The first 200 lines.
BERGMÁLSKANNI
MÓ/Ð/IR 9001 VAKNAR...
9. FEB 2142 ZETA2 NET-KERFINU
VIÐFANG Í FÆRI
TÍMI AÐ VIÐFANGI
VIÐFANG ÖRUGGT
ENDURKOMUFERLI HAFIÐ
Takið eftir, allt starfsfólk.
Dagvaktin hefst eftir 15 mínútur.
Bændur gefi sig fram í matsalnum.
Ef þið finnið fyrir einkennum eins og hita, hósta,
uppköstum eða öndunarerfiðleikum
skuluð þið fara í læknisskoðun.
Öryggi og velferð nýlendunnar skiptir Weyland-Yutani höfuðmáli.
Takið eftir, allt starfsfólk.
Heyrðirðu um geimfarann með innilokunarkenndina?
Hann var geymdur.
Nú verður þú að hætta.
Ég eyddi allt of miklum peningum í belti.
Ég er beltis-dýr.
Gefðu mér maísbrauðið.
Nú borða ég bara sjávarrétti.
Þarf að sjá rétti til að borða þá.
Þessi var hræðilegur.
Þú hlóst alltaf að honum.
Þegar ég var 12 ára.
Eflaust herra Finch.
Við skuldum þrjá mánuði.
Hann hringir aftur.
Kannski verðum við farin þegar hann hringir.
Andy, vertu nálægt mér.
Vaknið. Vaknið strax.
Við erum öll þrælar Weyland-Yutani.
Þau gefa okkur mat og húsaskjól í skiptum fyrir líf okkar.
JACKSON-NÁMUNÝLENDAN ÍBÚAFJÖLDI: 2.781
65 LJÓSÁR FRÁ JÖRÐU 0 SÓLSKINSSTUNDIR
Ekki trúa lygum þeirra.
Þau eiga ykkur!
Andy. Hey, hey.
Andy, komdu hingað.
- Hvað gerði ég? - Þetta er svindl.
Þú velur aldrei rétt.
Það er brella.
Hvernig fæ ég þá peningana?
Fyrir hverju?
Til að kaupa hestinn þegar við komum til Yvaga.
Ætlarðu að kaupa hest?
Ég ætla að nefna hann Raindy.
Skilurðu?
- Raindy. - Það er flott nafn.
Bíddu þarna eftir mér.
Ég verð smástund.
NÝLENDUMÁLASTOFNUN
Ekki lenda í vandræðum.
Allt starfsfólk fær þjónustu.
Gangi þér vel.
Myndið einfalda röð.
Næsti.
Fullt nafn og atvinna.
Marie Raines Carradine. Landbúnaður.
Það er ferðaleyfið.
KVÓTI UPPFYLLTUR
Ég uppfyllti kvótann og er frjáls.
Ekki satt?
Hvert viltu fara?
Til Yvaga.
Það er sjálfstætt kerfi en fyllilega jarðbreytt.
Þar er hægt að sjá til sólar.
Hvar eru foreldrar þínir?
Þeir létust fyrir þrem tímabilum.
Vegna lungnasjúkdóma eftir námuvinnu.
Við bróðir minn erum ein.
Þau selja okkur von til að halda okkur í þrældómi.
Þau selja okkur von til að halda okkur í þrældómi. Vaknið nú.
Þú hefur ekki unnið nóg til að losna strax.
Vegna skorts á starfsfólki ferðu í námurnar.
Hvað segirðu?
Nei, ég uppfyllti kvótann.
Þið verðið að sleppa mér.
KVÓTI UPPFYLLTUR
Því miður var kvótinn hækkaður upp í 24.000 stundir
svo þú losnar eftir fimm til sex ár.
Takk og mundu að við erum þakklát
fyrir þjónustu þína.
- Rain! - Heyrðu!
Hættið þessu!
Látið hann vera, fíflin ykkar!
Ég er hjá þér.
Þér blæðir.
Allt í lagi.
Þetta er í lagi.
Ég endurstilli þig.
Ég er hjá þér.
Allt í lagi.
Hefði ekki átt að láta þig einan.
Þau selja okkur von til að halda okkur í þrældómi.
Vaknið nú. Þau eiga ykkur.
Hæ, Rain.
Ég hef hringt í allan dag
en það kom dálítið upp á sem þú þarft að vita.
Komdu að hjólhýsunum og taktu Andy með þér.
Hæ.
Fjand...
Leik lokið, maður.
Hvað segirðu, Rain? Langt síðan síðast.
Ég sagði að hún kæmi.
Skuldar mér 5 dali.
Andy!
Því gekk blindi maðurinn á staur?
Af hverju?
Hann var staurblindur.
Ekki ýta undir þetta.
Farið inn. Ég kem rétt bráðum.
- Kay. - Rain.
- Hæ. - Hæ!
Hæ.
Ég hef saknað þín.
Bróðir minn saknaði þín líka.
Gott að þú komst.
Ég heyrði þetta um pabba ykkar.
Ég samhryggist.
Það eru haglstormar og stöðugir nýir sjúkdómar...
Allir að deyja.
Eigum við að sýna henni?
Sýna mér hvað?
Í gærkvöldi hlóðum við síðasta Tesótekið
í kringum 320 km hæð þegar skyndilega...
Halarinn nam merki.
Navarro rakti merkið
að stóru Wey-Yu-skipi á reki fyrir ofan okkur.
Á reki?
Óvirkt. Yfirgefið.
Gamalt drasl. Skemmt eða úrelt.
Eins og þessi þarna.
Bjorn.
Segðu henni það bara.
Því sitjum við hérna
og bíðum eftir ferðaleyfum sem fyrirtækið veitir aldrei?
Halarinn kæmi okkur til Yvaga.
En það tekur níu ár að ferðast til Yvaga
og það er ekki hægt án kælisvefns.
Óvirk skip eru enn full af nothæfum búnaði.
Tengingin sýnir að þarna eru nokkur hylki.
Viljið þið brjótast inn í fyrirtækisskip og stela eftirlitsskyldum búnaði?
Á undan einhverjum öðrum.
Þið eruð klikkuð.
- Auðvitað. - Nei.
Eins og ég sagði.
Hjálparðu okkur?
Til hvers þurfið þið mig?
Andy.
- Við þurfum að nota Andy. - Andy?
Já.
Hann er Weyland-Yutani-gervingur og talar Móðurtunguna.
Hann tengist skipstölvunni og kemur okkur inn og út.
Það er eina leiðin.
Hvað ef við verðum gómuð?
Þá fáum við aldrei ferðaleyfi.
Jæja, Rain kemur ekki með.
En megum við taka Andy?
Ég sendi bróður minn ekki einan upp.
Hann er ekki bróðir þinn.
- Þegiðu, Bjorn. - Er það ekki satt?
Hann er Wey-Yu-skran
sem pabbi þinn fann í ruslinu.
Það er allt og sumt. Vaknaðu.
Förum.
- Rain? - Ég sagði ekkert.
Bíddu, Rain.
Frændi minn getur verið algjör deli.
En hann sagði eitt rétt.
Þú þarft að vakna.
Fyrirtækið gefur okkur ekki neitt.
Við vitum það bæði. Við þurfum að taka það.
Rain, ég...
Ég vil ekki enda eins og foreldrar okkar.
Vilt þú það?
Verður þetta eins einfalt og þið látið það hljóma?
Þú getur beðið í Corbelan.
Ég get lofað þér því.
Gerðu það. Hvað segirðu?
Bjorn, flýtum okkur.
Ég ræsi skipið. Rafmagnið á.
Dásamlegt.
Vetnishreyflar, takk?
Fjarskiptabúnaður.
Jarðlyftispillar.
Þeir eru virkir.
Fyrsta geimferðin?
Já.
Þú líka?
Eldsneytisdæla.
- Kveikt. - Tvær geimjómfrúr hérna.
Skoðið vel út um gluggann
því við komum aldrei aftur hingað.
Allt í góðu?
Allt í góðu.
Þetta heppnast.
Er þetta góð hugmynd?
Já, pabbi.
No comments yet. Be the first to leave one.