Huss

Huss

Download Icelandic Subtitle

Season 1

Release info

Huss S01E04 MultiSub 720p WEB x265-StB
A Commentary by myloc

Tags

web
720p
720
x265
Published on: 2021-04-09
Downloads: 14
Hearing Impaired: No

Icelandic subtitle preview

The first 200 lines.

Mig langar að fara yfir hvað gerðist á milli kl. 14 og 14.20.

Ég er búinn að segja ykkur allt.

Það eru atriði í skýrslu þinni

sem ríma ekki við það sem félagar þínir segja.

Tilskipanir okkar voru skýrar: engum mátti hleypa í gegn.

-Er þið misstuð talstöðvarsamband... -Þá héldum við kyrru fyrir.

-Hugleiddirðu aldrei að hörfa? -Sem ég sagði fór ég að skipunum.

LÖGREGLA

Svo að þótt ástandið versnaði fylgdirðu upprunalegum skipunum?

Það er eðlisávísun mín að fara alltaf að skipunum.

Sem ég gerði.

Ég er þjálfaður til að fylgja fyrirskipunum.

Allt annað hefði valdið ringulreið.

Enn meiri ringulreið.

Og Karl Kronvall?

Hvar var hann á þeirri stundu?

SVIKINN

-Nærðu svefni heima? -Já, já.

Nema vekjaraklukkan nýfædda er sífellt að fara í gang.

Þú hefur ekki prófað að setja vodka í grautinn?

Bara ögn og þá sofa þau alla nóttina.

Mamma mín gerði það.

Það útskýrir ýmislegt varðandi þig.

51-14-20, frá 5-0, svaraðu.

51-14-20, Kungsportsbreiðgatan.

Beiðni um aðstoð vegna átaka við bar á Västra Larmgatan 21.

Västra Larmgatan 21. Móttekið. Erum á leiðinni. Skipti.

5-0, yfir og út.

Farið að innganginum Kieri, komdu með mér!

Róa sig nú!

-Róið ykkur aðeins. -Róið ykkur!

Komdu hérna!

Komdu með mér!

Hver fjandinn! Náðu honum!

Robert!

Robert! Johan!

Johan! Þú þarft að róa hann niður!

Hjálpaðu félögunum. Núna!

Hættu þessu! Burt héðan! Fjandinn sjálfur!

Andskotinn sjálfur! Safnaðu fjárans liðinu!

Svona nú! Allir aftur í bílinn!

-Hvað gerum við? -Í sambandi við hvað?

-Hann er tifandi tímasprengja. -Ha?

Ég held að hann þurfi aðstoð. Í alvöru.

Annars skaðar hann einhvern illa. Eða sjálfan sig.

-Við getum ekki látið sem ekkert... -Gerist? Takk. Ég veit þína afstöðu.

Jæja, strákar. Komið með mér.

-Kieri, þú kemur líka. -Já.

Núna strax!

-Hvað er í gangi? -Fundur í Stórafbrotadeild.

-Hví var mér ekki sagt það? -Fékkstu ekki sms? Komdu nú!

Við fengum ábendingu um nýtt gengi að selja kókaín í Gautaborg.

Það vantar smáatriði en við vitum að þeir notast við unga dreifendur.

Þeir selja til að kosta eigin neyslu. Geturðu dreift þessu?

Í nótt verður partí á leiðinni til Eklanda.

Það er ástæða til að ætla að margir áhugaverðir mæti þar.

Darius og hans menn ætla að ráðast til atlögu.

Gæslulið fimm og sex aðstoða. Darius?

Þetta er einfalt. Við auðkennum grunaða og fyrirskipum atlögu.

Spurningar? Gott. Sé ykkur. Takk!

Huss! Vert þú með bílnum á vettvangi.

-Er það ljóst? -Já.

-Að passa bílinn? Í alvöru? -Slepptu þessu.

Hann vill refsa mér.

-Þú ert að öðlast orðspor. -Hvað meinarðu?

Þeir segja þig ekki trúa liðinu.

Ha?

Hver segir það?

-Huss og Kieri, svona nú. -Já! Láttu þetta eiga sig.

Opnaðu.

Það er laust núna. Ég var bara að þvo hendurnar.

Aðgerðum er lokið. Engar handtökur.

Hvernig lukuð þið því svona hratt?

Óljóst. Við vorum varla komnir þegar þeir byrjuðu að fleygja efni.

Þeir hljóta að hafa fengið njósn.

Við vöktum enga athygli á okkur.

-Við gerðum ekkert óvenjulegt. -Kannski var það útlit ykkar.

Hvað meinarðu?

Þið lituð ekki beint út eins og krakkar í partíi.

Því miður,

en þið gætuð eins hafa letrað "lögga" á ennið.

Nokkuð til í því. Við finnum hentugri laumulöggur.

-Takk fyrir. -Ég skal gera það.

Ég er á þeirra aldri, ég er stelpa...

Auk þess lít ég ekki út eins og lögga. Í alvöru.

Leyf mér að reyna.

Mia, svona nú. Maður setur ekki nýliða í leyniaðgerðir.

Hún hefur enga reynslu.

Það er of hættulegt. Notaðu einhvern sem hefur reynslu af því.

-Hæ. Vildirðu spjalla? -Já. Komdu inn.

Ekki fást um Darius.

Hann er góður í sínu en hann veit að þú gætir orðið enn betri.

Sestu.

Þú virðist mjög áhugasöm um þetta verk.

Ég held að ég myndi standa mig vel.

Þú yrðir ekki í búning.

-Engin byssa, engin vörn. -Ég veit.

En mig langar mjög mikið að gera þetta.

Allt í lagi.

Þetta er Ella Nygren.

Við vitum ekki enn hvaða hlutverki hún gegnir,

en við höldum að hún gæti verið inngönguleið.

Hún er 22 ára, vinnur hlutastarf í fataverslun.

Fer í klúbba. Nálgastu hana undir fölsku nafni.

Við þurfum að laumast inn og ná í upplýsingar.

-Hæ. Ætluðum við að hittast? -Nei.

En ég heyrði að Katarina færi kannski í leyniverkefni.

Einmitt. Ég skal gefa ykkur tvær mínútur.

Veistu hvað þú ert að fara út í?

-Þú hvetur engan til afbrots. -Það stendur ekki til.

Þú mátt ekki leyfa einhverjum undir lögaldri að taka eiturlyf.

Þú mátt alls ekki taka dóp. Alls ekki!

Óttastu að ég verði þér til skammar? Ég hélt að þú yrðir ánægð.

Katarina, í alvöru. Þetta snýst ekki um þig og mig.

Má halda áfram?

Við fréttum á samfélagsmiðlum

að Ella verði í partíi á laugardag.

Þú nálgast hana þar. Nálgastu hana af varúð.

Þú þarft að öðlast traust hennar. Svo henni finnist þið vera líkar.

-"Helgisaga"? -Hvað?

"Helgiaga". Sjö stafir, enda á n.

Goðsögn.

Goðsögn... auðvitað.

-Var ferðin í lagi? -Jú. Ekkert mál.

Fínt.

Hvaða bíl keyri ég til baka?

Kannski einhvern sem kemst hratt í þetta sinn.

-Ha? -Hvaða bíl? Ek ég til baka?

Ó. Ég held að það séu engir bílar eftir.

Hvernig á ég að komast heim?

-Þú getur komið með mér. -Allt í lagi.

Gott.

Einhver sagði mér dálítið bilað um daginn.

Einhver sagði að þú hefðir sagt löggunum frá partíinu.

Ég sagði það kjaftæði. Jojo myndi aldrei svíkja mig.

-Við erum félagar, ha? -Já! Ég mun aldrei... hver sagði það?

Félagi myndi ekki stela skammti til eigin nota, ha?

Og reyna svo að dylja það með því að selja sig löggunni.

Það væri mjög heimskulegt.

Ég myndi aldrei tala við lögguna. Aldrei! Þú veist það.

Þú þekkir mig, Alex.

Veistu hvað? Við ræðum það í bílnum.

Komum.

-Flottur litur. -Ha?

-Varaliturinn. Hann fer þér. -Takk fyrir.

-Heyrðu... -Hvað?

Veistu um einhvern sem er að selja?

-Selja hvað? -Ég meina...

Í nös? Ég hélt að þú þekktir kannski einhvern...

Eða kannski selur þú?

Nei, ég sel ekki.

Fífl.

Já, ég veit ekki...

Ég klúðraði þessu. Ég fór of geyst í hlutina.

Ég hræddi hana burt.

Þú ert of hörð við sjálfa þig. Svona tekur tíma.

Í næsta sinn

reyndu þá að vera þú sjálf án þess að koma upp um þig.

Og ef hún er að selja þá er hún auðvitað á varðbergi.

Allir gætu verið á eftir henni. Leggðu inn skýrslu fyrir kvöldið.

Mia?

Ég vildi bara segja, takk fyrir að trúa á mig.

Áttu eld?

Takk.

Ég þekki þig.

Bíðurðu eftir einhverjum?

Jojo. En hann er alltaf seinn.

-Er hann vinur þinn? -Af hverju ertu að pæla í því?

-Hvað ertu að gera? -Slepptu mér!

-Svona. Komdu! -Hver andskotinn!

Fjandinn!

Andskotinn! Fjandinn!

-Hver fjandinn var þetta? -Piparúði.

-Ertu alltaf með hann á þér? -Ekki segja neinum. Það er ólöglegt.

Þú getur engum treyst.

-Ella. -Maja.

-Takk kærlega, Maja. -Er allt í lagi með þig?

Já en... andskotinn!

Fjandans.

-Viltu smá? Fáðu þér! -Nei, í alvöru...

-Ég ætti þetta ekki án þín. -Ég var á leið heim.

-Ertu viss? -Ég er viss, ég sver það.

Allt í lagi... slakaðu á!

Gösta vinur minn spilar á Club Chaos á föstudag.

Allt í lagi.

-Komdu, það verður stuð. -Já, sjáum til. Ég þarf að fara.

-Lokaðu dyrunum. Sé þig! -Þetta er upptekið.

Þetta svíður svo!

Það er betra núna. Ég hélt að þú myndir ekki nota alvöru piparúða.

Hann verður að vera alvöru svo að einhver trúi því.

-Takk kærlega! -Prófaðirðu mjólk? Það hjálpar.

-Ég prófa það. En þú skuldar mér. -Algerlega. Takk fyrir.

-Hæ. Komdu inn. -Hæ.

Sestu.

Gott. Nú vitum við að Ella Nygren er sú sem selur dóp.

Núna þurfum við bara að finna þann sem útvegar það.

Hvað notarðu sem yfirvarp?

Ég er grænjaxl. Var að flytja frá Solna.

Ég er að taka próf undir háskóla og ég er mikið fyrir partí.

Segðu næst að þig vanti peninga. Að þig langi að selja.

More Icelandic subtitles for Huss

Comments

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left