
-Á ég að kveikja? -Nei, nei, það er í lagi.
Hvernig á ég að segja þetta?
Í háskóla gerir fólk hluti sem það gerði ekki annars.
Það er í fyrsta sinn sem maður ræður ferðinni.
Maður getur farið að...
Við Holly gerðum tilraunir með...
Við lékum okkur.
Kynferðislega. Við gerðum ýmislegt.
Er allt í lagi?
Stundaðir þú kynlíf með herbergisfélaga?
Það var einu sinni.
Einu sinni.
Það gerðist fimm eða sex sinnum.
Í alvöru?
Svo ólíkt mér. Ég veit ekki hver það var.
Háskóla.
-Konan mín átti lesbískt ævintýri. -Já.
-Audra. -Ég veit.
-Audra átti lesbískt ævintýri. -Af hverju segirðu það svona?
Ég er bara hissa. Ég er mjög, mjög hissa.
Er hún lesbía?
Ekki lesbía. Við vorum bara... vinkonur.
Audra Dinwiddie.
No comments yet. Be the first to leave one.