Gattaca

Gattaca

Download Icelandic Subtitle

Release info

Gattaca 1997 NORDiC 1080p BluRay TrueHD x264-ALG
A Commentary by 8680

Tags

BluRay
x264
1080
HD
Published on: 2019-04-07
Downloads: 50
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

"Skoða þú verk Guðs"

"Hver getur gjört það beint, er hann hefir gjört bogið?" Prédikarinn 7:13

"Ég held ekki aðeins að við munum breyta móður náttúru,

ég held að hún vilji það." Willard Gaylin.

Velkomin til Gattaca.

Í NÁINNI FRAMTÍÐ

Þú heldur vinnuborðinu þínu svo hreinu.

- Það er næstum himneskt. - Himneskt...

Ég fór yfir flugáætlunina þína. Milljón slög og engin villa.

Einstætt. Það er rétt að þinn líki fari með okkur til Títan.

Hefur nefndin samþykkt förina? Það er talað um seinkun.

Hlustaðu ekki á slúður. Þið farið eftir viku.

Þú þarft að fara í lyfjapróf.

Þeir sem fara eiga í lyfjapróf, gefi sig fram í prófstöðinni.

Jerome. Aldrei feiminn. Mígur eins og mælt er fyrir.

- Þú ert með fallegt tól þarna. - Þú segir mér það í hvert sinn.

Þetta er til trafala. Ég sé ansi mörg í minni vinnu.

Þitt er bara alveg sérstakt.

Því pantaði fólkið mitt ekki eitt svona handa mér?

GILDUR MORROW, JEROME

- Hef ég sagt þér frá syni mínum? - Nei.

Minntu mig á það, einhvern tíma.

Svo þú ert að fara í loftið. Eftir eina viku.

Segðu mér nú að þú sért svolítið spenntur.

Ég segi þér það í lok vikunnar.

Til hamingju, Jerome.

Þakka þér fyrir.

Hvað eru mörg skot á dag? Um það bil tólf?

Stundum fleiri.

En þú fylgist með þeim öllum.

Ef þú ætlar að láta eins og þér standi á sama, horfðu þá ekki upp.

Afar ómerkilegur atburður.

Jerome Morrow, úrvals geimfari, er um það bil að leggja af stað

í eins árs mannaðan leiðangur til Títan, 14. tungls Satúrnusar.

Þetta mikils virta verkefni var ætlað Jerome frá fæðingu.

Hann hefur allt sem til þarf.

Gen hans eru einstök.

Það er ekkert sérstakt við velgengni Jerome Morrow.

Nema að ég er ekki Jerome Morrow.

Ég var getinn á baðströnd. Ekki frönsku Rivíerunni.

Þeirri í Detroit.

Fyrrum var sagt að barn sem væri ávöxtur ástar væri hamingjusamara.

Það er ekki sagt lengur.

Ég veit ekki afhverju móðir mín treysti á Guð

frekar en næsta erfðafræðing.

Tíu fingur, tíu tær, það eitt skipti máli þá... Annað en núna.

Á fyrstu sekúndum lífs míns

var dánarorsök mín þegar þekkt.

60% líkur á taugaveiklun, 42% líkur á þunglyndi.

89% líkur á skertri athyglisgáfu, hjartagalli...

...99% líkur. Líkur á ótímabærum dauða.

- Lífslíkur: 30,2 ár. - 30 ár?

- Nafnið á vottorðið? - Anton.

Nei. Vincent Anton.

Það er gott nafn.

Ég veit að hann mun gera eitthvað. Þú færð einhverju áorkað.

Fljótlega leit ég á mig á sama hátt og aðrir. Sem sífellt veikan.

Hver skráma og minnsta kvef voru talin lífshættuleg.

Tryggingarnar neita. Ef hann dytti...

- En mér var sagt að allt væri... - Ég get ekkert gert.

Eins og flestir foreldrar þá, vildu þau að næsta barn

yrði getið á þann hátt sem nú þykir eðlilegur

Eggin sem við tókum úr þér, Marie,

hafa verið frjóvguð með sæði úr Antonio.

Við höfum valið tvo hrausta stráka og tvær mjög heilbrigðar stúlkur.

Þau eru ekki móttækileg fyrir neinum arfgengum sjúkdómum.

Við skulum velja það hæfasta.

Hvort kynið viljið þið?

Við myndum vilja að Vincent eignaðist bróður til að leika við.

- Auðvitað. Halló Vincent. - Hæ.

Þið hafið tekið fram brún augu, dökkt hár og... ljósa húð.

Ég hef komið í veg fyrir skaðvænlega þætti:

Skalla á unga aldri, áfengissýki,

tilhneigingu til ofbeldis, offitu.

Við vildum ekki... Sjúkdóma, já, en...

Við viljum láta tilviljunni eitthvað eftir.

Gefið barninu ykkar bestu byrjunina. Við erum nógu ófullkomin fyrir.

Barnið ykkar þarfnast ekki fleiri erfiðleika. Það er samt þið.

Bara það besta af ykkur.

Getnaður gæti átt sér stað 1000 sinnum, án þessarar útkomu.

Þannig varð Anton til.

Sonur verður nafns föður síns.

- Ég er stoltur af þér, strákur. - Sjáðu hvað hann hefur stækkað.

Þegar við fórum í blóðbræðraleik,

áttaði ég mig á því að blóð mitt var öðruvísi en Antons.

Ég þyrfti mun meira en einn dropa ef ég ætlaði að komast áfram.

Fórum í uppáhaldsleikinn okkar Þegar foreldrar okkar sáu ekki til

syntum við eins langt út og við þorðum,

þar til annar okkar varð hræddur og sneri við.

Áfram með þig, rolan þín!

Auðvitað var það alltaf ég.

Anton var betri sundmaður og hafði enga afsökun fyrir að tapa.

300 milljónir, 350 milljónir, 400 milljónir.

Kannski var það ástin á plánetunum eða óbeit mín á þessari,

en frá því að ég man eftir mér hefur mig dreymt um geimferðir.

750 milljónir, 800 milljónir, 850 milljónir.

Hvað eru til margir geimfarar? Ég gæti orðið geimfari ef ég vildi.

Ekki borða það. Þetta er Plútó.

Markmið mín breyttust lítið næstu árin.

- Vincent. - Foreldrar mínir voru ekki ánægðir.

Vincent.

Vertu raunsær. Með hjarta eins og þitt...

Það getur verið að það sé í lagi.

Líkurnar eru einn á móti hundrað.

- Ég tek þá áhættu. - Þeir gera það ekki.

Þú verður að skilja eitt.

Þú kemst bara um borð í geimfar til að þrífa.

Það var rétt. Ég laug á starfsferilsskránni minni.

En genin komu upp um mig.

Því eyða peningum í að þjálfa mig

þegar það eru 1000 aðrir umsækjendur með betri umsögn.

Það er ólöglegt að mismuna. "Genamisrétti", er það kallað.

En enginn tekur þau lög alvarlega.

Ef maður neitar að fara í prufu, taka þeir sýni frá hurðarhúni

eða af handtaki. Jafnvel af munnvatni á umsókninni.

Löglegt lyfjapróf getur orðið að

ólöglegum gægjum inn í framtíð manns hjá fyrirtækinu.

Viltu í alvöru gera þetta? Þú veist að þú munt tapa.

Þetta var í síðasta sinn sem við syntum saman. Út á opið haf.

Vitandi að hvert sundtak

yrði endurtekið á leið að landi.

En eitthvað hafði breyst. Í hvert sinn sem Anton ætlaði framúr

fylgdi ég honum fast eftir.

Þar til loks hið ómögulega gerðist.

Vincent!

Í fyrsta sinn á ævinni var Anton ekki eins sterkur og hann hélt

og ég ekki eins máttlítill. Þetta gerði allt annað mögulegt.

Eins og aðrir í mínum sporum fór ég um og vann þar sem ég gat.

Ég hef örugglega þrifið flest klósettin í fylkinu.

Lágstéttin afmarkaðist hvorki af félagslegum aðstæðum né litarhætti.

- Velkomnir til Gattaca, piltar. - Mismunun er vísindi í dag.

Þarna eru hreingerningaráhöldin. Byrjið hér og þrífið út á enda.

Ég vil geta séð bros mitt speglast í gólfinu.

Draumar um geiminn, Yðar Hátign?

Komdu hingað.

Byrjaðu á að þrífa þennan geim.

Ég var aldrei fjær markmiði mínu en þegar ég stóð hjá því.

- Þrífðu glerið nú ekki of vel. - Hvað áttu við?

Þú gætir fengið rangar hugmyndir.

Ef glerið er hreint, sést ég betur þegar ég verð kominn hinum megin.

HNATTSIGLINGAFRÆÐI

Þetta var bara froðusnakk. Það var sama hvað ég las,

heimsins bestu einkunnum þurfa að fylgja góðar blóðprufur.

Ég þurfti að ganga mjög langt.

Maðurinn sem kom auglýsti ekki beint á Gulu Síðunum.

Stattu beinn.

- Hvar heyrðirðu um mig? - Hér og þar.

Einhver sérkenni? Húðflúr, ör, fæðingarblettir?

Nei.

Er þér alvara með þetta? Ég vona að þú sóir ekki tíma mínum.

- Ég legg mig allan í þetta. - Það kemur þér hálfa leið.

Þetta er gömul útgáfa, en ég kann þetta utanað.

- Samningurinn er bindandi. - Ertu með einhvern í huga?

Þeir sem eru í úrvals genahópnum eru ekki öruggir um velgengni.

Ekkert gen ræður örlögunum.

Og þegar einhver í úrvalshópnum á við erfiðleika að stríða,

verða gen þeirra dýrmæt vara.

Eins manns dauði er annars brauð.

Hann hefur fullkomin meðmæli. Ótrúlegar lífslíkur.

Hann er næstum ódauðlegur. Greindarvísitalan slær skalann út.

Sjónin er betri en fullkomin. Sterkt hjarta.

Gæti hlaupið gegnum vegg.

Ef hann gæti ennþá hlaupið.

Hann var mikil sundhetja.

Þér eru allir vegi færir með erfðaefni þessa manns í farteskinu.

- Þið eigið fullkomlega saman. - Við erum ekkert líkir.

Enginn lítur á myndir í dag. Þú gætir eins haft mitt andlit.

- Hvernig útskýri ég slysið? - Það átti sér stað í útlöndum.

Enginn veit af hryggbrotinu.

Hann er ennþá virkur borgari.

- Þú býrð til einhverja sögu. - Þú ert útlendingur.

Þeim er sama hvar þú ert fæddur. Blóð hefur ekkert þjóðerni.

Ef það hefur það sem þeir vilja, þarftu ekki annað vegabréf.

- Hver býr þarna uppi? - Svo sannarlega ekki ég.

Ferli umbreytingarinnar hófst.

Nærsýni er eitt gleggsta merkið um óhagstæða fæðingu.

- Er engin önnur leið? - Uppskurður skilur eftir sig ör.

Annað hvort linsur eða hvítur stafur.

- Auk þess er liturinn ekki réttur. - Það er rétt.

Ég hef fallegri augu.

Ég tek 25% af öllu sem þú þénar.

Ef þetta mistekst, verður að skila öllum tækjunum innan sjö daga.

- Og þú tapar fyrirframgreiðslunni. - Bíddu! Þú sagðir 20%.

- 20%. - Það er ekki til umræðu.

- Ég held þetta sé þá komið. - Nei. Hæðin er ennþá vandamál.

- Hversu hár ertu? - 137 cm.

Hversu hár varstu fyrir slysið?

- Hann er sagður vera 183 cm. - Ég get notað innlegg.

Engin innlegg gera þig ekki svo háan.

Hvað gerum við þá?

Nei...

- Við töluðum aldrei um það. - Ég hélt þér væri alvara.

Mér er það. Ég geri það ekki.

Nei.

Nú vissi Jerome að mér var alvara.

Ég þoldi sársaukann af því ég vissi að þegar ég stæði upp,

yrði ég fimm sentímetrum nær stjörnunum.

- Er allt í lagi með þig? - Já.

Viltu koma út að dansa?

Þú hlaust að vera rétthentur. Það pantar enginn örvhenta lengur.

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left