The first 200 lines.
Sagt er að til þess að segja sögu rétt
eigi að byrja á byrjuninni.
Of langt aftur? Jæja þá.
Þetta er ég, Harleen Quinzel.
Þegar ég var ung seldi pabbi mig fyrir bjórkippu.
Sama hve oft hann sparkaði mér...
Pabbi!
...kom ég alltaf aftur.
Á endanum fann hann nýtt heimili handa mér.
St. Bernadette-nunnurnar kenndu mér margt.
SKÍTHÆLL
En ég var aldrei mikið fyrir að lúta yfirvaldinu.
Ég stóð mig vel miðað við allt.
Ég fór jafnvel í háskóla.
Fékk doktorsgráðu.
Lenti nokkrum sinnum í ástarsorg.
Það er ekki auðvelt að finna ástina.
Ég vann baki brotnu...
ARKHAM-HÆLIÐ
...og varð geðlæknir.
Þar hitti ég hann.
Herra J. Jókerinn minn.
Ég kolféll fyrir honum.
Eins og úr flugvél án fallhlífar
og lenti beint á heimska smettinu.
Ég týndi sjálfri mér algjörlega.
Ég sá ekkert nema Krúttið.
Við þekkjum öll máltækið "að baki sérhvers farsæls manns
er grjóthörð gella."
Nú, það var ég.
Ég var heilinn á bak við mörg helstu afreka herra J.
En hann lét engan vita.
Krúttið mitt?
En öllu góðu lýkur um síðir.
Þannig að
við hættum saman.
Ég tók því á þroskaðan hátt.
En herra J var miður sín.
Ég fann æðislega nýja íbúð sem var alfarið mín eigin.
Þar fékk ég nægilegt andrúm til að hugleiða fyrri mistök.
KRÚTT-KYNSLÓÐ
Ég varð að finna mér nýja sjálfsvitund.
Nýja mig.
Það var ekki auðvelt.
En á endanum varð ég jafnvel opin
fyrir möguleikanum á nýrri ást.
Hæ.
Halló, elskan mín.
Málið með nýja ást er...
Þú getur borgað í blíðu.
...að hún þarf næringu.
Áður en langt um leið var ég komin aftur á ról.
Tilbúin að halda áfram og eignast nýja vini.
Henni er dauðans alvara.
-Hér kemur hún. -Sveiflaðu mér.
Henni er sveiflað áfram og hún brunar upp brautina.
Já! Koma svo!
Það var kominn tími fyrir Gotham að kynnast nýrri Harley Quinn
og ég lagði mig alla fram.
Taktu á súlunni eins og manninum þínum.
Andskotinn hafi það. Sestu niður.
Hvað segirðu?
Sestu á horaðan rassinn, heimska druslan þín.
Allt í lagi.
Þú fótbraust mig.
Æ, væli-væl.
Hvað?
Þetta er ekkert partí án drama, ekki satt?
Svona nú, hækkið í græjunum.
Skot í boði hússins.
Kallarðu mig heimska? Ég er með doktorspróf, fíflið þitt.
-Fröken Quinn. -Romy.
Þetta var bílstjórinn minn.
Obbosí.
Hann hefur átt sökina. Hann er rekinn.
Ég er þakklát.
Einkum þar sem ég veit að þér er illa við mig.
Ég kem róti á viðkvæmt andlegt jafnvægi hans.
Að ógleymdri sjúkri þörf hans fyrir að vera miðpunktur athyglinnar.
Kemur heitsveinn þinn í kvöld?
Ekki í kvöld, Romy. Ekki í kvöld.
Njóttu kvöldsins, fröken Quinn. Skilaðu kveðju til Jókersins.
Jæja, ég sagði engum frá sambandsslitunum.
En þið skiljið þetta ekki.
Finndu nýjan bílstjóra.
Það tryggði mér friðhelgi að vera kærasta Jókersins.
Ég gat gert hvað sem mér sýndist við hvern sem er
og enginn þorði að andmæla.
Ekki hlusta á neitt kjaftæði.
Þú verður að vera sterk.
Þau byrja aftur saman eftir nokkra daga.
Þótt ég reyndi að segja frá þessu trúði mér enginn.
Hún sagði að þau væru alveg hætt saman í þetta sinn.
Auðvitað, Shell.
Þess vegna er hún enn með ljóta J-hálsmenið.
Hún hleypur aftur til hans
um leið og hann smellir fingrunum.
Ef ekki til hans, þá til næsta alfakarls með hjartslátt.
Sumir eru ekki fæddir til að standa á eigin fótum.
-Fáum okkur að drekka. -Allt í lagi.
Ég þurfti einhvern veginn að sýna heiminum
að ég hefði endanlega sagt skilið við herra J.
Harley!
Sumir eiga Eiffelturninn og aðrir Olive Garden.
En við Jókerinn?
Ást okkar blómstraði í baneitraðri efnaverksmiðju.
ACE-EFNAVERKSMIÐJAN
Og ég var svo heppin
að fá bestu hugmyndirnar drukkin.
Ég fékk frábæra hugmynd.
Hver andskotinn! Heyrðu! Komdu aftur hingað.
Hérna hófst þetta, Krúttið mitt.
Drulludelinn þinn.
JANUS-SAMSTEYPAN
Þetta var uppgjörið sem ég þurfti.
Nýtt upphaf.
Tækifæri til að verða mín eigin frú.
En ég var ekki eina daman í Gotham sem þurfti frelsun.
Þetta er okkar saga.
En ég segi söguna og byrja þar sem mér sýnist.
FYRIR FJÓRUM MÍNÚTUM
Þetta er löggan.
Ég veðja 50 á klíkustríð.
Ekki hann.
Rangt, eins og vanalega, Munroe.
Hún. Renee Montoya.
Alin upp á lögguþáttum 9. áratugarins og alltaf að segja bull eins og...
Það var aðeins ein skytta.
Innandyra.
Þessi skaut í rúðuna.
Serrano.
Heyrðu.
Leitið að kúlu í bílunum fyrir utan.
Fyrir áratug leysti hún gríðarlega mikilvægt mál.
-Stamaði ég? -Farðu bara.
Félagi hennar á þeim tíma tók allan heiðurinn.
Hann varð yfirfulltrúi
en hún sat föst í rannsóknum með þessu fífli.
-Drap einn maður alla fjóra? -Bíddu við.
Það eru fjögur lík hérna.
Ég er að reyna að vinna.
Fyrirgefðu. Gjörðu svo vel að vinna.
Skyttan kom nær áður en hún tók upp byssuna. Sex kúlur.
Tvær á hvern þessara þriggja.
Borgaðu skuldina.
-Í alvöru. -Angelina er prinsessa.
Sjáið þetta. Er hrekkjavaka?
Hvað er títt?
Þetta snerist ekki um þá.
Þetta snerist allt um þennan.
Veistu hver ég er?
Helvítis tíkin þín.
Og örin í gegnum hálsinn...
Hún vildi að hann myndi deyja hægt.
-Hún? -Við fundum hársýni.
Og hann á nýjan morðingja.
Hver?
Roman Beauvais Sionis.
Jesús minn.
Montoya hérna. Hver skrattinn var þetta?
Fjandinn.
Ja, hérna.
-Fulltrúi. -Já?
Ég fann þetta hálsmen.
Fjandinn sjálfur.
Vel gert, lögregluþjónn.
Hvað er þetta?
Harley Quinn og Jókerinn eru hætt saman.
Hvað segirðu?
Þetta var þeirra staður.
Hún tilkynnti opinberlega breytta hjúskaparstöðu.
Harley Quinn var að gefa veiðileyfi á sjálfa sig.
Hún hugsaði þetta ekki til enda.
Ég hugsaði þetta alls ekki til enda.
Nú kemst ég að því hve margir í borginni vilja drepa mig.
Efstur á þeim lista trónir þessi maður.
Herra Keo ásamt yndislegri eiginkonu og dóttur.
Þú neyddir mig til að gera þetta.
Ég verð að segja að þú ollir mér vonbrigðum.
Ég var með frábæra söluræðu. Er það ekki?
Ég hélt bara...
Ég hélt að við gætum byggt upp eitthvað fallegt saman.
Ég hélt að við gætum orðið fjölskylda.
Ég skal frelsa þig.
Hvað með hana?
Við getum sleppt henni.
Þetta hljóta að vera nógu andskoti skýr skilaboð.
Elskan.
Ekki gráta.
Þakka þér fyrir. Þakka þér fyrir.
Ekkert að þakka.
Er þetta horbóla?
-Oj. Viðbjóður. -Hvað?
Ég skipti um skoðun. Skrælaðu hana.
Nei. Nei!
Brjálæðingurinn með dálætið á andlitsflysjun er Roman Sionis,
öðru nafni
Svarta gríman.
Ég hef ekki enn áttað mig á því að hann vilji mig feiga.
Ég var í hinum enda bæjarins,
No comments yet. Be the first to leave one.